Helgarpósturinn - 29.12.1994, Síða 19

Helgarpósturinn - 29.12.1994, Síða 19
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN INNLENDUR ANNÁLL 19 Menningin Islensk menning flutt aflandi brott og kemur vart heim nema sem gestur Þegar öll kurl koma til grafar þá gerðist nánast ekki neitt í íslenski menningu á sjálfu afmælisári lýð- veldisins. Ekki nema helst það að svo virðist sem íslensk menning sé endanlega flutt af landi brott. Kristján Jóhannsson hélt áfram að vinna sín afrek í úrlöndum og leyfði okkur að finna reykinn af réttunum. Sigurför Bjarkar heldur áfram og hún skaust aðeins heim að syngja. Erró er samur við sig í útlandinu en gaf sér samt tíma að sýna sunnan og norðan heiða. Ól- afur Jóhann skrifar undir milljóna samninga við risaforlög vestan hafs og austan en gleymir samt ekki Vöku-Helgafelli. Þetta er það nú markveraðst sem gerðist í íslenskri menningu og lisrtum á árinu: ís- lendingar fengu sýnishorn af því hvað þeirra fólk var að dunda við úti í heimi. Minni spámenn fylgdu í kjölfar þessara fjórmenninga og þá með hjálp Jakobs Frímanns Magnús- sonar. I lok ársins kom fram að á tæpum þremur árum hefur honum tekist að flytja út til London á ann- að þúsund íslenskra listamanna að sýna list sína þar. Og skal þá engan furða þótt' tómlegt kunni að vera orðið í listasölum hér heima. Ríkisendurskoðun vildi fetta fingur út í þessa þjóðflutninga Jak- obs og setti af stað rannsókn á með- ferð hans á menningunni. Þar er sú íslenska menning nú, í rannsókn hjá ríkisendurskoðun. Og er von- andi að starfsmenn hennar finni hana í brúklegu formi. Margrét S. Björnsdóttir Flengdi félags- málaráðherra fyrir opnum tjöldum Margrét S. Björnsdóttir, í Félagi frjálslyndra jafnaðar- manna, var beinskeytt og harð- orð í garð Guðmundar Árna Stefánssonar og það var ekki henni síst að þakka að fyrrum fé- lagsmálaráðherra hrökklaðist úr embætti. Hún lét kné fylgja kviði og spurði „hvernig hægt væri að fyrirgefa manni sem ekki iðraðist einu sinni?“ Skemmtilegast á árinu? Ge/r Waage, prestur í Reykholti „Það fóru aftur af stað framkvæmdir við kirkjubygginguna í Reykholti. Það var mjög skemmtilegt að fá að leggja því málefni lið. Brátt sjáum við fyrir endann á þeirri smíð og komumst vonandi inn í kirkjuna fyrir næstu jól.“ Einkennilegast á árinu? Eirtar Örn Benediktsson, fyrrverandi póstbifreiðastjóri „Að haldið hafi verið upp á fimmtíu ára afmæli lýð- veldisins á 17. júní fannst mér einkenni- legast. Hefði verið haldið upp á afmæl- ið 18. júní hefðu allir komist á Þingvöll og ekki orðið nein stappa." Skrýtnast á árinu? Edda Björgvinsdóttir, leikari „Nýjasta galdrabrenna Sjálf- stæðisflokksins þar sem menningarfulltrúi (slend- inga í Lundúnum og nú- verandi sendiherra er sá sem á að fórna. Það er alkunna og opinbert leyndarmál að um ára- tuga skeið hefur verið hefð fyrir því að sendiráð íslensku þjóðarinnar séu not- uð sem eins konar pólitísk hæli; ýmist hvíldarparadís eða elliheimili fyrir fyrrverandi pólítíkusa sem hafa í eigin flokki orðið annað hvort óþægi- legir, óferjandi eða eru orðnir aldraðir eða drykkfelldir fram úr hófi. I besta falli hafa sendiráðin verið notuð fyrir pólitísk dekurbörn sem hvorki hafa verið til þæginda né óþæginda fyrir einn né neinn. Svo gerist það þegar skipaður er atorkusamur menningar- fulltrúi við sendiráðið í Lundúnum að allt verður stjörnuvitlaust. Þegar þessi menningarfulltrúi tekur upp á því í meira mæli og með sýnilegri ár- angri en nokkurn tímann áður hefur gerst, að kynna íslenska listamenn og koma þeim á framfæri í útlönd- um, koma á viðskiptasambönd- um, kynna íslenskt hugvit sem ætti að vera skyldu- starf allra íslenskra sendiherra, að ákveðið er að gera atlögu að honum með því að gera störf hans tortryggi- leg og hefja op- inbera endur- skoðun og rann- sokn á bókhaldi hans í kastljósi fjölmiðla. Ég vil benda á að hingað til hefur enginn gert at- hugasemd eða farið fram á opinbera rannsókn á störfum á eyðslusemi sendiráða í öðrum löndum. Enginn hefur hingað til gert athugasemndir við hrikalega eyðslu í húsakosti, sundlauga- byggingum og má þar nefna nýjasta dæmið í Washington, hús- gagnakaup eða við vita óþarfar og rándýrar veislur og taumlaus brenni- vínsinnkaup í sendiráðum Islands er- Neyðarlegast á árinu? Guðrún Ögmundsdóttir, borgarfulltrúi „Hinn mikli dans utanríkisráðherra- hjónanna; Bryndísar og Jón Baldvins í Brussel, er það neyðarlegasta sem ég hef augum barið á árinu.“ lendis. Árangurinn af rekstri þessara sendiráða sem hefur ekki svo vitað sé skilað neinu fyrir land og þjóð. En loksins þegar einhver Ijós- glæta birtist í Englandi er ein- staklingurinn sem á heiðurinn skilið tekinn af lífi með dyggri aðstoð fjölmiðlaskrímslanna eins og þau gerast verst.“ Hlægilegast á árinu? KarlÁgúst Úlfsson, leikstjóri „Einna hlægilegastar finnast mér út- komurnar úr prófkjörum sem hafa verið að dynja yfir okkur undanfarnar vikur. Einkum viðbrögð þingmann- anna sem sparkað hefur verið út af framboðslistum. Það síðasta sem þeim dettur í hug er að eitthvað sé að þeim sjálfum. í fyrsta lagi kenna þeir mótframbjóð- endum um og tala um hvað þeir eru stórlega gallaðir og jafnframt sem þeir kenna um óheiðarlegu baráttuaðferðum þeirra. í öðru lagi hafa þeir tilhneigingu til þess að skella skuldinni yfir á kjós- endur sem hafa þjónað þeim kannski í áratugi og telja þá einnig meingallaða. Einna hlægilegast er þegar þeir hlaupa til og stofna nýja flokka þar sem þeir telja að kjósend- urnir verði skynsamir.“ Ofmet- ið á ár- inu? Birgir Andrésson, myndlistar- maður „Þessi menningarlega og andlega innsýn landans á sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi." Hetíur i, sem, letust a arrnu Albert Guðmundsson Vinur litla mannsins bráðkvaddur Albert Guðmunds- son lyrrverandi ráð- herra, sendiherra og atvinnumaður í knattspyrnu var bráðkvaddur í vor en hann hafði gefið í skyn að hann tæki þátt í borgar- stjórnarkosningunum. Albert var sjálfskipaður fulltrúi litla mannsins í baráttu hans gegn kerfinu og einn af litríkari stjórnmálamönnum þjóðarinnar fyrr og síðar. Dagur Sigurðarson Dagur að kveldi kominn Dagur Sigurðarson skáld lést langt fyrir aldur fram þann 20. febrúar síðastliðinn. | Dagur var bóhem fram í fingurgóma og í fremstu röð íslenskra ljóðskálda. Lúðvík Jósepsson Skarð í raðir sósíalista Lúðvík Jósepsson, fyrrum ráðherra og formaður Alþýðu- bandalagsins, fór yfir móðuna miklu á haustmánuðum. Lúð- vík var einn af síðustu eftirlifandi sósíalistunum af gamla skólanum og framganga hans sem sjávarút- vegsráðherra í þorskastríðinu 1974 vakti rnikla athygli. Stefán frá Möðrudal Stórval allur Stefán frá Möðru- dal kvaddi þennan heim um mánaða- mótin júlí/ágúst. Stef- án, eða Stórval eins og hann kallaði sig, var einn af afkasta- mestu málurum þjóðar- innar og setti skemmtilegan svip á mannlífið í Reykjavík. Hann heyj- aði á Austurvelli og spilaði á nikk- una í Austurstræti, íbygginn á svip með kaskeiti á höfði. U—m—m—æ—I—i---á—r—& Krataanáll ársins „Siðareglur má teygja, toga og að lokutn skýla sér bak við.“ Halldór E. Sigurbjörnsson kraftakrati í Alþýðublaðinu 22. desember. — Og þú líka Bryndís „Éggeri þettafyrir þig, ogþá gefur þú mér atkvœði í nœstu kosning- um.“ Erþað ekkiþannigsem kaupin gerast? Maður fcer ekki betur séð, að þannig hugsi meiginþorri þing- tnanna." Bryndís Schram í bréfi til Árna John- sen í desember. Já en treysta þeim til hvers? „Efþetta er stœrsta lygi aldarinnar þá er nú aldeilis hcegt að treysta stjórnmálamönnum. “ Guðrún Helgadóttir alþingismaður í desember. Hvemig ætli biblían hans líti út? „Ég skal viðurkenna að ég bcetti smávcegilega inn í tillöguna til að skerpa hana. “ Guðmundur J. Guðmundsson verka- lýðsforkólfur í nóvember. Var það barið inn í hana? „Guðrúnu var kotnið í skilning um að vinsœldir hennar hafa dvttiað. “ Auður Sveinsdóttir allaballi í Morgunpóstinum 8. desember. Eftir allt það sem sveita- menn hafa mátt þola í bíó- myndum... „Viðfórum ogtöluðum viðfjárlaga- nefnd um daginn og þetta eru allt sveitamenn sem er andskotans sama um þetta borgarpakk sem er að gera bíótnyndir. “ Bryndís Schram borgarbarn. Og svo fer maður bara í meiðyrðamál „Maðuritm er illur í eðli sínu og grimmur.“ Hrafn Gunnlaugsson í bókinni sinni. — Og alþingi er fullt af ójörðuðum þingmönnum „Kirkjugarðarttir erufuUir af ómiss- andi þingmönnum.“ Sveinn Allan Morthens í Alþýðublaðinu 22 nóvember. Kemur lyktin upp um þá? „t dagfinn ég til ótta við að vita af lögreglu nálægt, ég verð að viður- kenna það.“ Linda Pétursdóttir í DV í nóvember. Henni var I „Það sem ég tel vera alvarlegast við málið í þessu öllu og það sorglegasta, er aðfólk með reynslu settt kotnið er yftr sextugt er sett út í kuldann í stjórnmálum á íslandi.“ Salome Þorkelsdóttir í Morgunpóstinum 7. nóvember. Þaðfer eftir stemmningunni „Það er náttúrlega álitamál hversu langt eftir lœrinu hnéð nœr.“ Halldór Jónsson ökukennari i Morgunpóstinum 31. október. En stjómmálamenn? „Þetta gera menn ekki.“ Davíð Oddsson í sjónvarpsfréttum 9. nóvember. Eigum við ekki bara að segja að þeir hafi farið í eitthvað skemmtilegt? „Égget ekki svarað því nákvœmlega hvertþessirpeningar hafafarið þó að Ijóst sé að þeir hafa farið í að greiða útgjöld hátíðarinnar." Arnór Benónýsson veisluhaldari í október. i—n—5 Gullvæg regla „Nú brýtur Illttgi Jökulsson afsér og þá skal reka Hattnes Hólmstein Gissurarson.“ Hannes Hólmsteinn Gissurarson i október. Hún er ofur skiljanleg „Ég hef ekkert aðfela en skil þessa tortryggni. “ Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra i október. Já, en hvenær? „Minn tími tnun komafj Jóhanna Sigurðardóttir á flokksþingi krata. annáll JÚNÍ 29. júní Dian Valur Dentchev neytir fæðu eftir lengsta hungurverkfall íslands- sögunnar en það stóð í 49 daaa. Fransk- ur brennuvargur misþyrmnir Olafi Gunn- arssyni, „höfuðpaumum" í stóra fíkni- efnamálinu í Siðumúlafangelsinu. 30. júní Ámi M. Mathiesen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Guðmund Árna Stefánsson, félagsmálaráðherra, ekki vera starfi sínu vaxinn. Bræðurnir Jón Baldvin og Ólafur Hannibalssynir deila harkalega um pólitík opinberlega. JÚLÍ 3. júlí Gæðingurinn Gýmir felldur eftir að hafa fótbrotnað I keppni á Landsmóti hestamanna. 4. júlf Davíð Oddsson aflýsir kreppunni þegar hann kynnir nýja þjóðhagsspá. Hart deilt um meinta fölsun víkingaaldar- sjóðsins frá Miðhúsum. Eftirlitsstofnun EFTA kemst að þeirri niðurstöðu að inn- flutningseinokun ÁTVR stangist á við EES-samninginn. Jafet S. Ólafsson, úti- bússtjóri íslandsbanka, ráðinn útvarps- stjóri íslenska útvarpsfélagsins hf. Eggert Skúlasyni fréttamanni Stöðvar 2 sagt upp störfum af Elínu Hirst vegna setu hans í stjóm Islenska útvarpsfélagsins. 7. júlí Jörmundur Ingi Hansen settur í embætti allsherjargoða eftir að hafa borið sigurorð af Hauki Halldórssyni I kosning- 10. júlí Jóhanna Sigurðardóttir leggur af stað í ferð um landið til að kanna hug fólks til sérframboðs. 11. júlí Upplýst að þjóðargersemar hafa glatast hjá Þjóðminjasafninu. 18. júlí Fram kemur að Valgeir Víðisson hafi fengið morðhótanir áður en hann hvarf 19. júní. 26. júlí Niðurstaða fengin í Gýmismál- inu, allt bendir til að hestinum hafi verið gefin lyf skömmu fyrir keppni. 28. júlí Electrolux lýsir yfir áhuga á að byggja fjölnota íþróttahöll. 31. júlí Rúta veltur í Vatnsskarði með 34 erlenda ferðamenn innanborðs. 11 þeirra eru fluttir á sjúkrahús. ÁGÚST 2. ágúst Farið að ræða möguleikann á haustkosningum fyrir alvöru. 3. ágúst Tilkynnt að Jakob Frimann Magnússon verði sendiherra frá og með áramótum. 5. ágúst Stýrimaður á Hágangi II hleypir skoti af haglabyssu jiegar norsk strand- gæsluskip sækja að togaranum. Há- gangur færður til hafnar í Noregi. 7. ágúst Davíð Oddsson ræðir við for- menn stjórnarandstöðuflokkanna um haustkosningar. 8. ágúst Davíð Oddsson gefur út þá yfir- lýsingu að líkumar á haustkosningum hafi minnkað verulega í kjölfar viðbragða Al- þýðuflokksins við umræðunni. 9. ágúst Norskur dómstóll ákveður að sækja útgerð Hágangs II ekki til saka fyrir ólöglegar veiðar. 15. ágúst 32 íslensk skip að veiðum eða á leið ( eða úr Smugunni. Snarpur Jarð- skjálfti í Hveragerði, 4 stig á Richters- kvarða. 16. ágúst Fleiri jarðskjálftar í Hveragerði, þeir sterkustu upp á 3 og 4 stig á Richter. Gunnar G. Schram telur að stefna beri Norðmönnum fyrir alþjóðadómstólinn í Haag vegna Smugumálsins. 25. ágúst Fimm dæmd í „stóra fikni- efnamálinu". Hinrik Bragason, eigandi Gýmis, útilokaður frá þátttöku í þýskum hestamótum. Norska fyrirtækið NFO- gruppen kaupir allan lax í Miklalaxi hf. og lýsir yfir áhuga á að kaupa aðrar eignir fýrirtækisins. 28. ágúst Flugvél ferst i Borgamesi, tveir menn láta lifið. Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Bíódagar, valin besta kvikmynd Norðurlanda á kvikmyndahátíð í Haugasundi. Fréttir berast af ævintýra- legum launum Kristjáns Jóhannssonar fyrir að syngja I Valdi örlaganna i upp- færslu Þjóðleikhússins. Tónlistarmenn við Þjóðleikhúsið undirbúa verkfallsað- gerðir. SEPTEMBER 8. september 6 Bandarikjamenn koma til islands til viðræðna um byggingu sink- verksmiðju. 27. september Kristrún Kristinsdóttir, fulltrúi sýslumannsins á Akranesi, fer skriflega fram á greiðslur fyrir störf sin sem staðgengill sýslumanns umfram það sem henni ber skylda til samkvæmt kjarasamningum, en henni reiknaðist til að sýslumaður hefði verið fjarverandi í 150 daga af 250. 28. september Þorkell Helgason, fyrr- verandi aðstoðarmaður heilbrigðisráð- herra, gerir athugasemd við staðhæfing- ar Guðmundar Ama um starf aðstoðar- manns hans, Jóns H. Karlssonar, og seg- ir þær rangar. Páll Sigurðsson, ráðuneyt- isstjóri, segir að Guðmundur Ámi hafi óskáð eftir því að réttindi Bjöms Önund- arsonar, tryggingaryfirlæknis, voru reikn- uð út við starfslok hans þvert ofan í það sem ráðherrann hafði áður haldið fram. 29. september Fjögurra manna áhöfn bjargað af Hugborgu SH 87 eftir að bát- urinn strandaði skammt frá Hellissandi.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.