Helgarpósturinn - 20.02.1995, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
9
Arni Samúels-
jársterka menn
edd
Jónsson hjá Pósti og síma að þetta
yrði lokað kerfi: „Engu að síður
geta allir sem vilja senda eitthvað út
fengið aðgang að ljósleiðarakerfmu.
Kerfið verður bæði opið fyrir nýja
aðila og aðra sem þegar eru á mark-
aðnum. Ég hefði til dæmis ekkert á
móti því að Stöð 2 og Ríkisútvarpið
og/eða nýir aðilar sem vilja sendu
út dagskrá sína í gegnum ljósleiðara
Pósts og síma.
Það er ekkert launungarmál að
Árni Samúelsson, sem rekur Sam-
bíóin, hefur rætt við okkur um nýja
sjónvarpsstöð, auk þess sem Stöð 2
og Ríkisútvarpið hafa sýnt þessu
máli áhuga. Á hinn bóginn hefur
enginn þessara aðila tekið endan-
lega ákvörðun og mun sjálfsagt ekki
gera fýrr en við höfúm stigið þetta
fyrsta tilraunaskref."
Mun Póstur og sími einnig inn-
heimtafyrir rétthafa?
„Það kemur vel til greina. Póstur
og sími hefúr ekkert á móti því að
gera það fyrir hvern sem er.“
Þótt ekki sé búið að taka endan-
lega ákvörðun um það hvaða hverfi
Árni Samúelsson, bíókóngurinn
úr Breiðholtinu, er einn aðal-
áhugamaðurinn um nýja „alvöru"
sjónvarpsstöð. Ekki er útilokað
að tilraunaútsendingar frá nýrri
sjónvarpsstöð hefjist á þessu ári.
verði fyrst kapalvædd taldi Jón Þór-
odddur líklegt að það yrðu Grafar-
vogur, Garðabær, Hafnarfjörður og
Breiðholt. Tilboð í ljósleiðara og
kóaxstrengina verða opnuð 14.
rnars og verður þá strax hafist
handa.
-GK
Mikið var skrafað og ráðgert á göngum Karphússins í gærkvöldi. A
myndinni sést Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasam-
bands íslands, á tali við tvo fulltrúa Verkamannasambandsins, þau El-
ínbjörgu Magnúsdóttur frá Akranesi og Guömund Finnsson frá Kefla-
vík.
Tíminn er orðinn naumur ef kröfur Verka-
mannasambands íslands um lagasetningar
um réttindamál eiga að ná fram að ganga
Tíminn að
renna út
Aðmati Magnúsar Gunnarssonar, formanns
Vinnuveitendasambandsins.
Fundað var í Karphúsinu alla
helgina og að sögn Magnúsar
Gunnarssonar, formanns Vinnu-
veitendasambands Islands, átti að
halda áfram samningaviðræðum
fram á morgun ef með þyrfti.
Magnús sagði fullljóst að ef samn-
ingar næðust ekki fyrir hádegi í dag
hefðu báðir aðilar misst af tækifær-
inu til að semja innan viðsættanlegs
tíma. „Ef Verkamannasambandið
vill ná fram þeim lagabreytingum
sem það hefur farið fram á, og
reyndar lagt ríka áherslu á að ná í
gegn, þá verða þeir að semja í nótt
eða fyrramálið. Forsætisráðherra
hefur sagt það skýrt og skorinort að
engar slíkar lagabreytingar verði
gerðar fyrr en samningar hafa náðst
um kaupkröfurnar, þannig að það
er einfaldlega ekki tími til lengri
viðræðna, þar sem þingi fer að
ljúka.“ Klukkan tíu í gærkvöldi
hljóðaði tilboð VSÍ upp á 3.700
króna hækkun á lægstu taxtana,
auk 3 prósenta hækkunar á öll laun
um næstu áramót. Krónutölu-
hækkunin á að fara stiglækkandi á
öllum töxtum upp að þeim sem
mæla fyrir um 82.000 króna mán-
aðarlaun, en allir taxtar þar fyrir of-
an koma til með að hækka um
2.700 krónur. „Þetta er umtalsverð
hækkun á lægstu töxtunum, það
held ég að sé alveg ljóst,“ sagði
Magnús, „og með þessu erum við
komnir alveg á ystu nöf, við getum
ekki gengið lengra í þessum málurn
án þess að stefna stöðugleikanum í
voða. Það ber að líta til þess að
þetta er raunveruleg hækkun á
kaupmætti fólks, en ekki hækkun
sem verður étin upp með verð-
bólgu og gengisfellingu strax og
samningar hafa verið gerðir.“ Það
mátti greina af tali Magnúsar að
VSl væri ekki til viðræðu um nein-
ar beinar kauphækkanir umfram
þessar krónutöluhækkanir og að
Verkamannasambandinu hefði
þannig í raun verið settur stóllinn
fyrir dyrnar. Samningamenn
Verkamannasambandsins verða að
sætta sig við þetta tilboð, en verða
af lagasetningu um réttindamál sín
ella, á þessu kjörtímabili í það
minnsta. Elcki náðist í neinn tals-
mann Verkamannasambandsins,
en fulltrúar þess sátu á lokuðum
fundi í Karphúsinu og ræddu sín
mál þegar blaðið fór í prentun.
-æöj
Suöurnes
Stal bíl og ók á
ofsahraðafrá
Festi út á Álftanes
Maður um þrítugt stal bíl fýrir an í Hafnarfirði handtók
utan Festi í Grindavík klukkan hann.
rúmlega þrjú aðfaranótt sunnu- Maðurinn er talinn hafa
dags, en þar hafði farið fram dans- verið ölvaður og var hann
leikur. Þaðan ók hann á ofsahraða sendur til Keflavíkur þar
eftir Keflavíkurveginum sem leið sem hann er búsettur. ■
liggur út á Álftanes þar sem lögregl-
Fjórðungssamband Vestfjaröa
Eiríkur Finnurtek-
ur við af Jóhanni T.
ni
ablað-
inu er talið líklegast að Eiríkur
Finnur Greipsson, fram-
kvæmdastjóri á Flateyri og hægri
hönd bjargvættsins Einars Odds,
verði næsti framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Vestfjarða.
Starfið var auglýst laust til umsókn-
ar á dögunum og sótti nokkur
fjöldi reyndra sveitarstjórn-
armanna um.
Jóhann T. Bjarnason
er núverandi framkvæmda-
stjóri en lætur brátt af störf-
um fyrir aldurs sakir eftir
langt og farsælt starf.
-Bih
"EVOSTIK
POTTÞÉTT ÞÉTTIEFNI
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295
Deildarstjóri
ökunámsdeildar
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra ökunáms-
deildar. Umferðarráð mótar námskröfur fyrir allt
ökunám í landinu, sinnir eftirliti með ökunámi og
sér um ökupróf. Deildarstjóri ber faglega ábyrgð á
skipulagningu þessa starfs auk áætlanagerðar fyrir
deildina og mótunar rannsókna á sviði ökunáms.
Ætlast er til að deildarstjóri hafi háskólapróf í
kennslu- eða sálarfræðum auk stjórnunarreynslu
eða sambærilega menntun og starfsreynslu.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Uppl. veitir Ingólfur Ásgeir Jóhannesson# deildar-
stjóri ökunámsdeildar, sími 562 2000.
Umsóknir berist merktar Óla H. Þórðarsyni fram-
kvæmdastjóra eigi síðar en 20. mars nk.
UUMFERÐAR
RÁO