Helgarpósturinn - 20.02.1995, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN SPORT
31
NBA-boltinn
Charlotte malaði Detroit
Larry Johnson var i banastuði með
Charlotte Hornets er liðið rúllaði yfir
Detroit Pistons um helgina. Hann
skoraði tíu af 29 stigum sínum i þriðja
leikhluta og lagði grunninn að örugg-
um sigri Charlotte. Hinn smávaxni
Muggsy Bogues átti góðan leik,
skoraði 14 stig og var með 11 stoð-
sendingar. Um helgina fóru fram fjöl-
margir leikir í NBA-körfuboltanum.
Úrslit um helgina
New York - Miami 100:91
Orlando - Philadelphia 129:83
Washington - Houston 92:109
Phoenix - Golden State 128:139
Chicago - Detroit 117:102
Dallas - Atlanta 90:110
Portland - Seattle 114:109
LA Clippers - Boston 127:121
Minnesota - Indiana 78:110
Charlotte - Detroit 110:88
New Jersey - Cleveland 75:82
Philadelphia - Denver 95:89
Milwaukee - Chicago 118:111
San Antonio - Atlanta 111:97
Utah - Boston 108:98
Golden State - Seattle 117:129
Sacramento - LA Clippers 109:92
Staðan Atlantshafsdeild Orlando 39 11 .780
New York 32 17 .653
Boston 20 30 .400
New Jersey 21 32 .396
Miami 18 31 .367
Philadelphia 15 36 .294
Washington 12 36 .250
Miðdeild Charlotte 32 19 .627
Cleveland 31 19 .620
Indiana 29 20 .592
Chicago 25 26 .490
Atlanta 24 27 .471
Milwaukee 20 31 .392
Detroit 18 32 .360
Miðvesturdeild Utah 37 14 .725
San Antonio 32 16 .667
Houston 32 17 .653
Denver 20 29 .408
Dallas 19 29 .396
Minnesota 12 38 .240
Kyrrahafsdeild Phoenix 39 11 .780
Seattle 35 14 .714
LA Lakers 30 17 .638
Sacramento 28 20 .583
Portland 26 22 .542
Golden State 5 34 .306
LA Clippers 9 42 .176
Körfuboltinn
29. umferð úrvalsdeildarinnar
ÍA-Skallagrímur 81-96
Sjónvarpsleikurinn á Stöð tvö bauð
ekki upp á skemmtilegan körfubolta.
Skagamenn eru líklega með lélegasta
lið deildarinnar um þessar mundir og
áttu Skallagrímsmenn þvi ekki í mikl-
um vandræðum með að afgreiða þá.
Það lítur út fyrir að Skallagrímsmenn
þurfi að vinna alla leiki sem eftir eru í
vetur til að tryggja sér annað sætið í
A-riðli. Pórsarar eru aðeins tveimur
stigum á eftir þeim og eiga auðveldari
leiki eftir. Það lítur allt út fyrir að leikur
Þórs og Skallagríms þann 26. febrúar
muni endanlega skera úr um hvort lið-
ið hreppir annað sætið.
Haukar-Þór Akureyri 98-113
Þór innbyrti þarna mikilvægan sigur á
Haukum. Stigahæstir voru Kristinn
Friðriksson sem skoraði 38 stig fyrir
Þór og Jón Arnar Ingvarsson sem var
með 24 fyrir heimamenn. Þórsarar eru
frábærir sóknarmenn og verða eflaust
erfiðir f fyrstu umferð úrslitakeppninn-
ar. Haukar standa í baráttu um að
komast í úrslitakeppnina en þeir eru
með jafnmörg stig og Tindastóll og
Valur.
Snæfell-Njarðvík 89-119
Deildarmeistararnir úr Njarðvík áttu
ekki í erfiðleikum með Snæfell í Stykk-
ishólmi ( gærkvöldi. Sigur gestanna
var öruggur allan tímann en Snæfell
hefur náð að bæta sig ótrúlega mikið
síðan tímabilið hófst og enginn bjóst
við að þeir næðu að vinna leik i vetur.
Atli Sigurþórsson var stigahæstur
gestanna með 21 stig en Ronday Ro-
binson, sem skoraði 50 stig gegn
sama liði fyrr í vetur, skoraði 27 stig
fyrir Njarðvík. Njarðvíkingar, sem að-
eins hafa tapað einum leik í vetur, eru
eflaust farnir að hugsa um bikarinn
góða, enda örugglega ekki búnir að
sætta sig við tapið í bikarúrslitunum.
Grindavík-KR 88-96
KR-ingar eru sannarlega óútreiknan-
legir. Eftir að hafa tapað fyrstir allra
fyrir Snæfelli og verið í tómu rugli und-
anfarnar vikur hafa þeir fundið nýtt líf
með tilkomu Miltons Bell. Grindvíking-
ar máttu ekki við þessum ósigri því nú
eru þeir jafnir ÍR að stigum. Franc
Booker var stigahæstur Grindvikinga
með 26 stig en Bell fór fyrir KR-ingum
og skoraði 25. Allt lítur út fyrir að þessi
tvö lið muni mætast í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar, en KR-ingar hafa
tvisvar sigrað Grindvíkinga í vetur.
Leik Vals og Tlndastóls var frestað.
Staðan
A-rlðill Stig
Njarðvík 56
Skallagrimur 34
Þór Akureyri 32
Haukar 18
ÍA 14
Snæfell 4
B-riðill Stig
Grindavík 44
ÍR 44
Keflavík 36
KR 28
Tindastóll 18
Valur 18
Réttur hússins í Seljaskóla
SöHuní
seinni hálfíeik
IR-ingarenn ósigraðirá heimavelli
ÍR-ingar léku í annarri deild í
fyrra og komust upp aðeins vegna
þess að liðum var fjölgað í úrvals-
deild. Árangur liðsins hefur því
verið ævintýralegur í vetur. ÍR-ing-
ar hafa náð að byggja upp frábært
lið og hvergi á höfuðborgarsvæðinu
er eins frábær stemmning og á
heimaleikjum lR í körfubolta. I
gærkvöldi kornu Keflvíkingar í
heimsókn og mátti búast við að
leikurinn yrði mikil prófraun fyrir
heimamenn.
Leikurinn byrjaði nokkuð hægt
og komst stigataflan ekki á skrið
fyrr en nokkrar mínútur voru liðn-
ar. Albert Óskarsson gætti Her-
berts Arnarssonar og gerði það
mjög vel, enda er Albert einn besti
varnarmaður deildarinnar og al-
gjörlega ómetanlegur fyrir Keflvík-
inga. Þeir hlutir sem Albert getur
gert fyrir lið verða seint ofmetnir.
Þrátt fyrir að ekki færi mikið fyrir
Herbert náðu IR-ingar að vera yfir
mestan hluta fyrri hálfleiks og var
það fyrst og fremst öflugum leik
Jóns Arnar Guðmundssonar og
Johns Rhodes að þakka. Jón var
iðinn við stigaskorunina og Rhodes
gjörsamlega lokaði fyrir allar
keyrslur Keflvíkinga. Eiríkur Ön-
undarson átti einnig mjög góðan
sprett þegar hann kom inn á um
miðjan fyrri hálfleik og skoraði níu
stig í röð.
Staðan í hálfleik var 47-45,
heimamönnum í vil, og því ieit út
fyrir spennandi síðari hálfleik. Sú
varð þó aldeilis ekki raunin því ÍR-
ingar komu tvíefldir til leiks og
náðu að byrja seinni hálfleik með
að skora 25 stig gegn átta stigum
gestanna. Það var Herbert sem
hrökk í gang og skoraði hverja
þriggja stiga körfuna af annarri og
voru nokkur skota hans líklega nær
miðjunni en þriggja stiga línunni.
Keflvíkingar hittu skelfilega illa og
misnotuðu jafnvel einföldustu skot
undir körfunni. Lenear Burns átti
í villuvandræðum og þurfti því að
vera utan vallar töluvert í byrjun
síðari hálfleiks. Þetta olli því að
Rhodes gat leikið sér að því að verja
skot Keflvíkinga að vild þar sem
hann þurfti ekki að hafa áhyggjur af
því að dekka Burns. Keflvíkingar
létu starfsmenn vallarins fara í
taugarnar á sér og virtust á stund-
um uppteknari við að reyna að sýna
fram á vanhæfni þeirra en að vinna
leikinn. Skiljanlegt er að afglöp
tímavarðar hafí farið í taugarnar á
Keflvíkingum en þó er óskiljanlegt
hversu umhugað þeirn virtist um
nokkrar sekúndur og ákváðu að
æsa sig upp i stað þess að benda í
rólegheitum á mistökin.
Eftir leikinn sagði Herbert Arn-
arsson: „Við erum búnir að vera í
öðru sæti í allan vetur og nú erum
við að minnsta kosti búnir að
tryggja okkur annað sætið. Við
fréttum að Grindavík hefði tapað
svo það lítur út fyrir að það verði
hreinn úrslitaleikur (fR-Grindavík
26. febrúar), en leikurinn gegn KR
á fimmtudaginn er líka mikilvægur.
Ég vona að við getum nýtt okkur
heimavöllinn, en það er alltaf hætta
á því, þegar maður hefur ekki tapað
leik á heimavelli, að maður taki það
bara sem sjálfsagðan hlut að við
vinnum. En í kvöld var það ekki að
sjá; við komurn út og börðumst al-
veg eins og ljón og áhorfendur voru
vel með á nótunum. Ég býst bara
við skemmtilegri úrslitakeppni og
við ætlum að standa okkur.“
Keflvíkingar voru langt frá sínu
besta. Það voru aðeins Albert Ósk-
arsson og Einar Einarsson sem
virtust leika af eðlilegri getu en
Sverrir Þór Sverrisson sýndi
einnig mikil tilþrif, þá sérstaklega í
vörninni. Ef Sverrir myndi bæta
hittni sína fyrir utan yrði hann einn
Jón Orn Guðmundsson stingur sér hér á milli tveggja varnarmanna
Keflvíkinga, Einars Einarssonar (nr 10) og Birgis Guðfinnssonar (nr 11).
Jón Örn átti frábæran leik í gærkvöldi og skoraði 24 stig og átti 9 stoð-
Handbolti
1. deild 22. umferð
Lokaumferöin í 1. deild í handknattleik
var leikin á laugardag. Úrslit urðu eftir-
farandi:
Valur - Stjarnan 19:16
Haukar - Víkingur 22:29
HK-KR 33:25
ÍR - FH 28:27
KA - UMFA 17:17
Selfoss - ÍH 35:25
Lokastaðan í 1. deild
Valur 22 521:445 34
Víkingur 22 561:536 33
Stjarnan 22 589:521 32
Afturelding 22 559:492 28
FH 22 551:514 28
KA 22 544:506 26
ÍR 22 532:538 25
Haukar 22 581:552 21
Selfoss 22 504:548 18
KR 22 495:553 13
HK 22 483:580 5
ÍH 22 436:607 1
Þá er það komið á hreint hvaða lið
mætast í átta liða úrslitum úrslita-
keppni 1. deildar. Það lið sem fyrst
vinnur tvo leiki kemst áfram í fjögurra
liða úrslitin. Það lið sem á heimaleik
fyrst fær oddaleikinn heima, komi
hann til. Fyrstu viðureignir liðanna fara
fram um næstu helgi. Eftirfarandi lið
mætast:
Valur - Haukar
Víkingur - ÍR
Stjaman - KA
Afturelding - FH
allra besti bakvörður landsins.
Hjá ÍR-ingum var þjálfarinn
John Rhodes bestur. Rhodes lék
stórkostlega í vörninni og hélt
Lenear Burns alveg niðri. Rhodes
gerði sér einnig lítið fyrir og varði
átta skot Keflvíkinga. Herbert Arn-
arsson og Jón Örn léku einnig frá-
bærlega.
Það er alveg víst að úrslitakeppn-
in verður skemmtileg. iR-ingar
hafa komið mjög á óvart og teljast
eiga nokkra möguleika á sigri en
Njarðvík og Grindavík hafa verið
sterkust í vetur. Þá má heldur ekki
gleyma Keflvíkingum, sem hafa átt
í vissum erfiðleikum í vetur en
sýndu með sigri á Grindvíkingum í
síðustu umferð að þeir eru engin
lömb að leika sér við.
-ÞK
ÍR-Keflavík (47-45) 114-76
Stig ÍR: Herbert Amarsson 37, Jón
Öm Guðmundsson 24, Eiríkur Ön-
undarson 13, John Rhodes 13, Egg-
ert Garðarsson 7, Guðni Einarsson 7,
Bjöm Steffensen 6, Aðalsteinn Hrafn-
kelsson 3 og Halldór Kristmannsson
3.
Skot innan teigs 17/28, utan 14/37, 3-
stiga 7/17 (Herbert 6/11), víti 31/43.
Fráköst 47 (16 í sókn) (Rhodes 21, 3 í
sókn), varin skot 8 (Rhodes 8), tapað-
ir 14, stolnir 13 (Rhodes 3), stoðsend-
ingar 20 (Jón Örn 9).
Stig Keflavikur: Einar Einarsson 18,
Albert Óskarsson 16, Davið Gríssom
12, Sverrir Þór Sverrisson 11, Lenear
Burns 9, Jón Kr. Gíslason 8, Birgir
Guðfinnsson 2.
Skot innan teigs 22/50, utan 5/28, 3-
stiga 5/12, vfti 8/10. Fráköst 36 (11 f
sókn), varin 2 (Grissom 2), tapaðir 13
(Sverrir 5), stolnir 9, stoðsendingar
11.
2. deild
Frammarar efstir
í úrslitakeppninni
Úrslitakeppni 2. deildar hófst i gær
með tveimur leikjum, en fresta varð
leik ÍBV og Þórs þar sem ekki var flog-
ið til Eyja. Hann fer fram í íþróttahús-
inu í Vestmannaeyjum í kvöld kl. 20.
Úrslit í gæn
Fram - Breiðablik 18:16
Fylkir - Grótta 24:24
Staðan í úrslitakeppninni
Fram 1 18:16
Grótta 1 24:24
Fylkir 1 24:24
Breiðablik 1 16:18
Þór 0 0:0
ÍBV 0 0:0
6
3
1
1
0
0
ítalski boltinn
Italska knattspyrnan
Forysta Juventus komin í sex stig
Liðið vann Napólí 1.0 með síðbúnu sigurmarki frá Ravanelli. Á meðan tapaði Parma nokkuð
óvænt fýrír Cagliarí en heldursamt öðru sæti deildarinnar.
Juventus heldur áfram sigur-
göngu sinni í ítalska boltanum og
er forysta liðsins nú komin í sex
stig. Liðið sigraði Napólí á meðan
Parma beið lægri hlut fyrir Cagliari.
Lazio er í þriðja sæti eftir stórsigur
á meisturum AC Milan. Þá unnu
nýliðar Padova einnig stórsigur
gegn Torino og bættu stöðu sína í
botnbaráttunni. Brescia og Reggi-
ana töpuðu bæði leikjum sínum og
verma tvö neðstu sæti deildarinnar.
Hinn gráhærði Fabrizio Ravan-
elli heldur áfram að skora fyrir Ju-
ventus. Hann gerði eina mark leiks-
ins í sigri liðs síns á Napólí í gær,
tólf mínútum fyrir leikslok. Hann
fékk háa sendingu inn fyrir vörn
Napólí og sendi boltann upp í þak-
netið. Ravanelli hefur nú skorað
átta afar mikilvæg mörk fyrir Ju-
ventus það sem af er tímabilinu. Á
sama tíma urðu leikmenn Parma
að sætta sig við tap gegn Cagliari.
Daniele Berretta nýtti sér mistök
í vörn Parma strax á 6. mínútu
leiksins og örfáum mínútum síðar
hafði hinn brasilíski Luis Oliveira
skorað annað mark fyrir Cagliari.
Þau úrslit sem vöktu hvað mesta at-
hygli í ítalska boltanum um helgina
voru stórsigur Lazio á meisturum
Milan. Framan af átti Milan mun
meira í leiknum og hefði liðið allt
eins getað verið búið að skora 2-3
mörk áður en Pierluigi Casiraghi
kom Lazio yfir, snemma í fyrri hálf-
leik. í seinni hálfleik skoraði síðan
Guiseppe Signori þrjú mörk og
var að öðrum ólöstuðum besti
maður vallarins. Paolo Maldini
var vísað af leikvelli í stöðunni 3:0
og við það hrundi leikur meistar-
anna endanlega. Fyrir leikinn hafði
Milan leikið tólf leiki í röð án þess
að bíða ósigur, en Lazio vann þarna
sinn fyrsta sigur á Milan á ólympíu-
leikvanginum í ein 17 ár. Tomas
Skuhravy skoraði eina mark leiks-
ins í sigri Genúa á Roma, erkifjend-
um Lazio, og elcki var það til að
minnka ánægju stuðningsmanna
Lazio. Daniel Fonseca var rekinn
af leikvelli undir lok leiksins fyrir
gróft brot á Fabio Galante. Inter
bauð nýjan forseta félagsins, Mass-
imo Moratti, velkominn með sigri
á botnliði Brescia. Nicola Berti
skoraði eina mark leiksins strax á
upphafsmínútunum. Leikmenn
Padova fóru á kostum gegn Torino
og skoruðu fjögur mörk gegn
tveimur mörkum Torino. Banda-
ríski landsliðsmaðurinn Alexei La-
las brá sér í sóknina undir lokin og
skoraði síðasta mark Padova, sem
við sigurinn styrkti stöðu sína í
botnslagnum til muna. I gærkvöldi
áttust síðan við Foggia og Samp-
doria. Bresciani náði forystu fyrir
heimamenn undir lok fyrri hálf-
leiks en stórstirnið Ruud Gullit
jafnaði fyrir Sampdoria um miðjan
seinni hálfleik.B
Japaninn í liði Genúa, Kazu
Miura, og Rómverjinn Fabio
Petruzzi eigast hér við í leik
liðanna í gær. Genúa hafði
betur í leiknum og lyfti sér þar
með úrfallsæti ítölsku 1.
deildarinnar.
Úrslit
Cagliari - Parma 2:0
Berretta 6., Oliveira 15.
Cremonese - Fiorentina 0:0
Genoa - Roma 1:0
Skuhravy 15.
Inter - Brescia 1:0
Berti 3.
Juventus - Napólí 1:0
Ravaneiii 78.
Lazio - Milan 4:0
Casiraghi 18., Signori 55., 64. og 80.
Padova - Torino 4:2
Maniero 11., Vlaovic 54., 61., Lalas 76. -
Pele 14., Rizzitelli 79.
Reggiana - Bari 0:1
Protti 81.
Sampdoria - Foggia 1:1
Bresciani 44. - Guiiit 65.
Staðan
Juventus 20 33:20 45
Parma 20 31:17 39
Lazio 20 41:24 34
Roma 20 26:14 34
Sampdoria 20 33:18 32
Fiorentina 20 34:26 31
AC Milan 20 22:20 30
Cagliari 20 21:19 29
Bari 20 23:27 29
Inter 20 20:16 27
Torino 20 21:24 26
Foggia 20 21:26 25
Napólí 20 24:30 24
Genoa 20 22:30 21
Padova 20 22:43 20
Cremonese 20 16:23 19
Reggiana 20 14:27 12
Brescia 20 10:28 12
Markahæstir
17 - Gabriel Batistuta (Fiorentina)
14 - Guiseppe Signori (Lazio)
13 - Abel Balbo (Roma), Sandro
Tovalieri (Bari)
10 - Gianluca Vlalli (Juventus),
Gianfranco Zola (Parma)
8 - Fabrizio Ravanelli (Juventus)
7 - Alen Boksic (Lazio), Alessandro
Del Piero (Juventus)