Helgarpósturinn - 20.02.1995, Page 22

Helgarpósturinn - 20.02.1995, Page 22
22 MORGUNPÓSTURINN MENNING MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995 skrítnum málum; Altman um- gengst það allt með því háði sem hann er þekktastur fyrir, en líka einhverjum kærleiksríkum dapur- leika; einhvers konar samblandi af mannhatri og mannelsku. Á endanum er þetta jafn taprt og gegnsætt og dýr eðalsteinn. Altman er sem fyrr sinn maður, ef hægt er að taka svo til orða; sjötugur getur hann leyft sér að hlæja í hálfum hljóðum að úrtölumönnunum sem eitt sinn hröktu hann frá Holly- wood. Og munu líklega aldrei taka svo frumlegan kvikmyndagerðar- mann í sátt. -Egill Helgason Vandlifað að vera dóni Disclosure Sambíöunum ★★ Kannski er Michael Chrichton mesti metsöluhöfúndur í heimi, en fyrst og fremst er hann þó frústrer- aður prédíkari. I bókum sínum sem ári eftir útkomuna verða undan- bragðalaust að kvikmyndum er hann alltaf að lesa okkur pistilinn. I Jurassic Parc flutti hann langa stól- ræðu um hættuna sem mannkyn- inu er búin af líftækni; Rising Sun var samfelld eldprédíkun um Jap- ani og hvernig þeir eru með flátt- skap að gleypa Ámeríku; í Disclos- ure er það kynferðisleg áreitni sem liggur honum þungt á hjarta, hvernig hana má nota sem einhvers konar geldingartæki til að koma óvinum í klandur eða fá losun fyrir annarlegar hvatir, hvernig eins konar rannsóknarrétti hefur verið komið upp í nafni hennar, hvernig hún vekur upp spurningar um eðli- lega sönnunarbyrði. Nú held ég að ég sé að vissu leyti sammála Michael Chrichton. í Ameríku hefur fárið út af kynferð- islegri áreitni verið sérstakur leik- völlur fyrir bíræfna lögfræðinga og piparkerlingar sem eru í óða önn að endurvekja eitthvert yfirdreps- kennt siðgæði viktoríutímans. Af því sem ég hef heyrt og lesið virðist þetta fyrir löngu komið út í tóma vitleysu, enda eiga siðspilltari Evr- ópubúar erfitt með að skilja hve- nær menn eru að reyna við konu samkvæmt þessum fræðum eða hvenær þeir eru að áreita hana. Og er vandséð hvernig mannkynið nær að fjölga sér ef þetta lið fær að ráða. Chrichton, og Barry Levinson leikstjóri, leika sér að því að snúa guðspjallinu upp á skrattann, og það er að ýmsu leyti sniðugt. Það er semsé karlmaður sem verður fýrir kynferðislegri áreitni, ekki kona eins og er yfirleitt gert ráð fyrir. Karlmaðurinn þarf að verja sig og náttúrlega mætir hann slíkri vana- hugsun að flestir eiga bágt með að trúa honum. Það tekst þó að lokum og réttlætið sigrar. Vonda nornin fær makleg málagjöld. Fram að þeim tíma er sæmilegt vit í myndinni. Sviðið, afar vand- lega hannaðan vinnustað, eiga nokkrar steríótýpur uppatímans og allt snýst þetta um metorð og völd; þarna er ráðvandi uppinn sem verðskuldar að komast áfram, þarna er uppinn sem er með aðeins of þröngan flibba og sleikir skósóla yfirboðara sinna, þarna er miðaldra konan sem ekki er metin að verð- leikum, líklega vegna þess að hún er svo hlédræg og aðeins of ófríð, og svo er þarna flagðið, klætt grárri drakt og háhælaskóm, sem veigrar sér ekki við að beita kynferði sínu, nota það ekki eða misnota það, til að komast alla leið upp á efstu hæð. Hendingin ræður því að þetta fólk vinnur ekki í skóverksmiðju, held- ur við framleiðslu á hátæknitölvu- búnaði — það gefur Chrichton enn eitt tækifæri til að sýna hvað hann er vel að sér um þau vísindi sem eru efst á vinsældalistum hverju sinni. Allt þetta fólk er mestanpart skiljanlegt og viðbrögð þess þegar uppvíst verður að dóni — kynferð- islegur áreitari — er meðal þess. Hængurinn er hins vegar sá að það mál er til lykta leitt þegar enn lifa svona þrjú kortér af myndinni. Þá tekur við niðurlagið, óskiljanlega langt, þar sem góða hetjan þarf að sanna að flagðið (dyggilega studd af „Máski er hann sjötugur og dálítið útlifaður, en hann er alvegjafn ólíkindalegur og ókind- arlegur og hann hefur nokkurn tíma verið, og hann er líka hárnákvœmur eins og hefur best- ur verið; eftirfyrsta hálftímann renna öll vötn til Dýrafjarðar. Síðasti klukkutíminn er ein- hver glœsilegasti granfinale sem lengi hefur sést í kvikmynd. “ siðlausum forstjórum) hafl ekki bara rangt við á kynferðissviðinu, heldur líka í vinnunni. Allt gengur það út á eitthvert fikt við hátækni- búnað sem líklega má fá miklu ómengaðri og betri í tölvutímarit- um. Að minnsta kosti er vandséð hvað sýndarveruleiki komi sögunni við — nema þá að hann sé sýndar- mennska. -Egill Helgason Hálendingurinn er ódrepandi Highlander 3 HáskölabIöi o Christopher Lambert hefur tindrandi augnaráð og ansi fallegt bros, en þó ekki fallegra en svo að kvikmyndafrömuðir virðast ekki telja honum treystandi fýrir meiru en að leika í enn einni útgáfúnni af Hálendingnum. Og er sú saga nú leidd til lykta í þriðja skipti og enn svo vendilega að maður heldur að meiru sé ekki hægt að bæta við. Og þó — alltaf virðist von á nýjum ill- mennum, ógeðslega ófrýnilegum og næstum ódrepandi, til að skylm- ast við þennan náunga sem ekkert og enginn getur komið í gröfina. í þetta sinn skríður ómennið undan fjalli sem hefur legið ofan á honum og félögum hans tveimur í hartnær hálft árþúsund. Hálend- ingurinn á einskis ills von en auð- vitað hefur hann ekki sofið á verð- inum, heldur haldið sér við með því að sveifla sverði í afdölum, á fjallstindum og á klettasyllum í Skotlandi — við dunandi undirleik hljóðgervla. í leiðinni rifjar hann reyndar upp ævintýri sín í frönsku stjórnarbylt- ingunni og þar hefur hann eitthvað ruglast á því hver var hver og hver hélt með hverjum, því við fallöxina standa menn sem eru í óða önn að taka höfuð af aðalsfólki — í nafni konungsins. En kannski eru það bara elliglöp að muna ekki betur. Svo berst hann við illþýðið, að vanda í gömlum skemmum, á háa- loftum og í niðurníddum verk- smiðjum. Það eru ábyggilega mikil- fengleg bardagaatriði. Á milli hvílir hann sig í örmum konu, svo fallegs fornleifafræðings að hún myndi ábyggilega aldrei fá vinnu á Þjóð- minjasafninu, og þá er ekki verið að spara mjúka fókusinn, vaselínið á linsuna né lágvær andvörp. En fjöllin í Skotlandi eru að sönnu fög- ur. -Egill Helgason Leik/isf Leifur ÞórarinssonI Framtíðardraugar í Borgarleikhúsi Höfundur: Þór Tulinius Sviðsmynd: StIgur Steinþórsson Búningar: Þórunn ElIsabet SVEINSDÓTTIR Lýsing: Elvar Biarnason Tónlist: Lárus H. GrImsson Leikstjórn: Þór Tulinius Það er býsna erfitt að átta sig á erindi þessa verks. Ekki þó vegna þess að það risti svo ómælanlega djúpt, því einfaldur manneskjuleg- ur boðskapur liggur þar nokkuð í augum uppi. En þetta gengur ekki alveg upp og líklega er um að kenna hvernig það er í laginu, lopinn er teygður þar til maður missir þráð- inn, áhuginn dvínar og dettur upp fyrir. En kannski er hægt að laga þetta í annarri sýningu á öðrum stað? I öðru verki kannski, því mér segir svo hugur að Þór Tulinius sé ekki hættur að skrifa, sem betur fer. Ósköp byrjar þetta annars huggulega. Ámma á íslandi fær uppbringingu barnabarna í Japan, sem fá hana til að segja sér frá dópi- stafortíð sinni... og þar með hverf- um við inn í Madmaxaða veröld með elektrónískum undirleik. Am- man er ung og ætlar að redda fram- tíð í Suður-Ámeríku með miðils- monningum. Hún býr með bróður sínum Sigga Skyhigh smákrimma og fyllibyttu og Jóhanni Gautasyni, ofbeldissinnuðum homma með menningaráhuga. Sviðið er óhrjálegur draslarabú- skapur fyrir austan sól og vestan mána. Lögreglan fýrir utan vakir yfir hverju spori. Amman er yndis- lega leikin af Guðrúnu Ásmunds- dóttur, sem bregður sér svo í hlut- verk fyrsta kúnna svikamiðilsins þ.e.a.s. ömmu í dópinu eða Guð- rúnar Bjarkadóttur sem Ieikin er með stórum tilþrifum af Jóhönnu Jónas Það er bráðkostulegur sam- leikur og örstutt í hreinan Iðnófars- ann. Og næsti kúnni er gamall kennari þremenninganna, Björn nokkur Örlygsson sadisti og öfug- uggi og mannfræðingur að mennt og það endar með því að þrenning- in bálfdrepur kauða. En þá kemur í hann andi úr Austurlöndum og nú fer Árni Pétur Guðjónsson aldeil- is á kostum, því Björnandi kemur dóptríóinu á trillu, hvorki meira né minna, og finnur meira að segja handa þeim fisk þarna í ördeyð- unni. Og það er nú það. Hvort er svo betra, þorskur eða dóp? Það er víst spurningin milda og mikill nú- tíðar- og framtíðarvandi. Og and- inn linnir ekki látum, í ýmsum gervum, fyrr en hann hefur komið öllum á réttan stað, Sigga í grjótið, Jóa á sjóinn, og einhvern veginn hefur amma orðið amma. En hver er afinn? Það er vandamál sem heldur fýrir manni vöku. Já hver og hvar er afi? Þetta er allt prýðilega leikið. Ell- ert Ingimundarson er óborgan- legur í mímikkinni á Sigga Skybigh og sannur drullusokkur í öllum að- alatriðum. Og Björn Ingi Hilmars- son er átakanlegur í öllum yfir- borðshrottaskap hugsjónahomm- ans, sem kemst næst því að vera lýr- ískur í „ég elska þig helvítið þitt“. Einsog áður var sagt er Jóhanna Jónas mikilúðleg í hlutverki Gunnu, en hefur í sér marga aðra spennandi strengi, sem gott væri að fylgjast með frekar. Og Sóley El- íasdóttir er óborganleg austan- fjallsmey í hlutverki Beggu-Bettýar- Birnu og þá ekki síst sem lesbískur lögregluandi í lokin. Það er augljóst að leikstjórinn Þór Tulinius kann vel til verka, þótt hann hefði kannski mátt stytta sýn- inguna svona 50%. Sviðsmynd Stígs Steinþórssonar er mikið furðuverk og gefur réttan óhugnað sem og tónlist Lárusar H. Gríms- sonar og hárrétt pönkaðir búning- ar Þórunnar Elísabetar Sveins- dóttur. -Leifur Þ. Ba’kur Kolbrún BergþórsdóttirI Sannleikur Austurlanda Speki Austurlanda Forlagið 1995 ★★★ Ekki er mikill erill á bókamark- aðnum fyrstu vikurnar eftir jól. Helst er það Heimsbókmennta- klúbbur Máls og menningar sem yljar menningarsinnuðum sálum. Og Mál og menning ásamt Forlag- inu sendir í hverjum mánuði frá sér „Bók mánaðarins“ sem seld er þann mánuð með þrjátíu prósenta afslætti. Bók febrúarmánaðar nefnist Speki Austurlanda. Svo gætt sé meiri nákvæmni þá eru bækurnar þrjár og hver um sig fjallar um eina útbreidda heimspekikenningu Austurlanda. Það eru zen, taó og súfismi sem þar fá afgreiðslu. Þetta eru bækur í fremur litlu broti, seldar í öskju og hinar eigul- egustu. Þær eru ríkulega mynd- skreyttar og gullfallegar. Útlitinu verður því ekki annað en hrósað. I bókunum, sem eru þýddar úr ensku, er saga heimspekikenning- anna rakin og sagt frá grundvallar- atriðum þeirra. Textinn virðist æði oft skrifaður með það í huga að skapa eins konar tilfinninga- kennda, trúarlega stemmningu í huga lesandans. Þetta er því trú- boðstexti, skrifaður til að leiða okk- ur Vesturlandabúa inn í sannleika Austurlanda. Ákefðarmælska er um of ríkjandi. Sem dæmi um hana má nefna setningar eins og þessar: Um zen: „Zen er lifandi blóm, rós sem lifir að eilífu án upphafs og endaloka. Þessi rós ber blöð sem falla samtímis því að ný blöð vaxa, Hvað er í • / jO. Tý Ríkissjónvarpið Mánudagur 15.00 Alþingi 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Þytur í laufi Móli moldvarpa og Fúsi froskur eru alltaf jafn skemmtilegir. 18.25 Hafgúan 19.00 Flauel Rúvararnir jarða kollega sína á Stöð 2 þegar kemur að því að velja almennileg tónlistarmyndbönd til sýningar. 19.15 Dagsljós 20.00 Fréttir 20.30 Veður 20.35 Don Martin Skrípó eftir Don Martin eins teiknara teiknimyndablaðsins Mad. 21.05 Kyndlarnir Aldeilis frábærir sænskir þættir. Hressandi mótvægi við alla banda- rísku og bresku framhaldsþættina. 21.55 Kákasusríkin Frönsk heimildamynd um þjóðfé- lagsþróun í Kákasuslýðveldunum Armeníu, Azerbajdsan og Georgíu. 23.00 Ellefufréttir og Evrópubolti 23.20 Viðskiptahornið Fádæma hallærislegir og leiðinlegir þættir í umsjón G. Péturs Matthí- assonar. ÞrIÐ JUDAGUR 13.30 Alþingi 16.45 Viðskiptahornið (e) 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Moldbúamýri 18.30 SPK (e) Og við klöppum fyrir því. 19.00 Hollt og gott 19.15 Dagsljós Dagsljósfólkið hefur verið að gera ágæta hluti en það mætti vera heldur meira af alvöru málum á kostnað mjúku, „sniðugu" mál- anna. 20.00 Fréttir 20.30 Veður 20.35 Lagarefjar 21.00 Háskaleikir Samevrópskt sull. Álíka spennandi og frumlegt og Júróvisjón. 22.00 Kraftaverk á vorum tímum Bresk heimildamynd um yfirnáttúr- leg fyrirbæri. Örugglega skemmti- leg því tjallarnir eru snillingar í heimildamyndagerð. 23.00 Ellefufréttir MlÐVIKUDAGUR 13.30 Alþingi 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós Þetta eru svo ótrúlega vondir þættir að þeir verða skemmtilegir. 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Myndasafnið 18.30 Völundur 19.00 Einn-x-tveir 19.15 Dagsljós 19.50 Vfkingalottó Af hverju er ekki farið að fordæmi ítala og fáklædd, barmmikil plat- ínuljóska látin sjá um dráttinn? 20.00 Fréttir 20.30 Veður Eldhúsdagur á Alþingi Bein útsending frá almennum stjórnmálaumræðum á Alþingi. Ellefufréttir f dagskrárlok sífelldum breytingum undirorpin. En í eðli sín breytist zen ekki.“ Um taó: „Maðurinn með köllun er tákngervingur alvaldsins sem ríkir yfir öllum hlutum og er því mjög máttugur sjálfur, þó ekki í þeim skilningi sem við eigum að venjast á Vesturlöndum." Um súfisma: „Að þekkja hjarta sálarinnar sameinað kærleika Herr- ans leiðir til nálægðar og ferskleika sem hefur í för með sér varanlega fullvissu.“ í kynningu Forlagsins segir að bækurnar muni „lýsa upp hugann og næra sálina“. Það á örugglega við um þann hóp sem er hallur undir hástemmdan stíl. Þeir sem leita fyrst og fremst að upplýsinga- riti munu líklega verða fyrir ein- hverjum vonbrigðum vegna hins Stöð2 Mánudagur 16.45 Nágrannar 17.10 Glæstar vonir 17.30 Vesalingarnir 17.50 Ævintýraheimur Nintendo 18.15 Táningarnir í Hæðagarði 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.15 Eiríkur 20.40 Matreíðslumeistarinn Siggi Hall fær gesti í sjónvarpssal til að sýna hvernig skal matbúa á japanska vísu. 21.20 Á norðurslóðum 22.10 Ellen 22.35 Hljómur undirdjúpanna Heimildamynd eftir kvikmyndasén- íið Werner Herzog um andatrú og hindurvitni í norðurhluta Rúss- lands. 23.35 Stíað í sundur Þemað um Rómeó og Júlíu heim- fært upp á gyðingastrák og araba- stelpu. Þriðjudagur 16.45 Nágrannar 17.10 Glæstar vonir 17.30 Pétur Pan 17.50 Himinn og jörð (e) 18.15 Ráðagóðir krakkar 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.15 Sjónarmið Stefán Jón Hafstein kiprar augun töffaralega í myndavélarlinsuna. 20.45 Vísasport 21.20 Framlag til framfara Karl Garðarsson og Kristján Már Unnarsson reyna að finna jákvæða fleti á íslensku atvinnullfi. 21.55 New York-löggur Harðsoðnir og nokkuð skemmti- legir þættir um lögregluþjóna sem eru ekki allir góðu kallarnir. 22.45 ENG 23.35 Öfund Ómerkileg spennumynd. Þeim sem eiga erfitt með svefn er bent á vídeóleiguna. Miðvikudagur 16.45 Nágrannar 17.10 Glæstar vonir 17.30 Sesam opnist þú 18.00 Skrifað í skýin 18.15 Vfsasport (e) 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 19.50 Vfkingalottó 20.15 Eiríkur Eríkur berar skoltana framan í við- mælendur sína. 20.40 Melrose Place 21.35 Stjóri 22.20 Freddie Starr 22.50 Uppáhaldsmyndir Martins Scorsese Leikstjórinn segir frá uppáhalds- bíómyndunum sínum. 23.20 Allt sem ekki má Jeff Goldblum og Miranda Ri- chardson í spennutrylli sem gerist í Þarís. ýtna og uppáþrengjandi texta sem byggir fremur á því að sannfæra en að fræða. Hann er reyndar ekki allsráðandi í bókunum en of áber- andi þó. Þrátt fyrir áðurnefnda galla er lesandinn eftir lesturinn einhverju nær um þessar útbreiddu heim- spekikenningar. Trúarljóð og dæmisögur sem tengjast kenning- unum er að finna í bókunum og auka gildi þeirra. Það er sérstök prýði að hinum fjölmörgu lit- myndum og útlit bókanna er ein- faldlega listafallegt. ■ Niðurstaða: Þrjár gullfallegar bækur um zen, taó og súfisma. Eini gallinn er fremur upphafinn texti sem skyggir um of á upp- lýsingagildið.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.