Helgarpósturinn - 20.02.1995, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN SPORT
27
NBA-pistill
Dœxler
kominn hehn
Það er til bandarískt máltæki sem
segir: „Ef það er bilað, ekki laga
það.“ Það virðist ekki vera að for-
ráðamenn Houston Rockets telji
þetta mikla speki, enda hafa þeir ný-
lega gert stórvægilega breytingu á
leikmannahópnum. Otis Thorpe,
sem hefur verið einn burðarása
Houston-liðsins í mörg ár, hefur
verið seldur til Portland fýrir skot-
bakvörðinn snjalla Clyde Drexler.
Thorpe hefur í gegnum tíðina skap-
að sér nafn sem einn traustasti leik-
maður deildarinnar. Hann er svo að
segja aldrei meiddur og skilar ávallt
sínu í leik. Drexler er aftur á móti
orðinn hálfgerður baggi á liði sinu.
Reyndar er hann enn mjög góður
en aldur hans, há meiðslatíðni og
svimandi há laun valda því að fá lið
hafa áhuga á að fá hann til liðs við
sig. Drexler hefur í allan vetur reynt
að þrýsta á stjórn Portland að skipta
á sér og leikmanni í öðru liði því að
hann vill ómögulega enda ferilinn
án þess að vinna meistaratitil. Hou-
ston er greinilega mun fýsilegri
kostur fyrir Drexler því þar eygir
hann góðan möguleika á að vinna
strax í vor. Portland er með rétt um
50 prósenta vinningshlutfall og
kemur ekki til með að verða í góðu
sæti fyrir úrslitakeppnina. Houston
er aftur á móti aðeins fjórum leikj-
um á eftir Utah sem er í efsta sæti
Miðvesturriðilsins.
Það má segja að Drexler sé kom-
inn á heimaslóðir. Hann lék með
háskóla í Houston og spilaði þar
meðal annars með Hakeem
Olajuwon. Háskólaliðið Houston
Cougars vakti mikla athygli fýrir
hraðan og skemmtilegan leik og
gekk jafnan undir nafninu Phi
Slama Jama. Liðið náði tvisvar sinn-
um að komast alla leið í undanúrslit
háskólakeppninnar. í háskólavalinu
1983 átti Houston fyrsta valrétt og
vildu margir nota hann til að velja
heimabæjarhetjuna Drexler. Stjórn
félagsins ákvað hins vegar að velja
Ralph Sampson. Það er því ekki
furða að mikifl þrýstingur hafi verið
á stjórnarmenn að grípa tækifærið
og næla sér í Drexler núna. Verðið
er þó ansi hátt þar sem Otis Thorpe
er, eins og áður sagði, mjög mikil-
vægur hlekkur í leik liðsins. Það er í
raun furðulegt að liðið skuli skipta
honum út því hann er afskaplega
góður frákastari en liðið hefur ein-
mitt átt í erfiðleikum með þau. Þó
má færa rök fýrir því að forráða-
Andartaki
Meistaralið Houston gerir miklar breytingar
Clyde Drexler var einn af leikmönnum „Draumaliðsins“. Hér sést hann með Lenny Wilkens, sigursælasta þjálfara allra tíma í NBA.
menn Houston hafi þurft að hrista
eitthvað upp í mannskapnum ef
það ætlaði sér að endurtaka leikinn
frá síðasta vori og vinna deildina.
Ferill Drexler er glæsilegur. Hann
hefur leikið með Portland frá 1983
og lengi verið talinn einn besti leik-
maður NBA-deildarinnar. Portland
komst alla leið í úrslitin árin 1990 og
1992 en beið í bæði skiptin lægri
hlut; fyrst fyrir Detroit og síðan fyr-
ir Chicago. Á fyrstu árum þessa ára-
tugar töldu margir Drexler vera í
sama gæðaflokki og Magic John-
son og Michael Jordan. Á undan-
förnum árum hefur þó farið að síga
á ógæfuhliðina hjá Trail Blazers og
engin teikn eru á lofti um að liðið
muni ná að blanda sér í toppslaginn
á næstu árum. I vetur hefur Drexler
oft lýst því yfir að hann vilji ljúka
ferlinum einhvers staðar annars
staðar en í Portland og þá helst með
liði sem á tækifæri á að vinna meist-
aratitil. Stjórn Portland lofaði
Drexler þvi að finna lausn á vanda-
málum hans fyrir febrúarlok og því
koma þessi skipti ekki á óvart.
Mörgum kann að þykja Houston
ansi óárennilegt með Drexler inn-
anborðs. Fyrir eru þar kunnir kapp-
ar á borð við Olajuwon, Robert
Horry, Kenny Smith og Sam Cas-
sell, svo ekki sé minnst á skotbak-
vörðinn Vernon Maxwell. Það er
óhætt að segja að framtíð hans hjá
félaginu sé ótrygg. Eins og flestir
vita fékk Maxwell nýlega tíu leikja
bann fyrir að ráðast á áhorfanda.
Þetta svívirðilega brot Maxwells er
svo sannarlega ekki til þess fallið að
bæta andann í liðinu svo ólíklegt
verður að teljast að Houston nái að
hirða annan titil.
Drexler er orðinn 33 ára og á því
ekki langt eftir. Mikil meiðsl hafa
hrjáð hann upp á síðkastið svo það
er líklegt að ef Houston nær ekki að
vinna strax í vor muni Drexler enda
feril sinn án þess að hafa nokkru
sinni orðið meistari. Einnig er vert
að athuga það að launakjör Drexler
eru ótrúleg. Hann mun fá hátt í tíu
milljónir dala á næsta ári svo erfitt
verður að koma samningi hans fýrir
undir launaþakinu og næsta
ómögulegt að bæta góðum leik-
mönnum við.
-ÞK
Já eri...
Eruð þið bara,
komnirí frí. 0li
l'j..£. •_ t-. — r;;-;-Cn-i;>s
I smávandræðum á White Hart Lane
„Já það lítur út fyrir það. Það er
slæmt fyrir liðið að vera komið í sjö
mánaða pásu en mótið er í styttra
lagi vegna heimsmeistaramótsins.
Ég sé þó nokkra kosti í þessu. Liðið
getur undirbúið sig vel fýrir næsta
tímabil t.d. með styrktar- og séræf-
ingum sem lítill tími gefst til yfir
leiktímabiiið. Þá er ég aðallega að
tala um ungu strákana í iiðinu en
einnig fá þeir eldri góðan tíma til að
jafna sig af meiðslum og bæta sig.
Ég vil sjá breytingar á fýrirkomu-
laginu, þá helst í fjölgun leikja.
Einnig mætti lata fjögur neðstu lið-
in í 1. deild spila spila við 4-6 efstu
lið 2. deildar eða jafnvel mætti
skipta 1. deildinni í riðla.“
Síðasta laugardag lauk deildarkeppn-
inni í handbolta. Selfoss og KR lentu í
sjöunda og áttunda sæti deildarinnar
og þar með luku þau keppni f vetur;
komust ekki f úrslitakeppnina og féllu
ekki. Margir hafa gagnrýnt þetta fyrir-
komulag enda skrýtið að Ijúka keppn-
istímabilinu eftir aðeins fimm mánuði.
Til samanburðar er leiktfmabilið í fót-
boltanum aðeins fjórir mánuðir en þar
njóta menn ekki hlýju og húsaskjóls
eins og handboltamenn.B
NBA-körfuboltinn
Nýir þjálfarar
Tveir þjálfarar í NBA-deildinni
þurftu að taka pokann sinn nýlega.
Þetta var annars vegar Kevin Lo-
ughery hjá Miami Heat og hins
vegar hinn góðkunni Don Nelson
hjá Golden State Warriors. Við
stöðu Loughery tók Alvin Gentry
og bíður hans það erfiða hlutskipti
að rífa Miami upp úr öldudalnum.
Liðið hefur leikið afar illa í vetur en
á þó ágætis möguleika á að komast í
úrslitakeppnina. Bob Lanier, sem
lék átta Stjörnuleiki á 15 ára leik-
ferli, var skipaður þjálfari Golden
State en hann var áður aðstoðar-
þjálfari liðsins. Margir sem spáðu
því að liðið yrði meistari í fýrsta
skipti síðan 1975 en nú er nánast
ljóst að liðið fer ekki í úrslitakeppn-
Webber átti
aldrei að fara
Margir segja að aðalástæðan fýr-
ir slöku gengi Golden State í vetur
sé sú að nýliði ársins 1994, Chris
Webber, var látinn fara til Wash-
ington Bullets. Liðið hrundi eftir að
Webber fór, vann aðeins 7 leiki af
37 (meðan Nelson var við stjórn-
völinn). Þessi skipti urðu til þess að
margir leikmanna liðsins gagn-
rýndu ákvörðun félagsins. Nelson
sjálfur þoldi álagið illa og var lagður
inn á spítala í desember.B
Shaq enn efstur
Þegar lið hafa leikið u.þ.b. 50 leiki
er Shaquille O’Neal enn stigahæsti
leikmaður NBA með 29,7 stig að
meðaltali í leik. Hakeem Olajuwon
er nú kominn upp í annað sætið
með 28,2 stig í leik og í þriðja sæti er
David Robinson með 27,9 stig.
Dennis Rodman ber höfuð og
herðar yfir aðra þegar fráköst eru
annars vegar. Hann hefur tekið að
meðaltali 16,3 fráköst í leik en næst-
ir koma Patrick Ewing (11,5), Tyr-
one Hill (11,4) og Hakeem
Olajuwon (11.2). Það sama er upp á
teningnum í stoðsendingunum en
þar er John Stockton langefstur
með t2,2 að meðaltali í leik en næst-
ir koma Kenny Anderson (10,1) og
„Muggsy“ Bougues (9,4)11
Ölafur Lárusson þjálfari KR.