Helgarpósturinn - 21.12.1995, Qupperneq 2
2
gefe^ •'i'f
FIMIVmiDAGUR ZL DESEMBER1995
aldrei í sömu stretsbuxunum á hest-
bak og á böll. Hins vegar geng ég
aldrei í gallabuxum nema til þess að
mála í heima hjá mér, ég nota þær
bara til upprunalegs brúks. Ætli ég
noti ekki svona mikið stretsbuxur
því ég þarf að iiafa rými til þess að
hreyfa mig.“
Skórnir?
„Þessir eru líka frá Bandaríkjun-
um. Þegar ég verð ástfangin af skóm
slít ég þeim út þar til þeir deyja.
Þessa rakst ég á fyrir tilviljun í mót-
orhjólabúð fyrir tveimur árum og hef
verið í þeim allar götur síðan, sem
verður að teljast gott, því venjulega
slít ég skóm á sjö til átta mánuðum.“
Stígvélin sem Helena er í á mynd-
inni eru ákveðið breik frá hælastíg-
vélunum sem hún hefur notað í mörg
ár. „í þessum stígvélum dansaði ég
allar sýningarnar í Súperstar. Það
kemur mér því enn meira á óvart að
ég skuli ekki enn vera búin að slíta
þeim út.“
Ein af sérstæðari bókum ársins er óneitanlega „Karlar eru frá Mars — Konur eru frá
Venus“. Djarfur blaðamaður Helgarpóstsins af karlkyni gluggaði í bókina og fann meðal annars
að því er virðist óbrigðula ráðagerð fyrir karlmenn til að koma sér í mjúkinn hjá konum.
Ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum. Hyggilegast er að fara með gát til að
verða ekki óvænt uppáþrengjandi...
101 aðferð við
að heilla konu
Helena Jónsdóttir dansari, sem átt
hefur hvað stærstan þátt í aðliðka
leikara Borgarleikhússins að undan-
förnu, er þessa dagana í fyrsta sinn í
fríi frá söngleikjafárinu síðan í janúar á
þessu ári. Hún hefur því í hyggju að
njóta jólanna í botn. Nóg er samt fram-
undan því um áramótin skemmtir hún
ásamt Hamingjupakkinu (hluta
Súperstargengisins) á Hótel Ork, í
framhaldi af því fer hún svo að undir-
búa kennslu og sýningu sem á að setja
upp í febrúar.
Helena segist ekki vera tískufrík í
venjulegri merkingu þess orðs. Vissu-
lega kaupi hún sér oft fatnað en hann
þurfi þá yfirleitt að vera klassískur og
ekki dýr. „Ég er ekki tískufrík í þeim
skilningi að ég kaupi mér fatnað sem
ég bara nota í fjóra mánuði og hendi
svo, heldur fer ég oft á flóamarkaði og
kaupi mér föt sem ég á í mörg, mörg
ár. Og ef svo ber undir tek ég upp nál
og tvinna; laga sniðin og svo framveg-
is.“
Gallajakkinn?
„Hann keypti ég í Bandaríkjunum í
kringum ‘85, ‘86. í þau tíu ár sem ég hef
átt þennan gallajakka hefur hann alltaf
verið eins, með tóbaksblettunum á
vasanum eftir upprunalegan eiganda.
Mér líður einmitt mjög vel í fatnaði
með karakter."
Buxumar?
„Ég hef verið í eins stretsbuxum frá
því í gaggó, beinum og þröngum, sem
ég jafnt dansa í, fer í á böll og á hest-
bak, en ég tek það þó fram að ég fer
19. Þegar hún talar viö þig skaltu leggja frá þér tfma-
ritið eöa slökkva á sjónvarpinu og veita henni
óskipta athygli þína.
20. Ef það er hún sem þvær upp skaltu stundum
bjóöast til þess, sérstaklega þegar hún er þreytt.
21. Taktu eftir þegar hún er miður sín eöa þreytt og
spurðu hvaö hún þurfi að gera. Síöan skaltu bjóðast
til aö gera eitthvaö af því fyrir hana.
22. Spuröu hana hvort þú getir keypt eitthvað fyrir
hana þegar þú ferö út og mundu svo eftir því að gera
þaö.
23. Láttu hana vita þegar þú ætlar þér að fá þér lúr
eða fara eitthvað.
24. Faðmaðu hana að þér fjórum sinnum á dag.
25. Hringdu f hana úr vinnunni til að spyrja hana
hvernig hún hafi það, til að segja henni frá einhverju
skemmtilegu eða til að segja henni að þú elskir
hana.
26. Segðu henni að þú elskir hana að minnsta kosti
tvisvar á dag.
27. Búðu um rúmið og lagaðu til í svefnherberginu.
1. Þegar þú kemur heim skaltu fara til hennar og taka
utan um hana.
2. Spurðu hana sérstakra spurninga um hvað á dag
hennar hefur drifið sem gefa vfsbendingar um að þú
vitir hvað hún hatði á prjónunum (til dæmis: „Hvern-
ig gekk hjá lækninum?")
3. Æfðu þig í aö hlusta og spyrja spurninga.
4. Þú skalt standast þá freistingu að leysa vandamál
hennar, þess f stað skaltu sýna hluttekningu.
5. Sinntu henni óbeðinn í tuttugu mtnútur og veittu
henni óskipta athygli þfna (ekki lesa blaðið eöa vera
með hugann við eitthvaö annað á meðan).
6. Færðu henni blóm án tilefnis jafnt og við sérstök
tækifæri.
7. Ráðgerðu að fara með henni út með góðum
fyrirvara en bíddu ekki þangað til á föstu-
dagskvöldi með að spyrja hana hvað
hún vilji gera.
8. Ef hún sér yfirleitt um matargerö-
ina eða ef röðin er komin að henni
og hún virðist þreytt eða eiga
annrfkt skaltu bjóðast til þess að
elda.
9. Segðu henni að hún Ifti vel
út.
10. Þegar hún er f uppnámi
skaltu láta hanafinna að henni
leyfist aö Ifða illa.
11. Þú skalt bjóðast til að
hjálpa henni þegar hún er
þreytt.
12. Gerðu ráö fyrir góðum tfma
þegar þið feröist saman svo hún
þurfi ekki að flýta sér.
13. Hringdu f hana og láttu hana vita þegar
þú verður seinn fyrir.
14. Þegar hún biður um stuðning skaltu segja já
eða nei án þess að henni finnist hún ekki hafa átt að
biðjaumhann.
15. Vertu samúöarfullur þegar henni sárnar og
segðu: „Mér þykir leitt að hafa sært þig." Vertu svo
hljóður, láttu hana finna að þú skiljir sárindi hennar.
Ekki koma með úrræöi eða reyna að útskýra að það
sé ekki þér að kenna að hún er særð.
16. Þegar þú þarft að losa þig frá henni, láttu hana
vita að þú munir koma aftur eða að þú þurfir tíma til
að hugsa.
17. Þegar þú ert búinn að jafna þig og ert köminn
aftur skaltu tala um það sem angraði þig á vinsam-
legan hátt sem felur ekki f sér ásökun svo hún
ímyndi sér ekki það versta.
sjálfur svo hún þurfi ekki að gera það.
29. Taktu eftir þegar ruslafatan er full og tæmdu
hana.
30. Skildu eftir sfmanúmer þar sem hægt er að ná f
þig þegar þú ferð úr bænum og láttu hana vita að þú
hafir komist heilu og höldnu á áfangastað.
31. Þvoðu bílinn.
32. Þvoðu bílinn og þrffðu hann að innan áöur en þú
ferð út með henni.
33. Þvoðu þér áður en þið stundið kynlff og settu á
þig ilmefni ef hún er hrifin af því.
34. Taktu hennar málstað þegar hún er reið út í ein-
hvern.
36. Vefðu hana örmum og hjúfraðu
þig stundum að henni án þess að
vilja kynlíf.
37. Vertu þolinmóður þegar
hún segir frá. Ekki Ifta á
klukkuna.
38. Ekki skipta um stöðvar
með fjarstýringunni þegar
þiö horfið saman á sjón-
varp.
39. Sýndu væntumþykju
innan um aðra.
40. Ekki vera máttlaus í
hendinni þegar þiö haldist í
hendur.
41. Mundu hvað henni þykir
best að drekka svo þú getir boðið
henni að velja sér það sem henni
þykir gott.
42. Þegar þið farið út að borða skaltu
stinga upp á veitingastöðum; láttu hana ekki
þurfa að hafa fyrir því að finna stað.
43. Kauptu árskort í leikhúsið, á sinfónfutónleika,
óperuna, ballett eða eitthvað annað sem hún er hrif-
in af.
44. Skapið ykkur tækifæri til að klæða ykkur upp á.
45. Vertu skilningsríkur þegar hún er sein eða
ákveður að skipta um föt.
46. Veittu henni meiri athygli en öðrum í fjölmenni.
47. Láttu hana vera mikilvægari en börnin. Láttu
börnin sjá að það er hún sem fær athygli þína fyrst
og fremst.
48. Kauptu handa henni litlar gjafir - eins og litla
konfektkassa eða ilmvatn.
18. Þú skalt bjóðast til að kveikja upp í arninum á
veturna.
28. Ef hún þvær sokkana þina skaltu snúa þeim við
49. Kauptu handa henni föt (farðu með mynd af
henni ásamt stæröinni sem hún notar í búðina og
biddu um aðstoð við að velja þau).
50. Taktu myndir af henni við sérstök tækifæri.
51. Stingið af saman til að kynda undir rómantlkinni.
52. Láttu hana sjá að þú geymir mynd af henni (
veskinu þínu og endurnýjaðu hana annað slagið.
53. Þegar þig gistið á hóteli skaltu biðja um eitthvað
sérstakt í herbergiö, svo sem kampavínsflösku eða
blóm.
54. Skrifaðu hjá þér eða merktu við hjá þér afmælis-
daga og aðra merkisdaga.
55. Bjóddu henni að aka þegar þið farið langt.
56. Aktu hægt og örugglega, taktu tillit til þess sem
hún vill. Hún situr eftir allt saman hjálparvana I
framsætinu.
57. Taktu ettir hvernig henni llður og talaðu um það:
„Þú ert hamingjusöm I dag,“ eða: „Þú ert þreytuleg,"
og spurðu síðan spurninga á borð við: „Hvernig var
dagurinn?"
58. Þegar þú býður henni út skaltu vera viss um að
rata svo hún þurfi ekki að bera ábyrgð á þvl að vísa
veginn.
59. Faröu með hana út að dansa eða I dansskóla.
60. Komdu henni á óvart með litlu ástarbréfi eða
Ijóði.
61. Komdu fram við hana eins og þú gerðir I upphafi
sambandsins.
62. Þú skalt bjóðast til að lagfæra eitthvað í húsinu.
Segðu: „Hvað þarf aö laga hér? Ég het tíma núna."
Ekki ætla þér meira en þú getur gert.
63. Þú getur boðist til að brýna hnlfana I eldhúsinu.
64. Kauptu sterkt llm til að gra við brotna hluti.
65. Skiptu um Ijósaperur um leið og þær eru ónýtar.
66. Hjálpaðu til við að fara með rusl I endurvinnslu.
67. Lestu upphátt fyrir hana eða klipptu út greinar
sem hún gæti haft áhuga á.
68. Skrifaðu vandlega niður öll skilaboð sem þú tek-
urfyrirhana gegnumsíma.
69. Haltu baðherbergisgólfinu hreinu og þurrkaðu
það eftir að þú hefur farið I sturtu.
70. Opnaðu dyrnar fyrir hana.
71. Haltu á innkaupapokunum fyrir hana.
72. Haltu á þungum kössum fyrir hana.
73. Sjáðu um farangurinn þegar þið ferðist og að
hlaða bílinn.
74. Ef hún þvær diskana eða það er komið að henni
skaltu bjóðast til að þvo pottana eða annað sem er
erfitt að hreinsa.
75. Útbúðu lista yfir það sem þarfnast lagfæringar
og hafðu hann I eldhúsinu. Þegar þú mátt vera að
sinntu þá einhverju því sem á listanum er. Ekki láta
langan tíma líða.
76. Hrósaðu henni fyrir máltfð sem hún hefur útbú-
ið.
77. Horfðu (augun á henni þegar þú hlustar á hana.
78. Snertu hana með höndunum stundum þegar þú
ert að tala við hana.
79. Sýndu áhuga á því sem hún gerir á daginn, bók-
unum sem hún les og fólkinu sem hún tengist.
80. Þegar þú ert að hlusta á hana skaltu fullvisa hana
um að þú hafir áhuga með því að gefa frá þér hljóð á
borð við „Ummm", „Ó“, „Jamm" og „Nú“.
81. Spurðu hana hvernig henni Kði.
82. Hafi hún verið veik, biddu hana þá að segja þér
hvernig henni líði eða hvort henni sé batnað.
83. Sé hún þreytt skaltu bjóðast til að útbúa te fyrir
hana.
84. Háttið ykkur saman og farið í rúmið á sama tíma.
85. Kysstu hana og kveddu þegar þú ferð.
86. Hlæðu að bröndurum hennar og kímni.
87. Þakkaðu henni fyrir þegar hún gerir eitthvað fyr-
irþig.
88. Taktu ettir þegar hún lætur laga á sér hárið og
sláðu henni gullhamra.
89. Gerðu ráð fyrir tíma sem þið getið notiö saman
tvö ein á sérstakan hátt.
90. Ekki svara i símann á persónulegum augnablik-
um eða ef hún er að tala um viðkvæm tilfinningamái.
91. Farið saman í hjólreiðaferðir jafnvel þótt það sé
aðeins stutt.
92. Skipuleggðu og undirbúðu lautarferð. (Mundu
eftir dúknum.)
93. Ef það er hún sem sér um þvottinn skaltu fara
meö föt (hreinsun eða bjóðast til að þvo.
94. Farðu með henni í gönguferðir án barnanna.
95. Semjið þannig aö hún sjái aö þú vilt að hún fái
það sem hún vill og þú táir Kka það sem þú vilt.
Vertu umhyggjusamur en ekki pfslarvottur.
96. Láttu hana vita aö þú saknaðir hennar þegar þú
fórst í burtu.
97. Komdu heim með eitthvað sem henni þykir veru-
lega gott.
98. Ef það er hún sem kaupir venjulega inn skaltu
bjóðast til þess.
99. Borðaðu þig ekki saddan á rómantískum stund-
um svo að þú veröir ekki úttroðinn og þreyttur
seinna.
100. Biddu hana að bæta við þennan lista því sem
henni finnst vanta.
101. Gættu þess að loka klósettskálinni.