Helgarpósturinn - 21.12.1995, Page 6
6
1
ÆSS
HMIVmJDAGUR 2L DESEMBER1995
Framsóknarþingmaðurinn Guðni Ágústsson er einn umtalaðasti stjórnmálamaður landsins. í samtali við
Stefán Hrafn Hagalín ber Guðni alfarið af sér ásakanir um útlendingaandúð og rekur síðan skoðanir sínar sem sýnast
frekar passa inní stefnuskrá Alþýðuflokksins en Framsóknarflokksins - enda segist maðurinn vera jafnaðarmaður að upplagi...
förnum árum
og mun halda því áfram
hvað innlendar vörur varðar.
Það liggur meðal annars í eðli
búvörusamningsins. Þessi um-
ræða hefur verið afvegafærð.
Ég hef stundum bent á að
steikin sé ekki á hærra verði
hér en annarsstaðar í Evrópu,
en rauðvínið og bjórinn hins-
vegar á margföldu verði miðað
við það þar. En enginn kærir
sig um að taia um það. Það er
ríkjandi siður hér að sækja allt-
af að landbúnaðinum og segja
hann verst rekinn af öllum.
Það er að sjálfsögðu rangt.
Þegar við skoðum ríkisfjármál-
in — ég er til að mynda að
koma af fundi heilbrigðis- og
trygginganefndar þarsem
menn þurfa að standa í alls-
konar djöfulskap — þá sjáum
við það glögglega, að eini
sparnaðurinn í ríkisútgjöldum
á síðari árum liggur í því að
menn hafa skorið framlög til
landbúnaðar niður við trog.
Bændur hafa þurft að herða
sínar sultarólar og takast á við
nýja tíma í miklu meiri mæli en
aðrar stéttir. Ég vil þó taka
fram að ég er ekki bóndi og hef
aldrei verið. Ég tel mér einfald-
lega vera skylt sem þjóðfélags-
þegni og þingmanni að styðja
Í>ennan annan aðalatvinnuveg
slendinga. Við værum illa
stödd ef við færum að flytja
þessar vörur allar inn —
einsog mér sýnist reyndar að
ýmis öfl vilji gera. Þá fyrst
myndi atvinnuleysið magn-
ast.“
Það er ekki hægt að
sporna við Jjví að
svæði leggist í eyði
Við heyrum í síauknum mceli
fregnir
af byggðum sem eru
að fara í eyði. Bœndur verða
sérstaklega hart úti í þessum
efnum. Er þetta eitthvað sem
hœgt er að sporna við að þínu
mati?
„Byggðin í landinu hefur ver-
ið að breytast frá upphafi land-
náms og með hverri öld tekið
miklum stakkaskiptum. Stund-
um fjölgar og stundum fækkar,
en vissulega sjáum við nú sí-
fellt fleiri staði þar sem byggð
er að fara í eyði og það er mjög
erfitt að bregðast við því. Til
dæmis er ung kynslóð í upp-
eldi sem hreinlega vill ekki
vera á þessum stöðum. Unga
fólkið sér ekki möguleikana í
því að búa þarna. Og við þessu
getum við í rauninni ekkert
gert. Ekki getum við bundið
fólkið eða njörvað niður... En
að sjálfsögðu saknar maður
svona byggðarlaga og þessi
dæmi sem við horfum uppá í
dag eru ekki góð. Menn eru
þarna að hverfa frá nýtingu á
verðmætri auðlind. En vand-
séðar eru leiðirnar og úrræðin
til að koma í veg fyrir þær
breytingar sem nú eiga sér
stað.“
Stefnufestan er bæði
veikleiki og styrkleiki
Halldórs Asgrimssonar
Að loknum alþingiskosning-
um síðastliðið vor myndaði
Framsóknarflokkurinn ríkis-
stjóm sem hefur verið núið því
um nasir að vera stjórn stöðn-
unar og lognmulluleiðinda. Af-
hverju völduð þið þessa leið?
„Það var náttúrlega ekki
möguleiki að fara í stjórn með
fjórum eða fimm flokkum — og
þar innanum eru sprengifram-
boð sem eru að deyja út — við
þær aðstæður sem eru ríkjandi
í þjóðfélaginu. Við hefðum
á villigötum?
Ég er ósáttur við kvóta-
kerfið: Bændur eru
menn frelsis
Kosningasigur Framsóknar-
flokksins síðastliðið vor vannst
að miklu leyti með nýrri ímynd-
arvinnu — Framsókn sýndist
loksins komin á mölina. Ertu
sáttur við þá þróun?
„Framsóknarflokkurinn er al-
mennilegur flokkur sem á
heima jafnt í dreifbýli sem
þéttbýli. Það er ein þjóð sem
byggir þetta land og ekkert
stjórnmálaafl verður hér sterkt
án góðrar stöðu um land allt.
Framsóknarflokkurinn hefur
gegnum tíðina staðið með
dreifbýli og landbúnaði og fyr-
ir vikið orðið fyrir ómaklegum
árásum frá höfuðborgarsvæð-
inu, eða öflum þarv Eins held
ég að erfið staða SÍS og afleit
ímynd hafi skaðað flokkinn á
níunda áratugnum — ekki síst
hér á suðvesturhorninu. Þaraf-
leiðandi hlýt ég að gleðjast
innilega yfir því að Framsókn-
arflokkurinn sé orðinn næst-
stærsti stjórnmálaflokkurinn í
Reykjavík og á Reykjanesi."
En er búnaðarforinginn ham-
ingjusamur með hvernig ríkis-
valdið býr um þessar mundir að
landbúnaðinum?
„Auðvitað er ég ekki sáttur
við stöðu landbúnaðarins.
Bændur eru að ganga gegnum
miklar hremmingar og á alvar-
legri hátt en nokkur önnur
stétt. Ég held hinsvegar að nýr
búvörusamningur muni breyta
stöðunni mikið. Ég var aldrei
sáttur við það sem gerðist þeg-
ar þrengingarnar tóku að
ganga yfir bændur og kvóta-
kerfinu var komið á sem nauð-
vörn og hefði þurft fyrir löngu
að afnema það. Bændur eru í
eðli sínu menn frelsis. Þeir
njóta sín ekki í fjötrum. Kvóta-
kerfið hefur reynst mönnum
mjög erfitt og búvörusamning-
urinn gefur mönnum færi á að
vinna sig útúr því og sjá aðra
möguleika sem eru hér fyrir
hendi. Þetta snýst nefnilega
ekki bara um ær og kýr því
bændur landsins eru náttúr-
lega lykillinn að margri annarri
atvinnuuppbyggingu. Þar get-
um við tekið ferðaþjónustuna
sem dæmi. Bændur eru
stærstu aðilarnir á því sviði.
„Loðdýra- og fiskeldið eru
dæmi um tvennskonar mistök.
í fiskeldinu voru öll sterkustu
öfl og helstu fjármálamenn ís-
lands á ferðinni. Og þetta lið
hálsbraut sig í málinu vegna
þess, að það var algjörlega far-
ið offari og engum lögmálum
hlítt um eðlilega þróun. Það
var bara anað áfram. Loðdýra-
ræktin er síðan annað mál.
Henni var ætlað í bráðræði að
leysa vanda sauðfjárræktar-
innar. Og eftir að miklar hvatn-
víg frjálsrœði í landbúnaðar-
málum. Hverju viltu svara
þessu til?
„Útgjöld fólks vegna mat-
vörukaupa eru aðeins um átta
prósent af heildarútgjöldum á
heimili blessaðrar vísitölufjöl-
skyldunnar. Og hér á landi eru
landbúnaðarvörur bara alls
ekki á ósvipuðu verði og geng-
ur og gerist í Danmörku,
Noregi og víðar. Matvöru-
kostnaður hefur vitaskuld
snarlækkað hér á undan-
Ihuga undirritaðs er Guðni Ágústsson, alþingismað-
ur Framsóknarflokksins á Suðurlandi, erkitýpa af
„gamaldags“ framsóknarmanni. Maðurinn er sonur
alþingismanns, einn af sextán systkinum og alinn upp í
dreifbýli. Menntaður í sveit og útskrifaður sem búfræð-
ingur. Var formaður ungmennafélags, sat í stjórn SUF og
endaði á Alþingi. Er í bankaráði Búnaðarbankans og
gegnir embættum í Bændahöllinni. Öllu dæmigerðara
verður það ekki. Aukþess er hann ekki ýkja málglaður,
hefur þungt og alvarlegt yfirbragð og dimman og hæg-
an talanda í samræmi við það. — Undanfarna mánuði
hefur Guðni Ágústsson skipað öruggan sess sem einn
af umtöluðustu stjórnmálamönnum þjóðarinnar, en það
kemur ekki allt til af góðu því hann hefur sérstaklega
staðið í ströngu vegna ásakana um óvild í garð nýbúa,
litaðra og flóttamanna. Helgarpósturinn ræddi við
Guðna í rólegheitunum og komst meðal annars að því
að hann er sannfærður jafnaðarmaður að upplagi. Og
Guðni er þarað auki með ansi kratískar skoðanir í
mörgum málum, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Lítum
á nokkrar af þeim meiningum hans sem hljóta að teljast
í óhefðbundnari kantinum fyrir skoðanaflóru Fram-
sóknarflokksins: Kvótakerfið í landbúnaði er vont kerfi
sem þarf að frelsa bændur frá; bráðræðismistök voru
gerð með loðdýra- og fiskeldi; staða og ímynd SÍS skað-
aði Framsóknarflokkinn; endurskoðunar er þörf á
hættulegu fiskveiðakerfinu; örfáir sægreifar mega ekki
eignast auðlindina, markaðurinn á að ráða sér sjálfur;
fyrirgreiðslu á ekki að hátta þannig, að menn gangi um
með vasa fulla af skattpeningum borgaranna og dreifi í
allar áttir; átthagafjötrar virka ekki og trauðla er hægt
að koma í veg fyrir þá þróun að sífellt fleiri svæði legg-
ist í eyði; kosninga- og kjördæmafyrirkomulagið verður
að endurskoða; flokkaskipan á Islandi er óeðlileg; hér á
að vera stór jafnaðarmannaflokkur ásamt Framsóknar-
flokki og Sjálfstæðisflokki (sem er alltof stór); stefnu-
festan er bæði mesti styrkleiki og veikleiki Halldórs Ás-
grímssonar... Þarfnast málið frekari sannana við?
Og það gildir hvort sem við lít-
um útá land eða hingað til
Reykjavíkur þarsem bændur
eiga meðal annars Hótel Sögu
og Hótel ísland. Bændur veita
þéttbýlisbúum bæði afþrey-
ingu og þjónustu. Þeir eru
varðveislumenn auðlindanna
og ferðaþjónustan er næst-
stærsti skapandi gjaldeyris í
landinu. Við þurfum að forða
þjóðinni og bændum frá þess-
ari rugluðu umræðu um land-
búnaðinn og líta á málið í heild
sinni. Ég held að þéttbýlisbúar
séu mér flestir alveg sammála
um það.“
Loðdýra- og fiskeldið
mistök & matvaran
mun áfram lækka
Er ekki loðdýra- og fiskeldið á
síðasta áratug klárt dœmi um
misheppnuð ríkisafskipti líktog
ferðaþjónusta bœnda sannar
ágœtlega hvernig menn bjarga
sér þegar þeir fá að vera í friði
fyrir forræðistilhneigingum
stjórnvalda?
ingar höfðu verið
uppi lentu menn á
endanum í sömu
gryfjunni og í fisk-
eldinu. Það átti að
græða og græða og
alltof hratt farið.
Þessi mistök eru ein-
faldlega til að varast.
Ég er þeirrar skoðun-
ar að markaðurinn
eigi að mestu leyti að
fá að ráða sér sjálfur.
Við eigum ekki að halda
okkur við kerfi sem
helst lfkjast því sovéska
á sínum tíma. Og fyrir-
greiðslu á ekki að hátta
þannig, að menn gangi
um með vasa fulla af
skattpeningum borgar-
anna og dreifi í allar áttir.“
Matvöruinnkaup eru einn
stœrsti útgjaldaliður heimil-
anna og Framsóknarflokkn-
um lengi verið legið á hálsi
fyrir að halda hér uppi mat-
vöruverði með stefnu sem sé
neytendafjandsamleg og and-