Helgarpósturinn - 21.12.1995, Page 8
8
RMMTUDAGUR ZL DESEMBER1995
Óskabækur
Leikkona, verkalýðsforingi, söngkona, forstjóri, sóknarprestur, íþróttaforkólfur, borgarfulltrúi,
alþingiskonur, hljómborðsleikari, prédíkari, leikhússtjóri, háskólanemi, gamalvanur ritstjóri og
borgarstjórinn í Reykjavík. Hvað vilja þau lesa yfírjóiin?
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
leikkona
„Hjartastaður eftir Steinunni
Sigurðardóttur og bókin henn-
ar Kristbjargar Kjeld, og bíddu
aðeins — Paula eftir Isabel Al-
lende; þessar þrjár bækur
ætla ég að lesa og er reyndar
komin með þær í hendurnar.
Steinunni fékk ég í afmælisgjöf,
Tómas R. gaf mér Paulu og
bókina hennar Kristbjargar
keypti ég sjálf. Annars er ég
ekkert sérstaklega dugleg að
lesa yfir jólin, en ég ætla að
reyna að taka mig á.“
lesa bókina hans Þórs White-
head án þess að þurfa að vera
honum sammála. Svo hefur
mér sýnst áhugaverð bókin
um þessa konu sem lenti í
hörmungum þarna í Þýska-
landi en fór svo til Finnlands,
ævisaga Ástu Sigurbrands-
dóttur."
Anna Mjöll Ólafsdóttir
söngkona
„Mig langar að lesa bókina
Vetrareld, mér finnst hún
mjög girnileg. Ég hef líka áhuga
á bókinni um hana Maríu Guð-
mundsdóttur og heyrist á allri
umfjöllun að hún hafi lifað
mjög spennandi lífi. Annars
reyni ég að lesa eins mikið af
bókum og ég get, en auðvitað
les maður aidrei eins mikið og
maður vildi. Jólin eru einmitt
tími til að slökkva á sjónvarp-
inu og lesa smá. Einhvern veg-
inn líður manni svo miklu bet-
ur eftir að hafa lesið en eftir að
hafa horft á sjónvarpið.“
Óskar Magnússon
forstjóri
„Þær eru ekki mjög margar.
Eru þetta ekki mest orðnar
svona smjörlíkis- og smuroiíu-
bækur sem eru seldar í mat-
vörubúðum og lesnar upp á
bílaverkstæðum? Það geta
varla verið merkilegar bók-
menntir. En af þeim bókum
sem hafa sloppið við mestu
smjörlíkis- og smurolíufituna
dettur mér helst í hug að lesa
bók um Stein Steinarr, og svo
trúi ég að Bjöm Th. Björasson
standi upp úr sem fyrr með
Hmunfólkið. Ég man ekki eftir
mikið fleiru, enda er ég lítið
gefinn fyrir fólk sem veltir sér
upp úr frægð sinni og vand-
ræðagangi, og enn síður fólki
sem kvartar undan vondum
foreldrum sínum og mökurn."
Geir Waage
prestur í Reykholti
„Ég gæti vel hugsað mér að
lesa bókina um Ólaf helga sem
fyrrverandi menntamálaráð-
herra Noregs var að gefa út.
Hana ias ég um í bókatíðindum
Morgunblaðsins og líst vel á.
Mér sýnist bókaútgáfan vera
fjörleg og skemmtileg um þess-
ar mundir, þótt ég muni reynd-
ar ekki eftir neinum titlum sem
standa upp úr. Vídalínspost-
illal Hana á ég reyndar í þrem-
ur útgáfum, frá 1731, 1927 og
svo í útgáfu frá fimmta ára-
tugnum. Ég nota mest útgáf-
una frá 1731, það er skemmti-
legast að lesa þetta á fraktúr-
unni, gotneska letrinu. Annars
verð ég viðþolslaus ef mig
vantar bækur og þarf helst að
eiga helstu undirstöðurit í
sagnfræði og guðfræði. Maður
hleypur ekki út á bókasafn hér
— ekki ennþá.“
Ellert B„ Schram
forseti ISI
„Ég er búinn að panta mér
Hmunfólkið hans Björas Th.
og bókina hans Matthíasar Jo-
hannessen langar mig líka tii
að iesa, Hvíldarlausa ferð inn í
dmuminn. Svo ætla ég náttúr-
lega að kíkja í Pétur vin minn
Sigurðsson og Steinunni er ég
búinn að kaupa handa dóttur
minni, sem þarf á góðum bók-
menntum að halda. Þetta er
það helsta sem ég man eftir, en
mér finnst vel hugsanlegt að
ég sé að missa af einhverjum
perlum sem þarna leynast."
Árni Sigfússon
borgarfulltrúi
„Ég er hræddur um að þetta
verði frekar barnajól hjá mér
en bókajól, ég geri mér ekki
vonir um að lesa margar bæk-
ur. Ég er raunar búinn að lesa
Karlar em fró Mars, konur eru
fró Venus, og gerði það á undir-
búningsstigi bókarinnar. Ég er
búinn að kaupa bókina Paula
eftir Isabel Allende handa
konunni minni og vona að hún
vilji lána mér hana, ætli ég nái
þá ekki að klára hana svona í
febrúar eða mars. Annars er
helst að ég leggi fram óskalista
um hvaða bækur ég vildi fá. /s-
landssögu eftir Einar Laxness
gæti ég hugsað mér að eiga og
það væri gaman að glugga í Is-
lenskar tilvitnanir eftir Hannes
Hólmstein. Siðfrœði Nikómak-
kosar vildi ég líka gjarnan fá og
bókina eftir Þór Whitehead.
Hún er skyldulesning. Ef þú
getur komið því á framfæri að
ég fái þessar bækur yrði ég
sáttur og lofa að lesa þær á ár-
inu.“
Siv Friðleifsdóttir
alþingismadur
„Tröllasögur. Álfar og tröll,
ég ætla að lesa þá bók fyrir
börnin mín, það er mikill
tröllaáhugi hjá þeim þessa
dagana. Sá yngri er tveggja
ára. Sjálf ætla ég hins vegar að
lesa blöð um húsgögn og gard-
ínur og þess háttar, vegna
þess að ég var að flytja í nýtt
hús. Ég hef annars haft lítinn
tíma til að kynna mér hvaða
bókmenntir eru að koma út
fyrir jólin, svo ég les bara það
sem ég fæ í jólagjöf. Ég verð
víst að treysta öðrum fyrir
því.“
Bryndís Hlöðversdóttir
alþingismaður
„Ég er nú að upplifa þennan
hamagang í þinginu fyrir jólin í
fyrsta skipti og það er eins og
himinn og jörð séu að farast.
Svo skilst mér að yfirleitt komi
í ljós að það gerist ekki og þá
vona ég að ég fái tíma til að
lesa og slaka á með fjölskyld-
unni. Eg gæti helst hugsað mér
að lesa bókina hennar Stein-
unnar Sigurðardóttur, Vetrnr-
eld eftir Friðrik Erlingsson og
Ekkert að þakka eftir Guðrúnu
Helgadóttur. í svipinn man ég
helst eftir þessum bókum —
þú mátt kannski bæta við
Ströndinni í ndttúru íslands.“
Magnús Kjartansson
tónlistarmaður
„Þær eru nokkrar bækurnar
sem mig langar í. Náttúrlega
bókin hans Jóhanns G. Berg-
þórssonar, Satt að segja, og
svo kveikir hún líka í mér bók-
in um hann Ragnar í Skafta-
felii. Annars er svo misjafnt
hvað ég hef gaman af að lesa. í
fyrra fékk ég bókina hans
Gunnars Dal, Að elska er að
lifa, og las hana lengi og vel og
hlakka til að lesa hana aftur.
Bókin Valdatafl í Valhöll fer
svo aldrei af náttborðinu hjá
mér og hana nota ég sem upp-
flettirit um erjur fyrri tíma og
hvernig hlutirnir hafa tilhneig-
ingu til að falla í ljúfa löð þótt
mikið gangi á. í fyrra lá ég á
spítala og þá las ég ævisögu
Keiths Richards. Við vorum
fimm á stofu og sífellt verið að
dæla í okkur lyfjum, en ég
huggaði mig við hvílíkt smott-
erí þetta var miðað við það
sem karlinn kom ofan í sig
sjálfur á hverri blaðsíðu — og
lifði af!“
Gunnar Þorsteinsson
í Krossinum
„Saga gyðinga held ég að sé
áhugaverð bók og ég hef heyrt
vel af henni látið svona í fram-
hjáhlaupi. Svo er önnur bók
sem ég held að sé mergjuð af-
lestrar, Kóngur um stund, ævi-
saga Gunnars Bjarnasonar,
skráð af Öraóifí Amasyni. Þá
sá ég í blaði í dag að vinur
minn, ljóðskáldið ísak Harðar-
son, er að gefa út nýja bók og
hana líst mér vel á. Hann er
öngvum Iíkur, drengurinn.
Hann talar til dæmis um ykkur
fjölmiðla sem „mjölfiðla“.“
Ása Richardsdóttir
leikhússtjóri
„Margar. Hjartastaður eftir
Steinunni Sigurðardóttur sem
ég er reyndar búin að lesa og
finnst góð og sérstök bók. Hún
inniheldur margar litlar sögur
sem leita á hugann og mér
finnst ég þurfa að Iesa hana
fljótt aftur. Eftir Kristínu Maiju
Baldursdóttur langar mig að
lesa Mdvahldtur og bókina
hans Heiga Ingólfssonar, Letr-
að í vindinn. Svo langar mig að
lesa þýðingu Thors á ítölsku
skáldkonunni, heitir hún ekki
Susanna Tamaro?“
Flosi Eiríksson
háskólanemi
„í dag ætla ég bara að lesa
þessar átján sannanir sem ég
þarf að kunna fyrir morgundag-
inn. Ég hef verið í prófum og er
frekar blankó í þessu jólabóka-
flóði. Ég veit samt að Steinunn
Sigurðardóttir var að gefa út
bók og langar að lesa hana.
Eina smásögu las ég eftir Ágúst
Borgþór Sverrisson og leist vel
á hana og get vel hugsað mér
að lesa bókina eftir hann. Það
er kannski engin ástæða til að
taka fram að mér finnst Isabel
Allende leiðinlegur höfundur,
en ætli ég segi það ekki samt og
ég les hana ekki. En Mefistó eft-
ir Klaus Mann — er það ekki
skemmtileg bók?“
Helgi Sæmundsson
fyrrverandi ritstjóri
„Ég er raunar þegar búinn að
sjá nokkuð af bókum vegna
þess að ég les ansi mikið af
próförkum. En einna helst
langar mig að lesa bækur með
úrvali úr ljóðum eftir Hannes
Pétursson og Þorstein frá
Hamri, ekki vegna þess að ég
þekki ekki ljóðin heldur til að
sjá hvernig hefur tekist til með
valið. Ég hef lesið fyrri bækur
Þórs Whitehead og er forvit-
inn að sjá nýju bókina hans,
enda er hann að fjalla um tíma
sem maður kannast vel við.
Fyrirlestra um sdlkönnun eftir
Freud langar mig í, og er
reyndar þeirrar skoðunar að
ásamt Marx hafi hann haft
mest áhrif á bókmenntir í
minni tíð. Mér hefur líka sýnst
að hann sé einn af höfuðsnill-
ingum þýskrar tungu og jafnist
þar á við Lúter, Goetíie og
Rilke. Svo eru þýðingar sem er
óskaplega forvitnilegt að kom-
ast í, til dæmis Frú Bovary, en
mér er sagt að þar hafi Pétur
Gunnarsson unnið mjög gott
verk. Þýðingar voru lengi veiki
hlekkurinn í íslenskri bókaút-
gáfu, en það hefur sem betur
fer breyst og sannar hversu
mikilvægt var að koma þýð-
ingasjóði á laggirnar á sínum
tíma. Annars finnst mér fagn-
aðarefni hvað bækur eru orðn-
ar fallegar að allri gerð núorð-
ið; ef þær væru jafnfallegar að
innan og utan, þá værum við á
heimsmælikvarða.“
borgarstjóri
„Það er reyndar eins gott að
þú spyrð ekki hvað ég er búin
að lesa. En bókina hennar
Steinunnar Sigurðardóttur,
hana er ég staðráðin í að lesa,
og Hmunfólkið eftir Björa Th.
Björasson. Ég er raunar byrjuð
að lesa í þýðingu Thors á Lót
hjartað róða för og af öðrum
þýðingum langar mig að lesa
Mefistó eftir Klaus Mann. Ég
get líka nefnt bók Ólínu Þor-
varðardóttur, Álfar og tröll, og
Móvahlútur eftir Kristínu
Maiju Baldursdóttur. Svo eru
tvær bækur um sagnfræði sem
hafa ekki farið hátt: Hundrnð
dra saga Hjdlprœðishersins, ég
hef verið að glugga í hana og
sýnist að það sé merkileg bók.
Hin bókin tengist líka sögu
Reykjavíkur, öðru hundrað ára
afmæli, og félagsskap sem er
ekki síður merkilegur en það
er Saga Hvítabandsins. Ég veit
svo ekki hvort ég kemst yfir
þetta allt, en ég reyni að gera
mitt besta."