Helgarpósturinn - 21.12.1995, Qupperneq 10
10
RMMTUDAGUR ZL DESEMBER1995
Útgefandi: Miðill hf.
Framkvæmdastjóri: Þorbjörn Tjörvi Stefánsson
Ritstjóri: Stefán Hrafn Hagalín
Ritstjómarfulltrúi: Guðrún Kristjánsdóttir
Setning og umbrot: Helgarpósturinn
Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Líf og dauði
íslenskrar þjóðar
Enn einu sinni hafa stjórnendur Háskóla íslands og
stúdentar séð sig nauðbeygða til að krjúpa á kné og grát-
biðja stjórnvöld um auknar fjárveitingar skólanum til
handa. Grátbiðja. Þráttfyrir að sitjandi ríkisstjórn hafi enn
ekki fundið dugandi ástæðu til að sjá aumur á þjóð sinni í
þessum málum nýtur bón háskólamanna almenns stuðn-
ings annarsstaðar í þjóðfélaginu. Og kemur það reyndar
nokkuð á óvart, því blessaðir háskólaborgararnir hafa
sjaldan verið ýkja háttskrifaðir hjá þessum harðskeytta
þjóðflokki sjósóknara. Nema kannski á tyllidögum.
Samkvæmt þrengstu áætlunum stjórnenda Háskólans
skortir að lágmarki 70 milljónir til að halda uppi kennslu
með viðunandi hætti þarsem deildir Háskólans búi nú
sem síðustu ár við skelfilegan fjármagns- og tækjaskort.
Meira að segja stefni í greiðsluþrot að óbreyttu ástandi.
Stúdentaráð segir síðan fjárveitingu á hvern nemanda
hafa verið skorna niður um fjórðung á fjórum árum. Raun-
ar benda þeir sem til þekkja á, að býsna margar deildirnar
innan skólans hafi á síðustu árum hætt að rísa undir nafni
sem sjálfstæðar háskóladeildir vegna þrenginganna.
Á undanförnum árum hafa stjórnvöld beitt ýtrustu nið-
urskurðaraðgerðum til að koma böndum á útgjöld ríkis-
ins og stöðva sjálfvirka og innbyggða þenslu kerfisins.
Þensluna er þó tæknilega ekki hægt að stöðva nema upp-
að ákveðnu marki og flatur niðurskurður hefur einungis
áhrif til skamms tíma. Og niðurskurðar- og aðhaldshlut-
verkið er vitaskuld hörmulega vanþakklátt, og grátlegt
fyrir stolta þjóð sem lifað hefur við velmegun að horfa
uppá leiðtoga sína blóðuga uppað öxlum. Glögglega er
ljóst að öllu lengra verður ekki gengið á hlut heilbrigðis-
kerfisins. Hvaðan á að taka peningana fyrir háskólann ef
ekki frá heilbrigðiskerfinu, stærsta útgjaldaliðnum? Á að
hækka skatta launafólks? Á að þyngja gjöld fyrirtækja og
velstæðra einstaklinga? Á að herða enn sultarólar iðnað-
arins? Á að hrekkja sægreifana okkar fínu og flottu með
auðlindaskatti? Á að klípa vænan spikbita utan af velmeg-
unarístru landbúnaðaryfirbyggingarinnar? Má hagræða
þó ekki væri nema ögn betur í velferðarkerfinu? Væri
hugsanlegt að hætta að byggja upp endalausa skóla á
framhalds- og háskólastigi og drita niður víðsvegar um
landið? Er mögulegt að skipuleggja fjárlagaumræðuna
betur og festa inní hana langtímamarkmið svo forðast
megi kostnaðarsamar skyndireddingar og mínútuplástr-
anir á síðustu dögunum fyrir jól? Af nógu er altént að taka
áðuren frekar verður höggvið að Háskólanum.
Undirritaður vill ganga svo langt, að segja það spurn-
ingu um líf eða dauða fyrir hina íslensku þjóð að hafa hér
„alvöru" háskóla; háskóla sem stendur fyllilega undir
nafni sem æðsta menntastofnun þjóðarinnar; háskóla
sem er samkeppnisfær við erlenda háskóla upp að fyrir-
fram ákveðnu marki — meðal annars til að draga úr flótta
okkar efnilegasta fólks á grænni grundir erlendis; háskóla
sem hefur skilning ráðamanna á því að bókvitið verður
svo sannarlega í askana látið; háskóla þar sem tækniþekk-
ing, framþróun, rannsóknir og öflugt vísindastarf fá að
dafna og blómstra öllum til heilla. Þessi atriði eru algjörar
forsendur þess, að hér fái lifað þjóð á viðunandi menning-
arstigi.
Hvar er nú hinn víðsýni og framsýni menntamálaráð-
herra sem jafnvel hatrammir andstæðingar treystu til
skörulegra verka og framkvæmda í brýnustu málum síns
umráðasviðs? Hvar er nú hinn afkastamikli menntafröm-
uður þjóðarinnar? Hvenær kemur hann askvaðandi inná
ríkisstjórnarfund, lemur knýttum hnefanum mynduglega í
borðið og segir; Hingað og ekki lengra!
Stefán Hrafn Hagalín
Helgarpósturinn
Vesturgötu 2
101 Reykjavík
Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Netfang: hp@centrum.is
Bein númen Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311,
fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 5524777,
auglýsingadeild: 552-221 l,símbréf: 552-2241,
dreifing: 5524999.
Áskrift kostar kr. 800 á mánuði ef greitt er með
greiðslukorti, en kr. 900 annars.
Opinber eftirlitsiðnaður - frelsi fjölmiðla
Bankaeftirlitið hefur krafist
þess, að blaðamaður á Morg-
unblaðinu gefi upp heimildar-
menn sína í Landsbankanum, til
þess að eftirlitið geti komist að
raun um hvaða opinber starfs-
maður bankans rauf þagnar-
Stjórn mál
Björn Bjamason
skyldu sínu. Héraðsdómari hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu,
að svo mikið sé í húfi, að blaða-
manninum sé skylt að svara
spurningum um þetta. Málinu
hefur verið vísað til Hæstarétt-
ar.
Eftirlitskerfi hins opinbera
verður sífellt víðtækara. Raunar
leiðir það af minni ríkisafskipt-
um, að óskir um eftirlit af ríkis-
ins hálfu verða meiri. Sam-
keppnisstofnun hefur þegar
sýnt og sannað, hve mikilvægt
slíkt opinbert eftirlit getur verið.
Raunar eru það helst ríkisfyrir-
tæki, sem kvarta undan eftirliti
Samkeppnisstofnunar. Hafa
raddir heyrst, um að ákvæðin í
samkeppnislögunum séu of
ströng fyrir opinber fyrirtæki.
Þeir, sem þannig tala, virðast
ekki átta sig á því, að ríkisstofn-
unum er einmitt til góðs að fara
að kröfum um aukna samkeppni
og þjónustu. Geti þær ekki sinnt
því hlutverki vegna einokunar-
aðstöðu sinnar á krafan ekki að
vera á þann veg, að Samkeppnis-
stofnun sé lögð niður heldur um
hitt, að ríkisfyrirtækjunum sé
breytt í einkafyrirtæki og starfi á
sama grundvelli og þau.
Áhrif á skólakerfið
Á undanförnum árum hefur
orðið gjörbreyting í starfsum-
hverfi opinberra stofnana og
fyrirtækja. Hér hefur verið
minnst á hlutverk Samkeppnis-
stofnunar. Einnig má geta um
umboðsmann Alþingis og störf
hans og stjórnsýslulögin, sem
samþykkt voru á síðasta kjör-
tímabili. Allt stuðlar þetta að
því, að almenningur eigi skýra
og lögverndaða leið til að koma
málstað sínum á framfæri, telji
hann opinbera aðila beita sig
ranglæti.
Umboðsmaður barna tók ný-
lega til starfa. Fyrir nokkru sendi
hann mér sem menntamálaráð-
herra álit, er laut að framkvæmd
samræmdra prófa í 10. bekk
grunnskóla. Taldi umboðsmað-
urinn óeðlilegt, að starfandi
kennarar í 10. bekk semdu þessi
próf. Þetta álit kallaði á endur-
skoðun á því, hvernig að þess-
um málum er staðið. Er henni
lokið og hefur breytingu verið
hrundið í framkvæmd.
Ný stjórnsýslulög kalla á end-
urskoðun á ýmsum þáttum er
varða töku ákvarðana í skóla-
málum. Lýtur það meðal annars
að því, hvernig brugðist er við
agabrotum innan skóla. Um það
efni er nauðsynlegt að setja op-
inberar reglur, svo að skóla-
menn, nemendur og foreldrar
átti sig á réttarstöðu sinni.
Frelsi fjölmiðla
í ljósi þess, að hlutverk ríkis-
ins er mikið og vaxandi við eftir-
lit með, stóru og smáu, verður
forvitnilegt að fylgjast með
framvindu málsins gegn blaða-
manni Morgunblaðsins. Eins og
áður sagði snýst málið um það,
að bankaeftirlitið vill, að blaða-
maðurinn aðstoði sig við að
upplýsa, hverjir það eru í Lands-
bankanum, sem létu honum í té
trúnaðargögn um samskipti
bankans við Samband íslenskra
samvinnufélaga (SÍS).
Blaðamaðurinn braut ekki
trúnað. Viðskiptavinur bankans,
SÍS, sem um er fjallað í trúnaðar-
gögnunum, hefur ekki farið fram
á upplýsingar um heimildar-
mann blaðamannsins. Það er
hin opinbera eftirlitsstofnun,
bankaeftirlitið, sem felur ríkis-
saksóknara og hann síðan Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, að knýja
einkaaðila til að upplýsa, hver
rauf þagnarskyldu hjá Lands-
banka íslands. Þetta er gert, eftir
að rannsóknarlögreglan hefur
yfirheyrt bankaráðsmenn og
starfsmenn Landsbankans.
Bankaeftirlitið er sem sagt í
leit að sökudólgi innan opinbers
fyrirtækis. Blaðamanni utan
hins opinbera kerfis er gert
skylt að varpa ljósi á meint trún-
aðarbrot innan þess. Blaða-
menn telja, að með þessu sé
vegið að frelsi sínu, því að rétt-
urinn til að vernda heimildar-
menn sé hvarvetna talinn meg-
inforsenda heilbrigðrar blaða-
mennsku. Héraðsdómarinn tel-
ur hins vegar meiri hagsmuni í
húfi en felast í þessum rétti.
Niðurstöðu Hæstaréttar er
beðið með nokkurri eftirvænt-
„Bankaeftirlitið ersem
sagt í leit að sökudólgi
innan opinbers fyrirtœkis.
Blaðamanni utan hins op-
inbera kerfis ergert skylt
að uarpa Ijósi á meint
trúnaðarbrot innan þess.
Blaðamenn telja, að með
þessu sé vegið að frelsi
sfnu, þuí að rétturinn til
að uernda heimildarmenn
séhuaruetna talinn meg-
inforsenda heilbrigðrar
blaðamennsku. “
ingu. Víðar í hinu opinbera kerfi
kunna menn, þegar eftirlits-
skyldan eykst, að vilja fara
þessa leið og knýja blaðamenn
til að skýra frá því, hverjir segja
þeim frá hlutum, sem sam-
kvæmt trúnaðarskyldu eiga að
fara leynt innan hins opinbera
kerfis. í Landsbankanum eru
fjárhagslegir hagsmunir í húfi. Á
öðrum vettvangi kunna enn
meiri og viðkvæmari atriði, sem
snerta einstaklinga og fyrirtæki,
að vera til umfjöllunar.
Höfundur er menntamálaráðherra og al-
þingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Ég fór í áfengis-
meðferð í sumar
og er sannarlega
breyttur maður ...
Ég hef átt við
áfengisvandamál
að stríða í gegn-
um tíðina og
frammistaða okk-
ar á HM ýtti aldeil-
is undir það. Ég
hrasaði hrapal-
lega og lenti í
tímabundnu rugli.
í dag hef ég ekki
smakkað áfengi í
fimm mánuði og
mér líður rosalega
vel.
Patrekur Jóhannesson
handknattleikssnillingur
er ekki að skafa utanaf
hlutunum í opinskáu við-
tali og veltir upp Ijótri
ásýnd vel falinnar sukk-
hliðar íþróttanna.
(íþróttablaðið, 6. tölublað
1995.)
[Ég þrælaði] í
trefjaplastbátasmíð á Patreks-
firði síðastliðinn vetur ... Ekki
bætti úr skák að ég bjó á svoköll-
uðu hættusvæði ... Mér varð því
ekkert úr svefni í nokkra mánuði,
sem skilaði sér í gríðarlegum
þunga og drama-
tík í tregafullum
flutningi.
Tónlistarmaðurinn
Pétur Einarsson kallar
sig P6 og líkaði ekki alls-
kostar við veruna fyrir
vestan. (Morgunblaðið,
20. desember.)
Árið 1995 hefur
að flestu leyti
verið farsælt fyrir
okkur íslendinga
og ársins verður
minnst sem tíma-
mótaárs á mörg-
um sviðum.
Eimskipsmaðurínn
Þorkell Sigurlaugsson fer
á kostum í lofræðu sinni
um „stöðugteikann".
(Viðskiptablaðið, dagsett
20.-26. desember.)
í [þessu sjón-
varpsviðtali]
lýsti Berkovsky
yfir að sál hans
hefði yfirgefið lík-
ama hans á tón-
leikum á Akureyri þegar hann
var að leika verk eftir Frans
Liszt. Furðulegt nokk hélt búkur-
inn áfram að spila á meðan hann
sjálfur sveimaði frjáls um himin-
geiminn.
Vikan í ummælum
Tónlistarblaðamað-
urinn og píanóleikar-
inn Jónas Sen stendur
þessa dagana í athygl-
isverðri rítdeilu við
Freyju Jónsdóttur sem
er ekki sátt við um-
mæli af ofangreindu
tagi um meistara
Berkovsky. (Alþýðu-
blaðið, 20. desember.)
Á undanförnum árum [hefur]
almenningur búið við falskt flug-
öryggi vegna gríðarlegrar yfir-
vinnu dauðþreyttra flugumferð-
arstjóra. En dæmi munu vera um
flugóhöpp sem rekja má til óhóf-
legrar yfirvinnu flugumferðar-
stjóra.
Kárí Alvarsson, varaformaður samninga-
nefndar Félags íslenskra flugumferðarstjóra, er
ómyrkur í máli um hina örþreyttu félaga sína
sem þó stjórna og stjórna. (Tíminn, 20. des-
ember.)
Það er þörf á stéttarfélagi jóla-
sveina til þess að endurreisa
heiður Sveinka og sjá til þess að
jólasveinar kunni jólalögin, geti
stjórnað jólaskemmtunum og
komið á framfæri undirbúnu
skemmtiefni. í þessum efnum
hefur orðið mikil afturför.
Leiðarahöfundur hafði miklar áhyggjur af
heiðri jólasveina sem nú þurfi á endurhæfingu
að halda. Menn skulu
ekki láta sér detta það í
hug að nægilegt sé að
bregða sér í búning og
þá verði menn jólasvein-
ar „med det samrne".
(Vikublaðið, 15. desemb-
er.)
H a r ð f y 1 g i
þeirra frænda er
löngu þekkt og um það eru til
margar sögur. Þegar fréttamað-
ur Sjónvarps spurði hvort þeir
slægjust aldrei þá svaraði Krist-
ján Vilhelmsson að bragði: „Nei,
því miður."
Úr ítarlegri umfjöllun um baráttu akur-
eyrsku Samherja- frændanna við norskan út-
gerðarrísa. Bræðurnir höfðu sigur. Halda
menn. (Frjáls verslun, 9. tölublað 1995.)
Dvölin á Akureyri er þó ekki
frumraun hans í að vera fjarri
fjölskyldu sinni því í Rússlandi
er tveggja ára herskylda og hann
fór í herinn þegar hann var átján
ára. „Það er nú ansi mikið betra
að vera á Akureyri en í hernum,"
segir hann brosandi. „Hér eru
engar byssur.“
Rússinn Alexander Korneev var fyrir árí ráð-
inn þjálfarí blakliðs KA. I skemmtilegu viðtali
útskýrír hann meðal annars muninn á heima-
borg sinni, Murmansk, og Akureyri. (Dagur,
16. desember.)