Helgarpósturinn - 21.12.1995, Side 15
FIMMTUDAGUR 2L DESEMBER1995
Líf dönsku fatafellunnar á Bóhem er nú loks farið að brosa við henni:
framvegis. Svo getur maður
alltaf leitað tii hans ef eitthvað
kemur upp á. Það blæddi til
dæmis inn á annað brjóstið á
mér með þeim afleiðingum að
það varð eins stórt og á Dolly
Parton og því þurfti ég að fara í
aðra aðgerð. En það kom ekki
að sök og nú er allt í himnalagi.
Og vel að merkja: aðgerðin
kostaði ekki nema 140 þúsund
krónur."
Blaðamaður HP hafði líka
heyrt því fleygt að Angel væri
„Ég er sko ekkert að
grínast; mig langar í eins
brjóst og Dolly Parton og
á örugglega eftir að láta
stækka þau enn meir ein-
hvern tíma í framtíðinni,"
segir Angel, sem er
ánægð með lífið á íslandi
og hyggst setjast hér að.
að íhuga að fara í „ódýra“ and-
litslyftingu á íslandi. „Það er
rétt: ég var að íhuga það en er
komin að þeirri niðurstöðu að
það megi bíða betri tíma, eða
þar til ég verð eldri, ef ég verð
ekki komin að annarri niður-
stöðu þá. Ég ætla nú ekki að
verða nákvæmlega eins og
Dolly Parton, þótt mér líki
brjóst hennar," segir Engillinn
í jólaskapi.
Angel heitir dönsk fatafella
sem undanfarna þrjá mánuði
hefur haft lifibrauð sitt af að
dansa á hinum umtalaða
skemmtistað Bóhem. Upphaf-
lega stóð til að hún dveldi hér-
lendis í aðeins þrjár vikur en
svo fór lífið að brosa við henni,
eins og hún orðar það sjálf, og
nú er svo komið að hún hefur í
hyggju að setjast að hér á
landi.
„Ég er mjög hrifin af þessu
litla samfélagi á íslandi, en
það, sem hins vegar hefur haft
mest fyrir mig að segja, er að
hér á landi býr mjög skilnings-
ríkt fólk. Ég er nefnilega þeim
gáfum gædd að sjá meira en
aðrir, ég sé ýmislegt og hef eitt
og annað á tilfinningunni. Ólíkt
því sem gerist á íslandi er slíkt
fólk álitið geðveikt í Kaup-
mannahöfn. Þess vegna var ég
óörugg með mig í Danmörku.
Íslendingar eru hins vegar
miklu opnari og ég get ekki
sagt annað — þrátt fyrir kuld-
ann — en að hér á landi hafi ég
upplifað stórkostlega hluti.“
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn
sem það hvarflar að Angel að
setjast að á íslandi. Allar götur
síðan þessi 31 árs stúlka dans-
aði nektardans á Hótel íslandi
fyrir rúmum áratug hefur land-
ið verið henni hugleikið, en
síðan hefur hún komið fjórum
sinnum hingað. „Þótt ég sé
ekki mikið fyrir að fara í kirkju
hef ég upplifað stórkostlega
hluti í Landakotskirkju, farið í
heilum og talað við mikið af
næmu og góðu fólki. Mér finnst
ég núna fyrst farin að rækta í
mér það góða í staðinn fyrir að
vera alltaf að eltast við púkann
í mér. Það kemur meðal annars
til af því að ég hef verið í heil-
un, en í gegnum hana hefur
mér verið kennt að verja sjálfa
mig og hleypa ekki neinu illu
að mér. Með öðrum orðum þá
er ég í miklu betra jafnvægi en
ég hef nokkru sinni verið.“
Afar stoK af starfi mínu
Áður en „Engillinn“ kom til
íslands í þetta sinn hafði hún á
tilfinningunni að eitthvað gott
myndi henda hana. „Ég stóð á
ákveðnum tímamótum í lífi
mínu; hafði átt við lungna-
bólgu að stríða og var í erfiðu
sambandi sem ég bókstaflega
sá fyrir að myndi enda með
ósköpum. Að minnsta kosti
vissi ég að þarna var kominn
tími til að taka mark á sjálfri
mér og breyta til, og ég segi
bara sem betur fer.“
Angel dansar sem fyrr segir
svokallaðan strippdans á Bó-
hem fyrir oftast nær fullu húsi
frá miðvikudegi til sunnudags,
en dansinn hefur hún haft að
aðalstarfi í mörg ár. Ástæðuna
fyrir því að hún leiddist út í
þetta starf segir hún þá að fyr-
ir nokkrum árum hafi hún tek-
ið þátt í einhvers konar „hæfi-
leikakeppni" þar sem keppend-
urnir þurftu meðal annars að
fækka fötum. Og það er
skemmst frá því að segja að
henni gekk vel í keppninni og
fékk í framhaldi af henni samn-
ing sem fatafella. „Ég verð að
viðurkenna að ég er orðin
pínulítið þreytt á þessu starfi,
énda verður það, eins og önn-
ur störf sem maður er lengi í,
að rútínu, Ég hef samt hugsað
mér að halda áfram um sinn af
því ég er afar stolt af starfi
mínu.“
Angel segist þó ekki ýkja
hrifin af að dansa „ofan í“ Is-
lendingum á Bóhem og á þar
við að henni finnst rýmið heid-
ur lítið á skemmtistaðnum.
„Mér líkar starfið vel og allt
það, en kann því illa þegar
karlmenn eru að snerta mig og
troða einhverju ofan í nærbux-
urnar mínar.“ Aðspurð um
hvort hún hafi þó ekki mikið
upp úr krafsinu grettir hún sig,
dregur seiminn og neitar svo
spurningunni að lokum.
Voru eins og tepokar
Annað og meira hefur gert
hana hamingjusama á íslandi
en hin andlega uppörvun; fyrir
mánuði gekkst hún nefnilega
undir brjóstastækkunarað-
gerð. Er það í annað sinn sem
hún fer í slíka fegrunaraðgerð.
Þar sem hún á nokkurra ára
gamalt barn, sem hún hafði á
brjósti á sínum tíma, segir hún
brjóst sín hafa verið orðin eins
og tepoka. „Ef ekki væri fyrir
þetta starf hefði ég aldrei látið
setja í mig sílíkon, en fyrri að-
gerðin sem ég gekkst undir í
Danmörku var ekkert sérlega
vel heppnuð og kostaði mig
um 300 þúsund krónur. Svo
komst ég að því að lýtalæknir-
inn sem ég hafði farið til var
bara skottulæknir án réttinda.
Hann gaf mér kolrangar upp-
lýsingar um hvernig ég ætti að
meðhöndla á mér brjóstin eftir
aðgerðina, en það sem var
kannski öllu verra; hann setti
sílíkonið undir brjóstvöðvann.
Vegna þessarar leiðinlegu
reynslu leitaði ég til margra
lýtalækna hér á landi áður en
ég ákvað hvern ég vildi láta
stækka á mér brjóstin. Sá sem
langar ein-
mitt í jafnstór brjóst og
Dolly Parton," eða fimm
hundruð grömm í hvort.
Sigurður samþykkti hins
vegar ekki nema samtals
700 grömm. Ég er sko ekk-
ert að grínast; mig langar í eins
brjóst og Doliy Parton og á ör-
ugglega eftir að láta stækka
þau enn meir einhvern tíma í
framtíðinni."
En hvað um það, nú mánuði
síðar er vart hægt að sjá að
Angel hafi farið í brjóstaað-
gerð, svo vel var að verki stað-
ið. „Sigurður framkvæmdi að-
gerðina rétt og gaf mér góðar
ráðleggingar, sagði mér til
dæmis að nudda á mér brjóst-
in þegar þau væru hörð og svo
varð fyrir valinu
heitir Sigurður Þor-
vaidsson og hefur
reynst mér alveg frá-
bærlega. Reyndar
vorum við ekki á einu
máli um hve stór brjóstin
á mér ættu að vera. Þegar
ég bað um risastór spurði
hann mig hvort ég vildi
líkjast Dolly Parton.
„Já,“ sagði ég,
„mig
Engillinn sem vill
líkjast Dolly Parton
Kokkurinn kemur með hlaðborðið
Þrátt fyrir að kaupmenn
fagni örtröðinni í verslunum
við Laugaveginn fyrir jólin hef-
ur hún haft í för með sér, að
þeir komast ekki til að gæða
sér á mat á jólahlaðborði eins
og viðskiptavinir geta að lok-
inni verslunarferð. Hörður
Ingi Jóhannsson hjá Steikhúsi
Harðar segist hafa fundið
lausnina á þessu vandamáli:
„Verslunarmenn slá einfald-
lega á þráðinn til okkar og við
komum með jólahlaðborðið til
þeirra. Við byrjuðum á þessu á
Þorláksmessu í fyrra og þetta
vakti mikla lukku," segir Hörð-
ur Ingi. „Við ákváðum því að
vera fyrr á ferðinni þetta árið
og síðastliðinn laugardagur
var til dæmis miklu annasam-
ari en Þorláksmessudagur í
fyrra.“
Hann segist bjóða upp á svo-
kallaðan kabarettbakka. „En á
þeim er nokkurskonar míkró-
jólahlaðborð með síldarrétti,
rækjurétti, paté, reyktu svíni,
kartöflusalati og að sjálfsögðu
brauði og smjöri. Annars fer
þetta allt eftir óskum við-
skiptavinarins. Ef þeir vilja
sleppa einhverju og fá annað í
staðinn þá er það ekkert
vandamál.“
Þeir sem panta alls tíu bakka
hjá Herði fá auk þess flösku af
rauðu eða hvítu víni í kaup-
bæti á sjálfri Þorláksmessu, en
Hörður Ingi segir ekkert betra
en ljúfar veigar til að ná aðeins
að slappa af eftir þennan
mesta verslunardag ársins.
Hörður Ingi Magnússon í
Steikhúsi Harðar færir
Magna Magnússyni í versl-
uninni Hjá Magna kabarett-
bakka yfir búðarborðið.
Mynd: Jim Smart
popp
FIMMTUDAGUR
Kolrassa krókriðandi,
Botnleðja og Hljómsveit
Kristínar Eysteinsdóttur
halda jólatónleika í Leikhús-
kjallaranum. Þetta eru einu
tónleikar Kolrössu um sinn,
því sveitin er á leið til Banda-
ríkjanna í leit að frægð og
frama og til að taka upp nýja
skífu.
3 to One, Egill Ólafs og fé-
lagar taka nokkra hátíðar-
svöngva á Gauki á Stöng.
Bogomil Font, alías Sig-
tryggur, hreiðrar um sig í
kæruleysislegu jólaskapi á
Kaffi Reykjavík.
Deep Jimi heldur tónleika
á Tveimur vinum, eða öllu
heldur rokkjól í tilefni dags-
ins.
FÖSTUDAGUR
Tryggvi Hiibner og Rúnar
Júl verða í jólaskapi þrátt fyr-
ir meintan blús á Blúsbarn-
Hálft I hvoni leikur fyrir
dansi á Hótel íslandi í kvöld á
áframhaldandi jólasjói
skemmtistaðarins.
Bryndís Ásmundsdóttir
ásamt Þórði Högnasyni með
píanóstemmningu á Café Ro-
mance.
Zebra og Kirsuber með sitt
frábæra stöff, einkum fyrr-
nefnda sveitin, á Gauki á
Stöng.
Danssveitin KOS og Eva
Ásrún með góðan Brunaliðs-
fíling á annan fyrir jól á Kaffi
Reykjavík.
Los, Tjalz Gizur og rokk-
sveitin 13 spila seperntina-
tónlist á Tveimur vinum.
LAUGARDAGUR
Rúnar Júl og Tryggvi
Húbner í skötuskapi á Blús-
barnum. T-world og Daníel
Ágúst með áframhaldandi
Gus-Gus-uppákomu í Tungl-
inu, nú með trúarlegu ívafi.
Borgardætur skyggja á alla
hina sem koma til með að
spila fyrir þær á Café Óperu-
Romance.
Bubbi Morthens með sína
árlegu Þorláksmessutónleika
á Hótel Borg. „í skugga Mort-
hens“ verður eðlilega aðal-
efni tónleikanna í ár.
Tríó Jóns Leifs kemur öll-
um í húmorískan jólafíling á
Þorláksmessu á Gauknum.
Kos og Eva Ásrún og allir
hinir jólasveinarnir á Kaffi
Reykjavík.
ANNARí JÓLUM
Hálft í hvoru með melting-
artónlist á Gauki á Stöng.
SVEITABÖLL
Staðurinn Keflavík Bubbi
Morthens með forjólaþor-
láksmessutónleika fyrir Suð-
urnesjamenn á föstudags-
kvöld.