Helgarpósturinn - 21.12.1995, Qupperneq 21
bókmenntir eins og bækur En-
id Blyton en í þeim bókum
finnst mér vera mjög sérstæð-
ur heimur.“
Skáldsagnagerð er eins
og að byggja hús
Áður en sagan um Guðjón
kom sendirðu frá þér Ijóðabók-
ina Loftræstingu, en síðan hefur
ekki komið frá þér Ijóðabók...
„Ég er fagidjót og var lítið
við að skrifa prósa meðan ég
gerði þessi ljóð en fór meira að
fást við prósatexta eftir að
bókin kom út og hef ekki snert
á ljóðagerðinni síðan. Ég er
mjög lengi að skipta um gír og
er því ekkert að því. Ef ég
skoða mína uppáhaldshöfunda
þá eru þeir lítið í ljóðagerð.
Þetta er kannski fyrst og
fremst afstaðan til vinnunnar.“
Lýstu þá þinni afstöðu til
uinnunnar?
„Já, mér finnst erfitt að
skrifa. Ég þarf að beita mig
hörðu og næstum því líkam-
legu afli. Þetta er ekki ósvipað
því og að byggja hús. Áður fyrr
var enginn maður með mönn-
um nema byggja yfir sig hús
minnst einu sinni á ævinni. Þar
unnu menn myrkranna á milli
og höfðu stöðugar fjárhags-
áhyggjur. Engin stund dagsins
var undanskilin hugsunum um
hvern ætti að fá til að nagl-
hreinsa og það þurfti að út-
vega timbur. Mér finnst skáld-
sagnagerð ekki ósvipuð því að
byggja hús.“
Þú ert semsagt að dunda þér
einn ofan í grunni?
„Já, og því fleiri persónur
þeim mun fleiri þræðir og erf-
iðara verður að halda öllu
saman. Maður er fullur efa-
semda allan tímann."
En oftast rís húsið, fólkið flyt-
ur inn. Eða bókin klárast og
kemur volg úr prentsmiðjunni?
„Áður fyrr hélt ég að þetta
væru bestu stundir lífsins. Að
bókin kæmi úr prentsmiðjunni
og yrði lesin og rædd, það yrði
skrifað um hana í blöðin og
maður gæti snúið sér ótrauður
að næsta verki. En þetta er
breytt í dag og þessi jólamark-
aður getur orðið erfiður og
leiðinlegur tími í aðra röndina.
Þetta fer stundum út í læti og
vitleysu þegar allt er gert til að
etja fólki saman og fólk verður
þá því reiðara ef manni mis-
lukkast ekki. Sumir sem ekki
hafa tækifæri til að hnýta í
mann dagsdaglega fara að gera
það eftir allskyns krókaleiðum,
og taka þá upp hjá sjálfum sér
að ákveða í blaðagrein hvað
eru bestu bækurnar það árið
og hefur mann ekki með og
allskyns aðrar vinsældakosn-
ingar dúkka upp. Eða þá að
það hrósar einhverjum í hás-
tert og bætir svo við: „Þetta er
nú eitthvað annað en drengja-
sögurnar."
Dimmrödduð börn í yfir-
lætistón
Tekurðu bókmenntagagnrýni
nœrri þér?
„Já, kannski eitt augnablik,
svo er það rokið út í veður og
vind. Enda á ég í það heila tek-
ið ekkert sökótt við gagnrýn-
endur. En það getur verið
þreytandi þegar fólk sem er í
nöp við mann persónulega af
einhverjum ástæðum er að
setja sig í slíkar stellingar. Og
maður les það strax ef það vill
aðeins svekkingar. Gagnrýn-
endur ættu að forðast að vera
á persónulegum nótum. Þessi
besserwisser-tónn sem þeir
sem hafa lítið vit á hlutunum
temja sér helst í gagnrýni á
það til að fara í taugarnar á
mér. Það er jafnvel stundum
hlægilegt þegar dimmraddað
barn dúkkar upp á einhverjum
fjölmiðli og fer að segja þraut-
reyndum höfundum fyrir verk-
um í yfirlætistón — þótt það
hafi kannski náð sér í BA-próf í
Háskóla íslands. Maður les
jafnvel dóma eftir illa stílandi
ungmenni þar sem þau skrifa í
þreytu- og lífsleiðatón um
hvað íslenskir höfundar eigi
margt ólært í skáldsagnagerð
en sjálf hafa þau aldrei skrifað
neitt eða unnið neitt til þess að
einum einasta manni detti í
hug að þau viti eitthvað um
bókmenntir. Þeir sem fjalla um
bókmenntir eiga að vera átor-
ítet og maður hefur áhuga á að
heyra frá þeim sem maður
treystir til að hafa skilning á
hlutunum. Þeir sem fjalla um
fótbolta eru oftast gamlir leik-
menn eða þjálfarar. Það dettur
engum í hug að fara á næsta
elliheimili og biðja gamla konu
þar að fjalla um íslandsmeist-
arakeppnina í fótbolta. Eins vil
ég frekar vita hvað Helga Hálf-
danarsyni finnst um þýðingar
erlendra verka en einhverjum
skólakrakka."
Bannsungin með
formælingum
En hefurðu einhvern tímann
fengið svohljóðandi ritdóm:
„Hér hvílirEinarKárason rithöf-
undur. Blessuð sé minning hans
en betur vœri ef hann hefði
aldrei sett hugsanir stnar á
blað“?
„Nei, aldrei.“
Ég bara spyr. Slíkir dómar eru
komnir í tísku —, þó eru þerap-
istarnir að taka við. Þeir ætla
að bjarga vondu skáldunum og
koma þeim á drykkjumanna-
hœli eða í hormónameðferð.
Það eru einkum Ijóðskáldin
sem fá flengingu með þeim
vendinum.
„Gagnrýnendur fara gjarnan
í föður- eða móðurlegar stell-
ingar gagnvart ungum og veik-
burða höfundum og hrósa
þeim þá stundum af gæsku
sinni meira en efni standa til.
Komi hinsvegar sjóaðir höf-
undar sem hafa sýnt að þeir
brotna ekki undan mótlæti —
ég tala nú ekki um ef þeir hafa
unnið sér það til óhelgi að
njóta velgengni — þá telja
sömu gagnrýnendur það
skyldu sína að þefa uppi allar
misfellur. Dæmi um þetta er
nýlegur dómur sem ég las í Al-
þýðublaðinu um ljóðabók Ein-
ars Más Guðmundssonar sem
var hreinlega bannsungin með
hinum svakalegustu formæl-
ingum. Þarna átti að taka verð-
launahöfundinn af lífi. Það þarf
að vera svíng í texta, fólk finn-
ur ekki alltaf músíkina; hvort
það er póesía á ferðinni. Þeir
sem eru ekki handgengnir bók-
menntunum á þann hátt eru
varla marktækir. Á móti kemur
að það er áskorun fyrir gagn-
rýnendur að skrifa sig inn í
bókmenntasöguna, bæði hvað
það varðar að uppgötva skáld-
skap og sömuleiðis að vera í
sporum barnsins í sögunni
sem kvað upp úr með að keis-
arinn væri ekki í neinum föt-
um.“
Samkvæmt kenningu Guð-
bergs um keisarann kemur
barnið jafnan auga á hið aug-
ljósa og skirrist ekki við að
hrópa það uppi. Það sem býr
undir er aðeins fáum gefið að
sjá. „Hvað var í rauninni rangt
við að keisarinn væri ber?“
Skáldskapurinn er jú nakinn
gagnvart lesandanum en les-
andinn að sama skapi stund-
um með hjálm og hlífðargler-
augu andspænis skáldskapn-
um.
Þeim hefur ekki verið
boðið sæti
Nú eru flestum í fersku minni
átökin þegar þú fórst frá sem
formaður Rithöfundasambands-
ins og studdir Sigurð Pálsson
sem eftirmann þinn. Þá reis upp
sauðalit hjörð jafnaðarmanna á
sviði skáldskapar og vildi jafna
skiptingu verðlauna, starfs-
launa og annarra rithöfundag-
œða og þú brást við með þvf
meðal annars að vitna í Thor
Vilhjálmsson og tala um „skrif-
andi" höfunda og „óskrifandi"
höfunda. Um daginn sá ég
blaðagrein eftir þig þar sem þú
hrósaðir því hvað íslensk bóka-
útgáfa vœri afkastamikil. Manni
flýgur í hug setning úr skáldsögu
eftir Pétur Gunnarsson um að
fremsti bekkur fslenskra rithöf-
unda væri annað hvort óheyri-
lega langur og þéttskipaður eða
þá að höfundarnir sœtu hver
undir öðrum...
„Það er okkar styrkur og
gæfa að það er mikið til af góð-
um höfundum sem eru að
skrifa í dag og ef einum tekst
vel upp er það hvatning fyrir
hina. Bókmenntirnar rísa og
hníga í bylgjum og síðustu tíu
til fimmtán árin hefur verið
jöfn og góð stígandi. Þú nefnir
að fremsta röð höfunda sé þétt
setin, en þar eru þó kannski
ekki nema 30 til 40 manns sem
fólk þekkir sem starfandi nú-
tímahöfunda. Það eru margir
fleiri sem vildu gjarnan komast
á þennan bekk en hefur aldrei
verið boðið sæti. Á einum stað
eiga þeir hinsvegar nákvæm-
lega jafn mikinn rétt og aðrir
höfundar frægir sem ófrægir,
það er í Rithöfundasamband-
inu. Þangað koma menn með
fullgild skírteini sem þrátt fyrir
góða viðleitni eru aldrei taldir
með. Skírteinin sanna að þeir
eigi þangað erindi og kannski
er skiljanlegt að þeir noti
þennan vettvang til að gera sig
gildandi í þessu göfuga fagi.
Það voru mistök að Sigurður
skyldi falla í þessum kosning-
um því hann hefði getað af-
stýrt miklu klúðri.“
Vinsældir hjá edrú og
vinnusömum þjóoum
Nú hafa bækurnar þínar notið
vinsœtda erlendis ekki sfst f
Danmörku þar sem þú bjóst
sem ungur maður. Varðstu fyrir
áhrifum af dönskum bókmennt-
um?
„Nei og mér hefur lengst af
þótt danskar nútímabók-
menntir heldur lítið spenn-
andi. Bækurnar mínar hafa
reyndar notið mestrar vel-
gengi í Svíþjóð og Þýskalandi
og ég hef stundum velt því fyr-
ir mér hvernig á því standi að
þær gangi jafn vel í svona edrú
og vinnusamar þjóðir eins og
Svía og Þjóðverja. Þeir sjá
kannski í þessu annað og
meira en blasir við augum ís-
lenskra lesenda."
Heldurðu að sú aðferð þfn að
sœkja efnivið bóka þinna í ís-
lenskt nútfmasamfélag og draga
fram ýmislegt klúður hafi hreyft
einhverjar viðkvœmar taugar í
íslendingum?
„Það má vel vera, ég hafði
það sérstaklega á tilfinning-
unni með Kvikasilfur að menn
létu þessar hliðstæður úr sam-
tímaveruleika trufla sig.“
Yggdrasill eða
ScaniaVabis
Hvar finnst þér íslenskar bók-
menntir standa í samfélagi nor-
rœnna bókmennta?
„Það er erfitt að tala um þá
hluti án þess að fara út í ein-
hverjar klisjur. En það hefur
verið í tísku á undanförnum ár-
um að leita eftir norrænum
sagnastíl og þá nefnir fólk
gjarnan hluti eins og húmor og
tærleika íslendingasagnanna.
Á árunum um og eftir 1970
sóttist bókmenntamarkaður
heimsins eftir einhverju suð-
rænu þar sem litadýrð, hiti og
lykt voru í hávegum höfð
ásamt frumskógarmistri og
skorkvikindatísti. Margir
höfðu á tilfinningunni að þetta
myndi snúast 180 gráður og
menn færu að leita að and-
stæðunni, kaldri og skýrri
heimskautastemmningu. Ég
man eftir því að fyrir tíu árum
var þessi skoðun viðruð á
fundi með ungum norrænum
höfundum og þá var það haft á
orði að bók um grænlenskan
mann með frumstæðan nátt-
úruskilning og tærleika ætti
eftir að taka sæti Hundrað ára
einsemdar á metsölulistunum.
Peter Hoeg var hinsvegar svo
klár að sjá að auðvitað hlaut
þessi grænlenski frummaður
að vera kona og kom fram með
sína Smillu í bókinni Lesið í
snjóinn. Einhvern tímann
komu fram þær hugmyndir að
stofna tímarit um norrænan
skáldskap en ég var ekki
spenntur fyrir þeirri hugmynd.
Það var borin upp sú tillaga að
skýra tímaritið Yggdrasil en ég
sagði að þetta væri nú hin
aumasta klisja. Þetta hljómaði
eins og bæklingur frá Norrænu
ráðherranefndinni. Mér var þá
sagt að finna nafnið bara sjálf-
ur ef ég þættist svona klár og
ég fékk til þess nokkrar sek-
úndur og bar fram tillöguna
Scania Vabis.“
Semer hvað?
„Það eiga allir að vita. Þetta
eru sænskir vörubílar og hvert
mannsbarn á að vita það.“
Nújá, en tímaritið, hvar er
það?
„Það varð sem betur fer ekk-
ert af því enda er það alþekkt
staðreynd að margar góðar
hugmyndir hafa koðnað niður í
eitt nýstofnað tímarit."
Einar og mafían
En nú höfum við ekkert rætt
leikritið sem ég sá nú reyndar á
œfingu í gœr og skemmti mér
vel yfir. En þú vilt kannski upp-
lýsa hvernig vill til að íslenska
mafían er stigin á leiksvið og
hver tengsl þín eru við mafí-
una?
„Þetta er leikrit sem ég skrif-
aði ásamt Kjartani Ragnars-
syni og byggist á persónum í
bókum mínum um Killian-fjöl-
skylduna. Kveikjan að þeim
bókum var reyndar hugmynd
um barn sem er alið upp í
miklu öryggi en aðstæðurnar
gera það að verkum að öllu er
kippt undan fótum þess. Þetta
var nú upphaflega hugmyndin
og meðvitað treindi ég mér að
láta stórviðburði gerast í bók-
inni Heimskra manna ráðum en
í seinni bókinni, Kvikasilfri,
taka aðstæðurnar völdin en þá
voru margir búnir að ráða af
fyrri bókinni að þetta væri
gamansaga um frekar hvers-
dagslega tilveru. Kjartan Ragn-
arsson hafði hinsvegar þessa
sömu tilfinningu fyrir bókun-
um og ég þegar við gerðum
leikritið og okkur fannst nafnið
vel við hæfi þar sem klímaxinn
tengist þessari meintu glæpa-
starfsemi Killian-fjölskyldunn-
ar. Að öðru leyti en hvað varð-
ar persónurnar í bókunum,
þeirra hugmyndir, talsmáta og
útgeislun og þessa hugmynd,
er leikritið sjálfstætt verk.“
Kvikmynd og tvö leikrit
Nú verður kvikmyndin um
Djöflaeyjuna frumsýnd nœsta
haust en ertu með aðra bók í
smíðum?
„Já, reyndar, en hún er ekki
komin á það stig að ég geti tal-
að um hana. Hinsvegar mun
Leikfélag Akureyrar frumsýna
nýtt leikrit eftir okkur Kjartan
Ragnarsson í mars.“
Um hvað fjallarþað?
„Leikritið gerist í sjávar-
plássi úti á landi og fjallar um
ólíkar manngerðir sem takast
á. Annað verður bara að koma
í ljós.“
Eigum við þá nokkuð eftir
órœtt í þessu viðtali?
„Nei, ætli það. Á ég ekki bara
að þakka fyrir mig?“
Jslenska mafían mun stíga á stokk þann 28
desember og afhjúpa sig frammi fyrir alþjóð. Pessi
illrœmda fjölskylda sem uílarekki fyrirsérmorð og
eiturlyfjasölu, hefur aðsetur í bílaporti Frama, hinni
sakleysislegu partasölu sem á skömmum tíma byggði
upp œuintýralegt ueldi kringum eigendur sína“.
„Þetta fer út í tóm læti og vitleysu út í gegn þegar farið er að að etja fólki saman og þetta fólk verður því reið-
ara ef manni mislukkast ekki. Fólk sem ekki hefur tækifæri til að hnýta í mann dagsdaglega fer að gera það eft-
ir allskyns krókaleiðum."