Helgarpósturinn - 21.12.1995, Qupperneq 26
26
FIMMTUDAGUR 2L DESEMBER1995
Egill Helgason, sem telur sig hafa vit á öllu milli himins ogjarðar, lagði á ráðin með krítíkerum
Helgarpóstsins, skrapp í bíó og las smáaletrið í sjónvarpsdagskránni. Hann komst að þeirri niðurstöðu
að hann þurfi ekki að örvænta úr leiðindum yfir jólin.
um
Mávahlátur
Kristín Marja Baldursdóttir
Mál og menning
Minnir allnokkuð á verk Isa-
bel Allende og Einars Kárason-
ar, jafnvel svo að haft er á orði
að hér sé komin út bók eftir
Kristínu Isabel Kárason. Helsti
styrkur þessarar sjávarþorps-
sögu er frásagnagleðin; hér er
verið að segja sögu og ekkert
tóm fyrir ljóðrænar krúsidúllur
og sálarlífspælingar.
texta og stíl, þá er hér komin
merkileg bók og nýstárleg.
þýlyndi og siðblinda plægja ak-
urinn fyrir gerræði Þriðja ríkis-
ins.
Hraunfólkið
Björn Th. Björnsson
Mál og menning
Það reynist tvíbent hversu
vel Björn þekkir söguslóðiir
þegar hann segir frá langvinnu
stríði blóðlítilla Þingvalla-
klerka við atorkusaman hrepp-
stjóra í Skógarkoti, stríði sem
snýst út af illviðráðanlegum
kjötsins kveikingum. Það er
eins og rás atburðanna skipti
minna máli fremur en sú stað-
reynd að sagan gerist — þrátt
fyrir allt — á Þingvöllum, og
því má velta fyrir sér hvort
nokkrum hefði fundist þess
virði að segja slíka sögu ef
sviðið hefði verið annað.
jrongu
Kristín Omarsdóttir
Mál og menning
Skemmtileg bók, full af
glettni og húmor. en undir ligg-
ur strengur djúprar sorgar og
trega og hláturinn stöðvast í
hálsi lesandans þegar minnst
varir og víkur fyrir þungum
kekki. Hér er leikið á alla
strengi mannlegra tilfinninga
og þótt það takist reyndar mis-
vel og ýmsa agnúa megi finna í
Hjartastaður
Steinunn Sigurðardóttir
Mál og menning
Þótt brandaraflaumurinn í
upphafi verði ansi þreytandi,
dregur úr honum og margir
kaflarnir eru þeir einlægustu
og tærustu sem Steinunn hefur
skrifað.
Híbýli vindanna
Böðvar Guðmundsson
Mál og menning
Saga sem segir frá fátækt-
arbasli sem er alþekkt úr ís-
lenskum bókmenntum, en ger-
ir það í svo sterkum og tærum
stíl að mann langar að heyra
meira um söguhetjurnar Olaf
fíólín og Sæunni og hvernig
þeim reiðir af í Vesturheimi.
Kannski má segja að Böðvar
máti þarna fötin af Birni Th.
Björnssyni, en þau fara honum
ansi vel.
Frú Bovary
Gustave Flaubert
Pétur Gunnarsson þýddi
Bjartur
Bók sem nálgast, líkt og fáar
aðrar bækur, einhvers konar
fullkomnun í heild sinni, en
kemur líka sífellt flatt upp á
lesandann með næstum ofur-
mannlegu innsæi og meinlega
háðskum smámyndum. Það fer
illa fyrir hérumbil öllum, enda
ljóst að ömurlegt bjástur sögu-
persónanna hefur ekki vakið
kærleiksþel hjá höfundinum.
Þýðing Péturs Gunnarssonar
kemur frábærlega til skila hár-
nákvæmum og geirnegldum
stíl Flauberts.
Mefistó
Klaus Mann
Bríet Héðinsdóttir þýddi
Ormstunga
Þýskar bókmenntir hafa
kannski ekki beint orð á sér
fyrir að vera brakandi
skemmtilegar, Þjóðverjum er
víst annað betur lagið, en
þetta er frábærlega fyndin og
illkvittnisleg bók. Engu að síð-
ur fjallar hún um mikla dauð-
ans alvöru: Þýskaland nasism-
ans. Klaus Mann lýsir á óvið-
jafnanlegan hátt hvernig aðlög-
unarhæfni mannskepnunnar,
Ljóðlínuskip
Sigurður Pálsson
Forlagið
Það er aldeilis með ólíkind-
um að í áttatíu síðna ljóðabók
skuli nánast ógjörningur að
finna veikan punkt. Eða eins og
sagt er á máli auglýsinganna:
Hér er Sigurður betri en þegar
hann er bestur.
Þorsteinn frá Hamri
Það talar í trjánum
Iðunn
Þorsteinn er í hópi höfuð-
skálda og sjálfum sér líkur. Þó
kveður við nýjan tón. Ljóðin
eru meitluð og fáorð sem fyrr,
málið máttugt og hljómmikið,
en ljóðin eru að mörgu leyti
opnari og persónulegri en áð-
ur, ástin sýnilegri, treginn
dýpri, gleðin heitari.
Ástin ljóðlistin
Paul Éluard
Sigurður Pálsson þýddi
Mál og menning
Paul Éluard var eitthvert
merkasta skáld tuttugustu ald-
arinnar, súrrealisti sem var
lagið að bregða upp furðulega
óvæntum myndum á auð-
skildu og skýru máli, ekki síst í
sindrandi fallegum ástarkvæð-
um. Sigurður þýðir af mikilli
list.
fram að klisjulegir og gatslitnir
orðaleppar geri málið blæ-
brigðaríkara. En hitt má svo-
sem segja að ef menn vilja á
annað borð hroða mál sitt orð-
tökum, orðatiltækjum og máls-
háttum er skárra að þeir fari
rétt með og viti nokkurn veg-
inn hvað þeir eru að segja. Því
er þessi bók gagnleg og eins
systurbók hennar, íslenskir
málshættir.
Á valdi örlaganna
Æviminningar
Sigurðar Demetz
Þór Jónsson skráði
Iðunn
Demetz var að debútera á
Scala. Svo skall stríðið á. Ljós-
in slokknuðu og söngfrægðin
var úti. Þá kom Demetz upp á
ísland, þetta land þar sem
„veður eru svo vond að allir
ibúar þess eru með asma“. Hér
hefur hann skilað ómetanlegu
starfi sem Iærimeistari, vinur
söngvara og drengur góður.
Þetta er merkilegt lífshlaup
þar sem leiðin liggur frá Ítalíu
fasismans, um Þýskaland nas-
ismans og til íslands molbú-
ans.
Vídalinspostilla
Mál og menning
Það hefur verið viðtekin
skoðun að Jóni Vídalín hafi
fremur verið sýnt um að
hræða fólk en fræða það. En
séra Gunnar Kristjánsson og
Mörður Árnason hafa lesið Ví-
dalin upp á nýtt og komast að
því að það hafi verið rangt að
telja hann dómsdagsprédíkara
sem spúði eldi og brennisteini
yfir söfnuð sinn, heldur hafi
hann í aðra röndina verið milt
yfirvald sem hafi líka flutt boð-
skap um réttlæti og miskunn.
Ekki beinlinis nein skemmti-
lesning sem maður les í einni
lotu, en mælskulistin er ósvik-
in og stríð.
íslensk orðtök
Sölvi Sveinsson
Iðunn
Gamaltuggin orðtök eru frek-
ar til óþurftar i máli og því mið-
ur er alltof sjaldgæft að mennt-
aðir íslendingar átti sig á því; í
almennilegum menntastofnun-
um í útlöndum er fremur varað
við stöðluðu orðfæri, en hér er
sífellt verið að hvetja fólk til að
nota orðtök — til dæmis er
rekinn áróður fyrir því á mjólk-
urhyrnum — og því haldið
Fegursta kirkjan á fslandi
Jón Ögmundur Þormóðsson
Fróði
Kannski sérviskulegasta bók
sem kemur út fyrir þessi jól.
Jón Ögmundur er embættis-
maður í ráðuneyti og hefur líka
þennan brennandi áhuga á
kirkjum. Hann þræðir kirkjur
um allt land, tekur af þeim
myndir, yrkir um þær ljóð og
skrifar um þær fróðleiksgrein-
ar. Ásetningur hans er að finna
fegurstu kirkju á íslandi og
þær eru ófáar sem koma til
álita. Niðurstaðan kemur raun-
ar ekki mjög á óvart, en þetta
er gert af einlægum áhuga sem
vekur góða kennd. Allur er var-
inn góður og í bókarlok birtir
höfundur gagnrýni á verk sitt
— eftir séra Heimi Steinsson.
Ströndin í náttúru íslands
Guðmundur P. Ólafsson
Mál og menning
Bókagerðarmenn hnykla
vöðvana, á kraftamóti bóka-
gerðarinnar fara litprentuðu
náttúrulífsbækurnar eftir Guð-
mund P. Ólafsson einatt með
sigur. Þær eru margrómaðar,
viðurkenndar og verðlaunað-
ar, enda bera ljósmyndirnar
vott um þrotlausa ástundun en
textinn er passlega alþýðlegur.
Þetta er ekki bara bók, heldur
líka f járfesting — og rándýr eft-
ir því.
Gleðifólkið
KK
Japis
Kristján skartar sínu fínasta
pússi, jafnt sem höfundur og
flytjandi. Það er hvergi snögg-
an blett að finna, allt fullt af
svingi og góðum fílingi. Þótt
legið sé yfir upptökunum er af-
urðin ekki niðursoðin eins og
oft vill fylgja slíkum vinnu-
brögðum. Kannski er líka
meira en að segja það að nið-
ursjóða fílinginn úr Kristjáni;
hann er eiginlega eins konar
fílingur á fæti.
Zebra
Zebra
Rymur
Guðmundur Jónsson og Jens
Hansson úr Sálarpoppvélinni
slá nýjan og óvæntan tón og
dúkka upp með plötu þar sem
er ekki smellunum fyrir að
fara, heldur er hún full af
óvenju metnaðarfullum laga-
smíðum. Músíkina flytja þeir
mestanpart á hljóðgervla og
hermikrákur, auk gítars og sax-
ófóns, en Guðmundur sannar
að hann er ekki einasta góður
lagasmiður heldur lika af-
bragðs söngvari.
Bubbi Morthens
í skugga Morthens
Skífan
Bubbi heiðrar minningu
Hauks frænda. Einhverjum
kynni kannski að finnast
ástæðulaust, og jafnvel helgi-
spjöll, að syngja gömlu lumm-
urnar hans Hauks upp á nýtt
— það fer varla neinn í fötin
hans. En Bubbi gerir þetta af
lofsverðri alúð, gætni og
smekkvísi og gamli frændi
hans gæti verið stoltur af
strák.
Veröld smá og stór
Ásgeir Óskarsson
Dreifing Japis
Valinkunnur trommuleikari
leggur aleinn úr vör með vand-
aða plötu sem inniheldur tón-
smíðar sem hafa safnast upp
hjá honum í þrjátíu ár. Sjálfur