Helgarpósturinn - 21.12.1995, Blaðsíða 27
HMMTUDAGUR 2L DESEMBER1995
27
situr hann við stjórnvölinn og
bregður sér í flest hlutverk,
tekur meira að segja lagið af
miklum krafti. í lagasmíðunum
kveður við ferskan tón í
hljómauppbyggingu og gott til
þess að hugsa að enn finnast
menn sem reyna að semja ný
lög — þegar þeir semja á ann-
að borð.
Botnleðja
Drullumall
Dreifing Japis
Botnleðja er sveitin sem var
ótvíræður sigurvegari í Músík-
tilraununum síðasta vetur. Tit-
illinn gefur kannski til kynna
hvað hér er á seyði; þetta er
pönkskotið nýbylgjurokk með
gamansömum undirtóni. Það
eru ekki margar hljómsveitir
núorðið sem eru svo harðar að
unglingar geti notað þær til að
hrella foreldra sína, en svoleið-
is hljómsveitir eru alveg nauð-
synlegar. Og kannski fer Botn-
leðja langleiðina.
Fram og aftur blindgötuna
Megas
Skífan
Á þessari endurútgefnu
plötu frá 1976 birtist Megas
með snarpa rokksveit á bak
við sig eins og hann varð
ósvífnastur, grófastur og sukk-
aðastur, en textarnir eins og
endranær miðja vegu milli
bókmenntaarfsins og göturæs-
isins. Görótt blanda og einstök
og góð gjöf fyrir þá sem þver-
skallast við að vera jólalegir.
Implosions
Kolbeinn Bjarnason
Japis
Plötuhulstrið minnir raunar
meira á reykmettaða jass-
klúbba bebop-tímans en Skál-
holtskirkju, en þegar platan er
sett í spilarann er áhorfandinn
staddur inn í helgidómnum og
heyrir tæra flaututóna sem
flytja hann inn í ævintýraver-
öld. Mörgum kann að finnast
músíkin nýstárleg, en sá sem
leggur við hlustir uppsker ríku-
lega. Kolbeinn fær plús fyrir
dirfskufullt efnisval.
Serenade
Guðrún Birgisdóttir, Martial
Nardeau og Pétur Jónasson
Japis
Plata sem er full af elsku-
legri, skemmtilegri og fallegri
tónlist sem flautuhjónin Guð-
rún og Martial flytja ásamt
Pétri gítarleikara. Verkin eru
mestanpart eftir frönsk og
spænsk tónskáld sem voru í
blóma lífsins um og eftir alda-
mót; fáir hafa samið þokka-
fyllri músík en snillingar á
borð við Fauré, Satie, Debussy,
Ravel og Granados.
Schwanengesang
Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson
Mál og menning
Samstarf Kristins og Jónasar
hefur verið afar frjótt og sam-
an hefur þeim tekist að gæða
ýmsar perlur söngbókmennt-
anna lífi og þokka, það þekkja
allir sem hafa sótt ljóðatón-
leika hjá þeim. Hér flytja þeir
sönglögin fimmtán úr laga-
flokknum Svanasöngur eftir
Schubert og að auki fjögur
önnur Iög. Félagarnir fara á
kostum og ekki spillir að með
fylgir vandaður bæklingur þar
sem ljóðin eru prentuð á frum-
málinu og í íslenskri þýðingu.
Tár úr steini
Tónlist úr bíómyndinni
um Jón Leifs
íslensk tónverkamiðstöð
Jón Leifs hafði sérstakt lag á
að koma sér út úr húsi, líka í
tónleikasölum. En eftir að hafa
verið hérumbil gleymdur í
marga áratugi hefur hann ver-
ið enduruppgötvaður með fyr-
irgangi í blaðagreinum, tón-
leikum og margrómaðri kvik-
mynd. Menn hafa misjafnar
skoðanir á músík Jóns, sumir
þykjast ekki heyra neitt annað
en hávaða og belging, öðrum
finnst hann vera stórbrotið
tónskáld í heimsklassa. Á disk-
inum er tónlistin úr bíómynd-
inni, hentugur inngangur að
tónverkum Jóns. Hlustið sjálf.
tíðindum, enda hefur hann sér
til fulltingis stórleikarana Jon-
athan Pryce í hlutverki rithöf-
undarins og hómósexúalistans
Lytton Strachey og Emmu
Thompson í hlutverki málar-
ans Dora Carrington sem fellur
flöt fyrir þessum furðufugli.
Pocahontas
Háskólabíó/Sambíóin
Börnin biðja um Pocahont-
asdót, og varðar auðvitað ekki
hót um þótt indíánar í Ameríku
gefi þessu langt nef og segi
þetta móðgun við menningu
sína. Pocahontas er svona
dúkkulísuindíanastelpa— hún
er reyndar sniðin eftir frægri
súperfyrirsætu — og kærast-
inn hennar er dúkkulísuland-
nemastrákur. Disneyfyrirtækið
hefur unnið meiri afrek, en
bregst ekki bogalistin í væmn-
inni fremur en fyrri daginn.
Benjamín dúfa
Stjörnubíó
Fólki er gjarnt að halda að
myndir um börn hljóti í eðli
sínu að vera snotrar og smáar.
Sú er alls ekki raunin um Benj-
amín dúfu. Þegar allir þræðir
renna saman í lokin uppgötvar
maður að sagan hefur sína ep-
ísku stærð — líkt og allar al-
vöru riddarasögur. Fyrir utan
hvað liggur í augum uppi ákaf-
inn og ánægjan sem fór í að
gera hana. Kannski ekki jóla-
mynd en samt alveg mátulega
snortin af hugarþeli jólanna
fyrir allar fjölskyldurnar sem
ætla aldrei að drífa sig í bíó.
Fyrir regnið
Háskólabíó
Þeir sem fara í hæsta lagi
ekki nema einu sinni á ári í bíó
mættu íhuga vandlega að verja
eins og tveimur tímum í þetta
meistaraverk sem fjallar um
hvernig siðblinda og forherð-
ing magnast í stríðsátökum á
Balkanskaga. Kvikmynd sem er
full af vandlætingu yfir því
hvernig ófriðurinn eyðileggur
sálina í fólki, en dettur þó aldr-
ei í það far að lesa yfir hausa-
mótunum á áhorfendum.
Kósý
Sjónvarpið,
21. desember, kl. 23.15
Strákarnir í Kósý hafa fengið
misjafna dóma fyrir plötuna
sína, en þegar þeir koma sam-
an og syngja opinberlega eru
þeir sniðugir, skemmtilegir og
frábærlega menntaskólalegir.
Fyrir utan hvað prúðmennsk-
an ríður ekki við einteyming.
Gunga Din
Sjónvarpið,
22.desember, kl. 21.55
Sú kenning hefur oft verið
höfð uppi að þessi bíómynd
frá 1939 sé skemmtilegasta æv-
intýramynd fyrr og síðar. Hún
er byggð á kvæði eftir Rudyard
Kipling og segir frá breskum
hermönnum sem berjast við
innfætt illþýði og elska fagrar
konur á Indlandi á síðustu öld.
Hjartaknúsararnir eru ekki af
verri endanum, Cary Grant og
Douglas Fairbanks yngri, en
kvennaljóminn er hún Joan
Fontaine.
It’s a Wonderful Life
Stöð 2,
aðfangadag, kl. 21.00
Jólamynd allra tíma, kannski
hugljúfasta mynd meistara
Franks Capra og full af þeirri
glettni og hlýju sem einkennir
verk hans. Sá frábæri leikari
Jimmy Stewart er eins og hann
á að sér að vera, sætur,
skemmtilegur og passlega
klaufskur. I lokin ríkir andi jól-
anna, tær og ómengaður.
Hafið
Stöð 2,
jóladag, kl. 20.35
Stöð 2 sýnir metnað sem Rík-
issjónvarpið mætti taka sér til
fyrirmyndar og sendir út í
tveimur hlutum upptöku á leik-
riti Ólafs Hauks Símonarsonar
sem sýnt var við miklar vin-
sældir í Þjóðleikhúsinu. Ástir
og örlög í skugga kvótakerfis-
ins. Seinni hlutinn er sýndur
annan í jólum.
The Remains of the Day
Stöð 2,
jóladag, kl. 23.25
Anthony Hopkins er næstum
óhugnanlega sannferðugur í
hlutverki einkaþjónsins Ste-
vens sem uppgötvar alltof
seint að líf hans var byggt á
dapurlegum misskilningi og að
hann lét ástina ganga sér úr
greipum og sýndi blinda holl-
ustu húsbónda sem var henn-
ar ekki verður.
Þymirós
Sjónvarpið,
annan íjólum, kl. 14.20
Klassískur ballett og einkar
hugðnæmur í uppfærslu Helga
Tómassonar sem þarna er
kominn aftur í gamlar uppeld-
isstöðvar sínar hjá Konunglega
danska ballettnum.
Lansinn
Sjónvarpið,
27. desember, kl. 21.30
Óvættir smjúga um hverja
glufu á Ríkisspítalanum í Kaup-
mannahöfn, innandyra hafa
læknarnir týnt sér í drambs-
samri trú á að vísindin geymi
öll svör. í lokaþættinum lokast
hringurinn á hrollvekjandi
hátt; tekur maður nokkuð of
stórt upp í sig að segja að Lars
von Trier hafi skapað ein-
hverja frábærustu og frumleg-
ustu þáttaröð í gervallri sögu
sjónvarpsins?
Goldeneye
Háskólabíó/Sambíóin
Tæknibrellur, illmenni,
kokkteilar og fagrar konur.
James Bond er afturgengin
persóna frá tíma þegar karlar
voru karlar, konur voru konur,
bílar voru bílar og heimurinn
var svo einfaldur að enginn
þurfti að velkjast í vafa um
muninn á réttu og röngu.
Carrington
Háskólabíó
íslendingar þekkja líklega
fæstir neitt til gáfumannahóps-
ins sem kenndur er við Blo-
omsbury-hverfið í London, en í
hinum enskumælandi heimi
hefur gengið á með endalaus-
um ævisögum þessa fólks svo
flestir eru að örmagnast. Þessi
bíómynd, sem er verk leikrita-
skáldsins Christopher Hamp-
ton, þykir þó sæta nokkrum
Botnleðja
Gustave
Flaubert
James
Bond
Þyrnirós
Þorsteinn
frá Hamri