Helgarpósturinn - 21.12.1995, Síða 31
FlMMnJDAGUR 23. DESEMBER1995
31
Höndin á Truman Capote
\
María — konan bak við goð-
sögnina
Ingólfur Margeirsson
Vaka/Helgafell
★
Milan Kundera er höfundur
sem er frekar í nöp við ævi-
sögur og á vísum stað skrifar
hann eitthvað á þá leið að
smátt og smátt munum við
drekkja hvert öðru í ævisögum
þangað til allir tala í síbylju um
Bækur
„Þungur textinn líkt og
hlammar sér ofan á sögu-
efnið og öllu því smálega
sem gœti gefið frásögn-
inni eitthvert lífeða
sannferðugleika errutt
burt; það eru mörg orð en
maður er ósköp litlu nœr
því að vita hvernig María
Guðmunásáóttir hugsar. “
Egill
Helgason
sjálfa sig og enginn hlustar leng-
ur á neinn. Ingólfur Margeirs-
son hefur ekki legið á liði sínu í
ævisöguritun og er sjálfsagt á
öðru máli en Kundera; í blaða-
greinum hefur hann raunar gert
j)ví skóna að ævisaga þurfi ekki
að vera síðri list en skáldskapur
og það getur sjálfsagt verið satt
í einhverjum tilvikum. En í raun
er þetta óskhyggja, því ævisög-
ur hafa með örfáum undantekn-
ingum reynst afar forgengilegur
litteratúr, einnota, á meðan eðli
skáldskapar er að ummynda
það óskipulega efni sem manns-
ævin er.
Þessi bók hefur verið kynnt á
hástigi lýsingarorða. Það er tal-
að um „konuna á bak við goð-
sögnina". Þetta hefur náttúr-
lega verið uppleggið í óteljandi
ævisögur — maðurinn og mýt-
an — og kannski ekki furða þótt
spurt sé: Hvenær verður maður
annars goðsögn?
Þarna er til dæmis frásögn af
því að María Guðmundsdóttir
hafi verið á götu í New York og
gengið fram á Gretu Garbo sem
sendi henni bros, allsendis
óvænt. Svo er ögn sagt frá ein-
faranum Garbo; hún fær þessa
sömu einkunn, að hún sé „goð-
sögn“, og ég get vel kvittað upp
á það. En María Guðmundsdótt-
ir, er hún goðsögn eða er þetta
kannski bara stysta leiðin gegn-
um lífshlaup hennar, að láta sál-
fræðina hverfast um andstæð-
urnar einkalíf/frægðarlíf og
kæra sig kollóttan um að fólk er
samsettara en svo?
Bókin hefst á afar innfjálgum
lýsingum á uppeldi Maríu í
Djúpuvík á Ströndum. Þar er
margt ágætlega skrifað, og Ing-
ólfur má eiga það að þarna nær
hann skáldlegu flugi á pörtum.
En líkt og síðar í bókinni, til
dæmis í átakanlegum nauðgun-
arkafla, er hann ekki fyrr búinn
að lyfta sér af jörðinni en hann
fellur í gryfju auðveldrar tilfinn-
ingasemi sem virðist honum
óviðráðanleg. Þungur textinn
líkt og hlammar sér ofan á sögu-
efnið og öllu því smálega sem
gæti gefið frásögninni eitthvert
líf eða sannferðugleika er rutt
burt; það eru mörg orð en mað-
ur er ósköp litlu nær því að vita
hvernig María Guðmundsdóttir
hugsar.
Allt skáldflug fær svo snögg-
an enda undireins og María sest
upp í flugvél og hverfur út í
lönd. Þá verður frásögnin, og
það er reyndar lunginn úr bók-
inni, varla annað en röð atvika
sem tolla ekki saman; það er
mikið fjölyrt um hvað lífið gangi
hratt og um frægt fólk eða fólk
sem höfundurinn fullvissar les-
andann um að sé frægt.
Lýsingar á fallandi laufblöð-
um í París ná ekki að lyfta upp
köflum þar sem úir og grúir af
marflatri tímaritafíjósófíu: Mar-
ía er sögð ein af „Öskubuskun-
um sem höfðu komist á dans-
leik í höllinni"; hún hrærist í
„hinum firrta heimi tísku og
frægðar" og hinum „hraða takti
borgarlífsins". Hún hittir „ýmsa
úr menningargeira hins ritaða
orðs“ og menn úr „hröðum
heimi blaðamennsku". Lesand-
inn fær að vita að „enginn fór
ósnortinn gegnum sjöunda ára-
tuginn“ en að samt sé „París
alltaf París“.
I útlöndum þykir frekar hvim-
leiður siður að ástunda „name-
dropping“ og það eru mikil lýti
á bókinni hvernig alls staðar er
sætt færis að læða inn nöfnum
á fólki sem kemur meginfrá-
sögninni ekki hót við. Nokkuð
dæmigerð er ljósmynd þar sem
María stendur við annan mann
og heilsar upp á rithöfundinn
Truman Capote. Eða réttar
sagt, það stendur í myndar-
texta að hún sé að heilsa Ca-
pote, því í raun sést ekki annað
af rithöfundinum fræga en önn-
ur höndin sem teygir sig inn í
mynd. Svona er um flest af
fræga fólkinu, það glittir í hönd
eða fót á leiðinni upp í flugvél
eða út af restauranti; maður er
ekki miklu vísari þótt maður viti
að Vidal Sassoon, sem bregður
fyrir eitt andartak, „flutti síðar
til Bandaríkjanna til að sinna
framleiðslu hárþvottaefna og
varð sjampóstórveldi“.
María Guðmundsdóttir hefur
greinilega átt erfiða ævi að
mörgu leyti og hún er alls góðs
makleg. Hitt er svo annað að ef
maður klórar í yfirborðið á
hvaða manneskju sem er finnur
maður einhvern harmleik sem
býr undir; það er ekki efniviður-
inn sjálfur sem gefur ævisögu
gildi fremur en í skáldskap,
heldur fyrst og fremst hvernig
tekst að koma honum á bók.
Þetta er ekki skrifað til að gera
lítið úr lífshlaupi Maríu, heldur
til að árétta hvílíkur galli það er
á bókinni að einatt sé reynt að
ná hámarksáhrifum með ein-
földunum og tilfinningasemi
fremur en íhygli. Fyrir vikið er
maður ekki miklu nær um per-
sónu Maríu en hefði maður les-
ið tímaritsgrein sem hefur
hlaupið í ofvöxtur.
Fjallkonan skemmtir sér
Partý
Fjallkonan
Dreifing: Japis
★★
Fjallkonan er nýleg hljóm-
sveit sem gefur hér út sína
fyrstu plötu. Sveitin er skipuð
nokkrum vel kunnum tónlistar-
mönnum sem koma úr ólíkum
áttum. Þeir fóstbræður Jón Ól-
afsson og Stefán Hjörleifsson
hafa margt brallað saman um
Plötur
f 1
Bjöm
Jörundur
ævina og eru hér á ferð ásamt
söngvaranum Pétri Emi Guð-
mundssyni, Jóhanni Hjörleifs-
syni trommuleikara og Róbert
Þórhallssyni bassaleikara. Allt
eru þetta hljóðfæraleikarar
ýmsu vanir og skila sínu í sam-
ræmi við það.
Öll lögin eru eftir þá Jón, Pét-
ur og Stefán, en textasmíðin
skiptist nokkuð jafnt milli Pét-
urs Arnar og Bergs Þórs Ing-
ólfssonar. Þorsteinn Eggerts-
son á síðan einn texta við lag
Jóns, Atlot, og Jón á heiðurinn
af tveimur textum ásamt Pétri.
Yfirskrift plötunnar, Partý,
gefur góða hugmynd um inni-
haldið, léttleikandi og áhyggju-
laust yfirbragð þar sem húmor-
inn er undirtónninn.
Lagasmíðar félaganna eru
vönduð, áreynslulaus popplög
með viðeigandi alvörulausum
textum sem hæfa hugmyndinni
vel. Það kemur svolítið á óvart
að í þessu partýi er ekki mikið
spilað af stuðlögum, eins og oft
vill verða, nema þegar gestirnir
taka óvænt uppá að bömpa af
krafti í félagi við erlenda mær
sem sungin er af Emilíönu
Torrini.
Eins og áður segir er partýið
frekar yfirvegað en nær botnin-
um í rólegheitunum þegar við
heyrum sögu gæjans sem nær
ekki í neina píu og er á nettum
bömmer í nokkuð góðu lagi Pét-
urs Thule woman og laginu
Lifandi lúðranammi
Acid jass og funk
Sælgætisgeröin
Útgefandi: Kisi hf.
★ ★
Sælgætisgerðin er stuð-
blásturssveit sem leikið
hefur um skeið á veitingahús-
inu Glaumbar við vinsældir
Plötur
Bjöm
Jörundur
Glaumverja. Hér hafa þeir gert
— að því er virðist í snarhasti
— sína fyrstu hljómplötu: Acid
jass og funk.
Á plötunni kennir ýmissa
grasa gamalla fönk- og soul-
standarda í útsetningum sæl-
gætismannanna. Platan er tek-
„ Tónn blásaranna er
nokkuð misgóðuren það
skrifast eflaust á stuttan
upptökutíma og eitthvað
sem hefði mátt laga í
hljóðveri. Þetta erengu
að síður eiguleg plata
fyrirþá sem unna lúðra-
fjöri“.
in að mestu upp live og kemst í
gegn sú spilagleði sem virðist
einkenna bandið. Helsta að-
finnsla skrifast á ryþmagrunn-
inn, sem þrátt fyrir að vera
þéttur og sannfærandi er alltof
negldur í bítið — eða liggur
framarlega í því. Þar sem um
gamalt fönkístöff er að ræða
þarf að liggja aftarlega á bítinu
með hæfilegu kæruleysi svo
dæmið svíngi.
Tónn blásaranna er líka
nokkuð misgóður en það skrif-
ast eflaust á stuttan upptöku-
tíma og eitthvað sem hefði
mátt laga í hljóðveri. Best tekst
til í Kool & the Gang/Gene
Redd-laginu Give it up. Þá kem-
ur við sögu í einu lagi söngvar-
inn Bergsveinn Árelíusson og
smellur poppsánd bassa og
trommuleikarans vel inn í
myndina þar.
Þetta er engu að síður eigu-
leg plata fyrir þá sem unna
lúðrafjöri eða hafa skemmt sér
við tóna þeirra á tónleikum.
„ Tilgangur Fjallkonunnar
ergreinilega ekki að
reisa sérlistrœnan minn-
isvarða með hljómplöt-
unniPartý, heláurað
skemmta samferða-
mönnum sínum með
léttu áœgurefni
oggrípanái
stórgóða, Atlot, þar sem Jón
nær sér í píu. Merkilegt hvað
þessar stelpur geta dregið nið-
ur stuðið. Þó er einnig töluvert
af mönnum dregið í lagi Stefáns
Pjúk þar sem ógleðin er farin að
láta á sér kræla eftir Iangvar-
andi gleði næturinnar og gúst-
afsbergi gefinn sinn lögboðni
tollur af veitingunum.
í fyrsta lagi plötunnar koma
við sögu góðir gestir, þau Rósa
Ingólfsdóttir og Eggert Þor-
leifsson, sem fara á kostum í
hlutverki foreldranna sem
fljúga til útlanda svo bjóða
megi í partý. Þetta er eitt betri
laga plötunnar og sýnir Pétur
Örn þar fram á að í honum leyn-
ist margt fleira en góður söngv-
ari.
Önnur þau lög sem uppúr
standa eru Loftbólur, Förum og
berjurn þar sem Stefán er trúr
sínum höfundareinkennum
sem þekkjast úr margra kíló-
metra fjarlægð og lagið Rúnar
þrátt fyrir væminn textann.
Síst gengur veislan upp þegar
bræðurnir grína yfir sig í Hum-
an League-skotnum búningi í
laginu Fóní Jóni sem er hálfgerð
synd, því hæfilegur fíflagangur
heildarmyndarínnar virðist
frekar vera málið.
Strákarnir sjá sjálfir um út-
setningar, upptökustjórn og
hljóðblöndun. Hljómur plöt-
unnar er með ágætis yfirbragði
og ekkert mikið um stæla eða
hátæknibrellur en hæfir ágæt-
lega tónlistinni þó auðheyrilega
sé hann ekki mjög dýr.
Tilgangur Fjallkonunnar er
greinilega ekki að reisa sér list-
rænan minnisvarða með hljóm-
plötunni Partý, heldur að
skemmta samferðamönnum
sínum með léttu dægurefni og
grípandi poppmúsík.
Stjömugöf
Helgaipóstsins
Gusgus
Gusgus-flokkurinn
Kjól og Andersen
★★★
Útkoman er í flesta staði frum-
Ieg og grípandi. Lögin eru að
sjálfsögðu misjöfn að innihaldi
en útfærslan fjölbreytileg og
skapar oftast j)á spennu sem
þarf. (BJF)
Hittu mig
Vinir Dóra
Straight Ahead Records
★★
Halldór hefði mátt flytja eitt-
hvað af ákefðinni í gítarleiknum
yfir í sönginn. (BJF)
Serpentyne
Hljómsveitin XIII
Spor
Platan hljómar nokkuð einsleit í
heildina og meiri fjölbreytni í út-
setningum hefði getað lyft stöku
stað úr rokkniðnum sem þarfn-
ast stilltra stunda til að ná há-
marki sínu. (BJF)
Serðir Monster
Sverrir Stormsker
Spor
®
Hér eru soðnar saman klámvís-
ur við tíðindalitlar lagasmíðar
sem leiðast stundum út í eins-
konar ísraelska júróvisjón-hóp-
söngskórala og ætlar þá að því
er virðist flest um koll að keyra í
jörfagleðinni á Sorastöðum.
(BJF)
Double Talk
Cigarette
Skrfan
★★
Hér er greinilega á ferðinni hóp-
ur sem getur gert popp sem
virkar. Platan sýnir ágætan
þverskurð af fjölhæfri hljóm-
sveit. Það vantar samt herslu-
muninn á þessari plötu og þarna
eru of mörg lög sem ganga ekki
upp. (BJF)
í skugga Morthens
Bubbi Morthens
Skrfan
★ ★★★
Lagaval á svona verki verður
alltaf smekksatriði, en hér er á
ferðinni ágætasti pakki, sem að-
dáendur Bubba, Hauks og sí-
gildra dægurlaga ættu að kunna
að meta. (BJF)
Fjap
Súkkat
★★★
Hinir bráðsnjöllu Súkkatbræður
eru hér með sína aðra plötu. Dú-
ettinn úr Búðarhrauni bregst
ekki frekar en fyrri daginn og er
hin mesta skemmtun. (BJF)
Palli
Páll Óskar Hjálmtýsson
★
Páll gerir sér dælt við saman-
safn væminna ballaða og ferst
það verk vel úr hendi. Helsti
galli plötunnar er hins vegar að
á henni er ekki að finna einn ein-
asta spennandi eða nýja hlut.
(BJF)
Veröld smá og stór
Ásgeir Óskarsson
★★★★
Ásgeir hefur gert vandaða plötu
með efni sem hefur safnast upp
hjá honum í þrjátíu ár og verður
gaman að sjá hvað hann gerir
árið 2025. (BFJ)
Gleðifólkið
KK
★ ★★★★
Merkilegast við plötuna er
hversu jafngóðar lagasmíðarnar
eru og hverfgi veikan blett að
finna þar. Hér fullkomnar hann
uppskriftina af vellingnum sín-
um, sem er einhverskonar
sveitabikkjublús. (BFJ)
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, simi: 511 5111