Helgarpósturinn - 24.04.1996, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1996
fyfrheyrsla
• A Alþingi í fyrradag
gagnrýndi Gunnlaugur Sig-
mundsson framsóknar-
þingmaöur Sverri Her-
mannson bankastjóra
Landsbankans fýrir um-
mæli sem hann iét falla
um fjármálaráðherra, og
sjávarútvegs- og dóms-
málaráðherra. En hvað er
það nákvæmlega sem fór
svona fyrir brjóstið á þér
Gunnlaugur?
Svona eera
menn ekki
„Mig undrar það mjög að
þessi húskarl ríkisstjórnar-
innar, Sverrir Hermannson,
skuli leyfa sér að líkja fjár-
málaráðherra við fúaspýtu.
Einnig er það með ólíkindum
að húskarlinn skuli leyfa sér
að væna sjávarútvegs- og
dómsmálaráðherra um að
hafa farið illa með fjármuni
ríkisins og nánast glutrað
þeim út úr höndum sér í
tengslum við söluna á SR-
mjöli. Ennfremur undrar það
mig mjög, að bankaráð
Landsbankans skuli líða
starfsrnanni sínum að tala
þannig um viðskiptaráð-
herra, eins og hann hafi ekki
vit á bankamálum.“
Nú segir Sverrir Hermanns-
on, að þessi ununæli þín
séu ekki svaraverð. Hvemig
bregst þú við slíkum um-
niælum?
„Það er í sjálfu sér ekkert við
þessu að segja. Þetta er ein-
faldlega mat mannsins og ég
get engu um það breytt, né
læt ég það eggja mig á nokk-
urn hátt.“
Telurðu að ummæli Sverris
séu það alvarleg að banka-
ráði beri að víkja honum úr
embætti?
„Ég var nú ekki að leggja
neinn dóm á það. Ég sagði
þó, að mér íyndist það sér-
kennilegt ef bankaráðið sem
hann starfar hjá — og ber
ábyrgð á bankanum — hefur
ekkert við það að athuga að
yfirmaður í bankanum tali
svona um ráðherra í ríkis-
stjórn íslands. Hvorki í virt-
um lýðræðisríkjum né í ban-
analýðveldum myndi það líð-
ast að bankastjórar ríkis-
banka sendu ríkisstjórn
svona skeyti.“
Þannig að þér finnst eðli-
legt að bankaráðið aðhafist
eitthvað í þessu rnáli?
„Já. Mér þætti eðlilegast að
bankaráðið talaði við mann-
inn og leiddi honum fyrir
sjónir, að svona gera menn
ekki — líkt og inaðurinn
sagði. Ef einhvern tímann
hefur verið ástæða til að
segja Svona gera menn ekki!
þá er það f jjessu máli.“
-EBE
Síðastliðinn sunnudag var Guðjón Sverrisson, eigandi
nektardansstaðarins Bóhem, barinn til óbóta í hrotta-
legri árás tveggja grímuklæddra manna. í samtali við
Eirík Bergmann Einarsson sakar Guðjón dyravörð á nýja
nektardansstaðnum Vegas um að hafa veitt sér þessa alvar-
legu áverka við annan mann. Dan Morgan, framkvæmdastjóri
Vegas, segist hins vegar vera með fjarvistarsönnun fyrir sína
menn og segist sjálfur hafa orðið fyrir líflátshótunum.
Mafíustríð háð á
nektardansstöðum?
eigandi Bóhem liggur á spítala eftir barsmíðar
Eins og sjá má í viðtölum við Samúel
Sveinsson skemmtanastjóra á
nektardansstaðnum Bóhem og Dan
Morgan framkvæmdastóra nektar-
danssstaðarins Vegas í HP í dag (á
- blaðsíðum 26 og 27) ríkja nú miklar
deilur milli staðanna tveggja. Samúel
segir, að Dan Morgan og félagar hafi
hótað þeim á Bóhem öllu illu, en Dan
Morgan vísar þeim ásökunum til föður-
húsanna og segist vissulega ætla að
koma þeim úr rekstri, en hyggst vinna
samkeppnina á heiðarlegan hátt. Fyrr-
nefnd viðtöl voru bæði tekin fyrir
helgi, en á sunnudaginn gerist það svo
að Guðjón Sverrisson, eigandi Bóhem,
var laminn það illa að hann var lagður
inn á spítala með alvarlega áverka. Allt
er þetta tekið illskyggilega að líkjast
mafíustríðum þeim sem háð eru í
skemmtanabransanum á erlendri
grundu.
í samtali við HP sagði Guðjón: „Tveir
grímuklæddir menn réðust inn á heim-
ili mitt um miðjan dag á sunnudaginn
og létu barsmíðarnar á mér dynja þar
til ég lá máttvana á gólfinu. í átökunum
náði ég að rífa grímuna af öðrum mann-
anna og sá þá að dyravörður sem ég
þekki frá skemmtistaðnum Vegas, var
þar að verki. Ég tel mig líka vita hver
hinn maðurinn er, en þar sem ég náði
ekki grímunni af honum vill ég ekki full-
yrða um það að svo komnu máli.“
Samkvæmt heimildum blaðsins
fannst Guðjón liggjandi í blóði sínu á
heimili sínu í Breiðholti. Þegar lögregl-
an kom á staðinn voru árásarmennirnir
horfnir á braut. Guðjón var þá fluttur á
Borgarspítalann. Hann hafði verið lam-
inn með járnhólki í höfuðið og barinn
með höndum og sparkaður.
Að sögn Sverris Hilmarssonar,
frænda Guðjóns og eins rekstraraðila
Bóhem, hlaut Guðjón innvortis blæð-
ingar, blóðþrýstingur féll og blóð
fannst jafnframt í þvagi. „Hann var enn-
fremur brotinn á nokkrum tám og með
djúpa og langa skurði á enni og
hnakka. Bólgur stóðp út úr baki og síð-
um og nefið var stokkbólgið," sagði
Sverrir.
Guðjón kærði árásina og í kjölfarið
handtók rannsóknalögreglan umrædd-
an dyravörð hjá Vegas og færði til yfir-
heyrslu vegna málsins. Hann mun nú
hins vegar vera laus úr haldi.
Dan Morgan framkvæmdastjóri Veg-
as mun einnig hafa verið færður til
vitnisburðar til rannsóknarlögreggl-
unnar. í samtali við HP sagði Dan: „Um-
Bóhem við Grensásveg: Dan Morgan sem nýveríð opnaði nektar-
dansstaðinn Vegas var upphaflega framkvæmdastjóri Bóhem, en
var rekinn þaðan fyrír nokkru. Síðan hefur allt logað í nektardans-
bransanum og útlit fyrír að deilurnar hafi náð hámarki með bar-
smíðum á eiganda Bóhem um síðustu helgi.
ræddur dyravörður á Vegas var stadd-
ur heima hjá mér þegar árásin var gerð
og hinn dyravörðurinn hjá okkur, sem
bendlaður hefur verið við árásina, var
einnig staddur víðs fjarri árásarstaðn-
um á þeim tíma. Þessi árás er alls ekki
runnin undan mínum rifjum, enda þarf
ég ekki að beita slíkum brögðum í sam-
keppninni. Ég held hins vegar að aðrir
utanaðkomandi aðilar vilji með þess-
um aðferðum koma okkur báðum út úr
rekstri og hirða markaðinn. í fyrra-
kvöld fékk ég til að mynda nafnlausa
upphringingu þar sem mér va_r tjáð að
það ætti að ganga frá mér. Ég er nú
með nokkra menn í að kanna hvað
gerðist og ég mun komast að því hverj-
ir börðu Guðjón.“
Þeim Dan Morgan og Guðjóni hefur
annars ekki verið vel til vina í nokkurn
tíma. Fyrir nokkrum mánuðum, þegar
Dan Morgan var enn skemmtanastjóri
á Bóhem, var greint frá því í fjölmiðlum
að deilur hefðu risið milli hans og Guð-
sjóns sem endaði með handalögmál-
um. Dyravörður, sem þá starfaði á Bó-
hem en starfar nú hjá Vegas, segir að
Guðjón hafi þá komið með fjölda
manns og tekið staðinn yfir. Hjá Bóhem
fengust þær skýringar að Dan Morgan
hefði upphaflega hirt staðinn ólöglega
af Guðjóni og hent honum út. Guðjón
hefði neyðst til að bregðast við á þenn-
an hátt.
í kjölfar þessara atburða fór Dan að
leita fyrir sér með að opna nýjan stað
og opnaði þannig nektardansstaðinn
Vegas um seinustu helgi.
Dan Morgan, framkvæmdastjóri Vegas:
„Umræddur dyravörður á Vegas var staddur
heima hjá mér þegar árásin var gerð og
hinn dyravörðurinn hjá okkur, sem bendlað-
ur hefur veríð við árásina, var einnig stadd-
ur víðs fjarri árásarstaðnum á þeim tíma.
Þessi árás er alls ekki runnin undan mínum
rifjum ... Ég mun komast að því hverjir
börðu Guðjón."
Flótti Ernu Eyjólfsdóttur með dætur sínar frá Bandaríkjunum enn
Flugleiðir fyrir dómstóla
Dómari í New Jersey í Bandaríkjun-
um, Allen G. Schwartz, gaf út til-
skipun hinn 9. apríl þess efnis að rétt-
arhöld skyldu halda áfram innan 30
daga í máli sem Frederick Pittman
hefur höfðað gegn Flugleiðum. Félag-
inu er gefið að sök að hafa átt aðild að
brottnámi á dóttur hans og Emu Eyj-
ólfsdóttur frá Bandaríkjunum til Is-
lands fyrir fjórum árum.
Pittman krefst fimm milljóna dollara
í skaðabætur fyrir hönd dóttur sinnar
vegna ólöglegs brottnáms frá Banda-
ríkjunum þrátt fyrir farbann. Auk Flug-
leiða stefndi Pittman Guðmundi Karli
Jónssyni, fósturföður Ernu, Helga
Hilmarssyni fyrrum unnasta hennar
og Ernu sjálfri. Þar sem enginn ein-
staklinganna er búsettur í Bandaríkj-
unum, en Flugleiðir með skráða starf-
semi þar, er fyrirtækið eitt um að
halda uppi vörnum í málinu. Frávísun-
arkrafa Flugleiða hefur ekki verið tek-
in til greina.
Mál Ernu Eyjólfsdóttur var mjög til
umfjöllunar í fjölmiðlum á sínum tíma.
Hún flúði farbann í Bandaríkjunum ár-
ið 1992 og tók báðar dætur sínar með
sér. Bandarískur dómstóll hafði dæmt
Pittman forræði yfir eldri dóttur Ernu.
Brian Grayson föður yngri dótturinn-
ar var sömuleiðis dæmt forræði yfir
dóttur sinni. Feðurnir réðu síðan Don-
ald Feeney til að ná ræna dætrum
Ernu hér á landi og koma þeim aftur til
Bandaríkjanna. Grayson tók þátt í til-
rauninni ásamt Feeney en þeir voru
handteknir á Keflavíkurflugvelli og
dæmdir til fangelsisvistar.
Pittman heldur því fram að starfs-
menn Flugleiða á Kennedyflugvelli
hafi laumað Ernu og dóttur þeirra um
borð í vél til íslands, vegabréfalausum
undir röngu nafni.
-SG
til rannsóknar.
Erna Eyjólfsdóttir: Flótti hennar frá Bandaríkj-
unum með dætur sínar vakti ekki athygli fyrr
en feðurnir reyndu að ræna þeim hér á landi.
Þáttur Flugleiða í málinu er nú til umræðu
fyrír bandarískum dómstólum.