Vísir - 23.12.1974, Síða 3
Vísir. Mánudagur 23. desember 1974.
3
ÖRLÖGIN LÉKU FÓLKIÐ
Á MISJAFNA VFGU
- 12 létu
lífið en
fjölmargir
lifðu flóðið af
— atburða-
rósin rakin
Þaö sannaftist i snjöflóftinu aft oft er skammt miili lifs og daufta og aö iifiö er tilviljunum háö. Billinn, sem grillir i á myndinni (sjá ör),
hentist eina 150 metra af veginum niftur á þró hjá síldarverksmiðjunni. ökumanninn sakafti litt.
Á annað hundraft manns hélt
heim frá fiskverkun i Frysti-
hásinu i Neskaupstað á fimmtu-
dagskvöldið, eftir aö búiö var aö
gera að öllum þeim afla er
landaft hafði verið.
Þessi hópur mætti þvi ekki til
vinnu á föstudaginn. Rétt fyrir
klukkan 2, er griðarleg snjó-
skriða féll á húsið, voru þvi
aðeins 5 manns við störf I
húsinu.
Fyrir utan er vitað um tvo
menn og niðri i móttökunni
voru nokkrir piltar að mála.
Þeirra á meðal var 19 ára piltur
Arni Þorsteinsson.
Rétt fyrir tvö brá Arni sér upp
á hæðina fyrir ofan og inn á
verkstæði i viðbyggingu i
vesturendanum. Þar var hann
að hreinsa pensil með þynni, er
hann hrökk upp við hávaða er
hann taldi vera af völdum roks.
Siðan sá hann veggina norðan
megin rifna og snjó æða inn.
Ami barst yfir að suðurveggn-
um og hentist annað hvort
gegnum vegginn sjálfan eða
glugga á honum.
Fyrir utan er þró, sem notuð
er til að blanda saman vatni og
klór. Árni féll þar niður og
suðurveggurinn á viðbygging-
unni á hæla honum. Hann lokaði
gryfjunni og hindraði að snjór
félli ofan á Arna.
Skömmu áður var Valur Páls-
son staddur I tækjaklefa frysti-
hússins á annarri hæð hússins
norðan megin. Hjá honum var
staddur Sigurjón Einarsson.
Valur var með vatnsslöngu I
hendinni og beindi bununni að
frystitækjunum. Sigurjón brá
sér nú niður i vélasalinn. Hann
er i viðbyggingunni, undir verk-
stæðinu, sem Arni var staddur i.
Sigurjón hitti þar Aðalstein
Jónsson vélstjóra og var að
ræða við hann, er rafmagnið fór
af. ABalsteinn gekk þá frá og i
þann mund steyptist snjóflóðið
gegnum vegginn.
í tækjaklefann á hæðinni fyrir
ofan, þar sem Valur var staddur
með vatnsslöngu i hendi,
steyptist flóðið inn á sama tima.
Valur varð einskis var, fyrr
en snjórinn brauzt i gegnum
vegginn og hafði ekki tima til að
fleygja slöngunni frá sér, áður
en hann grófst i snjóinn.
í tækjaklefanum hjá Val hafði
Hermann Daviðsson verkstjóri
veriðstaddur. Er ósköpin dundu
yfir hafði hann brugðið sér inn i
frystiklefa og lokaðist þar inni
er snjórinn ruddist inn.
Sunnan við frystihúsið var
Hrólfur Hraundal staddur og
barst hann með flóðinu til
sjávar. Hann var kominn til að
taka þátt i björgunarstörfunum
klukkustund siöar.
Hallgrimur Þórarinsson yfir-
vélstjóri var staddur hjá bil
sinum austan við frystihúsið, er
flóöið skall yfir. Rútubill, sem
hafði verið lagt þarna skammt
frá kom skyndilega á fleygiferð
i áttina að Hallgrimi. Hann
reyndi undankomu, en jaðar
flóðsins greip hann og bar hann
upp á nærliggjandi hús. Hann
slapp ómeiddur.
Aðrir við frystihúsið áttu
fótum fjör að Iauna.
Þegar snjóflóöið skall yfir
voru 3 menn, þeir ölafur Eiriks-
son, vélstjóri, Guðmundur
Helgason, vélstjóri og Högni
Jónasson, skipstjóri, aðstörfum
á verkstæði sildarbræðslunnar,
sem stendur vestan við frysti-
húsið. Þeir grófust allir i snjó og
fundust látnir á föstudags-
kvöldið. Á sama stað var Stefán
Sæmundsson trésmiðameistari
á ferð og fannst hann einnig lát-
inn.
17 ára piltur, Sæmundur
Gislason, var á ferö i bil sínum
vestur eftir Strönd. Hann var
kominn á móts við sildarbræðsl-
una og var á veginum, sem
liggur um 150 metra norður af
henni. Þá skall 20 metra há
skriðan á bilnum og bar hann
eins og leið lá upp á þró, sem
stendur austan við sildar-
bræösluna 150 metrum neðar.
Þar lenti billinn á færibandi
og fór i vinkil. Gisli fékk heila-
hristing, en komst af sjálfs-
dáðum út úr bilnum.
Að sjálfsögðu fóru þessar
náttúruhamfarir ekki fram hjá
þeim, sem staddir voru austar i
bænum. Simar íóru að hringja
og þeír,.sem hlaupið höfðu af
stað til að leita að hjálp.báru
fréttirnar.
Austar i bænum var steypu-
stöö og verkstæði I sambandi við
hana. Er ljóst var, hvað skeö
hafði, hlupu þeir, er þar voru
staddir, af stað inneftir. Ólafur
Sigurðsson var staddur hjá
jarðýtu, sem hann vann á. Hann
sagöist ætla að dæla oliu á hana
og koma svo á henni til hjálpar.
Hann komst aldrei.
Skömmu eftir að innra flóðið
féll, kom annað, sem hreif með
sér steypustöðina og jafnframt
ýtuna og Ólaf. Ýtan fannst niðri
i fjöru 200 metrum neðar.en
Ólafur hefur ekki fundizt enn.
Neðan við steypustöðina var
Bifreiðaþjónusta Eiriks
Asmundssonar. Asmundur,
sonur Eiriks, var þar við vinnu,
er ljósin slokknuðu snögglega.
Faðir hans, sem aldrei þessu
vant var heima við úti á Bjargi,
sem stendur rétt vestan við
innri skriðuna,hringdi i Ásmund
og sagði honum frá fyrri skrið-
unni.
Mátti ekki tæpara standa, að
Asmundi tækist að forða sér út
áöur en seinna flóðið greip
hann. Hann barst upp með
flóðinu og varð að grafa ofan af
sér þunnt lag, áður en hann varö
laus.
Fyrir utan verkstæðið var
Alfreð Alfreðsson að setja
keöjur undir vörubil sinn. Hann
ætlaði að ljúka þvi af, svo hægt
yrði að nota bilinn við
björgunarstörfin. 1 þann mund
sem hann tók eftir seinna flóð-
inu ók litil rúta hjá.
Alfreð fékk rútuna til að
stöðva en var I sömu mund
gripinn af flóöinu. Hann barst
hálf meðvitundarlaus til sjávar.
Hann rankaði við sér um 15
metra undan landi og náði að
svamla i land. Hann skarst á
hendi og tognaði á fæti.
Alfreð sýndistsem Karl Lárus
Waldorffsem i rútunni var.næði
að komast úr henni áður en
flóöið skall yfir. Lik Karls
fannst á reki við land skömmu
siðar. Annar maður Sveinn
Daviðsson, svili Karls var
einnig I rútunni. Rútan fannst
ekki fyrr en i gærkvöldi. Sveins
Daviðssonar er enn saknað.
Húsið Máni er yzt af þeim
húsum, er i flóðunum lentu. Þar
voru Rósa Sigursteinsdóttir og
dóttir hennar Sigrún Eva
Karlsdóttir staddar í risinu.
A hæðinni fyrir neðan voru
Þórstina Bjarnadóttir og tvö
börn hennar, þau Agúst 8 ára og
Björn Hrannar 3 ára. Þau
bjuggu þar á hæðinni, en einnig
var þar stödd Elsa Gisladóttir,
við vinnu á skrifstofu steypu-
stöðvarinnar. 1 kjallaranum var
staddur Hákon Jónsson. Er
flóðið skall yfir rifnaði húsið af
grunni og brotnaði i spón að
undanteknu risinu. Flóðið skildi
risiö eftir um 80 metrum neðan
við grunninn og komust Rósa og
dóttir hennar ómeiddar úr
hamförunum. Skammt frá
risinu fannst Þórstina ásamt
börnum sinum. Þau voru öll
látin. Sömu sögu er að segja um
Elsu Maðurinn i kjallaranum
skreið þaöan út, er flóðið var
farið hjá.
Skammt frá Mánahúsinu á
Gunnar Jósepsson fjárhús. Var
hann á leið þangað er snjóflóðið
reið yfir. Hann átti fótum f jör að
launa.
—JB
Asmundur Eiriksson komst naumlega lifs af er hann var aft
vinna I verkstefti föftur sins Eiriks Amsundssonar t.h.