Vísir - 23.12.1974, Síða 5
Vísir. Mánudagur 23. desember 1974.
5
ap/UntbR ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖNÍ Umsjón Guðmundur Pétursson
Jólasöngvar
björguðu
Heath fró
sprengju
//Að öllu forfallalausu
hefði ég átt að sitja þarna
inni/" sagði Edward
Heath, formaður Ihalds-
flokksins brezka, þegar
hann kom að heimili sínu
fáum mínútum eftir, að
sprengju hafði verið
varpað inn um glugga á
neðstu hæð og hún
sprungið inni.'
En Heath hafði tafizt vi6 jóla-
söng, og var á leiðinni heim i bil
sinum, þegar hann heyrði
fréttirnar i útvarpinu.
Heath flutti úr Downing stræti
nr. 10, þegar flokkur hans tapaði
i siðustu kosningum. En úr ráð-
herrabústaðnum fór hann i
einbýlishús i Belgraviu, þar
sem sprengjutilræðið var reynt.
Ráðskona Heaths var stödd i
kjallara hússins, þegar sprengj-
an sprakk. Þegar þeir, sem
fyrstir komu að, spurðu, hvað
fyrir hefði komið, svaraði hún
aðeins: „Við fengum sprengju.
bað var allt og sumt.”
Þetta er i annað sinn á nokkr-
um vikum, sem Heath er hætt
kominn, vegna sprengjutilræða
hryðjuverkamanna IRA. Fyrir
nokkru snæddi hann kvöldverð I
klúbbi einum i London miðri,
þegar sprengja sprakk þar i
næsta húsi. A laugardag var
hann i jólainnkaupum, i
Harrodsverzluninni, þegar
sprengja kveikti i húsinu.
Harold Wilson, forsætisráð-
herra, hringdi til Heaths eftir"
sprengjutilræðið i gærkvöldi.
Sagði hann, að tilræðið „væri
hneyksli, sem gengi fram af öll-
um. Það mun einungis gera
okkur staðráðnari i þvi að koma
lögum yfir þessa glæpamenn.”
Heath, sem ætlar i dag til
Norður-Irlands til viðræðna við
stjórnmálaleiðtoga og yfirmenn
öryggissveitanna, kvaðst ekki
mundu láta þetta aftra sér frá
þeirri för.
Samtimis þessari sprengju i
London i gær, sprungu átta aðr-
ar á Norður-írlandi, aðeins
nokkrum stundum áður en
vopnahléð, sem IRA hefur lofað
yfir hátiðarnar, gekk i garð.
Skömmu siðar var kona skotin
til bana á samkomustað mót-
mælenda.
Þannig var komið að húsi Heaths i Belgravlu I London eftir sprenginguna. Heath kom sjálfur nokkrum
minútum siðar og hafði tafizt við jólasöngva.
lll
Saka CIA um njósnir
heima við
Fast er lagt að Ford Banda-
rikjaforseta þessa dagana, að
hann láti rannsaka starfshætti
CIA, leyniþjónustu Bandarikj-
anna. — Þeir gerast æ fleiri, sem
saka leyniþjónustuna um að hafa
njósnað um menn og málefni
heima fyrir i tið Nixonstjórnar-
innar.
CIA er einungis ætlað að safna
upplýsingum erlendis, og liggur
blátt bann við þvi, að hún stundi
þvilik störf innanlands.
New York Times bar CIA þess-
um sökum i gær, en meðal þeirra,
Hinzta kveðjan
,,Þakka þér allt gamalt
og gott. Hittumst heilir
hinum megin" sýnast
þeir segja, hvor við ann-
an vinirnir hér að ofan,
sem sænski Ijósmyndar-
inn rakst á í sláturhúsi í
Svíþjóð. — Þeir lenda á
jólaborðinu hjá ein-
hverjum.
Sprakk eftir
flugtak
77 fórust með flugvél, sem var i
innanlandsflugi frá Maturin til
Caracas i Venezuela i gær. Fjöldi
þeirra ætlaði að halda jólin i höf-
uðborginni.
Flugvélin sprakk fjórum min-
útum eftir fiugtak, og dreifðist
brakið úr henni yfir mikið svæði.
— Er mönnum ókunnugt um,
livað olli sprengingunni.
Þetta er annað stóra flugslysið i
Venezuela á nokkrum mánuðum.
48 manns fórust með flugvél, sem
stromur feykti á fjallshllð á
Margaritaeyju um miðjan ágúst.
Bandarískum pílagrímum sýnt
tilrœði í ísrael
Hópur bandariskra piiagrima,
sem sætti handsprengjuárás
skæruliða i gær, hélt I dag áfram
skoðunarferð sinni um landið
helga, en skildi eftir á sjúkrahúsi
16 ára stúlku, sem særzt hafði i
árásinni.
Pilagrimarnir efndu til bæna-
samkomu eftir árásina og
greiddu siðan atkvæði um að
halda áfram ferðinni eins og ekk-
ert hefði i skorizt.
Arásin á áætlunarbil þeirra var
gerð i Arabaþorpinu Aizariya,
sem er aðeins um 2 km frá Jerú-
salem. — Var sprengjunni varpað
fyrirbilinn, en tilræðismanninum
mistókst kastið og sluppu allir
nema stúlkan.
A meðan hafa borizt þær frétt-
ir, að ísraelar og Libanonmenn
hafi gert með sér samkomulag
um að halda friðinn, meðan ólivu-
uppskera bænda i Libanon stend-
ur yfir. Frá skrifstofum Samein-
uðu þjóðanna hefur kvisazt, að
tsraelsmenn muni leggja niður
hefndarárásir á Libanon i staðinn
fyrir, að Libanonstjórn láti ara-
biska skæruliða flytja burt af
Hasbaye-svæðinu hjá landamær-
unum.
Israelsstjórn hefur ekkert um
þetta viljað segja, en tiðindin
vöktu nokkra gremju almenn-
ings, sem segir að libanonskir
bændur geti þá óhultir stundað sin
uppskerustörf, meðan starfs-
bræður þeirra i Israel séu myrtir
af hryðjuverkamönnum.
Samtimis þessu er haft eftir
Ariel Sharon, hershöfðingjanum,
sem réðst yfir Súezskurðinn með
Israelsher i októberstriðinu, að
óhjákvæmilegt sé að stofna
Palestinuriki i stað Hashemite-
konungsrikisins i Jórdaniu.
sem leggja til að starfshættir
leyniþjónustunnar verði rannsak-
aðir, er John McCone, fyrrver-
andi yfirmaður hennar (á árun-
um 1961-’65).
Ford forseti, sem staddur er i
skiðabænum Vail i Kólorado (þar
sem hann verður með fjölskyld-
una yfir hátiðarnar), viöurkenndi
i gær, að honum væri kunnugt
um, að CIA hefði njósnað á
heimavelli.
Hann sagði, að hann hefði þó
verið fullvissaður um, að ekkert
væri það i neitt svipuðum mæli,
eins og haldið væri fram i New
York Times. — Ford hafði lýst þvi
yfir, þegar hann var tekinn við
embætti, að hann mundi ekki liða
neitt slikt.
Times heldur þvi fram, að CIA
hafi njósnaskýrslur um 10 þúsund
Bandarikjamenn og að njósnir
hennar hafi beinzt að andstæðing-
um Vietnamstriðsins og öðrum
fyrrum stjórnarandstæðingum.
1 greininni er sagt, að sérstök
leynideild innan CIA hafi starfað.
að þessum njósnum og skilaö
skýrslum sinum beint til forstjóra
CIA, sem þá var Richard Helms.
Helms er nú ambassador USA i
Iran og hefur hann látið þessum
ásökunum ósvarað. — CIA hefur
ekkert viljað láta frá sér fara um
málið.
LITIL SAMNINGSVON MEÐAN
PLO VILL EYÐA ÍSRAELSRÍKI
segir Kissinger utanríkisráðherra
Henry Kissinger, utanrikisráð-
herra og mannasættir i niilli-
rikjadeilum, segir i viðtali, sem
birtist i dag, að honum sé ómögu-
legt að mælast til þess viö tsraela,
að þeir semji við Palestinuaraba,
mcðan PLO-samtök hinna siðar-
nefndu stefni að þvi að eyða
israelsrlki.
„Ég sé enga von til samninga
við PLO (þjóðfrelsishreyfingu
Palestinu), meðan þeir einblina á
að eyða lsrael,” segir Kissinger i
viðtali við Newsweek.
Hann segist samt vongóður um
að friður verði saminn endanlega
einhvern tima, þótt það hafi tor-
veldað samningana, að Arabar
viðurkenndu PLO sem samnings-
aðila fyrir Palestinuaraba.
„Ef ég ber það saman, hvernig
nú er komiö málum, og hvernig
samningaviðræðurnar gengu við
Sýrlendinga (um vopnahléslin-
una yfir Golanhæðir), þá finnst
mér staðan núna ólikt meira
uppörvandi. Ég er frómt frá sagt
mjög vongóður,” sagði Kissinger.