Vísir - 23.12.1974, Qupperneq 6
6
Vlsir. Mánudagur 23. desember 1974.
vísir
tJtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
y Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúii G. Jóhannessón '
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
AfgreiOsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Slðumúla 14. Slmi 86611. 7 llnur
Askriftargjald 600 kr. á mánuOi innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakiO. BlaOaprent hf.
Ósk um frið og ró
Við erum svo lánsöm þjóð að geta haldið okkar
jól án uggs og ótta, meðan margar nágranna-
þjóðirnar búa við ótrygga framtið vegna oliu-
kreppu og atvinnuleysis. Við búum við frið og
öryggi, meðan ýmsar aðrar auðugar þjóðir eru i
efnahagslegri, félagslegri og. sálrænni spenni-
treyju.
Útlitið var ekki svona gott hjá okkur á miðju
árinu, þegar verðbólga ársins stefndi i 60-70%,
hrunið blasti við atvinnuvegunum og vofa al-
menns atvinnuleysis var i uppsiglingu. Drá- ‘
konskar aðgerðir stjórnvalda hafa komið skút-
unni okkar á flot. Það hefur kostað eyðingu
launahækkananna frá 1. marz. En við höfum
sloppið vel, að björgunin skuli ekki hafa kostað
meira.
Arangurinn er sá, að allt snýst um þessar
mundir á fullu i atvinnulifinu. Skorturinn á
vinnuafli eykst jafnvel á sama tima og atvinnu-
leysi magnast um allan helming i nágrannalönd-
unum. Og ekki er i bili sjáanleg nein kreppa,
meðan friður helzt um núverandi ástand mála.
Þetta mótar auðvitað jólahaldið og jólagleðina
að nokkru. Kviði nagar menn siður og spillir siður
hátiðinni. Verðhækkanir valda þvi að visu, að
menn hafa um þessi jól minna handa milli en þeir
höfðu gert sér vonir um fyrr á árinu. En kaupget-
an i jólaverzluninni skiptir minna máli en tilfinn-
ingin um, að þjóðfélagið muni verða i traustum
skorðum og öruggum farvegi enn um sinn.
Við megum lika gæta okkar á að láta ekki
verzlunaræði jólanna rugla okkur i riminu og
spilla hátiðinni sjálfri. Við látum jólaundir-
búninginn kalla yfir okkur allt of mikla spennu og
streitu. Við erum of upptekin af jólahrein-
gerningum, jólabakstri, jólagjafa- og jólamatar-
kaupum, jólaskreytingum og öðru jólavafstri.
Þessi ytri umbúnaður jólanna er ágætur,
meðan hann er i hófi og yfirgnæfir ekki gersam-
lega innra eðli jólanna. 1 þetta sinn hafa flestir
óvenjumikla möguleika á að hvilá sig urn jólin og
öðlast frið i sál sinni. Fridagarnir eru með mesta
móti að þessu sinni. Margir hafa ekki nema fimm
vinnudaga á 16 daga timabilinu frá 21. desember
til 5. janúar.
Þessar óskir um friðsæl jól eru ef til vill dálitið
út i hött á Þorláksmessu, annasamasta degi árs-
ins hjá flestu fólki og ekki sizt verzlunárfólki.
Margir verða orðnir sárþreyttir, áður en þessi i
dagur er á enda. Og undir lokin þurfa sjálfsagt
sumir að ljúka meira verki á skömmum tima en
þeir komast yfir.
Ef streita jólaundirbúningsins heldur svo
áfram jóladagana, ef menn verða uppteknir af
jólamat, jólapökkum, jólaboðum og jafnvel jóla- )
drykkju, er illa farið. Jólahaldið hlýtur að visu að \
endurspegla lifskjörin og þjóðlifshraðann. En svo (
sannarlega er óskandi, að sem fæstir fari á mis /
við rósemi hugans og friðinn á jólunum sjálfum. \
1 von um, að jólaandi megi sem viðast rikja )
næstu daga, óskar dagblaðið Visir lesendum sin- l
um og landsmönnum öllum (
gleðilegra jóla.
—JK )
liiiiiiiiin
UMSJÖN: G. P.
Það hefur verið dauft
um að litast i Betlehem,
þar sem Jesús kom i
heiminn fyrir nær tvö
þúsund árum. Tómlegt
hefur verið á helztu
stöðum ferðamanna
siðustu vikur, og
Betlehembúar daufir i
dálkinn.
Pflagrlmar I Jerúsalem krjúpa viö steininn, þar sem tallö er, aö Hkami
Jesú hafi veriö iagöur eftir aö hann var tekinn niöur af krossinum,
meöan Mariurnar lauguöu hann.
Svört jól
í Betlehem
Bæjaryfirvöld segja, aö Betle-
hem hafi orðiö fyrir barðinu á
samdrætti orkukreppunnar,
spennunni i Austurlöndum nær og
efnahagsvandræöum hernáms-
manna sinna, Israela.
„Betlehem er fátækur bær, og
þaö verður þrengri kostur um
þess jól en nokkru sinni fyrr”,
sagöi bæjarstjórinn Elias Freij,
sem er nýkominn heim úr fjár-
söfnunarferö um Bandarikin.
I Nazareth hafa þeir svipaða
sögu aö segja af feröamönnum,
sem hafa vart látið sjá sig á
þessum helgu slóðum. Þessi
kristni bær, þar sem Kristur ól
manninn mestan part ævi sinnar,
er byggöur Aröbum að mestu.
Abu Nasr heitir veitingamaður
einn, sem hýst hefur pilagrima i
nær 30 ár. Hann sagði frétta-
manni Reuters, dapur I bragöi
meðan hann leit yfir auö borðin I
matsölu sinni: ,,Ég hef aldrei
upplifaö jafnslæman desember.
Segja má að við horfum fram á
svört jól að þessu sinni”.
Þrátt fyrir barlóm þeirra I
Betlehem og Nazaret var ferða-
mannaráð Israels bjartsýnt á, að
ferðamannastraumurinn mundi
aukast núna slðustu dagana fyrir
jól. Talsmaður þess hélt þvl fram,
að fjöldi ferðamanna til landsins
að þessu sinni væri mjög svipaður
þvi og í fyrra.
Jólin I hittiðfyrra komu 44.000
pflagrimar til Gyðingalands, en
það dróst siðan saman 1973 vegna
októberstrlðsins, sem lauk aðeins
tveim mánuðum fyrir jól. Fólk
kynokar sér eðlilega við að fara á
vlgaslóbir.
Búizt er við þvl, að tala ferða-
manna verði um 40 þúsund bara I
desember þetta árið.
Kaupahéðnar, sem byggja af-
komu sina að mestu á jólaösinni,
eru ekki eins bjartsýnir.
Steinum lögð strætin I
Jerúsalem voru nær auð I siöustu
Vopnaöur vöröur var hofður viö Jómfrúarkirkjuna I Betlehem um jólin
i fyrra.
viku. t Betlehem var naumast
nokkra hræðu að sjá fyrir framan
búðargluggana. Jafnvel kirkjan,
sem reist var á fæðingarstað
Jesú, — og venjulega er troðin af
fólki þessa dagana fyrir jól — var
tómleg.
Betlehembúar hafa samt
mannað sig upp I að hengja jóla-
skraut á framhliðar verzlana og
yfir strætin
Freij bæjarstjóri kom úr fjár-
söfnunarferðinni um Bandaríkin
með loforð Bandarlkjamanna um
einnar milljón dollara aðstoð á
næsta ári.
Meðal þeirra, sem vinna að þvi
að safna fé til styrktar Betlehem,
er dægurlagasöngvarinn, Pat
Boone, sem er formaður fjár-
söfnunarnefndar I Kalifornlu.
Hann getur lagt fram bréf frá
stéttarfélögum, borgarstjórum
Los Angeles, Jacksonville,
Baltimore, Louisville og
Birmingham, þar sem heitið er
stuðningi við málstaðinn.
„Þessi borg heyrir öllu mann-
kyninu til”, segir Freij bæjar-
stjóri. „Fólk ætti að hugsa um,
biöja og gréiða fyrir Betlehem
til þess að viðhalda kristilegu
yfirbragði hennar”.
Bæjarstjórn þessa 30 þúsund
manna bæjar hefur á prjónunum
ýmsar áætlanir um endurbætur á
borginni. Ætlunin er að breyta
bllastæðunum á Brauðtorgi I gos-
brunna, fyrirhuguö eru kaup á
slökkvibifreið og sjúkrabifreið.
Byggja þarf bókasafn og hljóm-
leikasal, þar sem jólasálmar eiga
að óma I desember.
Efnahagur Israels á i erfið-
leikum. Kostnaður af vörnum
landsins er yfirþyrmandi og ætlar
allt að drepa. Nýlega neyddist
stjórnin til að fella gengi
Israelska pundsins um 43%, sem
leiddi af sér helmingshækkun á
matvöru, rafmagni og ollu.
Þetta bitnar jafnt á hernumdu
svæöunum sem hernámsliðinu.
tbúarnir hafa umborið her-
námið sjálft, en þrengingarnar á
efnahagssviðinu hafa komið af
stað óánægju. Við það bætist svo
yfirvofandi styrjaldarhættan,
sem aldrei sýnist veröa bægt frá.
Auk þessa eru grlsk-kaþólskir
gramir því, að erkibiskup þeirra,
Capucci, er I fangelsi. Hilarion
Capucci var dæmdur I 12 ára
fangelsi fyrir vopnasmygl á
vegum arabiskra skæruliða.
A meðan kristnir menn um
allan heim kirja „1 Betlehem er
barn oss fætt”, munu
Betlehembúar sjálfir halda jólin
meö döpru bragði.