Vísir - 23.12.1974, Page 7
Vlsir. Mánudagur 23. desember 1974.
7
ÖLLUM OFAR
JpGudíonsson hf.
Skúlagötu 26
KALKUN..
og það sem
honum tilheyrir
IIMIM
IM
fyllinguna. Sjóðið i nokkrar
min. Þegar hún er köld er hún
sett inn i kalkúninn hálsmegin.
Það tilheyrir að bera fram
eplasultu með kalkún. Við
getum t.d. haft sveppasúpu á
undan og i eftirmat jarðarber,
aprikósur og appelsinur eða
góða súkkulaðiköku handa
börnunum.
Umsjón: Erna
V. Ingólfsdóttir
Flest okkar eru
nokkuð vanaföst i sam-
bandi við jólamatinn.
Einum finnst ekki vera
jól nema á borðum séu
rjúpur. Annar segir:
„Nei, rjúpur. Ég skil
ekkert i fólki, sem sæk-
ir i þann mat. Ekki legg
ég þær að líku við að
hafa aliönd, hvað þá
aligæs, en það er nú lið-
in tið. Þær fást vist
hvergi nú orðið.”
,,Hvað eruð þið að
segja?” heldur sá
þriðji áfram, þá vil ég
heldur svinabóg eða
hamborgarhrygg soð-
inn i rauðvini.” Og svo
eru það þeir sem vilja
sviðin.
Eigum við ekki að segja að
það eina, sem allir eru sammála
um, er, aö hangikjöt megi ekki
vanta um jólin, og margir borða
skötu með mörfloti á Þorláks-
messu, kannske einmitt til þess
að kunna enn betur að meta
jólamatinn.
En hvernig væri nú að breyta
aðeins út af venjunni og borða
kalkún á jólunum eða þá að
enda árið með kalkúnsveizlu
ásamt okkar, auðvitað, ómiss-
andi hangikjöti. í því tilefni ætl-
um við hérna á Innsiöunni að
gefa uppskrift af, hvernig á að
steikja kalkún og hvað er bezt
að hafa með.
Steiktur kalkún
7 kg kalkún (fylling vigtuð
með), 1/2 kg medisterpuísur
eöa kokkteil-pulsur, nokkrar
sneiðar flesk (bacon) og eitt-
hvað grænt til skreytingar. I
sósuna 1/2 1 soð af innyflum,
sem soðin hafa verið i 1 klst
ásamt 1/2 meðalstórum lauk og
1 gulrót. Salt og pipar.
Setjið kalkúninn i meðalheit-
an ofn, hafið alúminiumpappir
yfir. Áður hefur hann verið
kryddaður og sett inn i hann
fylling. Mjög gott er að setja
svinaflesk yfir brjóstið eða
þræða það hér og þar inn I kjöt-
ið. Þegar hann hefur verið
steiktur i 3 klst., er alúminium-
pappirinn tekinn af og kraftin-
um hellt i könnu til að nota i sós-
una. Nú setjum viö medister
pulsurnar með i ofninn og
steikjum i 45 min. og gætum
þess að pensla með feiti öðru
hvoru, svo að hann þorni ekki.
Til þess aö vera viss um að
kalkúninn sé steiktur, stingum
við prjóni inn i hann, þar sem
hann er þykkastur, ef kraftur-
inn sem kemur, er ljós og ekkert
rauðleitur, er kalkúninn steikt-
ur. Ef hann er steiktur of lengi
verður hann þurr.
Sósan: Helliö kraftinum sem
eftir er I ofnskúffunni, i könn-
una. Veiöið ofan af 1—2 msk.
feiti, setjiö i pott og hveiti sam-
an viö. Setjið smám saman
kraftinn og soðið frá innyflunum
saman við, kryddiö eftir smekk
og bætið út i 1 msk. af sérrl.
Kartöflur i ofni
2 kg kartöflur, salt 100 gr
plöntufeiti eða matarolia,(fyrir
6—8). Kartöflurnar skrældar og
skornar I jafna bita, settar i
sjóðandi saltvatn i 5 min. Vatn-
inu hellt af og þær settar á
þurrku. Saltið aðeins. Hitið feit-
ina og dýfið kartöflunum i. Setj-
ið i eldfast fat ofarlega i ofn og
steikið 11—11/2 klst. Snúiö þeim
og penslið, ef þörf krefur.
Gulrætur og sveppir
i potti
1 kg gulrætur, 2—3 sneiðar
reykt flesk (bacon), 1/4 kg
sveppir, salt, örlitill sykur, 30 gr
smjörllki, pipar og söxuð stein-
selja (parsley) ný eða þurrkuð
(fyrir 6—8).
Skrælið gulræturnar og skerið
niður, skerið niður beikonið.
Þurrkið sveppina með deigum
klút, hafið litlu sveppina heila,
hina skorna i 4 hluta. Setjið gul-
ræturnar I pott og látið vatn rétt
hylja þær, bætið salt og sykri út
i. Látið sjóða i 15 min. Bræðið
smjörið i potti, setjið beikoniö
og sigtaðar gulræturnar út I og
sjóðið 110 min. á lágum straum.
Hristið pottinn öðru hvoru, svo
að ekki festist við botninn. Bætið
sveppunum út I og pipar eftir
smekk. Látið sjóða áfram i 5—7
min. Setjið á disk og stráið
steinselju yfir.
Rósakál i smjöri
(Brussel sprouts)
1 1/2 kg rósakál (Brussel
sprouts), 30 gr smjör, 1/2 tsk.
múskat, (fyrir 6-8). Rósakálið
soðið I söltuðu vatni u.þ.b. 10
min. Siið og setjið aftur i pottinn
ásamt smjöri og múskati. Hitiö
við hægan hita. Setjið i skál.
Fyllingin i
kalkúninn
1 laukur, 60-90 gr smjör, 120 gr
tvibökur, 2 msk. brauðmolar,
1/2 kg medisterpulsur (deigið
tekið úr plastinu), 1 1/2 dl
mjólk, 1 msk. sérri, salt og pip-
ar, 2 msk. söxuð steinselja
(parsley).
Saxið laukinn smátt, steikið i
smjöri eða smjörliki, þangaö til
hann er ljósbrúnn. Merjið tvi-
bökurnar og bætið I pottinn
ásamt þvi, sem á eftir að fara i
Suðutimi kalkúna
3-5 kg 40 min hvert kg. 5-7 kg
40 min. hvert kg. 7-10 kg 30 min.
hvert kg.
3 kg áætlaðfyrir 6-8 manns
5 kg " ” 10-12 ”
6 kg ” ” 12-16 ”
8 kg ” ” 20-24 ”
10 kg ” ” 30-34 ”
—EVI-