Vísir - 23.12.1974, Síða 9
Vfair. Mánudagur 23. desember 1974.
t
r
AMMONÍAK-
MENGUNí
VÉLASAL
Már Lárusson, verkstjóri i
frystihúsinu sýnir staöinn i véla -
salnum, þar sem Sigurjón
Einarsson og Aöalsteinn Jónsson
fundust. Aöalsteinn var andvana
en Sigurjóni tókst aö bjarga.
Gifurleg a m moniakmengun
var I frystihúsinu strax eftir
óhappiö og var þvl mjög erfitt um
björgunarstörf. Björgunarmenn
uröu aö skiptast á um aö moka á
meöan þeir héidu niöri i sér
andanum.
Már Lárusson verkstjóri var
áöur verkstjóri hjá Eyjabergi I
Vestmannaeyjum, en flúöi
hörmungarnar þar og hélt til Nes-
kaupstaöar. Nú má hann sjá af
ööru frystihúsi af vöidum
náttúruhamfara.
„Jú, fjölskyldan min er farin aö
vera langþreytt á þessum ham-
förum i kringum mig”, sagöi
Már.
— JB Ljósm. Bragi.
FISK-
BIRGÐUM
BJARGAÐ
Unniö er af fulium krafti aö
þvi aö skipa út i Selfoss 23-24
þúsund kössum af freöfiski,
sem voru i frystigeymsium i
Neskaupstaö, er snjóflóöiö
skall á. Menn úr nágranna-
byggðum unnu aö þvi i gær aö
rýma klefana og var reiknað
með að þetta verk tæki 2 sólar-
hringa. Fiskurinn, sem fara
átti til Ameriku, 8-9 þús.
kassar fer beint utan, en
Rússlandsfiskurinn, 15 þúsund
kassar fer i geymslu sunnan-
lands.
A myndinni eru tveir piltar
frá Fáskrúösfiröi aö vinna I
frystiklefanum i gær.
llúsmóöirin Sigurbjörg Bjarnadóttir lengst til vinstri meö Hjörvar
Hjálmarsson I fanginu, slöan koma dætur hennar Gyöa Marla og Lára
Hjartardætur, þá Óiafur Hjálmarsson og Hrönn Hjálmarsdóttir I fangi
móöur sinnar Birnu Bjarnadóttur. Lengst til hægri er Arni Daníelsson.
Ljósm. Bragi.
Ótti greip um sig:
Flúið úr
40 húsum
Þegar hver martrööin rak
aöra á Neskaupstað á föstudag-
inn, þótti rétt, aö þeir, sem
byggju efst I bænum og næst
flóöasvæðunum fengju inni á ör-
uggari stööum.
Nær 40 íbúöarhús I Neskaup-
stað voru þvi yfirgefin. Flestar
fjölskyldurnar fengu inni hjá
kunningjum, en einnig var hafzt
við i gagnfræðaskólanum og fé-
lagsheimilinu Egilsbúð.
„Hér er sofið I hverju her-
bergi og eiginlega um allt,,” var
Vísismönnum sagt, er þeir litu
inn hjá fjölskyldunni Hliðargötu
15. Þótt allir karlmenn væru úti
að vinna var margt barna
heima við.
„Við fréttum um flóðið strax
um hálf þrjú. Þá var svo margt
manna við björgun, sem ekki
höfðu látið vita af sér, að allir
biðu milli vonar og ótta”, segir
húsmóðirin Sigurbjörg Bjarna-
dóttir.
„Systur minni þótti réttara að
flytja hingað niður eftir til okk-
ar. Við erum þvi 12 hér stöðugt
heima, auk karlanna, sem eru
við björgunina. Þeir koma og
fara á öllum timum og við reyn-
um að gefa þeim eitthvað heitt
að borða, þegar þeir koma að
hvila sig,” sagði Sigurbjörg.
A hádegi i gær var þeim, sem
ráðlagt hafði verið að yfirgefa
heimili sin leyft að snúa heim á
ný. — JB
NESCO
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Símar: 19150-19192-27788
Hér sýnum við samstæðu, sem mundi sóma sér vel,
hvar sem væri, GRUNDIG Studio 1600 ásamttveim-
ur SCANDYNA M-5 hátölurum. Studio 1600 er
hvorttveggja í senn útvarpsmagnari og plötuspilari.
Útvarpið er vandað og næmt, og er það með FM-
stereobylgju, langbylgju, miðbylgju og stuttbylgju.
Magnarinn er 2x12,5 sínus/RMS wött, og býður
hann upp á hvort heldur er stereo- eða fjórviddar
(4 — D = Four Dimensions) notkun. Fékk þessi
magnari hæstu einkunnir, sem gefnar voru, í próf-
un, sem fram fóru í fyrra á 26 útvarpsmögnurum á
vegum norsku neytendasamtakanna (sjá Forbruker-
Rapporten nr. 8 1973 — RTV 800). Plötuspilarinn er
2ja hraða og gerður fyrir hand- eða sjálfvirka notk-
un. Er hann með Shure M75-D segulþreif. SCAN-
DYNA M-5 hátalararnir standa einnig vel fyrir sínu.
Er flutningsgeta hvors þeirra allt að 25 wöttum og
tónsvið 60—20.000 rið. — Verðið á þessari glæsi-
legu samstæðu er kr. 113.600,00, og er þá fótur
fyrir Studio 1600 ekki reiknaður, en hann kostar
kr. 7.400,00. Sambærilega fætur er líka hægt að
fá fyrir hátalarana á kr. 6.600,00 (stk.). — Er þetta
ekki einmitt samstæðan, sem þú hefur verið á
hnotskóm eftirl?