Vísir - 23.12.1974, Blaðsíða 12
Veitekki.of V,
iyrjað!
seinn
Gefðu betur i
Bommi, hvað
eraðþér?
Bommi!'
mikill fótbolti
og mörg
. vandamál....
Vfsir. Mánudagur 23. desember 1974.
Visir. Mánudagur 23. desember 1974.
Skellur þeirra austurrisku
Austurriska körfuknattleiks-
liðið UBSC, sem tók KR i svo
eftirminnilega kennslustund i
fyrri leiknum I Evrópukeppninni
á dögunum, fékk heldur betur
skell I leiknum gegn Ignis Varese
frá Italiu i Evrópukeppninni á
laugardaginn.
Leikurinn fór fram i Varese á
itaiiu og var fyrri leikur liðanna i
12-liða úrslitum. En þar er
liðunum skipt I tvo riðla og eru 6
lið i hvorum riöli. Komast tvö lið
úr hvorum riðli i undanúrslit.
italarnir höfðu mikla yfirburöi
yfir Austurrikismennina og
sigruðu þá með 109 stigum gegn
66. i hálfleik voru þeir 20 stigum
yfir 52:32.
i italska liðinu eru tveir Banda-
rikjamenn eins og þvi austurriska
og voru þeir aðalmenn liðsins.
Skoraði annar þeirra, Morés flest
stigin, eða 43 talsins.
Fyrir UMSC skoruðu: Tacka
19, Taylor 14, Bilek 14,
Marennaux 10, Nasalbachar 5, og
Pawalka 2. Fyrir Ignis Varese:
Mores 42, Yalvarton 30, Zahatta
20, Bison 13 og Oscila 4.
—klp—
Þrir i framlinunni, Lolli Polli og
Bommi þið aðstoðið Bomma við að
leika upp á mörkin. Allir aðrir
V eingöngu i vörn
Umsjón: Hallur Símonarson
Heimsmeistarar
Rúmena steinlógu
Austur-Þjóöverjar léku sér að
heimsrn eisturum Rúmena I
úrslitaleik handknattleiksmótsins
I Austur-Berlin i gær. Sigruðu
með 26-19 eftir að hafa haft yfir
13-5 i leikhléi. Þar með sigruðu
Austur-Þjóðverjar i mótinu, hlutu
niu stig.
Rúmenia hlaut sjö stig og
Sovétrikin, þrátt fyrir tap gegn
Noregi i gær, 18-19, urðu i 3ja sæti
með 6 stig. Danir sem sigruðu
Tékka 23-20 i gær, voru i fjórða
sæti með 4 stig. Norðmenn hlutu
sama stigafjölda, en voru með
lakara markahlutfall. Tékkar
hlutu ekki stig.
Austur-Þjóðverjar áttu i
erfiðleikum með Dani á laugar-
dag — unnu þó 16-15 eftir 9-7 i
hálfleik. Lackenmacher og
Böhme skoruðu fimm mörk hvor i
hinum litla sigri, en Dahl-Nielsen,
Boch og Holste þrjú mörk hver
fyrir Dani. Rúmenia og
Sovétrikin gerðu jafntefli og
Norðmenn unnu Tékka 17-16.
—hsim.
Bandarískur sígur
Cindy Nelson, Bandarikjunum,
sigraði I bruni i keppninni um
heimsbikarinn I Saalbach I
Austurriki á laugardag — og kom
það á óvart á heimavelli þeirra
austurrisku. Cindy, 19 ára stúlka
frá Lutsen I Minnesota, fór braut-
ina, 2700 metra, á 1:36.26 min.
Hún var rétt á undan svissneska
Olympiumeistaranum, Mariu-
Theresu Nadig, sem lengi vel stóð .
I þeirri meiningu að hún hefði
unnið.
Slakur árangur austurrisku
stúlknanna kom mjög á óvart.
Hin yngsta þeirra, Elfi Deufl, 16
ára, sem nú tekur i fyrsta skipti
þátt i keppninni um heimsbikar-
inn, var bezt i sjötta sæti — rétt á
undan önnu-Mariu Pröll Moser.
Urslit urðu þessi:
1. C. Nelson, USA, 1:36.26
2. M-T. Nadig, Sviss, 1:36.49
3. Mittermaier, V-Þ. 1:37.00
4.1. Epple, V-Þýzkal. 1:37.11
5. Treichl, V-Þýzkal. 1:37.16
-6. E. Deufl, Aust. 1:37.32
7. A.M. Pröll, Aust. 1:37.43
8. Wenzel, Lichtenst. 1:37.63
9. Clifford, Kanada, 1:37.65
10. Drexel, Austurr. 1:37.74
Eftir þessa keppni er Anna-
Maria Pröll efst i stigakeppninni
um heimsbikarinn með 69 stig.
Cindy Nelson er i öðru sæti með 56
stig (öll fyrir brun). Þá koma
Mittermaier 46, Drexel 42, Serrat,
Frakklandi, 38, Kaserer, Austur-
riki, 32, Debernard, Frakklandi,
29, Maria-Theresa Nadig 28,
Zechmeister, V-Þýzkalandi, 26 og
Zurbriggen, Sviss, 20 stig.
—hsim.
AÍjjllt
and
oj
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í.saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200
Þessar myndir eru teknar á landsliðsæfingunni á laugardaginn. A myndinni til vinstri eru þeir Bjarni Jónsson og Geir Hallsteinsson, sem nú eru aftur
komnir i landsliðshópinn eftir langa fjarveru. Á hinni myndinni er ólafur Einarsson að æfa langskotin, og fyrir aftan hann biða Valsmennirnir Jón
Karlsson og Bjarni Guðmundsson. Ljósm. Bj.Bj.
Markakóngurínn - Geir og
Bjarni
landsliðsœfingu
Enginn úr 26 manna hópnum hefur boðað forföll og einvaldurinn ónœgður
,,Ég er ánægður með útkomuna og
hvernig strákarnir hafa tekið þessu”
sagði Birgir Björnsson, er við
töluðum við hann I gær, en þá var að
Ijúka fyrstu lotunni af þrem i
æfingarundirbúningi landsliðsins I
handknattleik karla.
„Að visu hafa ekki verið margir á
hverri æfingu, enda er þetta mjög
slæmur timi svona rétt fyrir jól, og
höfum við tekið fullt tillit til þess.
Enginn af þessum 26 mönnum,
sem ég valdi til æfinga, hefur hætt
við, og allir mætt sem ekki hafa verið
með lögleg forföll. Meðal þeirra, sem
hafa mætt eru þeir fjórir sem bætt
var við hópinn frá i haust, Geir
Hallsteinsson, Bjarni Jónsson,
Ólafur Einarsson og Hörður
Sigmarsson.
Met í sundi
Ungverski sundmaðurinn
Andras Hargitay setti á laugar-
daginn nýtt Evrópumet i 800 m.
skriðsundi — synti á 8:31.3 min.
Eldra metið átti Sviinn Gingjoe
og var það 8:32.8 min.
Næsti áfangi I æfingaprógramm-
inu hefst þann 27. desember og
stendur i fjóra daga. Við gerum svo
hlé um áramótin og byrjum aftur 2
janúar.
Þá verður hópnum skipt i þrjú lið
og svo kemur unglingalandsliðið
með okkur, og munu þessi fjögur lið
leika æfingaleiki fram að þvi að
keppnin i 1. deild hefst aftur 5.
janúar.
Þegar þessu er lokið vel ég sextán
manna hópinn, sem tekur þátt i
Norðurlandamótinu, og reyni svo að
fá æfingaleiki fyrir hann fram að
þeim tima er keppnin hefst, i byrjun
febrúar”
—klp
Só 5ti í röð hjó Standard
Standard Liege, liðið, sem Asgeir
Sigurvinsson leikur með i Belgiu,
vann sinn fimmta sigur I röð, þegar
það vann Waregem 2-0 á heimavelli I
gær. En langt er I efsta sætið —
Molenbeek vann Montignies 4-1.
Önnur helztu úrslit. Charleroi-
Anderlecht 2-2, Winterslag-Antwerp-
en 1-4, og Burges-Lierse 4-0.
I Hollandi vann meistaraliðið
Fejenoord — sigraði Telstar á úti-
velli 4-0. Er efst með 26 stig úr 15
leikjum. Eindhoven hefur 25 stig úr
141eikjum — vann Amsterdam á úti-
velli 2-1. Hins vegar tapaði Ajax fyrir
Haag 1-0 á útivelli og er i 3ja sæti
með 20 stig eftir 14 leiki, einu stigi á
undan Twente, sem vann Roda 3-0 í
gær.
1 V-Þýzkalandi voru aðeins þrir
leikir vegna landsleiksins á Möltu.
Bremen-Hamborg 1-0, Wuppertaler-
Borussia, Berlin 2-0, og Hertha-Ess-
en 4-2. Á Möltu lentu þýzku heims-
meistararnir i hinum mestu erfið-
leikum. Unnu þó sigur 1-0 i 8. riðli
Evrópukeppni landsliða. Cullmann
skoraði eina mark leiksins eftir að
Holzenbein hafði skallað knöttinn i
þverslá. Það var á 43. min. Staðan i
riðlinum er nú.
Grikkland 3 1 2 0 7-6 4
V-Þýzkaland 2 110 3-23
Búlgaria 2 0 114-51
Malta
Á Spáni jók Real Madrid forskot
sitt — vann Real Zaragoza 1-0 i
Madrid i gær, en á sama tima tapaði
Barcelona fyrir Elche á útivelli, 1-0.
Espanol vann Hercules 2-0, en Las
Palmas og Salamanca gerðu jafn-
tefli 1-1.
I Frakklandi gerðu Nimes og St.
Etienne jafntefli 0-0, Lyon vann Metz
2-0, og Bordeaux vann Rheims 2-0, og
Monaco vann Strassborg 1-0. 1 Aust-
ur-Þýzkalandi vann Magdeburg
Dynamo Dresden 3-0, og Karl Marx-
stadt vann Carl Zeizz Jena 3-1.
—hsim.
ísland í riðli með Svíþjóð og
Fœreyjum ó Norðurlandamóti!
island er i riðli með Sviþjóð og
Færeyjum i Norðurlandamótinu i
handknattleik karla, sem fram fer I
Danmörku dagana 2. til 5. fcbrúar
n.k. Niðurröðun liðanna er sú sama
og átti að vera I Norðurlandamótinu
s.l. vetur, en þá varð að hætta viö það
vegna oliuskorts I Danmörku.
En nú hafa Danir næga oliu til að
hita upp þær fjórar hallir, sem mótið
á að fara fram i, og búið er að ákveða
leikina og leikdagana i báðum
riðlunum.
Eins og fyrr segir, er island i riðli
með Sviþjóð og Færeyjum. Fyrsti
leikurinn i riðlinum verður á milli
Færeyja og Sviþjóðar sunnudaginn
2. febrúar. Daginn eftir fer fram
leikur íslands og Sviþjóðar og siðasti
leikurinn i riölinum er á milli íslands
og Færeyja og fer hann fram þriðju-
daginn 4. febrúar.
Úrslitaleikirnir fara svo fram
daginn eftir. Sá fyrsti verður um 5.-6.
sætið, annar um 3.-4. sætið og sá
þriðji um 1.-2. sætið og sigurlaunin,
sem eru m.a. veglegur bikar gefinn
af Flugfélagi islands.
Allir leikirnir fara fram i Kaup-
mannahöfn og nágrenni og hafa
fjórar hallir verið valdar fyrir þá,
þar á meðal er Bröndbyhallen, sem
að flestra áliti er talin eitt glæsi-
legasta iþróttahús i Evrópu. Það var
tekið I notkun fyrir nokkrum vikum.
Hinar hallirnar eru: Grevehallen i
Greve, Helsingörhallen i Helsingör
og Storebeltshallen i Korsör. Ekki er
okkur kunnugt um hvar ísland mun
leika sina leiki, en það verður
ákveðið i næsta mánuði.
öll löndin—sex að tölu — senda tvo
dómara á mótið, og hefur verið
ákveðið að þeir Karl Jóhannsson og
Hannes Þ. Sigurðsson fari héðan.
Island á að hafa góða möguleika á
að komast i úrslit i keppninni. Sigur
. yfir Færeyjum á að vera nokkuð
viss, en aftur á móti verða Sviarnir
erfiðari viðfangs. Þeir eru þó ekki
taldir sérstaklega sterkir um þessar
mundir — a.m .k. sögðu norsku blöðin
eftir jafnteflið á milli Noregs og Svi-
þjóðar á dögunum að þar hefðu Sviar
komið fram með sitt lélegasta lands-
lið i mörg ár, og voru þeir mjög
óánægðir að ná ekki nema jafntefli á
móti þeim.
—klp—