Vísir - 23.12.1974, Blaðsíða 15
Vlsir. Mánudagur 23. desember 1974.
15
risotsm--
Er gaman að verzla i
jólaösinni?
Hallgrlmur Magnússon, múrara-
meistari: — Nei, þaö er mjög
leiöinlegt. Þetta er mesta leiö-
indaös. Sem betur fer þarf ég ekki
mikiö að vera I búðum núna.
Hulda Sigur jónsdóttir, af-
greiöslustúlka: Ég er nú aö
afgreiða, svo ég kemst minnst I
verzlun sjálf. En mér finnst jóla-
ösin alveg draumur. Það kemur
manni I svo mikla jólastemmn-
ingu.
Bjarni Þóröarson, sjómaður: —
Ég hef nú litið af því aö segja. Ég
verzla mest úti á landi þar sem ég
á heima.
Bragi Jóhannsson landmællnga-
maöur: — Ég er ekkert farinn aö
verzla ennþá. Ég geymi þaö af
ýmsum ástæöum fram I mestu
önnina.
Sigurður Skarphéöinsson, nemi:
— Já, já. Það er gaman að verzla
i kringum jólin. Enda er maöur
orðinn vanur I umferöinni.
Jónfna Waller: — Frekar er þaö
nú leiöinlegt. Þaö er allt of mikiö
af fólki i verzlunum. Ég hef bara
verið að vinna, svo ég hef ekki
komizt til áð verzla fyrr.
Kuldaboli minnti
rœkilega á sig
Allt hjálpaöist að viö að gera
gærdaginn aö kaldasta degi vetr-
arins um allt land.
Hæð myndaðist yfir austan-
verðu landinu. Landið er snævi
þakið, og loftið þvi kalt fyrir.
Þessi hæð lækkaði hitastigið held-
ur betur, og kom þvi i 24 gráða
frost á Hveravöllum I gærmorg-
un, og 21 gráðu frost á Þingvöll-
um á sama tima.
Reykvikingar fengu sinn skerf
af kuldanum. 1 gærmorgun mæld-
ist þar 14 stiga frost. Það minnk-
STAL JOLASKONUM
ÚR FORSTGFUNNI
Einhver óráðvandur maöur —
eöa kona — sem óttast jólakött-
inn meira en samvizkuna, stal I
fyrrinótt þrem pörum af kulda-
skóm úr forstofu húss viö Hóla-
braut I Hafnarfirði. Voru þaö
nýir skór, sem kostuðu ekki
minna en 20 þúsund krónur.
Var skónum stoliö um eða
eftir klukkan hálf tvö um
nóttina og átti þjófurinn greiðan
aðgang að skópörunum þar sem
útidyr hússins voru opnar. Lét
rannsóknarlögreglan í
Firðinum þess getið, að það
væri ekki óalgengt, að stolið
væri úr húsum þar sem
útidyrnar stæðu þannig opnar
nátthröfnunum.
—ÞJM
aði þó óðum er leið á daginn, og
var ekki „nema” 5 stig kl. 18 i
gær, og fór hitastigið hækkándi.
Austfirðingar fengu mest af
kuldanum, og reikaði mælirinn
kringum 20 stiga frost á Austur-
landi.
A Vesturlandi snjóaði viðast
hvar i gærdag, og þar var frostið
mildara en viðast annars staðar.
Veðurstofan spáir litlum breyt-
ingum i dag. Mega menn þvi
halda áfram að búa sig vel. -óH
Flug-
vélar
brunnu
Tveggja sæta Piper Colt
flugvél eyöilagöist, og sex
sæta Piper Aztec vél
skemmdist mikiö, þegar eldur
kom upp I flugskýlinu á
isafiröi á föstudagskvöld.
Jeppabifreiö eyðilagðist
einnig. t skýlinu voru auk þess
dráttarvél og tvær bifreiðar.
Slökkviliöið á ísafirði réö
niöurlögum eldsins um hálfri
klukkustund eftir aö hann
brauzt út.
—HH
MEÐVITUNDARLAUS
EFTIR UMFERÐARSLYS
Attræður maöur liggur meö-
vitundarlaus á gjörgæzludeild
Borgarspitalans eftir umferöar-
slys siðastliðinn laugardag. Varö
slysiö klukkan aö veröa hálf sjö
um kvöldið á Hringbraut vestan
viö Laufásveg. Var bllnum ekiö
vestur Hringbraut á vinstri
akrein.er gamli maðurinn gekk I
veg fyrir hann meö fyrrgreindum
afleiöingum.
—ÞJM
Danskurinn lætur ekki að sér hæða
Hvert mannsbarn veit, að ísland er land mikillar
verðbólgu, svo mikillar, að síðustu tólf mánuði hef-
ur engin þjóð á vestur hveli jarðar komist með
tærnar, þar sem við höfum hælana, í þessum efn-
um. Flestir vita líka, að þetta er okkur til heldur
lítillar sæmdar. Við höfum því stundum verið að
hugga okkur við það, að frændur okkar, Danir,
séu litlu betri (að visu eru þeir næstum helmingi
skárri, greyin, en hvað um það). — Sú samstæða,
sem hér er boðin, kemur að mestu leyti frá Dan-
mörku, en eins og kunnugt er, eru SCANDYNA
verksmiðjurnar i því ágæta verðbólgulandi. Það
eina, sem ekki kemur þaðan, er plötuspilarinn, en
hann er frá BSR í Englandi, en það er reyndar líka
nokkuð gott verðbólguland. — Það undarlega við
þetta allt saman er það, að þrátt fyrir alla þessa
verðbólgu, er verðið á þessari samstæðu með
ólíkindum lágt. Með tveimur stóru hátölurunum
kostar hún kr. 114.400,00 og kr. 132.400,00 með
fjórum hátölurum og fullkomnum fjórviddarbúnaði,
og ber þá að hafa i huga, að útvarpsmagnarinn,
SCANDYNA 2000, er 2 x 25 sinus/RMS wött, plötu-
spilarinn, BSR HT-70, er vandaður og fullkominn í
öllu tilliti og með Shure M75-6S segulþreif og, að
hátalararnir stóru, SCANDYNA HT-35F, flytja allt
að 80 wöttum og hafa tónsvið frá 35 upp í 20.000
rið. — Já, Danskurinn (og þá kannske um leið Eng-
lendingurinn) lætur ekki að sér hæða.
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Simar: 19150-19192-27788