Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1968, Blaðsíða 2
ið úr skipinu meðal annars 83
flöskum af þessum rómaða elex
ír, samtals 207 króna virði. 15
tómar flöskur fundust um borð,
þegar skipið kom til Vest-
mannaeyja. Ekki er Reykjavík
nein stórborg um þetta leyti,
en þó gerðist það að unglings-
piltur varð fyrir harkalegri
líkamsárás í Þingholtsstræti og
sama kvöld réðust þrír menn á
gamlan mann á Bergstaðastræti
og misþyrmdu honum mjög.
BJARNDÝR GANGA
A LAND
Hinn 11. febrúar hafa bjarn-
dýr gengið á land austur á
Sléttu. Hefur eitt þeirra verið
skotið á Grjótnesi og auk þess
þykjast menn vita þar af fjór-
um í landi. Talið er og að fjög-
ur bjarndýr hafi gengið á land
í Skagafirði í Sléttuvík, en ná-
kvæmar fréttir eru þó ekki
komnar um það. Hins vegar er
það víst, að Hjörtur Klemens-
son á Skagaströnd skaut í fyrra
dag ísbjöm á ísnum fram af
Skagaströnd. Stóð björninn
þar yfir dauðum útsel og var
hann búinn að fletta spikinu af
selnum. Stór vök er í ísnum
undan Árbakka á Skagaströnd
og eru þrír skíðishvalir í henni
en ekki hefur enn verið hægt
að ná þeim, með því að vökin
er svo stór, en hún er óðum
að minnka.
Sama dag eru fréttir um
merkilega félagsstofnun austur
á Eyrarbakka; þar hefur 8. febr.
verið stofnað Flóaáveitufé-
lag, sem hugsar til að koma á-
veitunni í framkvæmd, samkv.
lögum frá síðasta Alþingi. Um
framkvæmd verksins er allt ó-
ráðið ennþá, en fundurinn sam
þykkti að fara þess á leit við
landsstjórnina að hún tæki að
sér að framkvæma verkið.
1 regnir utan af landi
herma að frostharkan hafi ver-
ið gífurleg, 28 stig á ísafirði,
33 og hálft á Akureyri og 36
stig á Grímsstöðum á Fjöllum.
Þá lagði ísi alla innfirði. Kolla-
fjörður var ein íshella svo að
menn gátu gengið til Engeyj-
ar og Viðeyjar. Svo mikil ísa-
lög urðu við Breiðafjörð, að
póstflutningi var ekið í land
úr Flatey. Svo mjög lagði sjö 3
Faxaflóa að frá Skólavörðunni
í Reykjavík sást einungis
blámi af auðum sjó fyrir Sel-
tjarnarnesi. Fugl mun hafa far
izt í hrönnum í þessum miklu
harðindum. Síðla marzmánaðar
geta menn skemmt sér við að
horfa á „Frænku Charleys"
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í
Iðnó, en fregnir af heimstyrj-
öldinni greina að hún sé nú
nokkuð í kyrrstöðu, eða þá at-
burðir séu mjög á huldu. Þó
hafa 60 þýzkar flugvélar far-
ið í herför til Parísar og segja
Þjó'ðverjar það gert í hefndar-
skyni fyrir loftárásir á þýzkar
borgir. Ótta miklum sló að borg
arbúum í París við þessar árás-
ir og fjöldi manns ruddist nið-
ur í neðanjárnbrautargöngin og
urðu þar svo mikil þrengsli, að
66, einkum konur og börn, tróð-
ust þar undir og biðu bana.
f aprílmánuði er heldur lítið
um innanlandsfréttir, en sumar
gengur í garð og víðafangs-
hlaupið fer fram, kapparnir
hlaupa frá Austurvelli, suður
Laufásveg, inn undir Öskju-
hlíð, þaðan norður yfir veg-
VIÐ 33000 TONNA ARSFRAMLEIÐSLU VERÐUR
STARFSLIÐ VERKSMIÐJUNNAR 340 MANNS
Sendum íslenzku
þjóðinni drnaðaróskir
vegna 50 dra
fullveldisafmælisins
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ
ISAL
í janúar voru skipin föst í höfninni.
leysur og torfærur og niður á
Laugaveg, gegnt gasstöðinni og
léttu eigi fyrr en í miðju Aust-
urstræti. Sigurvegari varð Ól-
afur Sveinsson.
I
maí 1918 þykir Ölfus-
árbrúin nokkuð slitin orðin,
einkum gólfið og í Neðri deild
Alþingis flytja þingmenn Ár-
nesinga frumvarp um heimild
handa landsstjórninni til við-
halds brúnni. Vegamálastjóri
hefur krafist þess, að sýslu-
nefnd Árnessýslu geri þetta en
sýslunefndin sneri sér til Al-
þingis því áætlað var að við-
gerð kostaði 10 þúsund krónur.
Ekki er að sjá að margt ger-
ist merkilegt í menningarmálun
um þetta vor, þó heldur Einar
Jónsson málverkasýningu í maí
mánuði í húsi Verzlunarskólans
við Vesturgötu og fær góða
dóma í nafnlausri grein í Morg-
unblaðinu.
TÓMAHLJÓÐ 1
RÍKISKASSANUM
Gengi á erlendri gjaldmynt
um þetta leyti er eftirfarandi:
Bandaríkjadollar 3,40 kr.,
sænsk króna 111 kr. franskur
franki 60 krónur, norsk króna
104 krónur, sterlingspund 15.60
krónur, þýzkt mark 65 krón-
ur. Menn hafa áhyggjur af
framvindu efnahagsmálanna þá
ekki síður en nú:
„Efni landsmanna ganga óð-
um til þurrðar og horfurnar
hinar bágbomustu. Brcytni
þjóðarinnar fram aff þessu virð-
ist helst hafa borið þess vott,
að landið eigi ótæmandi gull-
PACER STAR
er lang-ódýrasta
LJÓSPRENTUNARVÉLIN
á markaðnum.
HANDHÆG, FLJÓTVIRK, GEFUR MJÖG SKÝRAR
OG GÓÐAR MYNDIR. LJÓSPRENTAR ALLA LITI,
BÆÐI PRENT, VÉLRITUN OG SKRIFT.
VERÐ AÐEINS KR. 3.084.00 (óbreytt verð).
Sisli <3. <éofínssn l/.
Vesturgötu 45
Símar 12747—16647.
18 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 1. desember 1968