Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1968, Blaðsíða 5
'Hátíðarsamkoman við stjórnarráðshúsið 1. des. 1918.
verið vitnað til grasleysisins ár
ið 1881 en eftir því sem fregnir
berast nú, mun grasleysið meira
og almennara í ár en þá var.
Þetta ár var grasleysið sérstak
lega tilfinnanlegt á vallendis-
jörðum. Mýrarnir voru miklu
skárri og nutu þeirra margir í
það sinn. En nú eru mýrir sagð-
ar að sínu leyti engu betri. Suð-
ur í Róm hefur páfinn tekið að
sér að tala máli keisaraekkjunn
ar rússnesku, en hér heima hafa
menn meiri áhuga á hugsanleg-
um mjólkurskorti vegna þess
að heyskapurinn bregst.
„Bærinn verður að koma sér
upp kúabúi í liaust, hvað sem
það kostar. Gerum ráð fyrir að
liann kaupi 50 kýr og afli fóð-
urs handa þeim. Minna má það
tæplega vera. En með skömmt-
un væri hægt að bjarga ung-
börnum bæjarins með þeirri
mjólk sem það kúabú gæfi af
sér.“ Fregnir að austan segja
frá því að Geysir sé nærri al-
veg hættur að gjósa. Einu sinni
á mánuði eða á sex vikna bili
kvað hann gjósa dálítið en eigi
eins hátt og mikið eins og hver
inn gerði áður.
15. ágúst er auglýst í Morg-
unblaðinu að bifreið frá Stein-
dóri muni fara alla leið til
Eyrarbakka en á Nýjalandi
verða haldnir hljómleikar
næstu kvöldin og salurinn upp
lýstur með bensínluktum. Þar
leika þeir saman Þórarinn
Guðmundsson, Eggert Guð-
mundsson, Stefán Guðnason og
Eggert Guðmundsson. Það líð-
ur á ágúst og fréttir um út-
lendar tilraunir með gas og mó
vekja nokkra athygli hér
heima, ennfremur grein um ó-
hollustu kaffisins, sem helst má
drekka eftir messu á sunnu-
dögum.
E rlendar símfregnir um á-
Ferdinand ríkiserfingja í Aust-
urríki og konu hans í borginni
Sarajevó í Bosníu. Sá atburður
varð til þess að heimstyrjöldin
hófst. Endalok Princips urðu
þau, að hann andaðist úr tær-
ingu í fangelsinu.
NÝI SATTMALI
Hinn 24. dag júlímánaðar er
þess getið, að doktor Sigurður
Nordal hafi verið skipaður
prófessor við Háskóla íslands
í stað Björns M. Ólsens dokt-
ors, en í Englandi og Svíþjóð
séu gerðar tilraunir til að búa
til föt úr pappír og hafi tekist
vel. Þó sé lítil eftirspurn ennþá
eftir þessum fötum. Jóhannes Jó
sepsson auglýsir eftir ungum
íþróttamanni, sem vanur sé ís-
lenzkri glímu, og geti hann
fengið atvinnu við íþróttasýn-
ingar sínar í Ameríku. Enn
meiri tíðindi eru í aðsigi og
laugardaginn 27. júlí kemur
Morgunblaðið með aukablað og
framan á því stendur með stóru
letri: „Nýi sáttmáli“. Öðru meg
in á síðunni er sáttmálinn á
dönsku en hinum megin á ís-
lenzku. Þetta er frumvarp til
dansk-íslenzkra sambandslaga.
Seint í júlí er spánska veikin
enn furðanlega væg og sam-
kvæmt fréttum frá ísafirði
veiðist síldin bærilega. En
benzínskortur er nú orðinn til-
takanlegur: „margar bifreiðar
og bifhjól hafa orðið að hætta
akstri. Bensín er ófáanlegt hjá
kaupmönnum, en heyrst hefur
þó að það sé fáanlegt hjá ein-
staka mönnum, en þá selt á 5
krónur kílóið."
í júlí lok eru rottur að verða
hreinasta plága í Reykjavík, á
hverju kvöldi sjást þær á
hlaupum í tugatali við geymslu-
húsin á uppfyllingunni, sumar
á stærð við væna kettlinga og
mörg hús í bænum eru „full af
rottum“. Þær eru jafnvel orðn-
ar svo spakar, að þær eru
hættar að hræðast fólk. En á
vesturvígstöðvunum er engan
veginn tíðindalaust; Þjóðverjar
byrjaðir undanhald. í Reykja-
vík er veturinn undirbúinn með
tilliti til eldiviðar og kolaleys-
is.
„Nú sem stendur vinna í
Kringlumýrinni um hundrað
manns, mest kvenfólk og börn.
Er mórinn að mestu þurr og
hefur nokkuð verið þegar flutt
til bæjarins, þeim sem pantað
hafa. En það er óhemja eftir
handa þeim sem mó vilja kaupa.
Enginn vafi getur verið á því,
að ódýrasta eldsneytið á þess-
um tímum er góður mór. Það er
ekki að búast við þvi, að menn
almennt geti brennt kolum í
vetur fyrir 300 krónur smálest-
ina.“
Það hefur komið fram í ný-
útkomnum hagtíðindum, að
vöruverð hefur hækkað um 209-
211 prs. frá 1914 og þykir
mörgum mikið. Og ehki eru
uppörfandi fregnirnar um gras
leysið úti á landsbyggðinni:
„Um undanfarin ár hefur oft
1. desember 1968
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21