Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Page 7
Hér sést klaustrið, Mount Melleray Abbey, sem um er rætt í greininni. : ||§|PP* yj:■ ;?> '. j>V‘\ *’ ÍÍ| \ 4' WjtfáM W$sm§ 1 ;* fiít ÍF& n ili* SHfÍ Mji is»8 i r.. iii Sigurveig Guðmundsdóttir Fagurt mannllf með Kolumba og Kilian f; | ISÉ g§t« ■ fÍÍxM Sagt frá dvöl í írsku klaustri frland er náliga landa best, þeirra er menn vitu, þó þar vaxi eigi vín á, segir í Kon- ungsskuggsjá. Þó að margt hafi breytzt um náttúru írlands frá þeim tíma er þetta var ritað, mun þó enn mega segja með sanni að írland er gott land. Þvi til sönnunar er meðal annars sú hörmulega staðreynd að nú á dögum er barizt luim landgæði frtends. Sú skalimöld, er nú gersair á Norður-frlandi er fyrst og fremst af efnahagslegum rótum runnin. Menn berjast þar vegna óréttlátrar skiptingar á landsins gæðum — og er þar að langur og ömurlegur aðdragandi sem ekki skal rak- inn í þessari grein. Hins vegar er írland for- vitnilegt land fyrir margra hluta sakir og hafa fáeinir ferð azt .þain'giað af fs'lanidi á seinni árum í ýmsum tilgangi. Núna í ágúst s.l. fór ég til írlands með þeirri ætlan að kynnast þar kristnihaldi i rómversk- kaþólska hlutanum eða írska lýðveldinu en þar er nálega hvert mannsbarn kaþólskt. Þeir fáu íslendingar, sem að- hyllast hinn forna sið, hafa löngum átt í erfiðleikum með að halda uppi eðlilegum kynnum við trúbræður sina í hinum viðlenda kaþólska heimi. Svo sem kunnugt er fóru ís- lendingar þvert og endilangt um alla Evrópu í rómverskri kristni. — Þá nefndist hér margur til metnaðs og hróss frá Miklagarði til Niðaróss. Þá stóð hámenning íslands sem æskuna dreymir. — Eftir siða- skiptin varð Kaupmannahöfn miðdepill heims fyrir ís- lendinga og erum við ekki ennþá búin að ná okkiur eftir þau umskipti, svo að vitnað sé í danska sjónvarpsviðtalið við Halldór Laxness nýlega. Þegar kaþólsk kirkja nam hér land á nýjan leik, eftir irniðja isiðustu cild, 'urðu ka- þólsk áhrif að fara yfir Dan- mörku til fslands að mestu leyti, og stóðu málin þannig fram að siðustu heimsstyrjöld. Siðan hefir þetta verið nokk- uð á reiki. Skandinavísku löndin hafa lítt verið aflögu- fær um kaþólsk áhrif, — enda þau Sigrid Undset og Jóhann- es Jörgensen löngu önduð. Mið-Evrópa hin kaþólska hef- ir ekki enn jafnað sig eftir stríðið og Suðurlönd eru menn ingarlega fjær Islandi núna heldur en þau voru á miðöld- um. Menning Ameriku er ekki mjög hentug í þessu atriði. Hún er ekki nógu gömul og gróin og þar að auki er við stórveldi að eiga, sem ekki er alltaf gott. En frland hefir margt að bjóða kaþólskum fslendingi. Fyrst og fremst eldforn sögu- leg tengsl. Hinir irsku Papar námu hér land löngu á undan Norðmönnum, svo sem segir i fornum ritum. Margir land- námsmenn komu frá Bretlands- eyjum og írlandi, sem og kristn ir lærdómsmenn. Þá er írland lítið riki. Það gleypir mann ekki, eins og gera hin stóru þjóðlöndin. Þar er töluð enska, sem flestir íslendingar geta nú orðið bjargað sér á. — Og síð- ast en ekki sizt; og það sem varð aðalástæðan til þessarar ferðar minnar: írar eiga mjög merka og lifandi kaþólska menningu. Þeir staðir, sem hentugastir eru til þess að komast í nána snertingu við kaþólskt trúarlíf, eru gististaðir hinna miklu klaustra, sem hafa hýst gest og gangandi allt frá dögum Bene- dikts frá Núrsíu, um 400 e.Kr. Hann sagði við munka sína: Gesturinn sé yður sem Krist- ur. — Klaustrið, sem ég kaus að gista er í Suður-írlandi, — í Waterfordsýslu og heitir Mount Melleray. Munkarn- ir eru af regluætt heilags Benedikts, ennþá strangari grein en hinir uppruna- legu Benediktsmunkar. Regliuheiti iþeiirna er Cister- ciensar. Það er sú regla sem hinn heilagi Bernhard frá Oteirvaux laðhyllisit o;g gerði fræga um allan hinn kristna heim á tólftu öld. Seinna hnign aði regluhaldinu en þá kom tjl sögunnar á 17. öld merkismað- ur franskur, sem endurlífgaði klausturhugsjónina i klaustr- inu La Trappe. Þess vegna eru munkar þessir á seinni tímum kall'aðiir trappistair. Þöign- in, hin algera þögn, er aðall þessarar reglu. Eftir Vatíkan- þingið síðara hefur reglan fært ýmislegt til nútímalegra horfs. T.d. mega gestir tala frjálst og óþvingað við gestafeðurna og aðra munka við störf sin í þeim hluta klaustursins sem er opinn gestum. Fyrir fjörutíu árum las ég um þetta klaustur i ferðabók, og varð minnisstætt að Mell- erayklaustrið rekur gisti- hús fyrir konur. Slíkt er ekki vanalegt um munkaklaustur. 1 þessu sambandi má minna á sögu sem gekk um hið vold- uga þýzka Benediktsklaustur Maria Lach. Vilhjálmur Þýzka iteindskeisari ákvað að faria í heimsókn í þetta klaustur og var það auðsótt mál af hendi munkanna. Þá datt það í keis- arafrúna að vilja endilega fara með Vilhjálmi sinum í þessa klausturheimsókn. Munkarnir tilkynntu þá drottningunni af mikilli kurteisi að regla þeirra tæki ekki konur til gist ingar. Varð svo að vera og drottning Þýzkalands mátti standa úti meðan Vilhjálmi var boðið í klaustrið. Nú, svo að haldið sé áfram sögunni, þá skrifaði ég munk- unum í Melleray og baðst gist- ingar i svo sem vikutima. Svar kom fljótlega að gisting væri heimil og undirritað bréfið af síra Taddeusi gestaföður. Ekki vissu munkarnir hverrar trúar ég var, enda taka þeir við öll- um gestum án tillits til trúar- skoðana. Þeir geta sagt með Grími Thomsen : — Hvort Búddha þessi, heiðnum hinn hallaðist kreddum að, þriðji kenndiur við Kcnanimn, k:imur i sama stað. — Er nú ekki að orðlengja það, ég fór til Dublin, gisti þar í ágætu gistiheimili mrs. Condr- en sem margir íslenskir fr- landsfarar þekkja, fór siðan sem leið lá með járnbraut til borgar þeirrar er Mallow heit ir, þaðan með langferðabil til þorpsins Qappoquin, tók þaðan leigubíi upp i fjöllin þar sem klaustrið stendur og tók ferð- in alls um sjö klukkutíma. Þessi suður-iráku -fjöll heita Knocmeldown, svo sem 500 m há. Land er þarna einstaklega frítt, sem einn skrúðgarð- ur. Vegurinn var ágætur eins og aliir iþjóðVe'giir eru á Ir- landi. Landið hækkaði i sí- fellu. Þar skiptust á akurrein- ar, skógarlundir, lækir og lygn ar ár, þar sem veiðimenn stóðu þolinmóðir við stengur sínar. Fyrir nokkrum árum herjaði illkynjuð sýki írska laxa- og sil unigasitoínimini em nú viar ®agt að veiki þessi væri mikið að réna. Loksims var staðmæmzit fyrir framan tveggja hæða steinhús, umgirt rósagarði. Þar uxu Htea úti fyriir hortemisíu- runnar, fúksíur og pelargóní- ur ásamt fjölda annarra skraut- jiurta. 1 ibaiksýn iuxu sednusvlið- ir og ýmsar aðrar fáséðar teg- undir barrtrjáa sem ég kann ekki að nefna, auk lauftrjáa af ýmsu tagi. Þetta var þá kvennaheimili klaustursins. Ráðskonan, sem (þarma réð hús- um var virðuleg dama og mik- il fríðleikskona. Hún vís- aði mér á einsmanns herbergi með ágætu rúmi, klæðaskáp, kommóðu og handlaug með heitu og köldu vatni. Á kvöld in fengum við te og fínabrauð nýbakað hjá ráðskonunni. Var þá setið í þokkalegri dagstofu. Þar var kveiktur eldur á arni ef svalt var og hægt að horfa á sjónvarp. Kvennaheimili þetta var reist á þeim tíma þegar regla munk anna var strangari en nú er. Þess vegna stendur húsið við hliðið á klausturlandinu, svo sem 10—15 mín. gang til klaust ursins. Upphaflegur tilgangur með byggingu þessa húss var að gefa mæðrum, systrum og veinzteikoin'uimi m'unkanna tækd- færi til að heimsækja þá og um leið njóta góðs af andlegri leiðsögn þeirra. En smám sam- an fengu hvaða konur sem var að búa þarna meðan húsrúm leyfði. Veguriinn upp brekk- una til klaustursins er góður bílvegur en samhliða honum hafa munkarnir lagt gangstíg, þar sem gengið er milli blóma- runna eða gegnum trjágöng á víxl. Þarna er víðsýnt og fjöll- in nærri. Meðfram veginum eru sums staðar allmiklar byggingar, sem tilheyra skólum munk- anna. Þeir reka bama- skóla íyrir sveitina og mennta skóla fyrir pilta. Þegar komið er í hlaðið rís þar hæst klaust- urkirkjan og áföst við hana er sóknarkirkjan, klaustrið sjálft, gistihúsið og þar aftur a<f hiin mi'kl'U peniingshús klauist- urbúsins. Skrúðgarðar miklir eru þama allt i kring og öll- um heimilt að ganga þar um. Okkur komuniuim vair nú vís- að inn i matstofu sem tók um 20 manns. Voru þar bæði karl ar og konur að snæðingi. Venj an er sú, að ef um hjón er að ræða, þá gistir konan í kvennaheimilinu en bóndinn í karlagistihúsinu, sem er áfast við munkaklaustrið. Munkarn ir elda matinn sjálfir, þeir bera á borð og þvo upp. En kven- fólkið vildi endilega hjálpa til og sú varð raunin að þær báru mat á borð og þvoðu upp fyr- ir munkana til skiptis. Virtist sem þær hefðu mjög gaman af þessu, einkum þó að vera i eld húsinu. Enda voru margar þess ara kvenna náskyldar munkunum. Glatt var á hjalla í eldhús- inu, því að þarna voru marg- ir unglingar. Konurnar sungu við uppþvottinn og einu sinni

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.