Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Page 27

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Page 27
Það var einstaklega skemmtileg-t að fylgjast með þjálfun Páls bónda Pálssonar, sem dró hvergi af sér. Hann hefur sýnt hverjum árangri er hægt að ná með samstilltu átaki hins einbeitta sjúkraþjálf- ara og þrautseiga og ósérhlífna sjúklings. Steini litli, sem er tæplaga ársgamall snáði, fæddist úti á landi með klofinn hrygg. Var flogið með hann samdægurs til Reykjavíkur til skurðaðgerð- ar. —i Ég hef haft hann með höndum öðru hverju frá því hann var tveggja vikna, segir María. Fyrst var verkefnið að allega að koma í veg fyrir, að liðir krepptust en síðan bætt- ust smiám saman við fleiri æf- ingar. Nú er éig að reyna að kenna h<xnum að skríða. Oig María veltir strák fram og aft- ur á stórum bolta, þannig að þunginn hvílir ýmist á höndum eða fótum. öklana þarf lika að þjálfa, alveg eins og á litlu telp unni uppi, æfa vöðvana og vinna gegn kreppu. Foreldrum hans hafa verið kenndar þessar æfingar og er sýnilegt, að þau hafa gert þær samvizkusam- lega. — Margt af því sem ég geri við Steina litla miðar að því að hjálpa honum að sprikla og hreyfa sig. Við stefnum að því að hjálpa börnunum til að hjálpa sér sjálf, — hver árang- uirinn verðuir, á svo tímdnn eft- ir að leiða í djós. — Þvi miður geta ekki öll svona börn átt heima I Reykja- vík, þar sem þau gætu stundað æíing,astöð lamaðra og fatl- aðra. Þá er ekki um annað að ræða en kenna foreldrunum nauðsynlegustu æfingar. — Næsti sjúklingur gefur ekki eins góðar vonir, segir María — það er lítil broshýr stúlka, hálfs annars árs, sem hefur meðfæddan heilaskaða og er spastisk, þ.e. að vöðvarn- ir stífna upp öðru hverju. Hreyfingarþroski hennar er svo takmarkaður að ekki er gott að segja til um þroskann á öðrum sviðum. Börn kynnast t.d. hlutum með því að seilast e'ftir þeim og stinga þeim upp. í sig, — en henni veitist það erfitt. . . Hún sér hlutinn og ætlar að ná í hann en stífnar þá upp og það veldur henni sársauka. Við reynum að beita við hana æfingakerfi, sem kennt er við enskan sjúkra- þjálfara frú Bobath að nafni. Það byggist á því að setja börn in í stellingar, sem losa þau úr spasmanum og byrja síðan að æ?a vöðvana. Nú sérðu til dæmis að hún er alveg afslöpp uð og brosir eðlilega. En svo getur allt í einu komið spasmi í brosið. Hún er ósköp félags- lynd þessi litla dama og vill gjarnan láta leika við sig. Þær segja hjúkrunarkonurnar uppi, að ég sé búin að gera hana óþæga. — Sumir halda því fram, að það þýði ekkert að Bdfa þessi börn, en það hefur margsýnt sig, að hægt er að ná umtals- verðum árangri. Hann fer að vísu eftir þvi á hvaða stigi sjúklingurinn er, hvað heila- sksnrmdin er mikil — en þótt það taki langan tíma að ná ein- hverjum árangri, finnst mér það þess virði. Maria sýnir okkur hvernig hún reynir að kenna litlu stúlk 'i’.nni að velta sér við . . . til þess verðum við að vita, hvern ig heilbrigt barn veltir sér, hvaða vöðvum það beitir frá upphafi til enda veltunnar. Um þessi börn þýðir ekkert að segja ,,hún er hálfs annars árs og á að geta gert þetta og hitt. . . “ — við verðum að byrja á byrjuninni. Heilbrigt barn hefur lagt marga áfanga að baki, áður en það tekur fyrstu skrefin. . . og þessi börn geta ekki stytt sér leið fremur en önnur. HINN HARÐGERI ÍSLENZKI BÓNDI Nú er liðið að hádegismat og okkur er boðið upp á loft í matsalinn, þar sem aðalréttur dagsins eru steikt kindahjörtu, fyllt sveskjum. Kaffisopa fáum við niðri á deild áður en starf- inu er haldið áfram. Fyrsti sjúklingur Maríu eft- ir hádegið er dæmigert sýnis- horn hins harðgera íslenzka bónda, sem ekkert fær bugað, hvorki harðneskja landsins né lömun eftir bifreiðarslys. Páll Pálsson er frá Eskifirði, stundaði þar búskap ásamt systur sinni en varð fyrir því óláni fyrir tæpum tveimur ár- um að fá aðsvif við stýrið á bifreið sinni og aka út af veg- inum með þeim afleiðingum meðal annars, að hann lamað- ist. Hann hefur verið í stöð- ugri þjálfun mánuðum saman og fer svo vel fram, að til hef- ur staðið að gera af honum kvikmynd til að nota til kennslu og sýna hverjum ár angri má ná með þjálfun og þrautseigju. Útbúnaðurinn sem Páll er þjálfaður i, er margs konar. Fyrst er hann reyrður niður á bretti, sem síðan er reist við og þar stendur hann langa stund Framh. á bls. 63 Hér er myndarlegt þríhjól notað til þjálfunar. . . .

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.