Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Side 30

Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Side 30
NýJega er komið út yíirlits- rit um íslenzkar barna- og ungl- ingabækur á árunum 1900 >— 1971 títgefandi er Rithöfunda samband Islands, en Eiríkur Signrðsson, skólastjóri á Akureyri, tók saman. I»etta er aðeins stutt kynn- ingarrit, en segir þó sína sögu. í>ar kemur í Ijós, að þeir, sem fengizt hafa við að skrifa fyr- ir börn og unglinga hér á landi á þessu tímabili, eru 160 tals- ins, konur og karlar, en þar af 86, sem ritað hafa fleiri en eina bók. Alls munu þær bæk ur, sem taldar eru í ritinu, vera 568 auk annars eifnis úr f jölmiðlum, og má þvi segja, að vel sé að verið. Hitt er svo annað mál, hvaða sess bama- bókmenntir skipa í vitund al- mennings hér á landi. Sá, sem einna afkastamestur er af íslenzkum barnabókahöf- undum, er Ármann Kr. Einars- son. Alls hafa komið út eftir hann 8 bækur, og auk þess hefur hann samið 4 leikrit fyr- ir börn. Ármann er mjög vin- sæll höfundur og sögur eftir hann hafa verið þýddar á norsku, dönsku, þýzku, sænsku og færeysku. Er það fremur sjaldgæft, að íslenzkir barnabókahöfundar afli sér vinsælda á erlendum vett- vangi, enda ekki mikið af því gert að kynna íslenzkar barna bókmenntir erlendis. Fyrir skömmu knúðum við dyra hjá þeim hjónum, Ármanni Kr. Einarssyni og konu hans, Guðrúnu Runólfs- dóttur, en þau hafa búið sér vistlegt heimili að Braut- arlandi 12 i skjólgóðum Foss- voginum. Elzta dóttir þeirra hjóna, Ásdís Hrefna, er búsett i Flor- ida í Bandaríkjunum. Sú í mið ið, Hrafnhildur Elka, vinnur hjá Samvinnutryggingum, en starfar sem flugfreyja á sumr- in. Hún var stödd í heimsókn hjá systur sinni, en heima hitt um við ásamt hjónunum yngstu dótturina, Kristínu Guð- rúnu, sem er að ljúka við nám í Kennaraskólanum og son hennar, Ármann Kr. yngri, tæp lega eins og hálfs árs, kotrosk inn augastein á heimilinu. Ármann Kr. Einarsson er fæddur og uppalinn að Neðradal í Biskupstungum og var einn af 8 systkinum, sem upp komust. Hann fór snemma að leggja fyrir sig ritstörf og við spurðum, hvað hefði helzt orðið honum hvatning til þess. „Ég veit það eiginlega ekki,“ segir Ármann, „þó býst ég við að mikil náttúrufegurð í heima sveit minni hafi haft áhrif á tjáningarþörfina. Það hlýtur að segja til sín að eiga Gullfoss og Geysi að nágrönnum og reyndar styðst ég oft við um- hverfið á þessum slóðum í bók um minum enn. Og ég hafði fljótt mikla ánægju af að lesa, þótt frekar væri lítið um bóka kost á heimilinu. Ég man, að ég hreifst mjög af sögunum í Bernskunni, fannst þær stór- kostlegar og fór að reyna að setja eitthvað saman sjálfur. Við systkinin gáfum út blað að gamni okkar. Gosi hét það og var handskrifað og ætlað okk- ur. Ég átti víst að heita rit- stjóri, en eintökin eru nú öll glötuð. Fyrsta sagan, sem birt- ist eftir mig á prenti var jólasaga í Ungu íslandi og þá var ég innan við fermingu. Fyrsta bók mlin, Smásögur fyr- ir fullorðna, kom út, þegar ég var 19 ára, og satt bezt að segja, þori ég ekki að fletta henni núna. Margt býr í fjöll- unum er fyrsta bókin, sem ég skrifaði fyrir börn. Hún kom út árið 1937, þegar ég var í Kennaraskólanum. Síðan rak hver aðra. Eftir 1940 hef ég samið 3 skáldsögur fyrir full- orðna og 24 fyrir börn. Nú er að koma út heildarútgáfa af öllum barnabókunum og komið að 7. bindi.“ „Þú hefur jafnframt rithöf- uindarstanfinu stundað kennslu við barna- og 'unglingaskóla. Hvernig fer það saman?“ „Mér finnst það fara vel sam an. Ég starfa við al- menna bekkjarkennslu auk dönsku við Hlíðarskóla fyrri hluta dagsins. Ég hef ánægju af að kenna og kæri mig ekki um að hætta, enda held ég, að það sé barnabókahöfundi stuðningur að hafa persónulegt samband við ungu kyn- slöðina." „Er erfiðara að stunda kennslu í dag en áður var?“ „Nei, það held ég ekki. Að vísu hafa miklar breytingar orðið og aðrar kröfur komið til. Börn fylgjast meira með almennum málum nú en áður. Það gerir útvarp og sjónvarp og börn í elztu bekkjum barna skóla og unglingar lesa mest allra. Þau þyrstir blátt áfram í lesefni. Þau taka meiri þátt í því, sem er að gerast í kring um þau nú og taka afstöðu til allra hluta. Mér dettur í hug samtal, sem ég heyrði milli tveggja ungra drengja í sumar. Annar spyr hinn: „Hvort heldur þú með Spassky eða Fischer?" „Fi'sch- sr,“ svarar hinn. „Af hverju?“ „Af þvi að allar kellingar halda með Spassky.“ Bf til viil ekki grundvölluð afstaða en afstaða þó. Drengir lesa líka mikið um tæknifræðileg efni, sem ekki þekktist áður og má segja, að smekkurinn hafi breytzt að því leyti. Nú er mikið talað um val- frelsi í æðri skólum og það hefur að sjálfsögðu áhrif á unglingana. Reyndar finnst mér, að vel mætti auka vál- ifnelsi í uniglingaskólúnx. Hins vegar er ég mótfallinn því, sem gert er ráð fyrir í nýja grunnskólafrumvarpinu, að lengja skuli skólaskyldualdur- inn. Sem betur fer er svo kom- ið hjá okkur, að þeir sem hafa vilja til, geta haldið áfram námi eftir skólaskyldu. En þeir, sem eru tilneyddir að sitja lengur á skólabekk en hæfileikar þeirra eða áhugi segir til um, spilla frá sér. Ég vil gjarnan koma því að Fjölskyldan ásamt málverkinu af Neðradal í Biskupstungum, þar sem Ármann Kr. Einarsson er fæddur og alinn upp.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.