Lesbók Morgunblaðsins - 29.12.1972, Side 31
hér, að ég tel það afar nauð-
synlegan þátt við kennslu í
barna og unglingaskólum, að
komið verði sem fyrst upp
vönduðum skólabókasöfnum.
Skólayfirvöld hafa sýnt allt of
mikið tómlæti varðandi lesefni
fyrir æskulýð, svo sem barna-
bókaútgáfu. Bókaútgefendur
hafa hins vegar gert sér æ bet
ur grein fyrir þeirri ábyrgð,
sem á þeim hvílir og vanda út-
gáfu barnabóka meira en áð-
ur var gert. En yfirvöld eiga
vissulega að sinna þessum mál
um. Það er mikill ábyrgðar
hlutur, hvaða lestrarefni börn
um er gefinn kostur á.
Ég hef orðið var við það í
starfi mínu, hversu mjög börn
draga dám af sögupersónum og
taka þær oft sér til fýrirmyhd-
ar. Mér dettur i hug pörupilt-
ur, sem ég kenndi eitt sinn í
skólanum, 11—12 ára. Hann
hafði haft óvenjumikla
óknytti í frammi, svo ég sagði
við hann: „Jæja, nú fer ég með
þig til skölastjórans." Hann
varð hvumsa við, þagði góða
stund, en sagði svo: „Já, gerðu
það bara. Ég veit hvað ég
'geri.“ „Hvað?“ „Ég ætla að
ganga að honum og stappa á
tána á honum. Fast. Það finnst
mér sniðugt Ég las það í bók“.“
„Hvað um siðfræðikennslu i
fikólum?"
„Hún er ekki til á námsskrá
og kristinfræðikennslan held
ég að nái ekki tilgangi sinum,
hvað þetta snertir. Hún ætti að
byggjast meira á siðfræði. Mér
finnst líka æskilegt að kenna
t.d. unglingum á gelgjuskeiði
undirstöðuatriði í sálarfræði.
Reyndar gera margir kennarar
það, enda þótt það sé ekki fast
ur liður í námsefninu. Það er
mjög nauðsynlegt, að þeir sem
reynslu ’hafa, seigi Ifrá ein-
hverju, sem unglingar geta
dregið lærdóm af. Sjálfur nota
ég oft ævintýri eða dæmisög-
ur og vona að þær komist að
einhverjn leyti til skila.“
„Hvernig hagar þú ritstörf-
um þínum?“
„Ég nota aðallega til þeirra
síðari hluta dags á veturna,
skrifa þá oftast eitthvað
á hverjum degi, en er ónýtari
á sumrin. Ég handskrifa allt,
tvi- og þrískrifa, en kioinan míin
er mín önnur hönd og vélritar
fyrir mig, því eins og máltæk-
ið segir: betur sjá augu en
auga. Og ég verð kritískari
með árunum. LJíklega dregur
það úr afköstunum."
„Á að vera boðskapur
í barnabókum?"
„Ekki beinn boðskapur en
óbeinn. Fyrst og fremst álít ég
að barnabækur eigi að vera já-
kvæðar, líflegar og skemmtileg
ar. Þá er tilganginum náð. Og
auðvitað þarf ekki að taka það
fram, að þær þurfa að vera
á góðu og eðlilegu máli. Sem
betur fer eru börn gagnrýn-
in, og þau eru vandlátari en
margur hyggur.“
„Hvers vegna velur þú að
skrifa fyrir börn?‘
„Það er einfaldlega vegna
þess að börn eru betri og
skemmtilegri lesendur en full-
orðið fólk og umfram allt þakk
látari. Ég hef oft fengið kveðj-
ur og bréf frá lesendum mín-
um bæði hér heima og erlend-
is. Ég man t.d. eftir bréfi frá
norskri fjölskyldu, hjónum og
tveim börnum þeirra. Þau segj-
ast sjá greinilega fyrir sér í
huganum fjölbreytileik og feg-
urð íslenzkrar náttúru eftir
lestur bóka minna og nú eigi
þau enga ósk heitari en ferð-
ast til Islands Það muni vera
eina óbrigðula lækningin við
„Isl'andsife'bier“.“
„Kom ný bók út í haust?“
„1 haust kom út 6. bindi í
endurútgáfu bóka minna,
„Fluigferðin til Eniglands“. Út-
gáfuiflorlag mitt BókatPorlag
Odds Björnssonar á Ak-
ureyri, gefur ritsafnið út i
vönduðum búningi. Ég er þakk
látur forlaginu fyrir, að það
hefur fulian skilning á, að
ekki þurfi síður að vanda til
útgáfu barnabóka en bóka, sem
ætlaðar eru fullorðnum.
ÞU köl¥l Ut fynr nokkru á
vegum Almenna bókafélagsins
frumútgáfa á myndabókinni
„Sólfaxi". Þetta er stutt saga
um systkini, sem eiga heima í
sveit og dýrin á bænum þeirra.
Aðallega kemur þar við sögu
folald eða trippi, sem villist að
heiman og lendir í hinum ótrú-
legustu raunum og ævintýrum.
Annars byggist bókin að
miklu leyti á myndunum, sem
eru eftir einn af þekktustu
yngri listmálurum okkar, Ein-
ar Hákonarson. Myndirnar eru
mjög fallegar og prentaðar í
fjórum litum. Öll er útgáfan
hin glæsilegasta og forlaginu
til mikils sóma.“
„Kemur þessi nýja
myndabók kannski út erlend-
is?“
„Það vona ég, þótt ekkert sé
ennþá ákveðið um þýðingar.
Bókin er offsetprentuð og
þess vegna á að vera auðvelt
að setja inn erlendan texta við
myndirnar.
Á síðustu árum hafa íslenzk-
ir útgefendur gefið út talsvert
af erlendum myndabókum og
er ekki nema gott eitt um það
að segja, ef texti og myndir
eru góðar og við barna hæfi.
Því ættum við ekki að geta
verið samkeppnisfærir á þessu
sviði?“
„Nokkuð nýtt á döfinni?
„Ég er nýbyrjaður á bók,
sem kemur vonandi út á næsta
ári. Og í deiglunni hjá mér er
leikrit samið fyrir leikhús. Það
fjallar um vandamálin í dag,
um vanrækslu foreldra á upp-
eldi barna og er ætlað stálp-
uðum börnum og unglingum.
Já, og svo auðvitað foreldrun-
'Um,“ bætir Ármann við brós-
andi.
„Verðurðu var við slíkt í
starfi þínu sem kenmari?"
„Já, því miður, þess eru
dæmi að börn geta ekki stund-
að nám sem skyldi vegna van-
rækslu. Það sér á útbúnaði
þeirra, þau koma bókalaus í
iskólann og illa undirbúin, eru
látin sjá um sig sjálf. En það
er til of mikils ætlazt að börn
á barnaskólaaldri stjórni lífi
sínu. Okkur hinum, sem telj-
umst fullorðin, gengur það
nógu illa. Kannskii er hægt að
skýra þetta með einni setn
ingu. Fólk er svo ákaft í lífs-
þægindakapphlaupinu, að það
má ekki vera að því að sinna
’börnunujn,"
„Er vanræksla foreldra al-
gsnig?"
„Því er erfitt að svara. En
þar sem ég þekki til láta lang-
flestir foreldrar sér mjög annt
um velferð barna sinna. Þeir
fylgjast með framförum þeirra
í námi og veita þeim alla þá
aðstoð, sem þau megna.“
„Viltu segja nokkuð af þingi
norrænna barna- og unglimga-
bókahöfunda, sem haldið var
hér í vor?“
„Það var tvímælalaust mikil
lyftistöng fyrir alla, sem eiga
hlut að máli og hvatning til að
vanda vel til verka. Þá varð
það til nýmæla, að Fræðsluráð
Reykjavíkur ákvað að veita
verðlaun á þessu árá fyr-
ir barna- og unglinigabók og er
það i fyrsta sinn, sem það er
gert hériendis.
Á þinginu var mikið rætt um
gagnrýni í blöðum á efni, sem
samið er fyrir börn og ungl-
sé samvizkusamlega af hendi
leyst. Ég persónulega er t.d.
helduir á móti „'Stjörnuigjöifum"
eins og þeirri, sem Úur geng-
ust fyrir í fyrra, þótt áhuginn
sé virðingarverðui' Ég álít
bara að ekki sé rétt að af-
greiða rithöfunda á þenn-
an hátt. Þá er betra að fá heið-
arlega gagnrýni. Ættum við að
hafa stjörnur til viðmið-
unar, þá dugar ekki minna en
stjörnur himinsins."
Guðrún Runólfsdóttir, eigin-
kona Ármanns er fædd í
Reykjavík en ættuð úr Borgar
firði. Hún starfaði sem nudd-
kona á læknastofu áður en þau
giftu sig, en hefur síðan ekki
unnið utan heimilisins.
„Jú, einu sinni,“ segir hún,
„tók ég að mér að hlaupa í
skarðið í veikindaforföllum á
Jæ'kninga'tof.u. Þá var elzta dótt
ir okkar þriggja ára. Við átt-
um heima á Eiríksgötu þá og
einhvern veginn varð hún vör
við að ég fór að heiman. Sú
litla labbaði sig af stað í sömu
átt á eftir mér og niður í bæ.
Hún fannst ekki fyrr en eftir
langa leit að lögreglan kom
með hana heim. Þá hugsaði ég
með mér: Nei, þetta miá ég ekki
gera.“
Við tygjum okkur til brott-
farar og þökkum fyrir spjall-
ið, þykjumst finna, að það já-
kvœða, sem leitazt er við að
draga fram í bókunum eigi sér
góðan hljómgrunn í heimilis-
andanum. Ármann Kr. yngri
hefur verið á vappi inn og út
úr stofunni, segir lítið en hugs
ar kannski þeim mun meira.
Nú sinnir hann engum kveðj-
um, situr í brúnum pappakassa
á eldhúsgólfinu og snýr til
veggjar. Við sjáum bara
á hnakkasvipnum, að þetta er
ekki pappakassi, heldur eitt-
hvert glæst farartæki og Ár-
mann Kr. yngri er á hraðri
leið inn I sitt eigið ævintýri.
H.V.
Síðustu
æviár
Einars Bene-
diktssonar
Framh. af bls. 36
sat einn sér úti í horni og sötr-
aði kaffi. Kvæði hans hafði
ekki verið flutt og var aldrei
flutt. Kristjáni ofbauð þessi
framkoma við skáldið, eins og
reyndar fleiri vinum þess, sem
minnast þessa enn með hryll-
ingi, svo nærri gekk það þeim
sumum, að sjá skáld sitt svo
hart leikið og fá ekki að gert.
Kristján leitaði uppi Benedikt
Sveimsson og sagc1 honu'm að
skáldið væri á Þingvöllum, en
líkast til hafa ráðamenn reikn-
að með að Einar kæmi ekki,
fyrst honum var ekki boðið.
Benedikt sem var mikill vinur
Einars, beitti sér þá fyrir því,
að einhverra úrræða væri leit-
að til að draga eitthvað úr
þeirri vansæmd, sem skáldinu
var sýnd, og varð það að ráði,
að Kristján minntist Einars sér
staklega daginn eftir með
ávarpi frá Lögbergi, sem hann
og gerði. Þá var Einar farinn
af Völlunum, hann fór um
kvöldið hins fyrra dags, einn,
að nokkur hlutaðist til um ferð
ir hans.
Flest getum við, þó minni sé-
um i sniðum en Einar, látið
okkur renna grun í hugrenn-
ingar hans á heimleiðinni til
Reykjavíkur, — enda hefndi
skáldið sín grimmilega og orti
öklaeld, þar sem hann risti
ráðamönnum þjóðarinnar níð.
Enginn maður hafði séð Einar
bregða svip þennan dag og
hann hélt reisn sinni í fasi og
allri framkomu. Einar
bar ekki sorg sína á torg, jafn-
vel ekki við vín, þó að margt
væri honum andstætt þessi ár-
in og hann gerðist gamlaður.
Ég hef aðeins eina sögn um
það, að hann hafi sýnt merki
klökkva á þessum árum, þegar
heimili hans hafði leystst upp,
konan yfirgefið hann og hon-
um var fjárvant, þó að hann
ætti enn nokkrar eignir og ald
urinn færðist yfir hann. Hann
sat að drykkju með nokkrum
stúdentum og þeir sungu eða
sögðu fram kvæðið um
rjúpuna eftir Jónas Hallgríms-
son. Á eftir sat Einar keikur
í sætinu að varada- og mikilúð-
legur og tautaði fyrir munni
sér í sífellu: — Á sér ekkert
hreysi, útibarin rjúpa — en
tárin streymdu niður kinnarn-
ar. ■—
Dagur með
sjúkra-
þjálfara
Framh. af bls. 59
til að venja hann við upprétta
stöðu. Jafnframt gerir hann æf
ingar til styrktar handleggjun-
um með þar til gerðri trissu.
Þá er hann settur í göngubrú
fyrir framan spegil og María
lætur hann gera ýmsar æfing-
ar til að auka styrkleika og
jafnvægisskyn.
— Þar sem Páli getur
ekki stuðzt við hendurn-
ar, er mikið átak fyrir hann að
gera þessar æfingar, sem miða
að því, að hann fái stjórn á
hnjánum. Hann getur staðið
sjálfur en vegna jafnvægisleys
isins verður að styðja við hann.
Ennfremur er tilfinningu fyrir
stöðu fótanna ábótavant.
Úr göngubrúnni er Páll færð
ur yfir á bekk, þar sem hann
gerir margs konar æfingar.
— Mjaðmir hans voru til dæm-
is alveg lamaðar, segir María,
en nú getur hann lyft þeim
þó svo að ég ýti á móti með
öllum mínum þunga.
Ínga Og milíilvíogi i>«ss, að-hún
— Æfingarnar, sem ég geri
núna eru samkvæmt svoköll-
uðu PNF kerfi, Það byggist á
æfingum, sem hafa hagnýt
markmið, til dæmis þessi hreyf
ing handleggjanna er sú, sem
við notum til að færa skeið frá
diskinum að munninum. Þetta
kerfi hefur verið kennt hér á
námskeiði, sem norskur sjúkra-
þjállfari halfði á vegium' félags
okkar, — ég lærði þetta í Dan-
mörku 1969.
Hún æfir handleggina og
fcitleggina, beyigja — rétta . . .
b.eygja . . . rétta . . . fram oig
aftur — og tíminn líður
— Sérðu ekki sjálfur um ökl
ana Páll minn, segir hún loks.
— Jú, jú, það get ég alveg,
svarar hann og brosir hressi-
lega. Þessi æfingastund er orð-
in býsna löng og er sýnilega
heilmikil áreynsla bæði fyrir
kennarann og sjúklinginn.
— Þú erfiðar meira við þetta,
Páll en margur maðurinn við
vinnu sína?
— Ætli það ekki, svarar
hann, — enda dett ég út af á
kvöldin.
En Páll er ekki aldeilis bú-
inn, næst er hann settur í stól,
þar sem hann hjólar til að
styrkja fæturna enn betur . . .
og þar kveðjum við hann og
snúum til næsta sj úklinigs . . .
Þannig heldur starfið áfram.
Hver sjúklingurinn tekur við
af öðrum, menn og konur, sem
hafa orðið fyrir slysum eða
eiga við annan krankleika að
striða.
Venjulega lýkur vinnudegi
sjúkraþjálfarans klukkan tæp-
lega fjögur síðdegis en eftir
það er alltaf einn á vakt heima
hjá sér. Hann kemur, þegar
síminn boðar hann og sinnir
þeim sjúklingum, sem þörf er á
utan venjulegs vinnutima. Helg
unum skipta þjálfaramir með
sér.
Á þriðjudögum hins vegar
hittast sjúkraþjálfararnir og
læknar endurhæfingardeildar-
innar, þeir Ásgeir B. Ellerts-
son og Haukur Þórðarson, yfir-
læknir. Við fáum 1-eyifi til að
sitja fund þeirra þennan
þriðjudag.
Einn sjúkraþjálfaranna Ella
Bjarnarson gerir grein fyrir
ástandi sjúklings, sem hún hef-
ur haft í þjálfun um nokkurra
vikna skeið. Síðan er rætt um
upplýsingar, sem fram koma í
sjúkraskýrslu, þá um batahorf-
ur og möguleika á að auka þær
með breyttri lyfjagjöf. Hver
leggur sitt til málanna og þeg-
ar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar, eru mál annarra sjúklinga
reifuð. Sýnilega er fyllsta sam-
vinna milli læknanna á deild-
inni og sjúkraþjálfaranna.
Helzta vandamál deildarinnar
verður bezt tekið saman í einni
setningu Hauks Þórðarsonar, yf
irlæknis. „Þér hafið vafalaust
heyrt í dag, að hér háir okk-
ur fyrst og fremst skortur á
starfsfólki. Við þurfum fleiri
sjúkraþjálfara og við þurfum
að geta kennt sjúkraþjálfun á
íslandi."
Við ljúkum úr kaffibollunum
og kveðjum. Starfsdegi Maríu
Ragnarsdóttur er lokið. Hún af
klæðist vinnubúningnum, vipp-
ar sér í fötin og kápuna og er
þotin út í hríðina til að sækja
börnin sin tvö og fara með þau
heim. Þar bíður annar vinnu-
dagur — og annar heimur.