Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Síða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Síða 19
fólks. Úr þeim garði berast viðvaranir, ill- spár, — ásamt með predikun til afturhvarfs. Náttúruverndarspámenn höfða til heil- brigðrar skynsemi okkar hinna. Þetta er eðlilegt: Sannleiksgildi þess, sem þeir hafa fram að færa, liggur að jafnaði í augum uppi. Gallinn er hins vegar sá, að jafnaðar- lega lúta menn ekki rökum heilbrigðrar skynsemi, né heldur kæra þeir sig um að horfa á það, sem í augum uppi liggur. Manneskjan er flóknara fyrirbæri en svo, að hún láti stjórnast af röklegum skilgrein- ingum eða raunvísindalegum ályktunum. Saga allra alda — og engrar svo mjög sem hinnar tuttugustu — 'sýnir, að mergjuð veig lifandi trúar fær ein brotizt inn í þann laun- kofa hugskots og tilfinninga,, sem veldur straumhvörfum í mannheimi, — til góðs eða ills. Um þessar mundir þarf mannkynið á róttæku afturhvarfi að halda. Afturhvarfi til lotningar fyrir lífinu. Afturhvarfi til holl- ustu við höfund lífsins, helgara þess og endurlausnara. Náttúruvernd mun hollast að boða í nafni skapara himins og jarðar. Vilji kirkjan leggja það úrslitalóð á vogar- skálarnar, sem hún ein hefur í hendi sér, kynnu kristnir menn að sjá þann kost vænst- an að víkja til hliðar mörgu smælki, sem sundrar þeim sín á milli og spillir samneyti þeirra við aðra menn. Fyrr nefndi ég frumsynd. Nú bregð ég á loft orðinu „frumtrú". Það skýrir sig að nokkru leyti sjálft. Að hluta til þarfnast það skýringa, sem ekki er rúm fyrir hér. Markmiðið er ljóst: Að leiða náttúrubarn- ið heim í átthaga sína, þar sem Gangleri finnur sjálfan sig og lífi jarðar er borgið, — um stund. Höfundur er prestur og þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Manninum er ætluð heilög tilvist í helguðum heimi. Náttúruna ber honum að umgangast með aðgát og virðingu, sem er í samhljóðan við lotninguna fyrir skapara náttúrunnar. Veröldin öll er sakramenti. Myndin er frá Mývatni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. DESEMBER 1989 19 EINAR MÁR GUÐMUNDSSON STUTT SAGA i Svo lengi hafði þokugráminn ríkt að loksins þegar létti til vorum við enn niðurlút. Gamlir menn með skeggstubba örkuðu um hreppi; víðs vegar gengu unglingar með staf. Sumir fengu ofbirtu í augun, blinduðust eða sáu furðulegar sýnir: Um stræti úr gegnsæum bláma óku roðaslegin ský, draumar sem hvergi. rættust gengu um götur. Þegar við fórum úr tötrunum komu sparifötin í Ijós. II Var andrúmsloftið sem seytlaði á milli bláhvítra fjallanna hitabylgja úr fjarlægri heimsálfu eða steig það úr djúpum hafsins og glitraði í fjársjóðum sem minntu á demanta? Á hafsbotni sátu dugmiklir kaup- menn og mokuðu upp saltnámum, auð þorp fylltust af fólki og nótt eina gekk vinnuskúr í svefni. Við vöknuðum þegar vörubíll hlað- inn rúsínum ók framhjá húsinu. III Kannski varþetta einsog á miðöld- um þegar ótal verslunarleiðir opnuðust við múslimi og meðal annars dagatalið kom til sögunnar. Þegar gulnuð blöðin hrundu úr gestabókinni skráðu nýir hópar nöfn sín. Regn klingdi á þökum. Grænir seðlar uxu. Við brottför flugvélarinnar leit hann um öxl en hlíðarnar voru farnar. IV Þegar þú speglaðist í búðarglugganum hélstu að þú værir genginn aftur einsog niðursetningarnir sem stóðu fyrir utan þinghúsið og veifuðu gjaldþrota skýjum. Útgerðin fór að mestu fram innan- dyra en kreppan kom aðeinsyfir okkur á kvöldin þegar fjöllin gleyptu kaupfélögin og bankarnir átu börnin. Svo margir voru speglarnir að ég hélt þú hefðir orðið eftir þegar þú fórst... á meðan myrkrið spriklaði í gluggunum qg bryggjurnar hrundu yfir þorpin. V Þegar steinarnir voru hættir að hafa sambönd blöskraði okkur sem bjuggum við alræði vindsins. En skýin voru harðlínumenn ogengin von um umbætur frá guði. Jafnvel sólin þáði mútur... og tunglið svo spillt að það lét vikuritin mynda sig nakið Þá snerum við okkur til regn- dropanna, en þeir höfðu ýmist sagt af sér eða voru fyrir löngu hættir að skipta sér af stjórnmálum. Höfundur er skáld í Reykjavík. Mynd: Steingrímur Eyfjörð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.