Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 37

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 37
grein. „Animation" er upprunnið úr grísku og þýðir að „gefa líf“. Orðið „lífgun" hefur verið notað hér en ekki finnst mér það vera góð þýðing, gaman væri að heyra frá íslensku- mönnum hugmyndir um íslenska þýðingu á orðinu „animation“. Þangað til nota ég orðið teiknimynd. Sú aðferð sem er algengust og fólk þekkir helst eru glæruteiknimyndir og mun ég fjalla um þá aðferð hér. Teiknimyndagerð er í eðli sínu tímafrek þolinmæðis- og nákvæmnis- vinna, sem gerir mikla listrænar kröfur til allra sem koma við sögu. Og þó margt megi gera í dýrum tölvum eins og „Paintbox" og ýmsum öði-um tækjum vill sú framleiðsla oft verða vélræn og stöðnuð, en auðvitað er út- koman alltaf í samræmi við listræna hæfi- leika og metnað stjórnandans og þeirra sem vinna með honum, hinsvegar hafa tölvurnar komið við sögu í teiknimyndagerð sem tæki til að spara vinnu á ýmsum stigum teikni- vinnu og myndatöku, en það má ekki gleyma því að tölvan er bara vél. Eins og áður sagði er teiknimyndagerð tímafrek vinna, samanber að 1 sek. á kvikmyndafilmu er 24 rammar og í teiknimynd eru venjulega notaðir 2 rammar fyrir hveija teikningu (sjálfur nota ég 3) en 2 rammar á teikningu þýðir að fyrir hveija sek. í myndinni þarf að teikna 12 teikningar, eða 720 á mínútu og um 3.600 fyrir 5 mínút- ur og þó oft megi fækka teikningum með ýmsum ráðum og nota sömu teikningar oftar er um gífurlegt magn af teikningum að ræða, jafnvel í einföldustu teiknimyndum. Stjórn- andi verksins vinnur í bytjun handrit og það fer eftir lengd myndarinnar og hversu marg- ir teiknarar koma við sögu hvað nákvæmt handritið þarf að vera. Þær myndir sem ég hef gert hingað til hafa verið stuttar og ég hef teiknað þær sjálf- ur eftir frekar einföldu hugmyndah'andriti sem hefur síðan tekið breytingum eftir þörfum jafnóðum og ég hef unnið teikningarnar. í handritinu er myndinni skipt í kafla (sen- ur), stjórnandinn ákveður lengd kaflanna og myndbyggingu, hreyfingu myndavélar og bakgrunna, einnig þarf að huga að hljóði því oft er hljóð tekið upp áður og teiknað eftir tónbandinu, þetta er sérstaklega gert þegar persónur myndarinnar tala sjálfar eða ef hreyfing á að vera í takt við tónlist, t.d. ef persónur myndarinnar dansa. Stjórnandinn skapar persónur myndarinnar og ákveður teiknistíl oft í samvinnu með aðal-teiknurum. Hann velur þá teiknara sem eiga að vinna verkið, en í lengri myndum er fjöldi teiknara kallaður til og vinnur þá hver ákveðna kafla eða sér um að teikna vissar persónur. Oft eru gerðar teiknimyndir með persónum sköpuðum af listamanni sem kemur ekkert nálægt teiknimyndagerðinni, t.d. myndir um Smáfólkið (Peanuts) eftir Charles M. Schulz og fyrir nokkru var sýnd í sjónvarpinu þýsk teiknimynd um hrekkjalómana Max og Mo- ritz, þá teiknuðu listamennirnir í stíl Wilhelms Busch sem skapaði þá félaga um miðja síðustu öld. í lengri myndum eru aðalteiknarar gjarnan kallaðir „lykilteiknarar" (keyanimators) og aðstoðarteiknarar „milliteiknarar" (inbet- weeners). Þetta þýðir að t.d. ef hreyfing frá A-B krefst 25 teikninga þá teiknar aðalteikn- arinn teikningu A og B og kannski teikningu í miðri hreyfingu, síðan tekur aðstoðarteikn- arinn við og teiknar þær 22 sem vantar. Öll teiknivinnan er unnin á teiknipappír eða „transparentpappír“ sem er gataður og festur á sérstaka pinna svo teikningarnar passi allt- af saman og hreyfingin verði eðlileg, teiknar- inn vinnur á ljósaborði og getur þannig séð breytingarnar sem verða á teikningunum en þannig gerist þetta, mynd B er örlítið öðruv- ísi en mynd A og þannig koll af kolli og þeg- ar teikningarnar eru festar á samskonar pinna undir kvikmyndatökuvélinni og myndaðar, virkar það eins og teikningarnar hreyfist, en í því er galdurinn fólginn. Um leið og teiknararnir teikna hreyfingarn- ar eru gerðar prufur á því hvort hreyfingin er eðlileg, þetta er kallað „line test“ og er ýmist þannig að teikningarnar eru kvikmyn- daðar og negatíva filman skoðuð, eða með NAC quick action recorder en það er tölva sem les teikningarnar með myndbandstökuvél og sýnir teiknaranum á skjá þar sem hann getur gengið úr skugga um hvort hreyfingin er eðlileg áður en lengra er haldið. Á meðan þessi vinna fer fram eru aðrir listamenn að teikna bakgrunna. Eins og nafnið bendir til er bakgrunnurinn lega haft svartan, eða hvað? Glærurnar eru síðan málaðar og er það oftast gert á bak- hliðina, þó er í sumum tilfellum málað á fram- hliðina. Stjórnandinn og teiknarinn ákveða litina og er reynt að velja liti sem skera sig frá bakgrunninum. Að öllu þessu loknu er farið yfir allar teikn- ingar og bakgrunna og athugað hvort nokk- urs staðar leynist gallar eða mistök og ef allt er í lagi er loks komið að myndatöku eftir margra vikna og í lengri myndum margra ára teiknivinnu oft fleiri hundruð listamanna. Myndataka, Klipping Og Hljóð Við kvikmyndatökuna er notaður svokall- aður tökustandur þar sem neðst er bretti með glerplötu yfir, brettið er hægt að hreyfa í allar áttir og er þessum hreyfingum stýrt með hjálp tölvu, fyrir ofan er síðan kvik- myndatökuvél og er hægt að færa hana upp og niður eftir því hvort um er að ræða nær- mynd eða fjærmynd. Myndatakan er mikið nákvæmnisverk, oft þarf að víxla glærum á alla vegu og vinna með margar glærur í einu eða fara afturábak og taka langa kafla í mörgum hlutum. í teiknimyndum skiptir hljóðið miklu máli og eru ýmsir „hljóðeffektar" óspart notaðir til undirstrika hreyfingar og atburðarás, þetta er hægt að sjá með því að skoða teiknimynd og sleppa hljóðinu. í fyrri myndinni sem ég gerði í Ungveija- landi, en hún heitir „Hinn eini sanni tónn“, nota ég hljóð og tónlist ekki aðeins til að undirstrika hreyfingarnar, heldur byggist hugmyndin á hljóðinu og það er því jafn nauð- synlegt og teikningarnar til að hugmyndin komist til skila. ÍSLENSKAR TEIKNIMYNDIR Það er ekki fyrr en um 1970 sem fyrstu íslensku teiknimyndirnar eru gerðar en það- eru auglýsingar í sjónvarpið sem þá er þriggja ára. Ég hef síðan þá unnið nokkuð við gerð auglýsingateiknimynda. 1975 hlaut ég starfslaun listamanna í 6 mánuði og hóf vinnu við teiknimynd um Þrymskviðu. Hálft ár dugði ekki og næstu 5 árin fór mestur hluti frítíma míns í þetta verk. 1979 fékk ég styrk úr Kvikmyndasjóði sem þá úthlutaði í fyrsta sinn,. Sá styrkur ásamt ómetanlegri hjálp vina og og kunningja varð til þess að Þrymskviða, 15 mín. löng og fyrsta íslenska teiknimyndin, var frumsýnd 1980, 52 árum eftir að Mikki Mús fæddist. Síðan hefur lítið gerst, Kvikmyndasjóður hefur að vísu styrkt íslenskar teiknimyndlr, þær hafa ekki verið margar og oft hefur mér fundist þeir styrkir frekar ómarkvissir og ekki beint hugsaðir til að efla þá litlu við- leitni sem á sér stað í teiknimyndagerð hér á landi, og stundum hafa þessir styrkir ekki skilað neinu. 1985 hittist hópur listamanna frá öllutn Norðurlöndunum sem fæst við teiknimynda- gerð í Stokkhólmi og stofnaði hópinn Norður- ljósin (Nordic Light). Þessi hópur hittist á hveiju ári og skoðar hvað gerst hefur í hveiju landi á þessu sviði. í ágúst sl. var komið saman í Dröbak skammt frá Osló og þar sýndi ég aðra mynd- ina sem ég gerði í Ungveijalandi og var það eina framlag okkar. Þessi tengsl við aðra sem starfa á þessu sviði bæði á Norðurlöndum og í Ungveija- landi hafa verið mér mikils virði því fáir fást við teiknimyndagerð hér á landi. Erfitt er að segja til um hvað gerist á næstunni í teiknimyndagerð á íslandi. Ekkert er gert af auglýsingum og lítill áhugi virðist vera á að nota þennan miðil til kennslu eða upplýsinga, sjónvarpið hefur ekki áhuga á íslenskum teiknimyndum, þar ríkir það við- horf að teiknimyndir séu fyrir börn og fyrir þau má engu til kosta og fyrst hægt er að kaupa erlent efni í stórum skömmtuin hver- vegna þá að láta búa til eða kaupa íslenskt? Ur nógu er að moða ef erlendir aðilar verða ekki fyrri til, við eigum bæði okkar íslend- inga sögur, þjóðsögur og annað efni, en í þennan efnivið eru útlendingar nú þegar farn- ir að kroppa. Og ef við þykjumst eiga meiri rétt á þessum sögum en aðrir er eins gott að sýna það í verki, og því fyrr því betra. Höfundur er grafískur hönnuður og kennari við MHÍ Nótt ein á himnum. Atriði úr teiknimynd eftir greinnrhöfund. Eitt atriði úr teiknimvndinni ..Hinn sá grunnur sem hreyfingin fer fram á og þess vegna eru hreyfingarnar að lokum færð- ar yfir á glærur til að grunnurinn sjáist. Fjöldi bakgrunna fer eftir lengd myndarinnar og hvað hún er margir kaflar. Þegar um er að ræða hreyfingu áfram eða afturábak er það bakgrunnurinn sem hreyf- ist; ef persóna hleypur frá vinstri til hægri, hreyfist bakgrunnurinn frá hægri til vinstri, og þá er oft nauðsynlegt að teikna langa bakgrunna. Einfaldasti bakgrunnur gæti ver- ið bein lína sem táknar sjóndeildarhring. Þegar teikningarnar eru gerðar gera teikn- ararnir tökuáætlun, þeir skrá á sérstakt blað á hvað marga ramma á að kvikmynda hveija teikningu, allar hreyfingar bakgrunns og kvikmyndatökuvélar, hvort blanda eigi saman mismunandi köflum eða klippa þá saman. Eftir þessari tökuáætlun fer síðan kvik- myndatökumaðurinn og veit þá alltaf hvar hann er staddur samkvæmt teljara á vélinni og tölum í tökuáætlun, en það er nauðsynlegt þegar myndataka getur tekið marga daga eða vikur. Stundum nota teiknararnir margar glærur hveija ofan annarri, t.d. gætu verið 3 persón- ur í kafla og ef ein færi síðan í burt en hinar væru eftir þarf að setja auða glæru í staðinn því glærurnar breyta litnum á bakgrunninum. Þegar teiknarinn hefur lokið við að teikna allar hreyfingar og prufur sýna að þær eru í lagi eru teikningarnar færðar yfir á glærur. Aðstoðarfólkið fær teikningarnar í hendur, þær eru festar á samskonar pinna og teiknar- inn notaði, glærur lagðar ofaná og teikningin dregin með tússi á glæruna og farið nákvæm- lega eftir fyrirmyndinni sem er undir. Þetta er oftast gert með svörtu en oft þurfa hlutar af hverri teikningu að vera i lit, t.d. þurfti að teikna hluta af öllum teikningun- um í seinni myndinni minni í gulu, en það var geislabaugur á engli sem ég gat ómögu- LESBÓK MORGUNBLA^SINS 19. DESfiMBER 1989 37

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.