Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 45
Menn verða
ósköp smáir
í saman-
burði við
slík tröll! Og
Ramses ann-
ar horfir
áfram yfir
fljótið helga,
með eigin-
konu sína,
Nefertitis
hina fögru
milli fóta
sér!
ABU SIMBEL
- eitt af sjö undrum veraldar
í Aswan blakta seglin eins og
hvítir fuglar úti á Níl.
Strákarnir eru eins og hluti af
skútunni og umhverfi Níiar.
ABU Simbel hofið var í heims-
fréttum fyrir nokkrum árum.
Við byggingu Nílarstíflu hækk-
aði yfirborð Nasser-vatns og
3000 ára hof sólguðsins var að
hverfa undir yfírborðið! I ör-
væntingu leituðu Egyptar til
Sameinuðu þjóðanna. En
hvernig átti að bjarga hofí,
meitluðu inni fjalli? Bestu sér-
fræðingar í heimi voru kvaddir
til. Og hofið var skorið í 36.000
hluta, flutt á öruggan stað og
púslað saman aftur! Allur heim-
urinn fylgdist með verkamönn-
unum, sem börðust við tíma-
leysi og hækkandi vatnsborð.
Og nútímatækni framkvæmdi
hið ómögulega - flutti fjall!
Heimsbyggðin eignaðist aftur
veraldarundrið Abu Simbel. Og
Aswan, vetrar-orlofsstaður
firæga fólksins, er alltaf að
verða vinsælli hjá hinum al-
menna ferðamanni.
Svarti leiðsögumaðurinn frá
Núbíu, söguprófessor að mennt,
gerist æ daufari, því nær sem
dregur Aswan. „Ég á svo erfitt
með að horfa á vatnið, sem gleypti
bernskuþorpið mitt,“ segir hann.
„Vatnið flæddi yfir 48 þorp.
Stjórnin byggði ný þorp fyrir ætt-
ingja mína. En þau eru svo svip-
laus og landslagið öðruvísi.
Steinninn minn og pálmalundur-
inn horfin að eilífu. Eg get aldrei
snúið heim aftur. Ég og mitt fólk
verðum alltaf rótlaus.“ Og mér
verður hugsað til hinna fáu
bænda, sem andvígir eru Laxárst-
íflu. Hvað væri hún á móti Nílarst-
íflu pg Nasser-vatni?
„Á svölunum, með glas í hendi,
í miðri kyrrðinni er næði til að
skipuleggja hið fullkomna morð,“
sagði Agata Christie í bók sinni
„Dauðinn á Níl“. Á gamla Cat-
aract-hótelinu kaus hún að dvelja
á veturna og skrifaði hér sínar
bestu bækur. Ég sit á klettasvöl-
unum og horfi niður á Níl. Hvít
segl svífa hljóðlaust yfir ána eins
og hvít fiðrildi. Myndrænir kletta-
stallar Filaeyju taka á sig
kynjablæ í fagurbleiku sólarlagi.
Eru leyndar höggmyndir í klettun-
um? Þarna vörpuðu þeir fegurstu
stúlkunni fyrir björg í árlegri fórn
til sólguðsins. Og fegurðardísin
áleit sig drottins útvöldu og var
hamingjusöm!
Undarlegt hvað Níl seiðir! I
skósiðum skikkjum standa karl-
arnir við skúturnar og bíða. En
ekki lengi. Við hoppum niður í
skútuna - misjafnlega liðug! Ýtt
er úr vör, segl slást til og hjóllið-
ugur strákur vindur sig upp siglu-
tréð, lyftir akkeri, hleypur að
stýri, ýtir frá klettasnös - alls
staðar nálægur, eins og hluti af
skútunni og þeirri undrafegurð
sem við okkur blasir. Aswan
hverfur á bak við Fílaeyju. Hvítt
musteri kemur í augsýn. Minnis-
varði Aga Khan! Á hverjum
morgni leggur ekkja hans rauða
rós á altarið. Ef rósir eru ekki
fáanlegar í Egyptalandi, er flogið
með þær í einkaþotu! Við göngum
um Blómaeyju - tijágarð með
sjaldgæfum hitabeltisgróðri. Að-
eins sölumenn á ferðamannaslóð-
um trufla. Síðar smýgur skútan
milli smáeyja. Gróður, hvítir fugl-
ar og flóðhestur að ausa yfir sig
vatni renna inn á sjónarsvið. 1
einni víkinni hefur fiskirhaður
byggt hús úr pappakössum. Og
krakkar, sem busla í Níl, búa í
aflóga bát á bakkanum.
í núbíska þorpinu eru húsin
skærblá og gul. Tindrandi svört
augu mæta vatnsbláum augum
hvítrar konu. Andlitin eru svo
dökk að sólarbirtan nægir vart til
að festa þau á filmu. Á fram-
hliðum margra húsa er málaður
svartur steinn, sem sýnir að húsr-
áðandi hefur farið í pílagrímsferð
til Mekka og séð„Kaaba“ steininn
helga. Athygli alheims beindist
að menningu Núbíumanna, þegar
hundrað þúsund manns misstu
heimaþorp sín og rótfestu. Verið
er að færa tungumál þeirra í letur
og núbísk þorp að verða eins vin-
sæl og indíánaþorp í Vesturheimi.
Eftirsóttustú minjagripir í Aswan
eru handiðnaður Núbíumanna.
Núbíuþorpunum var ekki bjarg-
að, en þjóðir heims lögðu 42 millj-
ónir Bandaríkjadala í að flytja
Abu Simbel á öruggan stað. Það
var Ramses annar, konungur
Egypta sem reisti hofið, til að
sýna Núbíu að vald hans væri
ekki af þessum heimi. Hvergi
gafst betri staður en við upptök
Helgiblær hvílir yfir úlfalda, hirði og bjarmanum í austri.
Þeir eru skrautlegir skóburst-
arinn og dyravörðurinn í gamla
Cataract-hótelinu, enda er það
bókað með ársfyrirvara um jól-
in.
Nílar fyrir slíkt trúarhof. í Aswan
mætast Norðrið og Suðrið í alda-
langri baráttu Egyptar vildu ná
gulli Núbíu, en Núbíubúar vildu
ná til Nílar. Mikið í húfi að hofið
yrði nógu áhrifamikið og tignar-
legt!
Hálftíma þotuflug er frá Aswan
til Abu Simbel. Fyrst yfir Nílarst-
íflu - hið geysistóra mannvirki,
sem tvöfaldaði raforku Egypta,
jók ræktun um 30% og bjargar
Egyptum frá hungursneyð um
ókomin ár. Steinsteypan ein hefði
nægt í 17 risapýramída! Stálið í
15 Eiffel-turna! Virkjunin varð
pólitískt deilumál milli stórveld-
anna. Það kom í hlut Rússa að
virkja Níl. Og minnisvarðinn -
Lótusblómið - minnir á góða sam-
vinnu Rússa og Egypta. Síðar
slitnaði upp úr vináttunni.
Stöðugt er flogið yfir Nasser-
vatni, stærsta vatnsforðabúri
heims. í Abu Simbel er 42 gráðu
hiti og mangosafi er svalandi í
skuggsælum pálmalundi á meðan
hofið blasir við fyrstu sýn. Tutt-
ugu metra háar styttur gnæfa
yfir mannlega smæð. Hver sem
hingað kemur, hlýtur að fyllast
lotningu á trúarhita Forn-Egypta.
Og enn er Abu Simbel trúarstað-
ur. Núbíumenn sem misstu heim-
ili sín, finna fróun í að gráta við
hofið. Mikil helgi hvílir yfir hofinu
og margir ferðamenn óska að
dvelja hér lengur. Ferðamanna-
bær er að byggjast upp í tengslum
við Abu Simbel, sem er tilbeðið
frá öllum heimshornum. Og tvisv-
ar á ári birtist sólarundrið, þegar
sólargeislar ná inn í helgidóm
hofsins og lýsa upp altarið eins
og ljósörvar af himni. Og enn
standa tröllauknar styttur í guð-
alíki og horfa yfir til fljótsins
helga. Hvað eru 42 milljónir
Bandaríkjadala fyrir svo stórbrot-
inn trúarstað!
Oddný Sv. Björgvins
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. DESEMBER 1989 45