Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Qupperneq 47

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Qupperneq 47
Strætisvagninn litskrúðugi sem ekur um Rarotonga. Rarotonga í Cook-eyjaklasanum, séð úr lofti. einkennist af litlum, skrautlegum einbýlishúsum. „Blúnduhús" kall- aði hún dóttir mín þau! Allir eiga báta og sigla. Strendur eru hver með sín sérkenni, ólíkan sand og kletta. Og úti við sjóinn blakta „fjaðragrösin“, sem frumbyggjar trúðu að geymdu sálir framlið- inna. Ég yfirgaf frænku mína og Auckland með söknuði. Á Fiji-eyjum eru aðeins 100 ár síðan íbúarnir voru mannætur. Við mæðgur erum vel í holdum og ég neita því ekki, að hrollur fór um okkur við rannsakandi augnaráð! Elddansinn dunar þar í hverri viku. Snemma á morgn- ana er byijað að kynda og um kvöldið er dansað undir trumbu- slætti - á hvítglóandi steinum! Á siglingu til „Fjársjóðaeyju" og „Brúðkaupseyju" björguðu arm- böndin mér. Anna, dóttir mín, trúði ekki sínum eigin augum, þegar ég sat eins og Stjáni blái í miklum sjó úti fyrir Fiji-eyjum - og kastaði ekki upp! Ég verð að trúa, þegar ferðaveiki læknast á elliárum. Svo mjög gaf á, að við töldum Kyrrahaf ekki réttnefni. Hafið ætti að heita „Ókyrrahaf". Þjóðsagan á Rarotonga um komu fyrstu hvítu mannanna hafði mikil áhrif á mig. Sagt er að barnslega einlægt fólkið hafi fagnað þeim af mikilli hrifningu. „Hvernig getum við orðið svona hvít og falleg?" spurði það. „Það er enginn vandi,“ var svarið. Þórunn innan um fjaðragrösin, sem „geyma sálir framliðinna" í Auckland. „Kyndið eld í skúta, látið fólkið ganga inn, byrgið fyrir munnann og hleypið engum út, hvað sem heyrist og hvað sem á gengur, fyrr en við erum farnir“! Allir vildu verða hvítir og höfðingjarnir gengu fyrstir í eldinn. Viðbrögð fólksins voru eins og hjá sak- lausu, auðtrúa barni, sem á erfitt með að gleyma, ef það er svikið. Sú hugsun læddist að, hvort sag- an sé uppruni skrítlunnar um trú- boðana í pottinum! Á Rarotonga er fallegasta fólk- ið á Suðurhafseyjum og bestu dansararnir. Fegurð Rarotonga gagntók okkur strax fyrsta morg- uninn. Hvítur sandur. Blátær sjór innan hvítra kóralrifa. Litrík blóm í villtum breiðum minntu á ótelj- andi Hawai-kransa. Ólýsanleg náttúrufegurð, veðurbiíða og brosandi mannlíf töfraði okkur. Og síðan hefur Rarotonga ekki sleppt tökum af okkur. Ég trúi því núna að maður skilji eftir hluta af sjálfum sér á ósnortinni Suður- hafseyju. Við vorum eina viku á Raro- tonga. Tíminn leið alltof fljótt, þó að við fengjum einn aukadag með því að fara yfir hádegisbauginn. Við syntum í blátæru lóni innan um hvít kóralrif. Flökkuðum með ævintýralegum strætisvagni eða leigðum skellinöðrur. Dönsuðum með eyjaskeggjum og lifðum á gómsætum ávöxtum. Og ég gleymdi öllu - tíma og rúmi - hef sjaldan hvílst jafnvel. Þessi undurfagra litla eyja er sögð vera eins og Tahiti á dögum Gauguins, áður en hvítum mönnum tókst að spilla henni. Eftir Rarotonga fannst mér mannlífið á Tahiti fremur hart og kalt. Að vera þátttakandi í guðs- þjónustu á Rarotonga gleymist aldrei. Ótrúlegustu hljóðfæri óma og allir kirkjugestir syngja af til- finningahita. Veggirnir eru að springa af tónlist. Það er ekki hægt annað en hrífast með. Hefði aldrei getað ímyndað mér að ég færi að kiappa saman höndum og dansa - í algleymi! í góðu sam- komulagi tilbiðja allir sama guð, en trúboðar frá flestum kirkju- deildum hafa komið til eyjanna. Eftir guðsþjónustu faðmast allir og óska hver öðrum alls hins besta. Prestarnir á Rarotonga bera ábyrgð á unglingunum. Laun þeirra fara eftir hegðun ungling- anna! En ekki held ég að þeir hafi misst hempuna, þar sem lítið er um félagsleg vandamál, þjófn- aði eða glæpi. Eitthvað er þó drukkið. Allir viðkomustaðir féllu _ í skuggann fyrir Rarotonga. Ég vona að mannlíf þar megi haldast óspillt, þó ferðamönnum fjölgi. Ábyrgð ferðamanna er mikil að spilla ekki fögru mannlífi. Við erum ekki einu Islendingarnir sem hafa heimsótt Rarotonga. Eftir heimkomuna fréttum við af ís- lendingi, sem leitaði til töfralækna á eyjunni. En töframáttur náði ekki að lækna. mann, sem var heltekinn af krabbameini. Og bein óþekkta íslendingsins hvíla í mold Rarotonga. Mér finnst furðulegt að hafa heimþrá til fjarlægrar eyju, sem ég get ekkl ímyndað mér að ég eigi eftir að sjá aftur. Oddný Sv. Björgvins óvart er ég frétti að hann væri einn af stjórnendum safnaðarins og einnig kom mér á óvart að hann væri búinn að ráða mig sem „heiðursmeðlim“ í hljómsveit safn- aðarins og fyrsta messan væri eft- ir þijá daga. Þetta var skemmtUeg nýbreytni fyrir heiðingjann frá Islandi og ég æfði stíft gítarspil og sálmasöng í þrjá daga og mætti svo til messu. Kirkjan var nær fullsetin og eini hvíti maðurinn fyrir utan mig reyndist vera hinn glaðlyndi írski prestur, séra O’Connor. Ekki hef ég verið viðstaddur margar messur og engri líkri þessu. Allt andrúmsloft í kirkjunni var sérstaklega fijálst og óþving- að. I miðri messu fór séra O’Conn- or að segja brandara og söfnuður- inn veltist um af hlátri. Hann flutti mjög beinskeytta og vel útfærða ræðu sem fjallaði meðal annars um fóstureyðingar og ábyrgð mannsins gagnvart öllu lífi. Tón- listin reyndjst öll mjög lífleg og taktföst. Þegar líða tók á messu bauð hann „ísmanninn” velkomin og söfnuðurinn stóð upp og klapp- aði í viðurkenningarskyni. Bróðir Clark og Alí Á könnunarferð minni næsta dag heyri ég allt í einu kallað rámri karlmannsrödd „Iceman”. Ég sný mér við og upp á svölum hrörlegs húss sé ég dálítið skuggalegan mann sem bendir mér að koma og tala við sig. Er hann sá að ég hik- aði eitthvað baetir hann við: „Ég þekki Wilfred vin þinn og ég sá þig í kirkjunni í gær.“ Hann var ekki beint snyrtilega til fara og augun glóðu af augljósum ástæð- um. Það kemur í Ijós að þetta er bareigandinn . sjálfur, „Brother Clark”, og oft. á tíðum eini við- skiptavinurinn líka. Við nánari kynni reynist þessi rámi romm- þambari hinn skemmtilegasti ná- ungi og með enn ómengaðra hjartalag en Puncheon-romm. Ég þigg einn bjór og þá ber að einn besta viðskiptavin hans „muslimann" Ali. Hann segist vera hönnuður og sé að byggja mosku til dýrðar guði sínum Allah. Þegar hann er byijaður á þriðja romm- glasinu spyr ég hann varfærnis- lega hvort „muslimum” sé ekki meinað að drekka áfengi. Hann lítur á mig hrærðum augum og játar fyrir mér að öll mótstaða gegn Bakkusi sé því miður von- laus. Hann virðist niðurbrotinn og þjáður af synd og skömm. Allt í einu lemur hann kröftuglega í borðið og hrópar: „Allah minn, ég veit að ég er breyskur maður en það fær mig enginn til þess að éta svínakjöt." Eg leit í romrnvot augu hans og sá að honum leið strax betur. Fyrsta lieimsókn mín í klaustur og klausturskóla Vegna framandi fæðis tókst mér að ná í heiftarlega „ferðamanna- veiki" og fannst mér um tíma að ég væri að geispa golunni. Eftir ömurlegan dag fann ég mér til tnikillar undrunar að mér leið skyndilega betur á leið minni til læknis. Eg hafði ætlað að heim- sækja mágkonu Wilfreds vinar míns sem er nunna og kennari í klausturskóla. Systir Martha hafði frétt af komu minni og vildi endi- lega bera augum þennan föla „ísrnann”. Það voru blendnar til- finningar sem bærðust í bijósti mér þegar ég gekk í fyrsta skipti inn um dyr á klaustri með Wilfred og Gloríu og þremur yndislegum börnum þeirra, Tudor, Arianne og Ava-Marie. Ég hafði alltaf ímyndað mér að allar nunnur væru bæði bældar og hundleiðinlegar, en ég komst brátt um raun um allt annað. Systir Martha og hinar nunnurnar komu og heilsuðu mér svo glaðlega og innilega að ég gat ekki annað en undrast og skammast mín. Þær vildu vita hvernig mér liði og sögðu mér að þær hefðu beðið fyrir mér. Ég þakkaði fyrir mig og sþurði þær hvenær það hefði verið og fékk þá að vita að það hefði verið á sama tíma og ég var á leið til læknis. Stundum getur maður ekki annað en hneigt höfuðið og stein- haldið kjafti. Stúlkurnar virtust vera á grunnskólaaldri og höfðu sett saman söngdagskrá mér til heiðurs. Þetta var fjörugasti söngur og hljóðfærasláttur og sungu bæði stúlkurnar og nunnurnar af mikilli innlifun og lífsgleði. Allt í einu dettur einni nunnunni í hug hvort „ísmaðurinn" geti spilað eitthvað og sungð fyrir þær. Nú voru góð ráð dýr því að ég kunni lítið af trúarlegri tónlist. Þegar þær sjá spurningarrnerki í svip mínum seg- ir ein þeirra: „Spilaðu bara eitt- hvað sem þér finnst gaman að“ og þegar ég byija að kyija gamla Það er ekki amalegt að geta sökkt sér ofan í jólabækurnar á ströndinni! Elvis-lagið Don’t be Cruel byija stúlkurnar að skríkja og stappa niður fótunum og syngja með full- um hálsi. Að skilnaði eru mér færð- ar góðar gjafir og brátt er yndis- legt kvöld á enda. Aðfangadagskvöld Eftir kvöldmat tek ég gítar í hönd og fer lauslega yf ir söngdag- skrá kvöldsins. Kirkjan er fullsetin og ég tek mér stöðu hjá fétögum mínum í hljómsveitinni. Ræðan hjá O’Connor er skýr og beinskeytt að vanda og söngurinn miklu líflegri og taktfastari en ég hef áður heyrt á aðfangadagskvöldi. Wilfred er kominn í ræðustól og flytur hugvekju. Skyndilega beinir hann máli sínu til mín og biður mig að koma upp að altari og segja eitthvað við söfnuðinn á ísleiisku. Hikandi geng ég upp að altari og lít yfir mannskapinn og læt það fyrsta flakka sem gömlum rokkara dettur í hug: „Eru ekki allir í stuði“ og fólkið klappar. Ég óska síðan öllum gleðilegra jóla á móð- urmálinu. Eftir tveggja tíma messu, sem hvergi var dauður punktur í, ganga allir út og óska hver öðrum gleði- legra jóla. Allt í einu greini ég kunnuglega rödd: „Ieeman my fri- end“ og ég lít í glaðleg og romm- vöt augu um leið og ég er faðmað- ur af miklum innileik. Ferðalok Eftir þriggja vikna gestrisni Wilfreds vinar míns og fjölskyldu hans rennur upp síðasti dagur heimsóknar minnar. Ut um glugga Boeing-þotunnar fjarlægist litla eyjan meir og meir. Á þvi augna- bliki skynjar „ísmaðurinn” að þó að hann hverfi á brott þó hefur hann skilið eftir hluta af sjálfum sér. Hann mun hverfa aftur til eyj- unnar fögru, því hann verður ekki heill maður aftur fyrr en hann hefur endurheimt þann hluta sem hann skildi eftir á hinni fögru Tri- nidad. Þórhallur Már Sigmundsson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. DESEMBER 1989 47

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.