Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 48
I
I
i;
;
íé>»
I II ■ 1,,'mM| 1.HBBDT ■ r
Frá Leningrad.
Við Rauða torgið.
Nýjar leiðir að opnast
til Sovétríkjanna 1990
Tallinn, Ríga, Gudauri og Nord Kap frá Helsinki
Járntjaldið er að lyftast og árið
1990 verða nýjar Rússlands-
ferðir í boði. Hingað til hefur
ferðaval verið takmarkað inn í
þetta geysistóra land. En Hels-
inki er að opna „Rússlands-
hliðið“ til lítt þekktra áfanga-
staða, með flugi, rútu, lest eða
skipi. Á dagskrá eru 3.-4. daga
ferðir til Leningrad. Fimm
daga lestarferðir til Moskvu.
Þriggja daga skipsferð til Tall-
inn, höfúðborgar Eistlands. Til
Rígu, höfuðborgar Lettlands.
Gudauri í miðjum Kákasusfjöll-
um og sex daga rútuferð til
Nord Kap.
Leningrad er ein fyrsta heims-
borgin, sem byggð var samkvæmt
skipulagi. Undir vernd Péturs og
Páls virkis var grundvöllur lagður
að heilagri Pétursborg og borgin
er heimsþekkt sem „eitt stórt
listaverk". Stærsta listaverkið er
Vetrarhöllin sjálf, sem geymir að
auki tvær og hálfa milljón ein-
stakra listaverka. Nevsky Pro-
spekt er líflegt verslunarstræti
með mörgum veitingahúsum. Og
hijómleikar og leiksýningar í Len-
ingrad eru vinsælar. Ailir þekkja
Rauða torgið og Kreml í Moskvu,
jafnvel þeir sem aldrei hafa komíð
þangað. Flestir hafa líka heyrt
um Boíshoi-leikhúsið, Moskvu-
sirkusinn og Moskvusöfnin sem
geyma aiþjóðleg menninga-
rauðæfi.
. Litla virkisborgin
Götumálari í Tallinn.
Sovetrikin koma til með að heilla ferðamenn til sín á nýju ári.
Þyrluflug á skíðasvæði
í Kákasusfjöllum.
Ferðir til MoskVu og Leningrad
hafa verið á dagskrá. En Tallinn,
höfuðborg Eistlands er lítt þekkt.
„Lítil borg, sem líkist stóru virki“,
var lýsing á Tailinn, þegar hún
birtist fyrst á heimskortinu 1154.
Tallinn geymir sögu Eistiendinga,
sem spannar 1000 ár. í efri hluta
Taliinn stendur Toompea-kastalí
og hin stórbrotna dómkirkja, sem
ber skjaldarmerki í tréristu á
veggjum sínum. Ráðhúsið frá 14.
öld, er í neðri borgarhluta. Efst á
ráðhústurni gnæfir Gamli Tómas,
vemdari Tallinn. Tallinn er al-
þjóðleg hafnarborg og viðskipta-
og ferðaþjónustumiðja Eistlands.
Tallinnbúar eyða frídögum sínum
í Kadriorg-garðinum og íþrótta-
. , ..
Á hreindýraslóðúm í Lapplandi.
svæðinu Pirita. Kappróðrar 22.
Ólympíuleikanna voru haldnir í
Pirita. Borgin geymir enn and-
rúmsloft gamla tímans. Hægt er
að rölta um litlar, þröngar götur
án þess að villast - heimsækja hin
mörgu kaffihús og njóta þjóðlegr-
ar gestrisni.
Litla París Eystrasaltsins
Ríga, hafnar- og höfuðborg
Lettlands við ármynni Daugava
er líka áhugaverður áfangi. Borg-
in telur yfir 800 þúsund íbúa.
Skráð saga hennar nær aftur til
1201. Fjölmargar miðaldabygg-
ingar hafa varðveist í öngstrætum
gamla borgarhlutans. Merkust er
dómkirkjan með sínum litríku,
steindu gluggum og einu stórkost-
legasta orgelverki í heimi. Stærsti
strandbær í Sovétríkjunum, Jur-
mala er 10 km frá Ríga. Inni í
sandöldunum rís hið glæsilega
veitingahús, Juras Pearl (sjávar-
perlan) -með forsal í líkingu við
þilfar á skipi. Lettland fyrri alda
er sýnd í smækkaðri mynd á
útiminjasafni í Jugla. Þar má
skoða gamalt þorp með járn-
smiðju, krá, kirkju og fleira.
Ríga er oft nefnd „Litla París
Eystrasaltsins", tískufrömuðir,
listamenn og málarar safnast
þangað. í gamla bænum eru þægi-
legar kaffistofur, svipaðar kaffi-
húsum í París. Reynið til dæmis
Trispadomit kresli (þrettán stóla),
Palete (pallíetan) eða Lasite. Vin-
sælustu veitingahúsin eru Pie
Kristapa (með afbragðs fæði) og
Put Vejni við hliðina á dómkirkj-
unni. Sigulda, Gaudeamus og
Leningrad í miðbænum eru líka
vinsæl. Gleymið ekki að prófa
heilsudrykkinn „Riga Balsam“.
Hann er sagður lækna 45 ólíkleg-
ustu sjúkdóma!
Skíðasvæði í
Kákasusfj öllum
í miðjum Kákasusfjöllum er
bærinn Gudauri, um 120 km frá
Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Gud-
auri liggur i 2.000 metra hæð,
umkringdur yfir 3.000 metra
háum fjallstindum, þar á meðal
Ebrus, hæsta fjall Kákasus. Gud-
auri-hóteiið er alþjóðleg íþrótta-
miðstöð, sem sérhæfir sig í vetrar-
íþróttum. Gestum eru boðin vest-
ræn þægindi - sundlaug, gufubað
og heilsurækt - og þjóðleg gest-
risni. Þetta fyrsta flokks hótel,
með 122 herbergi, er rekið af
starfsfólki, sem talar mörg tungu-
mái og er í samvinnu við aust-
urríska ráðgjafa. Við arineld fá
gestir tækifæri til að smakka
staðarvín.
Skíðasvæðið er fyrir byijendur
upp i miðlungs skíðafólk. Opnar,
tijálausar brautir gefa útsýni yfir
í ósnortin skíðasvæði, en þangað
er þyrluflug með þá sem vilja
reyna meira á sig. Snjóskilyrði í
Gudauri eru með því besta sem
völ er á. Öruggur skíðasnjór frá
desember fram í apríl. Fullt af
púðursnjó og sólskini! Engin
hætta á snjóflóðum á lyftusvæð-
inu. Fjórar austurrískar stólalyft-
ur ganga upp í fjallið frá hótel-
inu. Dags- eða háifsdagsferðir eru
í boði með þyrluflugi frá hótelinu.
I eins dags skíðaferð eru innifald-
ar fjórar ferðir niður brekkur,
með kannski 5.000 metra hæðar-
mun!
Á eigin vegum í Rússlandi
Snemma árs 1988 var nýr
bílvegur opnaður til Eystrasalts
fyrir bílstjóra á eigin vegum. Veg-
urinn liggur frá Tallinn til Ríga
og þaðan um höfuðborg Litháens
yfir til Minsk í Hvíta-Rússlandi.
Þaðan er hægt að aka til Brest á
pólsku landamærunum eða stefna
í austur til Moskvu. Áhugaverðir
viðkomustaðir til Leningrad eru:
Vitebsk, heimabær Marc Chagail
og hinn aldagamli klausturbær
Pskov. Opnað hefur verið hjói-
hýsaþorp fyrir ferðamenn á tjald-
svæðinu í Ólgino, 19 km frá Len-
ingrad. Sex daga rútuferð yfir
fallegustu hluta Lapplands til
Hvítahafsins og til nyrsta höfða
Evrópu, Nord Kap er líka í boði.
Nauðsynleg skjöl fyrir bílstjóra
á eigin vegum í Rússlandi: Vega-
bréf, alþjóðlegt Ökuskírteini, al-
þjóðlegt skráningarskírteini,
beiðni frá Intourist, leyfisbréf til
að nota bílaleigu- eða lánsbíl,
bílinn verður að vera merktur við-
komandi landi, mælt er með
tryggingu frá sovéska trygging-
arfélaginu Ingostrakh. Annað
tryggingarfélag Sætir ekki tjón á
bíl innan Sovétríkjanna. Og ferða-
menn verða að semja sig að gild-
andi ökureglum á sovésku land-
svæði.
Upplýsingar: Finnsov tours,
Eerikinkatu 3, 00100 Helsinki,
Finnland.
48