Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Side 10
Ljósmyndir: Gísli Sigurðsson ÚTSÝNI yfir bæinn í Hruna ofan af Hrunanum. Yfir íbúðarhúsið ber þéttbýlið á Flúðum, en yfir kirkjuna ber bæjarhúsin í Ási. HRUNI I ARNESÞINGI VALDASETUR Á ÞJÓÐVELDISÖLD OG PRESTSETUR í MARGAR ALDIR Frá þéttbýlinu á Flúðum er aðeins snertuspölur upp að Hruna, en eft- ir að nýr vegur var lagður upp eft- ir sveitinni á greiðfærara landi vestan Högnastaðaása er Hruni ekki í alfaraleið með sama hætti og áður var og alls ekki á krossgötum eins og var meðan reiðleiðir og vöð réðu því hvaða bæir voru við þjóðbraut. Eldri þjóðvegurinn frá Flúðum og framhjá Hruna, Berghyl og Reykjadal er þó ekki síður falleg- ur, einkum spölurinn gegnum Kirkjuskarð. Skammt ofan við Flúðir hækkar landið og vegurinn liggur upp brekkur, en það er ekki fyrr en kemur uppá hæðirnar þar fyrir ofan að bærinn í Hruna kemur í ljós á stalli undir brattri brekku Hrunans. Svo hafa menn nefnt EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON Hvorki er Hruni landnómsjörð né stór jörð og alls ekki víst að bærinn lafi alltaf verið \. )ar sem hann er nú. Hvernig Hruni varð „staður" er ^kki Ijóst, en á þjóð- veldisöld varð Hruni miðstöð í héraðsríki vegna þess að við bæinn skárust reiðleiðir milli vaðana á Þjórsá, Lax- ánum, Hvítá og Tungufljóti. Þessvegna kaus Þorvaldur Gissurarson sér búsetu í Hruna fremur en í Haukadal. klapparhæðina ofan við bæinn. Efst í henni er klettabelti og þar er Hrunakallinn; manns- mynd ef menn vilja kalla það svo, þó er það líklega fremur mynd af tröllkarli. Sigfús Eymundsson ljósmyndari hefur komið að Hruna í tveimur ferðum sínum til staða í Árnessýslu 1884 og 1886. Hann mynd- aði bæinn í bæði skiptin og hefur haft auga íyrir góðu sjónarhorni. Hér er birt eldri myndin og þar sést dæmigerður sunnnlenzk- ur 19. aldar bær af betra taginu, þegar timb- urþilin höfðu fengið vindskeiðai- og bæjarhús- in mynduðu röð sem sneri fram að stéttinni, en kálgarður þar fyi'ir framan. Á myndinni frá 1886 má sjá að húsið sem íjærst er í röð- inni hefur verið gert upp og að þar eru þá komnir tveir hvítmálaðir gluggar; einnig er 1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. DESEMBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.