Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Síða 10
Ljósmyndir: Gísli Sigurðsson
ÚTSÝNI yfir bæinn í Hruna ofan af Hrunanum. Yfir íbúðarhúsið ber þéttbýlið á Flúðum, en yfir kirkjuna ber bæjarhúsin í Ási.
HRUNI I ARNESÞINGI
VALDASETUR Á ÞJÓÐVELDISÖLD OG PRESTSETUR í MARGAR ALDIR
Frá þéttbýlinu á Flúðum er aðeins
snertuspölur upp að Hruna, en eft-
ir að nýr vegur var lagður upp eft-
ir sveitinni á greiðfærara landi
vestan Högnastaðaása er Hruni
ekki í alfaraleið með sama hætti og
áður var og alls ekki á krossgötum
eins og var meðan reiðleiðir og vöð
réðu því hvaða bæir voru við þjóðbraut. Eldri
þjóðvegurinn frá Flúðum og framhjá Hruna,
Berghyl og Reykjadal er þó ekki síður falleg-
ur, einkum spölurinn gegnum Kirkjuskarð.
Skammt ofan við Flúðir hækkar landið og
vegurinn liggur upp brekkur, en það er ekki
fyrr en kemur uppá hæðirnar þar fyrir ofan
að bærinn í Hruna kemur í ljós á stalli undir
brattri brekku Hrunans. Svo hafa menn nefnt
EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
Hvorki er Hruni landnómsjörð né stór jörð og alls ekki
víst að bærinn lafi alltaf verið \. )ar sem hann er nú.
Hvernig Hruni varð „staður" er ^kki Ijóst, en á þjóð-
veldisöld varð Hruni miðstöð í héraðsríki vegna þess að
við bæinn skárust reiðleiðir milli vaðana á Þjórsá, Lax-
ánum, Hvítá og Tungufljóti. Þessvegna kaus Þorvaldur
Gissurarson sér búsetu í Hruna fremur en í Haukadal.
klapparhæðina ofan við bæinn. Efst í henni er
klettabelti og þar er Hrunakallinn; manns-
mynd ef menn vilja kalla það svo, þó er það
líklega fremur mynd af tröllkarli.
Sigfús Eymundsson ljósmyndari hefur
komið að Hruna í tveimur ferðum sínum til
staða í Árnessýslu 1884 og 1886. Hann mynd-
aði bæinn í bæði skiptin og hefur haft auga
íyrir góðu sjónarhorni. Hér er birt eldri
myndin og þar sést dæmigerður sunnnlenzk-
ur 19. aldar bær af betra taginu, þegar timb-
urþilin höfðu fengið vindskeiðai- og bæjarhús-
in mynduðu röð sem sneri fram að stéttinni,
en kálgarður þar fyi'ir framan. Á myndinni
frá 1886 má sjá að húsið sem íjærst er í röð-
inni hefur verið gert upp og að þar eru þá
komnir tveir hvítmálaðir gluggar; einnig er
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. DESEMBER 1998