Alþýðublaðið - 30.11.1995, Page 11
HELGIN 30. NÓVEMBER - 3. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐH)
11
Erindi Páls
Skúlasonar
Næsta mánudagskvöld
flytur Páll Skúlason
heimspekingur fyrirlest-
ur á vegum Siðfræði-
stofnunar. Þessi fyrir-
lestur er sá fyrsti í röð
fyrirlestra sem Páll mun
flytja á næstunni um
umhverfis- og náltúru-
vernd. Þar mun Páll
fjalla um og skýra ýmsar
hugmyndir og viðhorf
sem lögð eru til grund-
vallar í rökræðum um
umhverfismál. Hann
mun meðal annars ræða
nauðsyn þess að gera
skýran greinarmun á
umhverflsverndarhyggju
og náttúruverndar-
hyggju. Fyrirlesturinn
hel'st klukkan 20.00 og
verður í stofu 101 í
Odda.
Fieiri fréttir berast af
störfum Páls Skúlasonar
en Háskólaútgáfan hefur
nýlega sent frá sér
greinasafn hans 1 skjóli
heimspekinnar. i bók-
inni er að finna fimmtán
erindi og greinar sem
Páll hefur samið á allra
síðustu árum. i bókinni
tekst Páll einkum á við
þrjú nregin viðfangsefni:
náttúru, menningu og
mannleg samskipti. I
formála verksins segir
Páll meðal annars: „I
þessum heimi er hvergi
að finna fullkomið skjól
fyrir öflum eyðingar og
lortímingar. Skjól heini-
spekinnar er hér engin
undantekning. Þangað
kann samt að vera gott
að leita stund og stund
til að fá ráðrúm til að
velta vöngum yfir eigin
hugsunum og annarra,
hugleiða tilgang og
merkingu hluta og hug-
mynda og leita leiða tii
að lifa betur sem hugs-
andi vera. Heimspeki er
glíma fræðilegrar hugs-
unar við gátur veruleik-
ans.“
Umsagnir
Sæmundar
Guðvinssonar
um bækur
Sigurður A.
Magnússon:
írlandsdagar
Fjölvi 1995
Frásögn Sigurðar er lif-
andi og ve! skrifuð eins
og hans er von og vísa.
Sagan drýpur af hverju
þorpi og frásagnir af
löngu liðnum átökum og
atburðum ásamt lýsing-
um á sögulegum minjum
eru fyrirferðarmiklar. Ir-
landsdagar er afar fróð-
leg og á köflum skemmti-
leg lesning. Sigurður A.
Magnússon hefur gott
auga fyrir umhverfinu og
lýsingar hans á landi og
þjóð bera vott um ein-
lægan áhuga hans fyrir
viðfangsefninu. Það hef-
ur ekki í annan tíma verið
gefin út á íslensku jafn ít-
arleg og vönduð bók um
írland. Bókin er kærkom-
in öllum þeim sem vilja
kynna sér Eyjuna grænu
og gagnast vel þeim er
hyggja á írlandsferð.
Sæmundur Guðvinsson.
.icxj