Alþýðublaðið - 30.11.1995, Síða 12
HVÍTA HÚSIO / SÍA
12
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 30. NOVEMBER - 3. DESEMBER 1995
SUSANNA TAMARO
0á/iie/fc'
Vængir
—* ástarinnar
Danielle Steel
Þýðing: Skúli Jensson
Spennandi ástar- og
fjölskyldusaga eftir
metsöluhöfundinn
Danielle Steel.
SHTBtKi
Ljóð dagsins
Sigurbjöm Einarsson valdi efnið
í þessari veglegu bók eru mörg hundruð
Ijóð eftir 93 íslensk skáld - eitt Ijóð fyrir
hvern dag ársins - og auk þess á hverri
síðu „Orð til íhugunar". Allir sem unna
Ijóðum munu hitta marga vildarvini á
blöðum þessarar bókar. Og víst er að þeir
sem staldra við hjá henni stundarkorn á
hverjum degi munu hafa af því ofurlitla
upplyftingu sem gerir þeim lífið léttara.
Hugljúf lesning hvern dag ársins.
Sannarlega eiguleg bók - og vegleg
tækifærisgjöf.
Fimm læknar segja frá
Önundur Björnsson skráði
Þrautreyndir læknar fara á kostum og segja frá
sjálfum sér, fjölþættum skoðunum sfnum og
læknisferli. En þeir eru: Árni Björnsson, fyrrverandi
yfirlæknir lýtalækningardeildar Landspítalans,
Björn Önundarson fyrrverandi héraðslæknir og
heimilislæknir í Reykjavík, Hrafnkell Helgason
yfirlæknir á Vífilsstöðum, Pétur Pétursson frá
Höllustöðum, heimilislæknir á Akureyri og Þorgeir
Gestsson fyrrverandi héraðslæknir og
heimilislæknir í Reykjavík. í bókinni eru 65 myndir.
Lát hiartað ráða för
Susanna Tamaro
Þýðing: Thor Vilhjálmsson
Þessi bók kom fyrst út í heimalandi
höfundar, Ítalíu, fyrir 18 mánuðum og hefur
selst þar í 2 milljónum eintaka. Hún hefur
nú komið út á 20 tungumálum og
hvarvetna hlotið frábærar viðtökur.
Amman er dauðvona og skrifar bréf til ungrar dótturdóttur sinnar í Ameríku.
Hún rifjar upp lióinn tíma - og leyndarmálin streyma fram. Segir frá harmsögu
dóttur sinnar, móður stúlkunnar, foreldrahúsum, hjónabandi, skrifar um djúpar
tilfinningar, sorg og gleði.
„Lát hjartað ráða för“ er saga konu sem lifað hefur langan dag og óskar
barnabarni sínu þeirra heilla, að hjartað megi ráða för - áður en það er um seinan.
Thor Vilhjálmsson hefur þýtt bókina af þeirri snilld og orðgnótt sem lesendur
hans þekkja frá verkum hans.
Allt um myndbandstöku
Þýðing: Örnólfur Thorlacius
Ómissandi handbók fyrir alla sem eiga og nota
myndbandsvél (vídeó) eftir hinn heimsfræga
Ijósmyndara og kennara John Hedgecoe.
Efninu til skýringar eru 800 litmyndir.
FREYJUGÖTU 14. REYKJAVÍK
SÍMAR551 7667 - 552 9150
Pétur sjómaður
Ásgeir Jakobsson
Pétur sjómaður er ævisaga Péturs
Sigurðssonar, alþingismanns, sem um þriggja
áratuga skeið setti mikinn svip á stjórnmála-
og verkalýðssögu landsins og var alþjóð
kunnur sem „Pétur sjómaður".
Saga Péturs Sigurðssonar er sjómannssaga,
framkvæmdasaga, verkalýðs- og
stjórnmálasaga - og er þá eftir maðurinn
skrautlegur en Pétur háði um tíma harða
baráttu við Bakkus. Bókina prýða 120 myndir.
Pétur sjómaður er 21. bók Ásgeirs
Jakobssonar en meðal ævisagna hans má
nefna metsölubók síðasta árs, Óskars sögu
Halldórssonar.
Svona erum við
Ný falleg, litprentuð bók sem
varðveitir minningar um barnið
frá fæðingu og fyrstu árin. Bók
sem verður örugglega skoðuð
aftur og aftur.
Þýðing: Örnólfur Thorlacius
Þessi bók er einkum sniðin að ungum
lesendum frá 6 til 12 ára.
- Myndskreytt fróðleiks- og uppsláttarrit.
Dagbók barnsins
Umsagnir
Hrafns
Jökulssonar og
Kolbrúnar
Bergþórsdóttur
um bækur
Gylfi Gröndal:
Ég skrifaði mig
í tugthúsið
Valdimar Jóhannsson
uuitauiyciaiitii ouyii iva
Forlagið 1995
Valdimar Jóhannsson var í
áratugi umsvifamikill út-
gefandi. Hann stofnaði Ið-
unni og rak fyrirtækið ein-
samall framanaf, hafði af-
drep fyrir það í dálítilli
skonsu. Iðunni óx fljótlega
fiskur um hrygg og var um
tíma öflugasta bókaforlag
landsins. Gylfi Gröndal
hefur unnið framúrskar-
andi verk: púslað saman
heimildum af ýmsu tagi og
viðtölum við Valdimar af
natni og trúnaði við sögu-
hetju sína. Frásögnin er oft
og tíðum stórfróðleg og
margir kunnir menn koma
við sögu.
Hrafn Jökulsson.
Isabel Allende:
Paula
Tómas R. Einarsson
þýddi
Mál og menning 1995
Mesti styrkleiki þessa verks
er sterk persónusköpun,
ásamt tilfinningaríkri tján-
ingu, sem brýst fram á svo
einlægan og sannfærandi
hátt að lesandinn kemst
ekki hjá því að vera gagn-
tekinn af verkinu. Þetta er
ein þeirra bóka sem menn
gefast ekki upp á að lesa.
Þetta er bók sem heldur
mönnum við efnið, ekki
einungis meðan þeir lesa
hana heldur einnig í þó
nokkum tíma eftir lesturinn.
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Súsanna Svavarsdóttir:
Skuggar vögguvísunnar
Forlagið 1995
Meginvandi höfundar er sá
að hann gerir sér enga
grein fyrir eigin vangetu,
en hún blasir þó við les-
endum á hverri síðu. Því
harmrænni sem þjáningu
persóna er ætlað að vera
því hlægilegri verður hún.
Því ákafari sem losti og
gredda persóna er því af-
káralegri verða lýsingar
höfundar. Afleiðingarnar
eru þær að verkið minnir
hvað eftir annað á skop-
stælingu. Þess vegna skell-
ir lesandinn upp úr, einmitt
þegar höfundi er hvað
mest mál.
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Björn Th. Björnsson:
Hraunfólkið
Mál og menning 1995
Þó mér þyki sitthvað skorta
þá er þetta langt frá því að
vera slæm bók. Hún er afar
vel stíluð, enda er Björn
Th. einn okkar bestu stíl-
ista. I henni er samankom-
inn mikill sögulegurfróð-
leikur og því ættu flestir að
vera einhverju nær eftir
lesturinn. En um leið skort-
ir skáldsöguna nokkuð til
þess að vera verulega
minnisstæð örlagasaga.
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Kormákur Bragason:
Auga fyrir tönn
Hekluútgáfan 1995
Það er efnið sem afveiga-
leiðir höfundinn. Hann
eigrar um, stefnulaust,
með söguefnið í farteskinu
og gónir á kynferðisþátt-
inn, sem hann bisast við
að gera sem subbulegast-
an. Þar lukkast honum er-
indið svo vel að á enda-
sprettinum fyllist bókin af
kynferðislegu óráðshjali,
svo umfangsmiklu, að það
hlýtur að slá út af laginu
jafnvel ötulustu hugar-
smiði í þeim efnum.
Kolbrún Bergþórsdóttir