Alþýðublaðið - 30.11.1995, Síða 13
HELGIN 30. NÓVEMBER - 3. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
13
Ásgerður
sýnir í
Ingólfs-
stræti 8
I dag opnar sýning á verkum
Asgerðar Búadóttur í Ingólfs-
stræti 8. Asgerður er löngu
Hún er einn virtasti listamaður
landsins og sýningin er hennar
11. einkasýning, sérstaklega
unnin fyrir Ingólfsstræti 8. Sýn-
ingin ber heitið Þrettán stökur Ásgerður Búadóttir opnar 11.
og stendur til 22. desember. einkasýningu sína í dag.
Nýtt ljóðskáld
sendir frá sér bók
Fann
rétta
f ormið
- segir Ólöf Jónsdótt-
ir sem hefur lagt fram
Frumvarp til Ijóða.
„Ég var alltaf í ríminu en
þegar ég lærði að lesa órímuð
ljóð þá opnaðist mér nýr heim-
ur. Mig langaði til að gera ljóð á
auðmeltri íslensku þannig að
hvert bam gæti séð í þeim ein-
hvem kjama sem mér finnst að
tapist oft í miklu málskrúði,"
sagði Ólöf Jónsdóttir í spjalli
við Alþýðublaðið.
Ólöf hefur sent frá sér sína
fyrstu Ijóðabók sem ber heitið
Frumvarp til Ijóða. I henni em
47 ljóð eða jafnmörg ár og
skáldkonan á að baki. Ólöf
sagði að ljóðagerðin væri sér
frekar sem leikur en að hún
væri að leita að sæti á einhvetj-
um skáldabekk.
„Ljóðin lýsa meðal annars
ýmsu því sem hefur verið að
bijótast um í huga mér en mig
vantaði farveg til að koma þess-
um hugsunum í orð þar til ég
fann rétta formið. Um innihald-
ið verður svo hver og einn að
dæma en ég kem til dyranna
eins og ég er klædd. Mér fannst
það dálítið gaman að á afmæl-
inu mínu í haust sendi 12 ára
gamall sonur minn mér fmmort
ljóðabréf og ef þessi litla Ijóða-
bók mín gæti hvatt fleiri til að
yrkja væri ég ánægð. Dóttir
mín, sem er 14 ára, á kápumynd
Ólöf: Ljóð á auðmeltri ís-
lensku.
bókarinnar og vinkona mín sá
um hönnun,“ sagði Ólöf. Hún
er fædd í Biskupstungum en
bjó lengi á Akureyri áður en
hún flutti til Reykjavíkur.
Fmmvarp til ljóða kostar
1.500 krónur og fæst hjá Ey-
mundsson í Reykjavík og í
Bókabúð Jónasar á Akureyri.
Hér fylgir eitt ljóð úr bókinni:
Herra minn trúr
Ég henti frá mér
hamingjunni
helmingi oftar
en ég kæri mig um
að muna.
Og lexían mín í lífinu
var að læra að elska
mig sjálfa.
Loks er eins og
blessuð skepnan skilji.
Auglýsing frá
menntamálaráðu-
neytinu
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa stöðu í
framhaldsskóla- og fullorðinsfræðsludeild ráðu-
neytisins.
í starfinu felst einkum eftirfarandi:
vinna að þróun iðn- og starfsmenntunar,
vinna að námskrárgerð á sviði iðn- og starfs-
menntunar,
að veita upplýsingar um iðn- og starfsmenntun,
umsjón með sveinsprófum.
Umsækjendur skulu hafa þekkingu á skólastarfi
á framhaldsskólastigi, einkum á sviði iðn- og
starfsmenntunar. Æskilegt er að viðkomandi
hafi lokið háskólaprófi. Laun samkvæmt launa-
kerfi ríkisins.
Umsóknir berist menntamálaráðuneytinu fyrir
15. desember næstkomandi.
Sölukassar opnir til kl. 13:00 á laugardag
ef þú spilar til að vinna
^ Hljómbær • Skeifunni 7 • 533 2500 'Í#
flöPioiNiEER* Vorð Afsl. Stagr.
geislaspilari m/fjarstýringu, PD 203 28.200 6.300 21.900
flAPioMEERhljómtækjasamstæða, N-250 79.750 19.850 59.900
SHARpferðatæki með geislaspilara, QTCD 24.875 7.975 16.900
SHARpferðatæki, WQT 205 13.172 8.272 4.900
SHARpmyndbandstæki, VCA39 43.380 13.480 29.900
WQT 205
N-
533 2500
Jólahvað?
Jólaglögg Alþýðuflokksins
verður haldið laugardaginn
16. desember í Risinu Hverf-
isgötu 105 kl. 20.30.
Veislustjóri:
Bryndís Schram
Dagskrá:
Hrafn Jökulsson flytur
heimatilbúna jólasögu
Leynigestur
Söngur, glens og gaman
Skemmtilega nefndin.
Alþýðuflokksfólk
Reykjanesbæ
Fulltrúaráð alþýðuflokksfélaganna í Reykjanesbæ baðar
til fundar laugardaginn 2. desember kl. 10:00 að Hafnar-
götu 30. 3. hæð.
Fundarefni: Heilbrigðismál
Framsögumenn: Rannveig Guðmundsdóttir
Guðmundur Árni Stefánsson
Fundarstjóri: Reynir Ólafsson
Allir velkomnir
stjórn fulltrúaráðsins.
Jólafundur
Hinn árlegi jólafundur kven-
félags Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði verður haldinn á
A.Hansen þann 30. nóvem-
ber. Boðið verður upp á frá-
bært jólahlaðborð, skemmti-
atriði, upplestur og hugvekju.
Heiðursgestir kvöldsins
verða engir aðrir en hjónin
Jón Baldvin Hannibalsson
og Bryndís Schram.
Mæting er klukkan 20 og vilj-
um við hvetja allar félags-
konurtil að koma og endi-
lega taka gesti með sér.
Skemmtinefndin