Alþýðublaðið - 30.11.1995, Qupperneq 14
14
ALÞYÐUBLAÐIÐ
HELGIN 30. NOVEMBER - 3. DESEMBER 1995
Umsagnir
Sæmundar
Guðvinssonar
og Kolbrúnar
Bergþórsdóttur
um bækur
Taslima Nasrin:
Skömmin
Mál og menning 1995
Éa gæti dijnHgð yjfl bað hér
að tína til eitt og annað sem
betur hefði mátt fara í stíl
og framsetningu höfundar.
Textinn erfjálglegur, eins
og baráttuboðskapur reyn-
ist oft, kannski liggur það
einfaldlega í eðli hans. Bók-
in nær aldrei listrænu flugi
þótt pólitíska erindið sé
beitt. Nasrin ætlaði sér að
snerta samvisku heimsins
og stugga við hinu illa.
Vopn hennar voru ástríðan
og réttlætiskenndin, og er
það ekki ónýtt fylgdarlið. Ég
hefði kosið að listræn ná-
kvæmni og ögun hefðu
slegist í hópinn. En þrátt
fyrir skort á þeirri liðveislu
hefur Nasrin tekist að skrifa
verk sem er nauðsynleg
samviskulesning og kjark-
mikið innlegg í baráttu
gegn öfgaöflum heimsins.
Kolbrun Bergþórsdóttir.
Cees Nooteboom:
Sagan sem hér
fer á eftir
Vaka-Helgafell 1995
Gagnrýnandi The Daily
Telegraph sagði þessa bók
vera meistaraverk og síst
ætla ég að eyða rými í til-
raun til að eyða þeirri skoð-
un, enda talaði ég þá þvert
um hug minn. Það er ein-
faldlega þannig að ég á erf-
itt með að gera mér í hug-
arlund þann listunnanda
sem ekki heillast af þessu
hugvitsamlega, stílfagra
verki... Þetta er verk án
formgalla, skrifað af öryggi
og vitsmunum, án nokkurr-
artilgerðar. Þetta er falleg
saga, stundum tregafull,
stundum kímin, afar heim-
spekileg, ætíð áhugaverð.
Þetta er saga sem er lista-
verk.
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Gyrðir Elfasson:
Kvöldið í Ijósturninum
Mál og menning 1995
Smásagnasafn Gyrðis kem-
ur ekki á óvart, en það er
bókmenntalegur yndisauki.
Það er líklega ekki besta
verk hans, en örugglega í
hópi þeirra bestu. Það stað-
festir enn að þessi ungi
maður er mestur stílisti í
hópi skálda okkar af yngri
kynslóð, og skákar einnig
flestum þeirra eldri. Tækni-
legir yfirburðir hans eru gíf-
urlegir því hann býr yfir ög-
un og næsta óaðfinnanlegu
formskyni... Með þessari
bók bætir Gyrðir Elíasson
engum nýjum víddum inn í
verk sín. Én með þessari
bók hefur hann enn á ný
staðfest að hann er einn al-
besti stílisti okkar og næm-
asti og Ijóðrænasti sagna-
maður okkar.baekur.vik
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Ingólfur Margeirsson:
María - konan bak við
goðsögnina
Vaka-Helgafell 1995
Ingólfur Margeirsson hefur
einstakt lag á að magna
áhrif frásagnar Mariu Guð-
mundsdóttur hvenær sem
færi gefst. Litla þorpið
Deauville við Signuflóa var
athvarf Maríu frá brjálæði
tískuheimsins í París. Þang-
að fór hún „til að finna
sterkan storminn í fangið á
auðri ströndinni, horfa á
dökk skýin æða um trylltan
himininn og villtar öldurnar
hamrandi ströndina meðan
máninn slokknaði og kvikn-
aði á víxl." Þetta er eins og
að horfa á atriði í kvikmynd
þar sem tónlist er notuð til
auka þau hughrif sem verið
er að lýsa.
Sæmundur Guðvinsson.