Alþýðublaðið - 30.11.1995, Page 17
HELGIN 30. NÓVEMBER - 3. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
17
Alþýðublaðið
velur bestu og
verstu bókakápurnar
Þrjár Þrjár
bestu verstu
María, ævisaga Maríu Gudmunds-
dóttur, skrád af Ingólfi Margeirs-
syni. Útgefandi Vaka-Helgafell.
Falleg mynd af fallegri konu. Ein-
faldurfrágangur. Heildarsvipur
einkennist af hreinleika, sem virkar
aðlaðandi.
Ströndin eftir Guðmund P. Ólafs-
son. Útgefandi Mál og menning.
Lætur lítið yfir sér, kannski á
kostnað athyglinnar í bókaflóðinu,
en er mjög falleg í einfaldleika sín-
um.
Vetrareldur eftir Friðrik Erlingsson.
Útgefandi Vaka- Helgafell. Góð
litasamsetning. Kápan er heit,
áberandi. Á henni er ekkert að
finna sem truflar augað og dreifir
athyglinni.
Aðrar
góðar
Ég skrifaði mig í tugthúsið. Ævi-
saga Valdimars Jóhannssonar,
skráð af Gylfa Gröndal. Útgefandi
Foríagið. Myndin vekur forvitni
um innihaldið, en til þess er ein-
mitt leikurinn gerður.
Frú Bovary eftir Gustave Flaubert.
Útgefandi Bjartur. Listræn og heill-
andi kápa sem vekur munúðar-
kennd.
Islenskar tilvitnanir. fíitstjóri Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson. Útgef-
andi Almenna bókafélagið. Klass-
ísk kápa um klassískt efni
Paula eftir Isabel Allende. Útgef-
andi Mál og menning. Eftirtektar-
verð kápa þar sem litasamsetning-
ar skapa draumkennda stemmn-
ingu sem hæfir efni bókarinnar.
Speglabúð í bænum eftir Sigfús
Bjartmarsson. Útgefandi Bjartur.
Óvenjuleg kápa. Falleg um leið og
hún er örlítið grótesk. Vekur for-
vitni um innihaldið.
Um ástina og annan fjára eftir Ga-
briel Garcia Marquez. Útgefandi
Mál og menning. Litaglöð kápa.
Skýr skilaboð frá rómönsku Amer-
íku sem lofa lesandanum fjöri, my-
stík og skemmtun.
Vídalínspostilla. Útgefandi Mál og
menning. Klassískari og íslenskari
getur kápa ekki orðið.
Kanabarn eftir Stefán Júlíusson.
Útgefandi Björk. Litlaus og
óspennandi kápa. Virðist óvand-
virknislega unnin og gefur engin
skilaboð um innihaldið önnur en
þau að það sé jafn óspennandi og
kápan.
Óðsmál. Skráð hefur Goþrún
Dimmblá. Útgefandi Freyjukettir.
Eins fráhrindandi og bókarkápa
getur orðið.
Réttarhöldin eftir Franz Kafka. Út-
gefandi Mál og menning. Þessa
kápu á Kafla ekki skilið. Markaðs-
settur eins og væri hann nútíma
spennusagnahöfundur sem ný-
lega hefði selt æsilegt handrit bók-
arinnartil Hollywood.
Aðrar
slæmar
Andlit öfundar eftir Birgittu H.
Halldórsdóttur. Útgefandi Skjald-
borg. Litasamsetningin er óvenju
smekklaus og tískuljósmyndin
stöðluð og lífvana. Ælugrænn bak-
grunnurinn vekur ekki löngun til
að lesa innihaldið.
Hönd að handan eftir Arlene Sho-
vald. Útgefandi Úrvalsbækur. Lýsir
kannski innihaldi, en er fyrst og
fremst óvenju Ijót og smekklaus.
Hver vill kaupa þessa kápu?
íslensk knattspyrna 1995 eftir Viði
Sigurðsson. Útgefandi Skjaldborg.
Alltof mörgum atriðum troðið inn
á lítinn flöt. Útkoman verður ka-
ótísk.
Óttalaus eftir Jósafat Hinriksson.
Útgefandi Skerpla. Titillinn er nátt-
úrlega galinn. Kápan segir ekkert
nema það að Jósafat óttast ekki
myndavélina.
350 stofublóm. Útgefandi Mál og
menning. Kápa sem er dæmi um
það þegar aðalatriðin drukkna í
smáatriðum.
Veröld Soffíu eftir Jostein Gaar-
der. Útgefandi Mál og menning.
Dauflega og óspennandi.
Þú eða... eftir Kolbrúnu Aðal-
steinsdóttur og fleiri. Útgefandi
Skóli Johns Casablancas og Sup-
erstudio. Er þetta bókarkápa?
Hollvinasamtök
Háskólans
Á síðasta ári stóðu stúdentar að
átaki til eflingar hinum rýra bóka-
kosti Þjóðarbókhlöðunnar. Þar
söfnuðu þeir um 30 milljónum sem
bættu hag safnsins verulega. Nú er
í deiglunni nýtt átak sem mun hefj-
ast sama dag og þjóðarátakinu svo-
nefnda verður formlega slitið,
1 .desember næstkomandi. Al-
þýðublaðið sló á þráðinn til Guð-
mundar Steingrímssonar, for-
manns Stúdentaráðs og forvitnað-
ist um málið.
/ fyrra voru það bœkur í bók-
hlöðuna sem þjóðin átti að sam-
einast um, hvað er það núna sem
þið eruð að bardúsa?
„Nú stendur til að hrinda í fram-
kvæmd gamalli hugmynd sern hef-
ur velkst um alltof lengi og hefur
gengið undir nafninu „Hollvina-
samtök Háskóla íslands." Mark-
mið þessara samtaka verður fyrst
og fremst að opna skólann og færa
hann nær þjóðinni, halda sambandi
við útskrifaða kandidata og aðra
velunnara skólans. Mönnum verð-
ur gert kleift að fylgjast með því
sem er merkilegast að gerast í
rannsóknum og þróun í hverju fagi
og styrkja ákveðin verkefni ef
rnenn hafa áhuga á því. Svona
samtök eru þekkt víða við háskóla
erlendis og hafa gefíst einstaklega
vel, verið bæði háskólunum og fé-
lagsmönnum til mikils gagns.
Okkur fannst korninn tími á lram-
kvæmdir og stúdentar tóku því af
skarið og komu á laggimár undir-
búningshópi með fólki víðs vegar
að úr þjóðfélaginu sem hefur starf-
að ötullega að undirbúningi stofn-
fundarins sem verður nú á morgun
í Háskólabíói klukkan 14:00. Við
ákváðum að slá honum saman við
hin hefðbundnu 1 .desember-há-
tíðahöld og höfum sett saman
nokkuð metnaðarfulla dagskrá
sem við vonum að sem flestir konti
3
Guðmundur: Færum Háskólann
nær þjóðinni.
til að njóta og sýna hug sinn til Há-
skólans um leið.“
Hvað þaifmaður að gera til að
ganga íþessi samtök, erskilyrði að
vera háskólamenntaður?
„Nei, alls ekki. Háskólinn er
eign þjóðarinnar og allir þeir sem
bera hag hans fyrir bijósti geta
gerst félagar. Stofnfundurinn á
morgun er öllum opinn sem hafa
áhuga. Mönnum mun hins vegar
gefast færi á að gerast stofnfélagar
til 17. júní á næsta ári. Það fer svo
átak í gang eftir stofnunina til að fá
félaga í samtökin, það ætti ekki að
verða nokkrum erfiðleikum bund-
ið að ganga í þau, hafi menn hug á
því. Við ætlum að reyna að koma á
fót skrifstofu samtakanna með
starfsmanni eins fljótt og auðið er,
hann mun þá náttúrulega sjá um
þau mál. Árgjöldin ættu ekki að
verða nokkrum ljötur um fót, þau
verða ejnungis 1500 krónur.“
Þakka þérfyrir, Guðmundur, ég
vona að þetta átak gangi jafn vel
og hið síðasta.
„Takk, það vona ég svo sannar-
lega líka.“
Lesendakönnun Alþýðublaðsins
Hver eru eftirlætis
skáldverk þín?
En hver eru best?
Alþýðublaðið efnir til bókmenntakönnunar og hvetur lesendur sína ein-
dregið til að vera með. Könnunin felst í því að lesendur velja annars vegar
þau verk og þá höfunda sem þeim þykja best og hins vegar eftirlætisverk
sín og höfunda. í hvetjum flokki má tilnefna allt að tíu verk og höfunda
(Það má nefna færri nöfn eða verk, en ekki fleiri). Þátttakendur eru beðnir
að raða höfundum og verkum í númeruð sæti. Fyrsta sæti hlýtur sá besti eða
vinsælasti, annað sætið sá næst besti eða næstvinsælasti og svo framvegis.
Könnunin miðast einungis við íslensk verk og höfunda, allt ífá upphafi rit-
unar á Islandi fram á okkar daga. Heildamiðurstöður verða svo birtar í blað-
inu á næstunni - einstök svör eru ekki birt og því þurfa menn ekki að óttast
að auglýsa bókmenntasmekk sinn.
Nefnið eitt til tíu verk eða höfunda
í eftirtöldum flokkum:
Bestu rithöfundar
Eftirlætis rithöfundar
Bestu skáldsögur
Eftirlætis skáldsögur
Bestu Ijóðskáld
Eftirlætis Ijóðskáld
Bestu Ijóð
Eftirlætis Ijóð
Svör má senda eða faxa til Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8- 10, 101
Reykjavík, faxnúmer 562-9244. Dregið verður úr þeim svarbréfum og sá
heppni hreppir Vídalínspostillu sem kom út hjá Máli og menningu á dög-
unum.
Dregið verður úr innsendum svörum og hlýtur
sá heppni/sú heppna sjálfa Vídalínspostillu.