Alþýðublaðið - 30.11.1995, Blaðsíða 20
20
ALÞYÐUBLAÐIÐ
HELGIN 30. NOVEMBER - 3. DESEMBER 1995
Konur taka völdin
Kristín Marja Baldursdóttir:
Mávahlátur
Mál og menning 1995
Mávahlátur er fyrsta skáldsaga
Kristínar Marju Baldursdóttur.
Þetta er saga sem einkennist af
miklu hugmyndaríki og ólgar af
fyndni og fjöri.
Bókmenntir|
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar
Aðalpersónur sögunnar eru tvær
konur. Önnur er hin fagra Freyja
sem kemur frá Ameríku, hefur
nokkuð óhefðbundnar lífsskoðanir
og setur allt á annan endann í litlu
þorpi þar sem hún sest að hjá ætt-
ingjum sínum. Hin er Agga, sem er
á tólfta ári, ákveðin ung stúlka sem
þjónar eiginhagsmunastefnu sinni
ITOLSK VEISLA A FOSTUDAGS OG LAUGARDAGSKVOLD
20. TEGUNDIR Af KÖLDUM FORRÉTTUM Á ANTIPASTI
. *. HLAÐBORÐI, ÞAR MÁ FINNA RÉTTl AF ÝMSUM TOGA MA MARINERAÐ
• GRÆNMETI, GRAFIN VILLIBRÁÐ, FIALLAPYLSU, PARMASKINKU,
KRYDDLEGINN SKELFISK, FYLLTA TÓMATA, FYLLTAR
ÓLÍFUR, DIÚPSTEKTA LOÐNU
OGMARGTFLEIRA.
AOALRÉTTIR
kAlfaskankar ossobuco alla milanese
ORILLSTEIKTU
GIRILLAOU
ÚKLINGUR MEO JÓGURTSÖSU
■PÍMEO FURUHNETUM 06
RRKUOUM
PANNACOTTE MEÐ AVAXTASfRÖPI
SÚKKULAOIRÚLLUTERTA MEO APPELSÍNURJÖMA
Á AOEINS KR. 2200.-
af yfirvegaðri samviskusemi.
Agga er eftirminnilegasta persóna
verksins, einstaklega lifandi '
stúlka, hressileg og full af sjálf-
stæði og frumkvæði. Afinn, hinn
sannfærði krati, stelur þó öðru
hvoru frá henni senunni þegar
hann mætir í land til að lesa Al-
þýðublaðið og halda þrumandi
barátturæður yfir kvenfólkinu á
heimilinu, í líkingu við þessa: „Það
eina sem maður biður um eftir að
hafa velkst um hundblautur
og Firakinn, étandi dragúldna,
maðkaða svartfugla vikum
saman úti á sjó, er að fá að
lesa blaðið sitt í friði. Svo fær
maður ekkert nema djöfulsins
vandræðagang og kjarkleysi
tildurrófa sem gefast upp um
leið og þær fá smágolu framan
í sig. Ég held þið ættuð að
rétta úr kryppunni, aumingj-
amir ykkar, og reyna að
standa vörð um alþýðuna og
betra þjóðfélag með þarfir
hins vinnandi manns í fyrir-
rúmi.“
Kvenpersónumar em ekki
jafnaðarmenn af hugsjón og
því taka þær erindi afans fá-
lega, líta á það sem hveija
aðra sérvisku og umbera af þolin-
mæði. Afinn fær því að athafna sig
að mestu óáreittur, ólíkt öðmm
karlpersónum bókarinnar, sem em
samstundis stöðvaðir raski þeir ró
kvennanna.
í verkinu sitja konur í öllum að-
alhlutverkum og stjóma atburðarás
af festu og öryggi. Karlamir vappa
um sögusviðið, yfirleitt fremur vit-
grannir, gera sér aldrei alminnilega
grein fyrir því hvað um er að vera,
en lifa í þeim hrapalega misskiln-
ingi að þeir ráði eigin örlögum.
Þeir vanmeta vald kvennanna og
enda því sem fómarlömb þeirra.
Bókin er bráðfyndin,
en kímnin hefur
stundum á sér napran
blæ. Persónusköpun
er einkar vel heppnuð,
en persónugallerí
bókarinnar eru
margbreytilegt
og litríkt.
Það er enginn rembingur í þessu
verki. Enginn tilgerð. Verkið er
skrifað af sannri frásagnargleði, í
léttum og Iiprum stfl. Bókin er
bráðfyndin, en kímnin hefur stund-
um á sér napran blæ. Persónusköp-
un er einkar vel heppnuð, en per-
sónugallerí bókarinnar em marg-
breytilegt og litríkt. Sögusviðið er
sjávarþorp í upphafi sjötta áratug-
arins og höfundi hefur tekist að
skapa trúverðugt andrúmsloft og
laða stemmningar liðins tíma.
Þetta er vel unnin skáldsaga,
hugmyndarík, fyndin og sérlega
skemmtileg. ■
Þrjár góðar frá
Kilj uklúbbnum
Verðlaunabók Norðurlandaráðs 1994, skemmtilegasta
skáldsagan 1994 og kjörbók Kínafarans.
Kiljuklúbburinn hefur sent
frá sér þrjár forvitnilegar bæk-
ur. Atburðir við vatn er skáld-
saga sem færði höfundi sín-
um, Kerstin Ekman, Bók-
menntaverðlaun Norður-
landaráðs á síðasta ári. A
Jónsmessunni árið 1974 kem-
ur Annie Raft ásamt dóttur
sinni til smábæjar í Norður-
Svíþjóð og ætlar að setjast að í
sveitakommúnu þar sem elsk-
hugi hennar, Dan er fyrir.
Henni til undmnar kemur Dan
ekki til að taka á móti þeim. I
annarlegri birtu Jónsmessu-
næturinnar ráfa þær mæðgur
Tilboð á hreinlætistækjum
Hitastillitæki.
Mikið úrval af sturtuklefum,
sturtuhornum og hurðum.
= Atkutsáðu ueutið!
Baðkör 17 gerðir.
Stærðir: 100-190 cm.
Handlaugar 17 gerðir
á vegg og borð.
stað í leit að kommúnunni en
finna tjald á árbakka og í því
tvö hroðalega leikin lík.
Sverrir Hólmarsson þýddi
bókina.
Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason var að
margra mati skáldsaga árs-
ins 1994. Þessi ósvífna og
glannalega skemmtilega
bók ijallar um stormasaman
feril listakonunnar Ragn-
heiðar Bimu, en um leið er
óspart hæðst að tískusveifl-
um íslensks menningar- og
listalífs. Þetta er skáldsaga
sem óhætt er að mæla með.
Forboðna borgin er
Tökum að
okkur gerð
skjáauglýsinga
-algjörir snillar!
"555T2 RAÐGREfÐSLUR
i / allt aö 34 mónaöa
L E Jfmritffif
TtL JtUT u as MANA*
Hallgrímur Helgason, þungbúinn
á svip, en það er enginn drungi yf-
ir bók hans, Þetta er allt að koma,
sem nú hefur verið gefin út í kilju.
skáldsaga eftir William Bell. Alex
Jackson er sautján ára skólastrákur
sem fer með pabba sínum til Kína
að taka fréttamyndir fyrir sjón-
varpsstöð. Árið er 1989 og allt í
einu er hann staddur á Torgi hins
himneska friðar í Peking þar sem
kínverski herinn ræðst á náms-
menn sem tala máli lýðræðis og
mannréttinda. Alex verður viðskila
við föður sinn og flýr með mynd-
efni frá atburðunum. Góð sam-
viskulesning fyrir allra Kínafara.
Guðlaug Richter þýddi bókina.
Sími 551 0660
Fax 551 1725
VersliÖ þar sem úrvalið er mest!