Alþýðublaðið - 30.11.1995, Síða 23
HELGIN 30. NOVEMBER - 3. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
23
Einsog gengur
Hrafn Jökulsson skrifar
Líkskurður
í bókmenntum
Ætli nokkur stétt á Islandi sé fánýtari en
bókmenntafræðingar? Ekki misskilja rnig.
Ég segi ekki að bókmenntafræði sé mjög
„þjóðhagslega óhagkvæm" einsog það heitir
á tæknimáli. Bókmenntafræðingar verða
þannig ekki sakaðir um að bera ábyrgð á
kreppu í efnahagslífi eða hruni þorskstofns-
ins. Málið er talsvert alvarlegra. Ég held
nefnilega að íslenskum bókmenntum stafi
meiri hætta af fræðingunum sem við þær eru
kenndar en nokkru öðru. Háskóli íslands út-
skrifar menn á færibandi sem virðist líta svo
á, að bókmenntafræði sé miklu merkilegri
en sjálfar bókmenntimar. Þegar maður les
lærðar greinar eftir unga bókmenntafræð-
inga læðist líka að manni sá grunur, að þetta
fólk hafi litla ást á skáldskap. Ég er að vísu
ekki alveg viss um þetta atriði, af þeirri ein-
földu ástæðu að ungir bókmenntafræðingar
tjá sig yfirleitt ekki á íslensku. Þeir skrifa
ekki heldur á neinu því tungumáli sem orða-
bækur ná yfir og þessvegna get ég því miður
ekki farið með greinar þeirra til löggilts
skjalaþýðanda. Með öðmm orðum: Það
virðist vera markmið flestra bókmennta-
fræðinga að skrifa á máli sem er framandi og
óskiljanlegt öðmm en kollegum þeirra.
Sigurður Nordal ber höfuð og herðar yfir
alla þá sem um bókmenntir hafa skrifað á ís-
lensku. Hann var einn af mestu stílsnilling-
um aldarinnar. (Hinir? Vilmundur land-
læknir, Þórbergur, Sigurbjöm biskup, Mál-
fríður Einarsdóttir, Gyrðir og Laxness.) Ég
hef aldrei rekist á setningu eftir Nordal þar-
sem hugsunin er ekki hnitmiðuð og skýr.
Það leynir sér aldrei eitt andartak, hvort sem
hann lofar eða lastar, að hann ann skáld-
skapnum. Greinar Nordals um íslensk skáld
em skrifaðar af svo mikilli þekkingu og
djúpu innsæi að ekki verður betur gert. Mér
er til efs að íslenskur maður hafi verið sál-
greindur á fullkomnari hátt en Snorri Sturlu-
son í ritgerð Nordals. Sigurður Nordal vissi
nefnilega dálítið sem íslenskir bókmennta-
fræðingar virðast ekki hafa glóm um: Að
skáldskapurinn verður aldrei rifinn úr
tengslum við lífið sjálft. Þetta skilja ekki
anatómíusérfræðingamir í bókmenntadeild-
inni. Þeir líta á skáldskap einsog lík, sem
þeir kryQa af vandvirkni og skrifa um óskilj-
anlegar skýrslur á óskiljanlegu máli. Kunn-
ingi minn í Háskólanum segir mér að Sig-
urður Nordal sé ekki „inn“ hjá kennurum í
bókmenntum. Hann þyki of gamaldags. Það
var nefnilega það. Mér segir nú samt svo
hugur, að hvaða smágrein Nordals sem er, sé
lífvænlegra framlag til íslenskrar bók-
menntafræði en samanlögð afrek líkskurðar-
manna Háskólans í tuttugu ár.
Þegar ég stundaði samkvæmislífið fyrr á
öldinni rakst ég stundum á unga bókmennta-
fræðinema. Tvennt áttu þeir yfirleitt sameig-
inlegt: Þeim fannst mikið sport að vera í
bókmenntafræði og þeir voru afskaplega illa
að sér um íslenskar bókmenntir. Einu sinni
spurði ég konu, sem næstum hafði lokið
BA-prófi, hvaða íslensk skáld 18. aldar hún
Þegar ég stundaði samkvæmis-
lífið fyrr á öldinni rakst
ég stundum á unga bók-
menntafræðinema.
Tvennt áttu þeir yfirleitt
sameiginlegt: Þeim fannst
mikið sport að vera í
bókmenntafræði og
þeir voru afskaplega
illa að sér um íslenskar
bókmenntir.
gæti nefnt mér. Hún hugsaði sig lengi um og
svaraði svo: „Bíddu við, var hann Eggert Ól-
afsson ekki uppi á 18. öld? Þessi þama, þú
veist, sem drukknaði í Breiðafirði. Konan
hans líka. Það var svo ægilega sorglegt."
í þessari ræðu var fólgin öll þekking við-
mælanda míns á íslenskum bókmenntum
heillar aldar. 19. öldin var henni álíka lokuð
bók og sú 18. Að vísu sagðist hún „elska
Jónas Hallgrímsson" en við nánari eftir-
grennslan kom í ljós, að sú ást var einkum
byggð á samkennd hennar vegna ástarógæfu
skáldsins. Þessi bókmenntafræðingur hefði
ekki getað unnið sér til lífs að fara með eina
ljóðlínu eftir Steingrím Thorsteinsson,
Benedikt Gröndal eða Gísla Brynjólfsson.
Hún hafði aldrei lesið Einar Benediktsson.
Stefán frá Hvítadal, Jónas Guðlaugsson - í
einu orði sagt: Eiginlega ekki nokkum skap-
aðan hlut. Hvað var daman eiginlega að læra
í skólanum? Henni fannst greinilega að
blessaður bókmenntaarfurinn væri mestan-
part arfi í skrautjurtagarði íslenskra nútíma-
bókmennta. Hún gat að sönnu sett á langar
tölur um Guðberg og Thor og Svövu, en á
henni var helst að skilja að einn góðan veð-
urdag hefðu íslenskar nútímabókmenntir
orðið til úr engu.
Nú er vert að undirstrika, að þessi ágæti
viðmælandi sker sig á engan hátt úr hópi
ungra kollega sinna, eftir því sem ég kemst
næst. Sjálfsagt eru til bókmenntafræðingar
sem hafa pata af því að þokkalegur skáld-
skapur hafi þrifist á íslandi íyrir daga Guð-
bergs og Thors og Svövu - en þeir láta þá
ekki mikið í sér heyra. Bókmenntadeild Há-
skólans virðist því miður vera lokaður heim-
ur, og þaðan liggja engar líftaugar út í sam-
félag þeirra íslendinga sem em svo útúr-
borulegir og gamaldags að hafa einfaldlega
ást á bókmenntum. Er þá ekki þjóðráð að
leggja deildina einfaldlega niður, áður en
hún leggur niður íslenskar bókmenntir, og
leyfa þessu fólki að finna sér raunveruleg lík
til að þjösnast á. ■
Einn afkastamesti skáldsagna-
höfundur síðustu ára er Birg-
itta H. Halldórsdóttir. Hún er
einn af fáum íslenskum höfundum
sem sérhæfir sig í spennubókum,
en þær eru gjarnan ríkulega krydd-
aðar ástamálum. Nú er komin í
bókaverslariir splunkuný skáld-
saga eftir Birgittu, Andlit öfundar,
og fjallar um
unga Reykja-
víkurstúlku
með
skyggnigáfu.
í samræmi
við nafn bók-
arinnar er
kápan
skreytt með
andlitsmynd
af stúlku - væntanlegu umræddu
andliti öfundar. Það væri ekki í frá-
sögurfærandi nema vegna þess
að aðdáendur frönsku leikkonunar
Sophie Marceau þykjast þekkja
átrúnaðargoð sitt af myndinni.
Marceau er ung, fögur og hæfi-
leikarík og þykir líkleg til að verða
næsta stórstjarna Frakka. En nú er
það semsagt borið á þokkadísina
að hún sé sjálft andlit öfundarinn-
ar...
r
Ivor var þess minnst að 150 ár
voru liðin frá andláti Jónasar
Hallgrímssonar, ástsælasta
skálds íslands. Nú hefur Almenna
bókafélagið sent frá sér litla og
snotra bók, Fegurstu Ijóð Jónasar.
Formaður aðdáendaklúbbs Jónas-
ar, Kolbrún Bergþórsdóttir,
valdi Ijóðin og ritar inngang um
listaskáldið...
r
Urvalsljóð tveggja virtustu
skálda íslands koma út hjá Ið-
unni nú fyrir jólin. Hjá fljótinuer
úrval úr Ijóðum Hannesar Pét-
urssonar. Elsta Ijóðið erfrá 1951
en þau yngstu eru úr bókinni Eid-
hylursem út kom fyrir tveimur ár-
um og færði höfundi sínum ís-
lensku bókmenntaverðlaunin.
Haukur Hannesson, sonur
skáldsins, valdi Ijóðin. Páll Vals-
son bókmenntafræðingur valdi
hinsvegar úr-
valsljóð Por-
steins frá
Hamri í bók-
ina Myndirí
nótt og
morgni sem
spannar allan
feril þjóð-
skáldsins...
Alþýðublaðið - umtalaðasta blað í heimi miðað við fólksfjölda!
Kynningaráskrift - aðeins 750 krónur á mánuði
• Alþýðublaðið leggur áherslu á umræðu um pólitík,
menningu og málefni líðandi stundar. Alþýðublaðið hef-
ur á að skipa hárbeittum og bráðskemmtilegum stílistum
sem láta sér ekkert mannlegt óviðkomandi. • Við bjóðum
nú kynningaráskrift að blaðinu fyrir aðeins 750 krónur á
mánuði. • Vertu með á nótunum og lestu greinar Hall-
gríms Helgasonar, Kolbrúnar Bergþórsdóttur, Hall-
dórs Björns Runólfssonar, Arnórs Benónýssonar,
Jónasar Sen, Sæmundar Guðvinssonar, Guðmund-
ar Andra Thorssonar og Hrafns Jökulssonar. •
Hafðu samband í síma 652 5566, sendu símbréf í 652 9244
eða sendu svarseðilinn til Alþýðublaðsins, Hverfis-
götu 8- 10, 101 Reykjavík.
Alþýðublaðið
- ekki bara
fyrir krata!
i---------------------------------------------------------------1
! Nafn
Heimilisfang
Staður
Póstnúmer
Kennitala
Ég óska eftir að greiða með □ gíróseðli □ greiðslukorti
númer:
Gildirtil: