Vísir - 16.06.1976, Side 3
Miðvikudagur 16. júni 1976
3
Fjölbreytt hátíða-
höld í Kópavogi
Fjölbreytileg hátiðahöld
verða á þjöðhátiðinni I
Kópavogi á morgun. Það er
Skólahljómsveit Kópavogs sem
sér um hátiðina.
Hátiðin hefst kiukkan tiu um
morguninn með leik hijómsveit-
arinnar og þvi næst verður viða-
vangshlaup.
Klukkan 13.30 verður skrúð-
ganga að hátiðarsvæðinu á
Rútstúni þar sem dagskráin
hefst klukkan 14. Þór Magnús-
son, þjóðminjavörður, flytur
ræðu og margir vinsælustu
skemmtikraftar þjóðarinnar
koma fram.
Tónlistip skipar veglegan
sess. Fram koma Skólahljóm-
sveit Kópavogs, Kópa-Dixie
bandið. Björn Guðjónsson leikur
undir einsöng og tvisöng þeirra
Sigriðar Ellu Magnúsdóttur og
Guðmundar Jónssonar.
Hátiðarsvæðið verður skreytt,
merki dagsins seld, veitingar
verða á boðstólnum og dýr úr
Sædýrasafninu til sýnis.
Kynnir verður Jón Múli Arna-
son.
Unglingadansleikur hefst
klukkan 17 við Kópavogsskóla,
Hlekkir leika. Breiðablik keppir
við unglingalandsliðið klukkan
18.
Um kvöldið verður siðan
dansleikur við Kópavogsskóla
þar sem Fress flokkurinn leikur
þar til hátiðahöldum lýkur.
—EKG
Framsóknarflokkurmn
hefur ekki tekið
afstöðu til leigutöku
„Formleg afstaða
hefur ekki verið tekin
til þess i'Framsóknar-
flokknum, hvort taka
eigi leigu vegna veru
varnarliðsins hér, enda
hefur það ekki legið
fyrir,” sagði Þórarinn
Þórarinsson, formaður
þingflokks Fram-
sóknarflokksins I
viðtali við Visi.
Þórarinn kvað það hafa verið
i flokknum talið sjálfsagt mál,
að meðan varnarliðið er hér i
okkar þágu, sé ekki ástæða til að
taka neina leigu. Hins vegar
hefðu bandarikjamenn séð
algerlega um byggingu Kefla-
vikurflugvallar og viðhald hans.
Þeir hefðu gert þaö vegna þess
að þeir þyrftu sjálfir á honum að
halda, en við hefðum um þurft
sjálíir að leggja fram allt það
fjármagn sem til þess þurfti. —
SJ
Kuldakost seinkar varpi
ó Breiðafjarðareyjum
„Fuglar sem byrja
að verpa snemma á
vorin, aðallega bóg-
fuglar eins og t.d. tjald-
urinn, voru seinna á
ferðinni með varpið i
vor en venjulega,”
sagði Ævar Petersen
fuglafræðingur i sam-
tali við Visi. Ævar
stundar nú nákvæmar
rannsóknir á fuglalifi i
Flatey og nágrenni.
„Þetta hefur lika komið
dálitið fram á æðarfuglinum.
Þeir fyrstu byrjuðu að verpa i
byrjun mai, en um þann tima
kom kuldakast. Þá dróst varpið
saman i 1 1/2 vUcu, eða þar um
bil. Nú er þetta komið i eðlilegt
horf og fuginn hefur komið
hingað alveg eins og vant er.
Krian verpti alveg á sama tima
og i fyrra.”
Aðspurður kvaðst Ævar ekki
hafa orði var við að minna væri
um æti hjá fuglunum en venju-
lega og varpið hafi ekki dregist
mikið hjá sjófuglunum. —SJ
ií einum grœnumi
IVísi berast alltaf öðru hverju
dæmi um áhrifamátt smáaug-
lýsinganna i blaöinu.
1 gær hringdi hingað maður og
Ivildi endilega koma auglýsingu
inn i blaðið sem skjótast. Sagð-
ist hann eiga tvo syni og hefðu
þeir báðir ætlað að selja mótor-
Ihjólin sin. Yngri sonurinn aug-
lýsti sitt hjól til sölu i smáaug-
lýsingum Visis, en sá eldri i
öðru siðdegisblaði. Gáfu þeir
báðir upp sama simanúmer fyr- I
ir þá sem hefðu áhuga. Eldri |
sonurinn varð mjög vonsvikinn I
þvi að einungis 8 svöruöu aug- "
lýsingunni frá honum en hins- .
vegar milli 30 og 40 auglýsingu I
yngri bróður hans i Visi. Eldri |
bróðirinn sá að við svo búið I
mátti ekki standa og bað föður
sinn að senda auglýsingu til Vis- I
is þegar i stað, og vonum við að |
hann geti selt hjólið sitt i einum |
grænum. 1
Ólafsfirðingar fara með
„Tobacco Road" suður
Leikfélag Ólafsf jarðar býr sig
nú undir að leggja Reykvikinga
að fótum sér. Það hyggur á leik-
ferð til höfuðborgarinnar og
ætlunin er að sýna Tobacco
Road I Iðnó dagana 21.-22. júni.
Leikfélagið hefur sýnt þetta
stykki viða um Norðurland i
vetur við sæmilega aðsókn og
viðast góðar undirtektir. Þetta
er hins vegar I fyrsta skipti sem
það leggur upp i Reykjavikur-
reisu, og er að vonum mikill
hugur i þeim leikfélags-
mönnum.
Kristinn G. Jóhannsson,
skólastjóri, setur verkið á svið,
en sviðsmynd og annað er unnið
af félögum Leikfélags ólafs-
fjarðar. ÓT/GJ og JF, ólafsfirði.
FIMMTÁN ÁRA
MYND-
LISTARMAÐUR
,,Ég hef nú verið að teikná frá
þvi ég man eftir mér”, sagði
listamaðurinn ungi, Ómar
Stefánsson, i samtali við Visi.
Ómar, sem aðeins er 15 ára,
sýnir nú myndir sinar á Mokka.
Þetta er fyrsta einkasýning
hans, en hann hefur átt myndir
á samsýningu i Garðabæ. Hann
lauk landsprófi i vor, en ætlar i
Myndlista- og handiðaskólann
næsta vetur.
Ómarsýnir 21 mynd á Mokka
og eru það allt oliumyndir. Sýn-
ingin er opin til 3. júli.
— SE
Fjölbreytt starf
sem ætla að taka þátt i leik-
brúðunámskeiði sem haldið
verður i Reýkholti siðar i júni.
íslenskir þátttakendur verða 10,
en kennarar á námskeiðinu eru
frá Austurriki, Danmörku og Is-
landi.
Aðildarfélög Bandalags is-
lenskra leikfélaga eru i dag 66
og hefur fjölgað um 10 siðan
1974. Þau settu á sviö52 leiksýn-
ingar i vetur og fóru i leikferðir
milli byggðarlaga.
I vetur voru haldin á vegum
bandalagsins 12 námskeið i leik-
rænni tjáningu, leiktækni og lát-
bragðsleik hjá hinum einstöku
félögum.
Þetta kemur m.a. fram i
fréttatilkynningu frá bandalag-
inu og segir þar enn fremur að
samstarf atvinnuleikhúsanna
og bandalagsfélaganna hafi
aukist m ikið á árinu og meira en
30 meðlimir Félags islenskra
leikara hafi unnið með félögun-
um.
Væntanlegir eru hingað frá
Norðurlöndunum um 40 manns
1 dag hefst aöalfundur Banda-
lags islenskra leikfélaga og
verður i tilefni af honum sýnt
leikritið Atómstöðin eftir Hall-
dór Laxness, sem Leikfélag
Hverageröis og Selfoss settu
upp. Sýningin er öllum opin og
verður hún i kvöld kl. 21.00 i fé-
lagsheimili Seltjarnarness.
—RJ
Litlir bílar
bestir í endursölu
„Salan gengur eindæma vel hjá
okkur”, sagði Haukur Hauksson
hjá Bilasölunni Skeifunni 11 i
samtali við Visi i morgun. „Góða
veðrið hefur sjálfsagt sitt að
segja og ' held ég aö fólk sé hrætt
við hækkanir”, sagði Haukur.
Visir sneri sér þvi til bilasöl-
unnar P. Stefánsson h.fsem
staðfesti, að hækkun á Austin
Mini bilum væri i vændum i júli.
næst-komandi.
t samtali við aðra bilasala kom
fram, að salan hefur aukist með
vorinu og að litlir bflar eru alltaf
bestir i endursölu.
— SE
Ekki stjórar
Þótt þeir séu margir banka-
stjórarnir á tslandi eru þeir
ekki fleiri en allir þeir
Parisarbúar sem hafa lifi-
brauð sitt af þvi að vera þjón-
ar.
Það var þvi rangt eftir Birni
Matthiassyni haft i blaöinu
fvrir nokkru að fleiri banka-
stjórar væru á islandien þjón-
ar i Paris. Björn mun hafa tal-
að um bankamenn en ekki
bankastjóra, svo að nokkru
hefur munað.
Gera kvikmynd um þekktasta
svartlistarmann Dana
Danski kvikmyndagerðarmað-
urinn Hans-Hendrik Jörgensen og
Tryggvi Ólafsson listmálari hafa
gert kvikmynd um svartlistar-
meistarann og málarann Sören
Hjorth Nielsen og verður hún
frumsýnd i Danmörku innan
tiðar. Kvikmvndin er I litum og
um 20 minútna iöng. Kvikmynda-
fyrirtækið „Minerva Film”
stendur að gerð myndarinnar en
„Statens Filmcentral” mun
dreifa henni.
Hjorth N'ielsen er þekktasti
svartlistarmaður dana og verður
75ára á þessu sumri. Hann hefur
teiknað og málað frá unga aldri
en gegndi einnig prófessorsem-
bætti viö dönsku listaakademiuna
i áratugi. Var hann meðal annars
kennari margra islenskra mvnd-
listarmanna og má af þeim t.d.
nefna Alfreð Flóka, Elias B.
Halldórsson. Eyjólf Einarsson,
Tryggva Ólafsson og Þorbjörgu
Höskuldsdóttur.
Tryggvi Ólafsson Iistmálari hefur i samvinnu við danska kvik-
myndagerðarmanninn Hans-Hendrik Jörgensen gert kvikmynd um
svartlistarmeistarann og málarann Sören Hjorth Nielsen.
Með myndinni um Hjorth
Nielsen hefur Hans-Hendrik gert
kvikmyndir um fjóra mynd-
listarmenn. sem hann hefur sér-
stakar mætur. á. en hinar fjalla
um þá Preben Hornung. Ole
Schwalbe og Robert Jacobsen.Sú
siðastnefnda var sýnd hér i Nor-
ræna húsinu á sinum tima, en tón-
listin við hana er eftir Leif
Þórarinss on.
Mynd þeirra Hans-Hendriks og
Tryggva Ólafssonar hefur hlotiö
mikið lof i dönskum fjölmiðlum.
en hún var sýnd fréttamönnum og
gagnrýnendum nú i vor.
—AHO