Vísir - 16.06.1976, Side 7
SýHendingar
senn á brott
frá Ubanon
Ákveðið hefur verið,
að sýrlandsher, sem
barist hefur við
palestinuskæruliða i
Libanon að undanförnu,
verði þaðan á brott, eftir
þvi sem Abdel Salam
Jalloud forsætisráð-
herra Libýu segir.
„Sú ákvörðun kemur ekki til
endurskoðunar og verður þetta
mál leystá næstu tveim dögum”,
hafði útvarpið i Beirút eftir for-
sætisráðherranum.
Jalloud er meðal þeirra fjöl-
mörgu, sem reynt hafa að miðla
málum í borgarastyrjöldinni i
Libanon. Hann átti i gær viðræður
við leiðtoga palestinuaraba og
Elias Sarkis forseta.
Hann sagði, að hersveitir Sýr-
lands gætu ekki farið fyrr en
gæslusveitir hinna arabaland-
anna væru komnar á vettvang.
,,En það mun ekki íiða á löngu að
svo verði”, bætti hann við.
Collan morð-
óður geð-
sjúklingur
— Virtist sama hvort hann drap eigin
liðsmenn, andstœðinga eða óbreytta
borgara
Málaliðaforinginn
Callan virðist vera
morðóður geðsjúkl-
ingur, sem var sama
hvort hann drap eigin
liðsmenn eða andstæð-
ingana. Hann er nú fyr-
ir rétti i Angóla ásamt
tólf liðsmönnum sin-
um. Krafist hefur verið
dauðadóms yfir þeim
öllum.
Vitni hafa skýrt frá þvl að
Callan hafi notað hvert tækifæri
sem honum gafst til þess að
drepa einhvern. Ef hann gat
ekki drepið óvinahermenn,
myrti hann bara sina eigin Iiðs-
menn, oft aö þvi er virtist ger-
samlega að tilefnislausu.
Eitt vitnanna skýrði frá þvi að
Callan hefði myrt og iátið
myrða sjötiu fanga úr röðum
MPLA, sem hann og félagar
hans voru að berjast gegn.
Fangarnir hefðu veriö settir á
vörubil og keyrðir niður að
Luanda ánni, þar sem þeir voru
allir skotnir til bana.
Annað vitni skýrði frá þvi að
eitt sinn hefðu þeir Callan komið
að þrem hermönnum FNLA, en
þaö var skæruiiðahreyfingin
sem þeir áttu að berjast með og
fyrir. Málaliðarnir komu að
þeim sofandi i húsi nokkru og
Callan skaut þá alla þrjá.
Eigin liðsmenn myrtir.
Þá er það löngu frægt orðið að
hann lét skjóta fjórtán af sinum
eigin liðsmönnum, þegar þeim
leist ekki á að leggja út I bar-
daga. Um leið lét hann skjóta
tvo angólabúa, sem enginn veit
hverjir voru.
i annað skipti skipaði hann
mönnum sinum að fara i ein-
falda röð og afklæðast. Svo skip-
aði hann þeim að hlaupa og hóf
Callan ofursti
um leið skothrið. Tveir mann-
anna féllu.
óbreyttir borgarar voru held-
ur ekki öruggir fyrir þessum
morðóða málaliða. Hann skaut
þá hvenær sem honum dat i hug
og að tilefnislausu.
Einu sinni skaut hann Iika
drenghnokka sem greip I hendi
systur sinnar þegar átti að leiða
hana burt til nauðgunar.
Dómari spurði nokkur vitn-
anna hver hefði verið tilgangur
Callans með öllum þessum
blóðsúthellingum. Þeim varð
svarafátt, nema hvað einn sagði
að tilgangurinn hefði aðeins
verið að drepa sér til ánægju.
Callan borubrattur.
Fyrir réttinum hefur Callan
verið borubrattur. Hann hefur
enga tilraun gert til að bera af
sér ásakanir, heldur þvert á
móti lýst á hendur sér allri á-
byrgð af þvi sem málaliðarnir
gerðu I Angóla.
Sem fyrr segir hefur dauða-
dóms verið krafist yfir mála-
liðunum þrettán. Búist er við að
réttarhöldin standi yfir i nokkra
daga i viðbót. Ekki er nein Ieið
að segja til um niöurstöður
þeirra á þessu stigi.
Rússar hœkka
gjafatoll
Sovétstjórnin hefur
hækkað um allt að fimm-
hundruð prósent, toll á
gjafavörum sem sendar
eru til landsins erlendis
frá. Það eru föt og aðrar
„munaðarvörur" sem
hækka hvað mest.
Það er töluvert mikið um að fólk
sem flutt hefur frá Sovétrlkjun-
um, sendi ættingjum sinum þar i
landi gjafir. Sendandinn greiðir
þá um leið toll af gjöfunum, i
gjaldmiðli öðrum en rúblum.
Föt' hækka mest sem fyrr
segir. Tollur á gallabuxum hækk-
ar til dæmis úr 89 enskum pensum
upp i 7,5 sterlingspund. Tollur á
skóm fer úr rúmlega 1,5
sterlingspundi upp i rúmlega
fimm sterlingspund.
Það voru meira en sextiu vöru-
tegundir á listanum yfir það sem
tollahækkanir ná til. Tollur þre-
faldast á teppum og fjórfaldast á
skautum og skautaskóm.
A listanum voru nokkrar nýjar
vörutegundir. Þar á meðal voru
hárkollur og tilbúin áklæði á bil-
sæti sem fá á sig rúmlega ellefu
punda toll.
Gallabuxur eru meðal þess
varnings, sem falla mun undir
500% tollinn.
Auk þess er i sumum tilfellum
minnkað það magn sem leyfilegt
er að senda. Sem dæmi má nefna
aðhálsklútum „fækkar” úr fimm
í tvo og regnflikum úr tvelm’l
ema.
Grace í stjórn
20th C. Fox
Grace prinsessa af
Monaco verður fyrsta
konan sem á sæti i
stjórn kvikmyndafé-
lagsins 20 th Century
Fox. Hún tekur þar
sæti i júli næstkom-
andi með 7.500 dala
árslaun. Auk þess fær
hún 250 dollara fyrir
hvern fund sem hún
situr.
Prinsessan óðlaðist frægð
sem kvikmyndaleikkona undir
nafninuGraceKelly, áður en
hún gekk að eiga Rainer,
fursta af Monaco. Með henni
veröa framkvæmdastjórar fé-
lagsins tólf, eins og postularn-
afsláttarkort
Afsldttarkort, sem gilda til 8. september, eru afhent
í skrifstofu KRON, Laugavegi 91, DOMUS,
alla virka daga nema laugardaga.
Nýir félagsmenn fá einnig afsláttarkort