Vísir - 16.06.1976, Qupperneq 9
vism Miðvikudagur 16. júni 1976
9
Fáll Heiðar
Jónsson skrifar:
Eitt þeirra atriða, sem vekja
athygli blaðaiesandans, er það,
hvernig áhugamál leiðarahöf-
unda, fréttamanna og jafnvel
bréfritara blaðanna breytast
eftir árstiðum: málefni, sem
fyrir nokkrum vikum voru i
brennidepli og allra augu beind-
ust að, eru nú svo gott sem horf-
in af siðum blaðanna og önnur
komin i þeirra stað.
Agætt dæmi um þetta er
„Geirfinnsmálið”, sem svo
hefur verið nefnt, og tengd,
þ.á.m. rannsóknaraðferðir
þeirra Kristjáns Péturssonar og
Hauks Guðmundssonar,
kenningar þeirra félaga en
einkum þó Kristjáns um
viðáttumikið smyglsamsæri,
þar sem „sterkir aðilar” (ótil-
greindir að sjálfsögðu) stæðu á
bakvið o.s.frv. Þá má einnig
tina hér til málaflokka eins og
orkumál, en um þau sést tæp-
lega stafkrókur þessa dagana,
að frátalinni hugvekju Ragnars
Arnalds i Þjóðviljanum um
helgina: efnahagsmál eru
undantekningarlaust horfin úr
allri blaðaumræðu — nema
hvað Visir birti um daginn
erindi Jónasar Haralz um verð-
bólguna frá þvi i vetur.
Góðar og gildar ástæð-
ur
Vitanlega geta þau málsatvik
verið fyrir hendi, að leiðarahöf-
undar og aðrir skriffinnar blað-
anna sleppa hendinni af hinum
og þessum málaflokkum, til
þess að geta einbeitt sér þeim
mun betur að öðrum málum:
bráðabirgðasamkomulagið við
breta er ágætt dæmi um slikt.
Tæpast opnaði maður svo blað,
að ekki væri þar fjallað um
þetta samkomulag, röksemdir
með þvi og móti og túlkanir
manna á efni þess.
Engu að siður virðist manni
sem full ástæða sé til þess að
hinum ýmsu þáttum efnahags-
lifsins sé einhv. gaumur gefinn
maður hefði svosem ekkert á
móti þvi að heyra hvernig spár
þeirra visu manna við
Rauðarárstiginn um fram-
Ofurlítil upprifjun
annað sannast), né röksemdum
ákæruvaldsins fyrir þessari
löngu innilokun og þaðan af
siður hvers vegna fjór-
menningunum var skyndilega
sleppt — með þvi fororði samt,
að engan veginn væru þeir laus-
ir allra mála.
Hér verður ekki reynt að
gegnumlýsa aðferðir rann-
sóknarvaldsins þótt aðferðir
þess minni mann oft á vinnu-
brögð kollega þeirra i löndum,
sem þekktari eru fyrir annað en
— ef marka má frásagnir
þeirra, sem þar hafa gist. Og þá
skeður hið merkilega, að héöan
frá Islandi -fara tveir rann-
sóknarmenn i ferðalag — vitan-
lega til Spánar — að rannsaka
málið og væntanlega að hjálpa
spánverjunum — og hélt maður
þó að Spánn væri einmitt þaö
landið, sem nóg hefði af „lögum
og rétti”.
Eins og gefur að skilja var
Kristján Pétursson deildarstjóri
annar þessara spánarfara og
Pétur Benediktsson
virðingu fyrir vestrænu réttar-
fari. Er þar átt við þau vinnu-
brögð að loka menn inni — og
biða þess siðan að þeir játi —
samkvæmt þeirri kenningu að
þvi aðeins séu þeir lokaðir inni,
að þeir hafi eitthvað að játa!
Hassmál
En varla hafði öldurnar eftir
„Geirfinnsmálið” lægt, að
fréttir tóku að berast af öðrum
sakamálum og var þar hass-
fólkið komið á forsiðurnar rétt
einu sinni. Ungt par var hand-
tekið á Spáni og reyndist hafa i
fórum sinum hvorki meira né
minna en 14,5kiló af þessu eftir-
sótta efni. Stúlkunni var sleppt
fljótlega — enda einungis i
biltúr — en kauða hinsvegar
stungið i spánskt svarthol, sem
þykja flestum svartholum verri
hann þar meðkominn enn einu
sinni i blöðin — eftir nokkra
hvfld — en ekki fylgdi sögunni
hvort þessi Spánarferð hans
væri farin i vinnutimanum eða
hann hefði varið til hennar hluta
af sumarleyfi sinu. Siðan hafa
fleiri hassmenn fengið ókeypis
gistingu hér heima og rann-
sóknir standa yfir.
Þegar þessar linur eru settar
á blað, hefur Morgunblaðið eitt
blaða fjallað um hassmálin,
umfang þeirra og þann feikna-
lega ágóða, sem vellukkaö
hasssmygl gefur i aðra hönd, i
leiðara. Þar fjallar leiðara-
höfundurinn m:a. um þá þætti
þessara hassmála, sem hvað
minnstur gaumur hefur verið
gefinn i almennri umræðu hér,
a.m.k. fram til þessa, en það er
fjárhagshlið málsins. Hvernig
eru innkaup á tugum kilóa af
vinduna hafi nú staðist: Hvern-
ig verðbólgunni vegni, hvernig
viðskiptakjörin þróist,
gjaldeyrisstaðan o.s.frv.
Þá væri svosem ekkertá móti
þvi að frétta eitthvað af hinum
ýmsu orkuframkvæmdum —
hver var t.d. árangurinn af
ferðalagi dr. Gunnars Thorodd-
sen oikuráðherra um Norður-
land fyrir skömmu — hvernig
leist ráðherranum á störf sinna
manna við byggðalinuna,
Kröflu, boranir iEyjafirði o.fl.?
Þá er ekki neitt, sem mælir
gegn þvi að frétta eitthvað af
virk junarrannsóknum á
Norð-Austurlandi og hvort
menn hafi nú tekið húsið, sem
flutt var upp á heiðar i fyrra
með ærnum kostnaði og enn
meiri fyrirhöfn, i notkun.
Málið, sem hvarf
En fréttaleysið er þó hvað
átakanlegast þegar kemur að
„Geirfinnsmálinu”. Einstaka
sinnum rekst maður á smáfrétt-
ir,sem eiga að tengjast þvi máli
á einhvern hátt — en yfirleitt
má heita tiðindalaust með öllu
af þeim vigstöðvum. Og þó. Um
tima voru fréttir af utanlands-
ferðum rannsóknarmanna —
lengi vel stóð maður i þeirri trú
að þeir góðu menn væru að
ástunda þjóðariðjuna á sólar-
ströndum Spánar, en um siður
upplýstist að þeir höfðu bara
skroppið til Sviþjóðar að hitta
kollega sina — einu tiðindin —
en þá tók einn lögmanna fanga
þeirra, sem enn sitja i' gæslu-
varðhaldi, að gefa út æði
magnaðar yfirlýsingar — sem
Dagblaðið virtist hafa einkarétt
á að birta — fyrst blaða — sbr.
þessa fyrirsögn frá 21. mai sl.:
Rannsóknin í ynísu
sem leiksýning sem
þarfaðstöðva
- tegir Jón
I Oddjon,
En öll blöðin virtust hafa
gleymt þvi, að hinn 10. mai sl.
var fjórum mönnum sleppt úr
gæsluvarðhaldi, þar sem þeir
höfðu setið i hvorki meira né
minna en 105 daga — siöan er
rúmur mánuður og ekkert bólar
enn á neinum upplýsingum um
það, hvort þeir fjórmenningar
hafi varið 105 dögum ævi sinnar
I Siðumúla að ósekju (sem
raunar verður að álita þar til
hassi fjármögnuö — og það i
erlendum gjaldeyri? Það er
augljóst mál, að ekki er sótt um
gjaldeyri fyrir hassi i Lands-
bankanum!
1 vaknar sú spurning.
> hverJTr leggja fram þetta fjár-
magn Er hér um að ræða áam-
> skotafé frá neytendum ffkni-
> e^na. sem gera fulltrúa sína út
> af örkinni til þess að afla ffkm-
efnp erlendis og koma þeim til
r landsms. eða er hér um að
►♦^****** ♦
f ræða skipulagða smyglstart
> senv sem hefur yfir verulegum 1
. flármunum að ráða og hvaðan ,
eru þeir fjármumr þá komnir og
> frá hverjum og hvert *'*'
> hagnaðurinn? í stuttu máli
hér rismn upp skipulagður <
* eiturlyfja smyglhnngur sem á
* hefur yfir að ráða innflutnings
, kerfi til landsms og dreifmgar-1
kerfi hér mnanlands^
Viðvörun bankastjór-
ans
Óneitanlega minna þessi orð
Morgunblaðsins á það, sem sá
góði maður Pétur Benediktsson,
þá bankastjóri, sagði i frægu
útvarpserindi árið 1964: „Það er
örugglega vistað hér eru farin
að myndast bófaféiög, sem
stunda margar tegundir glæpa
og þar sem hver sakamaðurinn
styður annan með ráðum og
dáð”. Lesendur þessara lina
minnast þess kannski, að
Morgunblaðið sá ástæðu tii þess
að birta þetta erindi Péturs
heitins sl. vetur, og ekki verður
annað séð en þau eigi vel viö
nú.
Setning vikunnar:
Höfundur þessara lina hefur
stundum leyft sér að tilnefna til
þessa heiðurs dáh'tið kúnstugar
setningar, en út af þessum vana
(eða óvana) verður brugðið i
þetta skipti. Þvi veldur van-
máttur rannsóknarmanna okk-
ar og sú hræðilega staðreynd, að
mál eins og t.d. „Geirfinns-
málið” virðist enn eins óupplýst
og það var i nóvember 1974.
Pétur heitinn Benediktsson
sagði einnig i fyrrnefndu
útvarpserindi:
islenska rannsóknarlögreglan
ræður ekki við þennan vanda i
dag, þegar af þeirri ástæðu að
hún er of fámenn, en ennfremur
er þörf á sérmenntuðu lögreglu-
liði til þess að fást við þennan
lýð”.
Þessi orð hins látna merkis-
manns gerir höfundur þessara
lina að sinum!
\
Gjafir
streyma
til barna
spítalans
Ilöfðinglegar gjafir hafa
borist Barnaspitala Hringsins,
vegna fimnt ára afmælis geð-
deildar spitalans.
Kvenfélagið Hringurinn gaf
tiu námsstyrki að upphæð kr.
155.000 hverri, og skulu veittir
tveir styrkir árlega.
Ásgrimur Jósefsson færði
deildinni röska hálfa milljón
króna til minningar um eigin-
konu sina Jóninu S. Pálsdóttur,
og verður stofnaður sjóður með
gjöfina sem söfuðstól
Þá gáfu börn þeirra Ragn-
heiðar Jónasdóttur og Arna
Jónssonar frá Múla nýlega
stóra Borgundarhólmsklukku til
minningar um foreldra sina.
-AH.
Nýtt lógmarks-
verð ó karfa
Verðlagsráð sjávarútvegsins
ákvað á fundi sinum s.l. mið-
vikudag nýtt lágmarksverð á
karfa 500 grömm og stærri.
Samkvæmt þvi verður verðið á
timabilinu 8. júni til 31. desem-
ber 1976, 36 krónur fyrir hvert
kilógramm og er hér um 46%
hækkun að ræða.
Sjávarútvegsráðuneyti hefur
upplýst að sjávarútvegsráð-
herra hafi beitt sér fyrir þvi,
með samþykki rikisstjórnarinn-
ar, að stjórn Verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins samþykkti að
hækka viðmiðunarverð karfaaf-
urða frá 8. júni s.l. að telja og til
næstu áramóta. Var það til þess
gert að beina sókn togskipa frá
þorskveiðum að karfaveiðum og
til þess að styrkja rekstarstöðu
togaraútgerðarinnar og auka
atvinnuog framleiðsluverðmæti
i frystihúsum. Á þessum grund-
velli samþykkti Verðlagsráð
sjávarútvegsins fyrrgreinda
hækkun á karfaverðinu.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
lagt mikla áherslu á, i samandi
við þessar ákvarðanir, að veiði-
ferðir togveiðiskipa á karfa-
veiðum standi ekki i lengri tima
en 13 daga til þess að tryggt
verði gott hráefni i framleiöslu
karfaflaka fyrir Bandarikja-
markað, sem skila á miklum
verðmætisauka.
Rikisstjórnin samþykkti i
ljósi þess að ábyrgjast getu
Verðjöfnunarsjóðs til þess að
risa undir greiðslum úr sjóðn-
um, sem kunna að leiða af
hækkun viðmiðunarverðsins —
á sömu forsendum og gert var
um ábyrgð rikissjóös til Verð-
jöfnunarsjóðsins á s.l. ári.
—AHO
LÍFSGLAÐIR
SKÓLAKRAKKAR
— Allt starf nemenda i
Vörðuskólanum á sfðasta ári
mótaðist af þegnskap, lifsgleði
og umburðarlyndi segir i til-
kynningu sem Visi barst nýlega
frá skólanum.
1 henni segir einnig, að engin
sia sésett á nemendur sem óska
þess að ganga inn i skólann eða
einstakar deildir hans, svo að
þeir kynnist auðveldlega þver-
skurði þess mannlifs, sem biði
þeirra utan veggja skólans.
Vörðuskóla var slitið fyrir
skömmu. 1 skólanum voru á sið-
asta vetri tæplega 400 nemendur
i 3. og 4. bekk gagnfræðaskóla
ogauk þess tvær deildir i 1. bekk
menntaskóla. Gert er ráð fyrir
að skólinn starfi á likan hátt
næsta vetur.
Niu nemendur hlutu sérstaka
viðurkenningu fyrir góða
frammistöðu. Þau Birna Krist-
björnsdóttir, Málfriður A. Páls-
dóttir og Gylfi M. Einarsson
hlutu bækur frá þýzka sendiráð-
inu. Bækur frá danska sendiráð-
inu hlutu Eirikur Steingrimsson
og Hildur Björnsdóttir. tslensk-
ar bækur frá skólanum fengu
þau Ölafur S. Indriðason, Einar
Ólafsson. örn Arnarson og
Ragnhildur Hjartardóttir, en
hún varð skóladúx.
—AHO
Smáauglýsingar Visis
Markadstorg
tækifæranna