Vísir - 16.06.1976, Side 11
n
YÍSIR
Miðvikudagur 16. júni 1976
c
----------▼------------\
Þorvarður llclgason. J
V ^
Lilla teatern i Helsinki gistir
Reykjavik i þriðja sinn og nú i
kjallara Þjóðleikhússins. Leik-
ararnir eru aðeins tveir, Roland
Hedlund og Borgar Garðarson
sem þvi miður fyrir leikhúsið i
Reykjavik vinnur i Helsinki.
Viðfangsefnið er langur ein-
þáttungur eftir Athol Fugard,
John Kani og Winston Ntshona.
Einþáttungurinn lýsir lifinu i
Suðurafriku. Leikhúsgestir eru
strax settir i spor hinna inn-
fæddu, þeim er afhent vegabréf
og þegar þeir ganga inn i salinn
er vegabréfið stimplað af lög-
reglunni — vegabréfið er þýð-
ingarmesti hluturinn i lifi suð-
urafrisks negra.
Sýningin hefst með þvi að lög-
regjumennirnir tveir segja
nokkrar skopsögur sem munu
lýsa afstöðu margra þarlendra
hvitra manna til svertingja. Sið-
an er blaðinu snúið við og við fá-
um að kynnast suðurafrískri til-
veru frá hinum sjónarhólnum,
sjónarhóli svertingjanna.
Höfundarnir hafa greinilega
meðtekið þann listræna þroska
að góðu máli verður ekki endi-
lega lagt lið með þrúgandi al-
vöru, leikritið er hrifandi
öll er látin
skemmtilegt, listgripum þannig
beitt að leikhúsgestir hafa alltaf
listræna ánægju af þvi sem þeir
sjá og heyra samtimis þvi sem
þeir meðtaka hinn beiska boð-
skap — en samkvæmt upplýs-
ingum i leikskrá munu orðin
sizwe bansi þýða þjóðin öll, en
heiti einþáttungsins er: Sizwe
Bansi er látinn.
Aðferðin er mikillar þakkar
verð og ætti að vera holl lexia
fyrir margan boðskaparpostul-
ann sem álitur að gott leikhús og
ritstjórnargrein geti verið eitt
og hið sama — leikverk verður
að hrifa, vera skemmtilegt,
halda athygli fólks vakandi, ef
það gerir það ekki fer illa fyrir
þvi — sama hve málefnið er
gott.
Leikrit um negra i Suðuraf-
riku, leikið af finnskum svia og
islendingi! Hvernig? Leika þeir
negra? Já og nei. Þeir leika að
þeir séu negrar án þess að reyna
að þykjast vera raunverulegir
negrar. Það er ekki reynt að
breiða yfir þykjustueðli leik-
hússins, þvi er haldið og það er
notað sem einn af grundvallar-
þáttum 'sýningarinnar, leikhús-
ið er leikhús, ekkert annað, en
leikhúsið sem er aðeins leikhús
verður að lifandi dæmi um eitt-
hvað allt annað og miklu stærra
en það sjálft, hér hversdagslif
svertingja I Suðurafriku og það
verður það raunverulega af þvi
túlkendurnir eru góðir.
Roland Hedlund er snjall leik-
ari býr yfir tæknilegu öryggi og
innri sveigjanleik til t.d. að geta
á sekúndubroti farið trúlega úr
einu hlutverki i annað.
Borgar Garðarson sýnir á á-
hrifamikinn hátt þá hæfni sem
var komin vel i ljós áöur en
hann fór utan: að geta skapað
trúverðuga og sterka persónu
innan frá, fyllt út i sérstæða per-
sónu með litlum ytri meöölum.
Það var ekki siður ánægjulegt
að njóta listar hans en Hed-
lunds.
Leikstjórinn Gustav Wiklund
hefur áreiðanlega valið i sam-
ráði við leikarana þá leið sem að
ofan er nefnd: þessir hvitu
menn eru ekki að reyna að sýn-
ast raunverulegir svertingjar —
og það er ákvörðun sem hefur
gert sviðsetninguna einfaldari
frá einu sjónarmiði en erfiða frá
öðru: þrátt fyrir þetta varð hún
að verða algjörlega eðlileg, á-
reynslulaus og bitur i skopleik
sinum.
Það hefur tekist’, heildin er.
góður listrænn árangur, verkið
flytur góðan boðskap.
Hvað vill fólk meira?
Orlof
húsmœðro
Bœtt aðstaða fyrir
hjartasjúklinga
Fyrirtæki sem ekki vill láta
nafns sins getið hefur afhent
Borgarspitaianum tæki til gjör-
gæsiu á hjartasjúklingum.
Tæki þessi eru mjög fullkomin.
Gera þau það að verkum að hægt
er að fylgjast með mörgum sjúk-
lingum samtimis frá miðstöð sem
Úrslita hugmyndasamkeppni
um aðalskipulag Seitjarnarness
er að vænta 17. júni. Þann dag
mun formaður dómnefndar, Karl
B. Guðmundsson gera grein fyrir
Félag ungra jafnaðarmanna
harmar fljótfærni isienskra
stjórnvalda að ganga til samn-
inga viðbreta. Alita ungir jafnað-
armenn að ekki sé um neitt að
Rútubilar Flugleiða sem aka
farþegum á Keflavikurflugvöll
munu hér eftir stansa á tveimur
stöðum á leiðinni, við Ásgarð i
Garðabæ og við gatnamót
Reykjanesbrautar og Flata-
hrauns i Hafnarfirði.
Þetta á þó aðeins við um leiðina
staðsett er i vaktherbergi sjúkra-
deildar.
Samtals eru þessi tæki að verð-
mæti 2 milljónir króna og bæta
alla aðstöðu til læknismeðferðar
fyrir hjartasjúklinga.
Á myndinni eru tækin ásamt
forráðamönnum Borgarspital-
ans.
úrslitum og afhenda verðlaun.
Mjög góð þátttaka varð i hug-
myndasamkeppninni og bárust
alls 12 lausnir.
semja þar sem ástand fiskistofna
gefi ekki tilefni til sliks.
t lok ályktunar sinnar segja
ungir jafnaðarmenn að tslands-
mið séu fyrir islenska sjómenn.
suðureftir en farþegar frá Kefla-
vik þurfa að aka alla leið að Loft-
leiðahóteli.
Eftir að þessi nýskipan hefur
komist á verður ekki stansað á
öðrum stöðum á leiðinni milli
Reykjavikur og Keflavikur.
Orlofsnefnd húsmæðra i
Reykjavik rekur orlofsheimili
sitt að Laugum i Dalasýslu I
sumar.
Starfsemi þessi hefur notið
mikilia vinsælda og aðsókn auk-
istár frá ári. Framlag til orlofs-
ins hefur verið frá riki og við-
komandi sveitarfélagi til þessa.
Rétt til þess að sækja um orlof
húsmæðra hefur hver sú kona,
sem veitir, eða hefur veitt heim-
ili forstöðu án launagreiðslu
fyrir það starf.
Þar sem aðsókn er svo mikil
sem raun ber vitni er sú regla
höfð á, að sú kona gengur fyrir,
sem ekki hefur áður farið i oriof.
Tekið verður á móti umsókn-
um að Traðarkotssundi 6, alla
virka daga frá eitt til sex.
Undanfarin sumur hefur or-
lofsnefndin staðið fyrir rekstri
barnaheimilis i ágústmánuði,
að Saltvik á Kjalarnesi, .fyrir
börn á aldrinum 4-7 ára og svo
mun einnig verða i sumar.
—SE
Keramik-
sýning í
Keflavík
P’arandsýning á nokkrum sér-
unnum keramikmunum frá Glit
h.f. hefur veriö sett upp fimm
sinnum, bæði i Reykjavik og
annars staðar. Sýningin veröur
nú sett upp i sjötta sinn i
versluninni Kyndli, Keflavik og
hófst hún á sunnudag.
Á sýningunni eru sérstaklega
kynnt verk eftir Sigurð Hauks-
son og Huldu Mariusdóttur, sem
eru fastráðnir hönnuðir hjá fyr-
irtækinu og Yoshitaka Esashi,
sem i eitt ár hefur starfað sem
gestahönnuður. Auk þeirra eiga
Magnea Hallmundsdóttir, Þór-
ey Brynjólfsdóttir og Paul
Martin nokkur verk á sýning-
unni.
Glit h.f. er nú orðið eitt af
stærri fyrirtækjum i útflutn-
ingsiðnaðinum, með 35 manna
starfslið og fjölbreytt vöruúr-
val. Helstu viðskiptalönd þess
eru Noregur, Sviþjóð, Dan-
mörk, Tékkóslóvakia, Þýska-
land o.fl.
—AHO
Seltjarnarnesið endurskipulagt
Stjórnvöld voru fljótfœr
AUKIN ÞJÓNUSTA
HJÁ FLUGLEIÐUM
Nýkomin handrit
sýnd í Árnagarði
Sýning á handritum þeim, sem
smám saman eru að berast heim
frá Danmörku, var opnuð s.I.
þriðjudag i stofnun Arna Magnús-
sonar að Arnagarði.
Sýningin er helguð landnámi og
sögu þjóðarinnar á fyrri öldum. 1
myndum eru meðal annars sýnd
atriði úr islensku þjóðlifi, eins og
það kemur fram i handrita-
skreytingum.
Sýningin verður opin i sumar á
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum frá kl. 2-4.
Notar sumarfríið
til gítarkennslu
Gitarleikur er farinn að njóta
sivaxandi vinsælda. Gitarinn hef-
ur Ifka veigamikið hlutverk i tón-
Iistarmenningu samtimans.
Nú ætlar Simon Ivarsson að
fara af stað með sumarkennslu i
gitarleik og stendur hún yfir fram
i september. Simon lauk prófi frá
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar. Nú nemur Simon við Tón-
listarháskólann i Vin.
Námskeið þetta verður opið öll-
um. Aðaláherslan verður á nótna-
lestur og auk þess að leggja und-
irstöðu fyrir hljómáslátt. Innritun
fer fram i sima 75395 milli klukan
fimm og sjö næstu daga.
—EKG
12 til 15 tonn af kexi
Um þessar mundir eru 50 ár liö-
in frá þvi að Kexverksmiöjan
Frón tók til starfa.
Fyrir skömmu voru teknar i
notkun nýjar vélar i verksmiðj-
unni og hefur kexframleiðslan
þegar aukist verulega. Þegar vél-
arnar eru komnar i fullan gang
verður bætt við starfsfólki og far-
ið að vinna á tveimur vöktum.
Búist er við að verksmiðjan muni
eftir það geta framleitt 12 til 15
tonn af kexi á ári.
Kexverksmiðjan Frón hefur
hingað til framleitt 4 tegundir
af matarkexi, tvær af kremkexi
og tvær af súkkulaðikexi. Eftir
breytinguna eru horfur á að unnt
verði að hefja framleiðslu á
hafrakexi og jafnvel kökum.
—AHO
Lýsa andstöðu
við samningana
Bæjarstjórn Neskaupstaðar
samþykkti á fundi sinum fyrir
skömmu að lýsa yfir fyllstu and-
stöðu viö þá samninga sem rikis-
stjórnin hefur nú gert við breta.
Bæjarstjórnin telur það alger-
lega óverjandi, að nú þegar við
blasir, að islendingar verða að
takmarka eigin veiðar vegna
ógnvekjandi ástands fiskistofn-
anna við landið, skuli bretum, og
reyndar um leið vestur-þjóðverj-
um, tryggður áfram meiri afli en-
þeir hefðu náð án samninga.
Það alvarlegast við þessa
samninga sé þó að þar sé ekki
gert ráð fyrir neinni framtiðar-
viðurkenningu af hálfu breta á yf-
irráðarétti okkar yfir islensku
fiskveiðilandhelginni. Þar sé
heldur ekki nein trygging fyrir
þvi að bretar láti af kröfum sinum
um áframhaldandi veiðar hér við
land.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar
tekur undir þá kröfu, að Alþingi
verði nú þegar kvatt saman til að
fjalla um öll efnisatriöi land-
helgissamninganna.
—SJ