Vísir - 08.07.1976, Síða 6
Fimmtudagur 8. júli 1976 VISIR
Lendingu
Víkings
frestað
aftur
Lendingu geimfarsins Vikings
1. á Mars hefur veriö frestaö i
annaö sinn. Geimfariö átti aö
lenda á ákveönu svæöi 17. júli.
Þetta svæöi leit vel út á myndum.
En þegar radar geimfarsins fór
aö kanna þaö, kom i ljós aö þaö
var of hrjúft.
Stjórnstöö Vikings 1. i
Pasadena i Kaliforniu upplýsti i
gær aö þriöja svæöið heföi veriö
fundiö, og mætti búast viö
lendingu á þvi i kring um 20. júli.
Vikingur fer nú til aö kanna þetta
svæöi meö myndavélum og
radar.
Radar geimfarsins er svo
nákvæmur, aö hann „finnur”
mishæöir sem eru ekki nema einn
metri.
Flóttakonurnar lík-
lega enn i V-Berlfn
Lögreglan í Vestur-
Berlin telur að flótta-
konurnar fjórar sem
struku þar úr fangelsi i
gær, séu i felum i borg-
inni. Þrátt fyrir 45
minútna forskot telur
lögreglan óhugsandi að
konurnar hafi komist til
Vestur-Þýskalands áður
en landamæravörðum
var gert viðvart. Frá
Berlin eru 178 km.
Enn hefur engin skýring fengist
á hvernig konurnar f jórar komust
út úr klefum sinum. Þeir voru
læstir, og aöeins hægt aö opna aö
utanverðu. Ein konan hafði
byssu, sem hún notaði til að ógna
tveimur kvenfanga vöröum.
Fangarnir fjórir læstu klefunum
á eftir sér, þannig aö þær hafa
haft lykla. Þær komust siðan út úr
fangelsinu með þvi að klifra yfir
fangelsismúrinn á samanhnýtt-
um sængurfatnaði.
Fangaverðir fangelsisins hafa
verið leystir frá störfum meðan
rannsókn fer fram á flóttanum.
Konurnar fjórar sem sluppu,
sátu allar inni fyrir aðild að
hryöjuverkum. Ein þeirra, Inge
Viett, 32 ára fyrrverandi fóstra,
var einn þeirra fanga sem
hryðjuverkamennirnir á Entebbe
flugvelli I Uganda heimtuöu
lausa. Gabrielle Rollnick, 21 árs,
og Juliane Plambeck 23 ára, sátu
inni vegna þátttöku i ráninu á
Peter Lorenz. Monika Berberich,
33 ára, var félagi i Baader-Mein-
hof hryöjuverkahópnum.
Flótti kvennanna virðist hafa
verið vel skipulagður, og með að-
stoð utanfrá. Fyrir utan
fangelsismúrana virðist bill, eða
bilar, hafa beðið eftir þeim. Til að
hefta för bila sem kynnu að elta
var stórum teiknibólum stráð á
veginn við fangelsið. Dekk
sprungu á einum lögreglubil.
Þótt fangarnir hafi liklega ekki
komist til Vestur-Þýskalands, þá
gætu þeir hafa sloppið yfir til
Austur-Berlinar með lestinni sem
gengur á milli borganna.
Ef þær eru enn i Vestur-Berlln,
getur það orðið þung þraut fyrir
lögregluna að finna þær, þvi þótt
borgin sé vandlega einangruð inni
I miðju Austur-Þýskalandi, þá
búa um tvær milljónir manna i
henni, og landrými er töluvert.
öryggisgæsla hefur verið sett
um mikilvæga stjórnmálamenn
og byggingar I Vestur-Berlin.
Strax I gær bárust lögreglunni
um 150 ábendingar, en þær leiddu
ekki til þess að hryðjuverka-
konurnar fyndust.
Heinemann fyrrum
forseti horfinn á
fund feðranna
Gustav Heinemann, sem var
forseti V-Þýskalands á árunum
1969 til 1974 lést i gær, sjötlu og
sex ára að aldri. Hann hafði átt
við veikindi að striða og var til
læknismeðferðar á háskóla-
sjúkrahúsinu I Essen.
Dr. Heinemann var af mörg-
um talinn vinsælasti forseti
V-Þýskalands eftir strið.
Sem ungur maöur gegndi
hann herþjónustu við stórskota-
liðiö i fyrri heimsstyrjöldinni.
Heinemann með Willy Brandt, fyrrum kanslara.
Aö henni lokinni hóf hann nám i
lögfræði, hagfræði og sögu við
fjóra háskóla I Þýskalandi, áöur
en hann tók til starfa sem lög-
maður i Essen.
Hann var virkur félagi á
árunum 1928-’30 i samtökum,
sem nasistar seinna meir leystu
upp. Þótt hann yrði fram-
kvæmdastjóri stáliöja i Rin,
fékk hann orð á sig fyrir aö vera
engin undirlægja nasista.
Bredca hernámsyfirvöld leyfðu
honum að halda áfram starfi
sinu eftir strið.
Heinemánn státaði sig af þvi
við vini sina, aö hann var kom-
inn af almúgafólki. Afi hans
hafði verið slátrari, en faðir
hans járnbrautaverkamaður. —
Kunni hann hvergi betur viö sig
en einmitt innan um slikt fólk.
Haföi hann yndi af þvi að sitja
með vinum sinum á bjórstofum,
þegar stund gafst til, og hressa
sig á ölkollu.
Eftir að hann varö forseti,
þótti honum miður, að hann
einangraðist um leið aö nokkru
leyti. „Mér leyfist ekki lengur
að fara með strætó. Né heldur
má ég fara með leigubllum og
spjalia við leigubilstjórana. Ég
fæ ekki einu sinni að sitja I al-
menningsfarrými i lestunum,”
kvartaði hann viö vini sina.
Hann var einn stofnenda
flokks kristilegra demókrata og
var innanrikismálaráðherra I
stjórn dr. Konrad Adenauer
Heinemann varð vinsæll fyrir
glaölyndi sitt og lftiilæti.
kanslara 1949-’50. — Heinemann
sagöi af sér þvi ráðherraem-
bætti vegna ágreinings viö
Adenauer, sem vildi hervæða
V-Þýskalands, en það taldi
Heinemann, að mundi koma i
veg fýrir sameiningu austur- og
vesturhlutans.
Við það lenti Heinemann
utangarös i stjórnmálum. Hann
stofnaði nýjan alþýskan alþýöu-
flokk, til þess aö kjósendur
hefðu fleiri kosta völ, en aðeins
stóru flokkana tvo. Viðbrögð
uröu hins vegar dræm.
Gekk hann eftir þaö i lið meö
stjórnarandstöðunni,
sósialdemókrötum og sat i
stjórn Kurts Kiesingers, kansl-
ara sem dómsmálaráðherra
1966.
Heinemann lætur eftir sig
konu stoa, Hildu, þrjár dætur,
einn son og fjölda af barnabörn-
um.
Amin búinn
að „týna"
74 ára gam-
alli konu
Breskur diplómat var
sendur í snatri til Ug-
anda i gær til að hafa
upp á hinni 74 ára gömlu
Dora Bloch. Hún var
einn gislanna úr Air
France þotunni á
Entebbeflugvelli, en var
á sjúkrahúsi þegar
israelsmenn frelsuðu
hina gislana á sunnu-
dag.
Stjórnvöld i Uganda hafa ein-
faldlega lýst þvi yfir, að þau viti
ekki hvar Dora er, og að þau beri
enga ábyrgð á henni. Dora hefur
bæði breskt og Israelskt vegabréf.
Dora var lögð inn á sjúkrahús
vegna þess að bein festist i hálsi
hennar. Breskur embættismaður
heimsótti hana á sjúkrahúsið I
Kampala daginn eftir að israels-
menn frelsuðu gislana. Þá gættu
tveir menn I borgaraklæðum
hennar. Þegar embættismaöur-
inn kom aftur klukkutima siöar
var honum meinaður aðgangur.
Ted Rowland, aðstoðarutan-
rikisráðherra i bresku rikis-
stjórninni, sagði I Neðri málstof-
unni i gær að rikisstjórnin gæti
alls ekki sætt sig við þá yfir-
lýsingu Ugandastjórnar að ekki
væri vitað um hvar Boch væri að
finna.
Rowland sagðist óttast að frúin
yrði fórnarlamb tyftunaraðgerða
Idi Amins gegn bretum, fyrrum
nýlenduherrum I Uganda.
Breska rikisstjórnin hefur verið
varkár i yfirlýsingum sinum um
aðgerðir Israelsmanna á
Entebbeflugvelli, og má vera að
þar hafi hún haft i huga að enn búi
um fimm hundruð bretar i Ug-
anda.