Vísir - 08.07.1976, Blaðsíða 9
vism Fimmtudagur 8. júll 1976
9
„ALMENNINGUR ORÐINN
JÁKVÆÐARI í GARÐ
SKATTA EN ÁÐUR VAR"
- SEGIR HALLDÓR SIGFÚSSON SKATTSTJÓRI
„Ég held aö segja megi aö
almenningur sé nú yfirleitt
miklu jákvæöari gagnvart
sköttum og skattheimtu en áöur
var. Kannski hef ég þetta þö
aöeins á tilfinningunni. Eöa er
þaö ekki e.t.v. aö renna upp
fyrir fólki, aö rikissjóöur þarfn-
as t skatta, og e f fólk ekki bo rgar
veröur aö senda álagninga-
seölana út á Keflavikurflug-
Halldór Sigfússon skattstjóri.
völl”.Þetta og margt fleira kom
fram er viö litum viö á skatt-
stofunni fyrir stuttu.
Eftir aðhafa rætt stutta stund
viö Halldór Sigfússon skatt-
stjóra gekk hann meö okkur um
alla stofnunina og sýndi okkur
hvernig skattskráin er unnin.
Núna nálgast þaö óöum aö
skattaskráin komi út, „þaö
veröur i kringum þann tuttug-
asta” sagöi Halldór, og þvl datt
okkur þaö I hug aö lesendur
heföu hug á aö skyggnast inn
fyrir veggi skattstofunnar.
Um sjötiu manns vinna
á Skattstofunni
Halldór skattstjóri sagöi
okkur aö á Skattstofunni ynnu
nú um og yfir sjötiu manns.
Nokkuö væri þaö þó breytilegt
eftir annatimum. A leiö okkar
um salarkynni Skattstofunnar
hittum viö Hermann Gunnars-
son, fulltrúa og landskunnan
knattspy rnumann.
Hermann sagöi okkur aö hann
heföi þaö starf meö höndum aö
rannsaka og fara yfir skatt-
framtöl útlendinga, en alls væru
um eitt þúsund útlendingar á
skattskrá i Reykjavik.
Aö sögn Hermanns er þaö
ágætt aö vinna á Skattstofunni,
þarna væri margt ungt fólk, og
félagslif færi vaxandi. Til væri
m.a. félag starfsmanna er héti
þvi mjög vel viöeigandi nafni
Tiund. Starf þess heföi þó fram
aö þessu einkum falist I þvi aö
sjá um árshátiö einu sinni á
vetri. Þá spuröum viö Hermann
einnig hvort starfsfólk Skattstof
unnar yröi ekkert fyrir aökasti
vegna starfsins. Þaö sagöi hann
ekki vera, en oft væri þó aö fólk
vildi fá útskýringar á hinu og
þessu, einkum þegar þaö væri
komiö á skemmtistaöi. En þaö
værireyndar um margar aörar
starfsgreinar, svo sem kennara,
sem sumir hverjir geta aldrei
fariö út án þess aö vera meö
stanslausan foreldrafund fyrir
þá foreldra sem þar væru aö
hanga utan i þeim.
Afram var haldiö, og Halldór
sýndi okkur stóran sal, bar sem
unnið var við tugi skrifborða
Þar var okkur sagt aö samin
væri skattskráin, sem oft vildi
vera fólki leiöinleg lesning um
hásumariö. Þar inn af var aö
finna miklar skjalageymslur,
og eru þar geymd skattframtöl
fyrir siöastliöin þrjú ár. Eldri
skattframtöl færu svo á satn.
Framteljendur milli 40
og 50 þúsund
A rannsóknardeild hittum viö
Ingimund Magnússon, og
útskýröi hann fyrir okkur hvaö
þar er gert.
„I Reykjavik eru einhvers-
staðar á milli fjörutiu og fimm-
tiu þúsund skattframteljendur,
og öll þau framtöl eru tviyfir-
farin. I fyrra skiptiö er fariö yfir
hvortsamlagning og þessháttar
er rétt, en i seinna skiptiö eru
borin saman framtöl og launa-
miöar. Yfirleitt stemmir þetta,
en ef svo er ekki eru geröar
fyrirspurnir, og skattálagningu
hugsanlega breytt,” sagöi Ingi-
mundur.
Ingimundur sagöi okkur
einnig, aö alltaf væru nokkur
brögö aö þvi aö fólk léti áætla á
sig skatta, og skilaöi engu fram-
tali. Undantekningarlitiö kvaö
hann fólk fara verr út úr þvi.
Auk venjulegs skatts fengi
framteljandi þá 15% viðurlög:
eins konar sekt ofan á þaö sem
þegar væri ákveðiö. Þó væru
alltaf um 3% framteljenda sem
kysu að hafa þann kostinn á,
sagði Ingimundur.
Samviska reykvikinga. Inn I þessa geymslu fer ekkert nema aö viðlögum drengskap.
,,Erum ekkert að aug-
lýsa að við séum á
Skattinum”.
Viöspuröum Ingimund einnig
hvort hann heföi einhverntima
orðið fyrir aökasti vegna skatt-
stofustarfsins. „Nei, ekki held
ég það, enda er maður kannski
ekkert aö auglýsa fyrir fólki
hvar maöur vinnur,” sagöi
Ingimundur aö lokum.
Meö þaö kvöddum viö Skatt-
stofuna, en tiú fer óöum aö stytt-
ast, I aö skattborgararnir fái
glaðninginn sinn!. —AH
Ekki vitum viö hvort Hermann er svona ánægöur meö væntaniega
skatta, eöa hvort þaö er tilhugsunin um islandsmeistaratitilinn
sem kætir hann svona.
Hér fer fram rannsókn og yfirferö á skattaframtölum
Unniö af kappi aö yfirferö skattskrár. Ljósm: LOFTUR