Vísir - 08.07.1976, Page 14
Fimmtudagur 8. júli 1976
VISIR
Það vantar eiginlega
ekkert nema stráka
hérna".
sðgðu stúlkurnar á Öskjuhlíð
Þessum kom saman um aö verst væri aö hafa enga stráka — sérstaklega þegar kalt væri I veöri!
Unniö aö gróðursetningu blágrenis.
„Eiginlega vantar ekkert
hérna nema stráka”, sögöu
nokkrar hressar stelpur er viö
hittum einn af vinnuflokkum á
vegum Hitaveitu Reykjavikur-
borgar uppi öskjuhliö um dag-
inn.
Er visismenn bar aö garöi var
allur hópurinn aö gróöursetja
blágreni sunnan I öskjuhliöinni.
Anna Eðvaldsdóttir flokksstjóri
sagöi okkur aö nú i sumar væru
þær búnar aö gróðursetja milli
átta og tiu þúsund plöntur, og
bera aö þeim húsdýraáburö.
Þetta heföi veriö gert mörg und-
anfarin sumur, en alltaf dræp-
ust fáeinar plöntur, og þyrfti þvi
aö gróöursetja aftur i þeirra
staö, sagöi Anna. Siöar i sumar
veröur svo borinn tilbúinn á-
buröur á plönturnar.
„Hérna I hópnum á öskjuhliö
eru núna þrjátiu stelpur, og
tveir flokksstjórar”, sagöi
Anna. „Hin sem er flokksstjóri
á móti mér er bara veik i dag.
Viö vinnum hér fimm daga vik-
unnar frá klukkan átta á
morgnana til fjögur á daginn.
Viö höfum tvo hálftima matar-
tima, sitt hvoru megin við há-
degiö, en venjulegur matartimi
milli tólf og eitt er ekki”, sagöi
Anna ennfremur.
Nú hefur verið unniö viö gróö-
ursetningu I öskjuhliö allt frá
árinu 1953, og mun vera búiö aö
plantaium 30hektara lands. Er
vlöa oröið fallegt um aö litast,
enda er staöurinn mjög fall-
egur.
Þegar viö spuröum um kaup-
iö, var okkur sagt aö þær
fimmtán ára heföu 277 kr. á tim-
ann, en þær sem orönar væru
sextán ára fengju 315 kr. á tim-
ann. Anna flokksstjóri vildi hins
vegar ekki segja hvaö hún heföi
I kaup, en varla er hún alveg
blönk, þvi hún segist ætla aö
fara til Spánar i sumar þegar
þær hætta þann 1. ágúst.
„Þaö er ágætt aö vinna hérna,
en þaö mætti vera miklu meiri
sól en veriö hefur I sumar”,
sögöu þessar hressu stelpur áö-
ur en viö kvöddum.
„Segiö nú sexý!” sagöi biaöamaöurinn um leiö og Jens ljósmyndari smellti af.
„KREBS"
málningarsprautur.
Svissnesk gœði.
,/KREBS" málningar-
sprautur hafa víötækt
notkunarsvið/ allt frá
úðun skordýraeiturs^ til
málunar stórra flata.
Einnig til ryðvarna.
Stimpildrifin sprautun gefur
besta nýtingu á efni og litla
loftmengun.
Splssar meö flötum geisla á
lægsta fáanlega veröi. Allir
hreyfihlutir og spissar úr
hertu stáli og Mangan-Carbide
(Rockwell 80).
Verö frá 7060.-
Sveinn Egilsson h/f,
Skeifan 17, Iðngörðum