Vísir - 28.11.1977, Síða 5

Vísir - 28.11.1977, Síða 5
5 m vism Mánudagur 28. nóvember 1977 Útgjöld fiskvinnslunnar aukast um sjö milljarða: Kauphœkkunin tóm blekking sem veldur enn gífurlegri verðbólgu — segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ Otgjöld fiskvinnslunn- ar vegna 14% kauphækk- unar 1. desember munu nema tveimur milljörð- um króna og um fimm milljarða króna hækkun- ar vegna f iskverðshækk- ana, að því er Kristján Ragnarsson sagði í ræðu sinni á þingi LÍÚ. Hann sagði að hækkun fisk- verðs væri óumflýjanleg til jafns við laun, sérstaklegá þeg- ar til þess er litið að fiskverð hækkaði ekki 1. oktðber þegar laun hækkuðu um 4%. Samtals munu þvi útgjöld fiskvinnslunn- ar aukast um sjö milljarða króna 1. desember eða sem nemur 18% af tekjum, sagði Kristján. „Viðurkennt er af öllum, að fiskvinnslan býr nú við of þröngan kost og er þar af leið- andi engin innistæða fyrir hendi til þess að mæta þessum út- gjöldum. Kauphækkun þessi er þvi tóm blekking og mun aðeins valda enn gifurlegri verð- bólgu”, sagði Ragnarsson. Hann sagði ennfremur að ekki væri að sjá að stjórnendur landsins hefðu sérstakar áhyggjur. Þeir hafi haft á orði að verðbólgan muni vaxa 1. desember ef ekkert verður gert, en engin merki væri að sjá um að gripið verði til ráðstafana til úrbóta. Kristján taldi uppgjöfina fyr- ir verðbólgunni vera orðna svo algjöra aö menn treystu á að öllu veröi bjárgað með stöðugu gengsfalli krónunnar. Þessu ástandi verði ekki breytt nema vinnuveitendur og launþegar verði gerðir ábyrgari fyrir af- leiðingum óraunhæfra kjara- samninga. Þvi fylgi eigna- og atvinnumissir sem muni valda mörgum erfiðleikum. 1 ræðu sinni sagði Kristján Ragnarsson að erfitt væri fyrir vinnuveitendur að gera raun- hæfa kjarasamninga þegar ráð- herrar og stjórnmálamenn gengu fram fyrir skjöldu og lýstu stuðningi við óraunhæfar kaupkröfur og gera verkalýðs- forustunni ókleift að ganga að raunhæfum samningum. „Stjórnmálamenn, sem þann- ig kalla yfir þjóðina óðaverð- bólgu, virðast seint sóttir til ábyrgðar. Rikisstjórn, sem kallar yfir sig verkfall opinberra starfs- manna með veitingu verkfalls- réttar og semur við þá um meiri launahækkanir en á almennum vinnumarkaði, virðist eiga litla möguleika á að hefta veröbólg- una”, sagði Kristján Ragnars- son. — SG Verið velkomin. OLIUVERZLUN ÍSLANDS HF. Þfðstuf Magnúíson

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.